Dagur - 22.09.1999, Page 2
18— MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
GULLKORN
„En auðvitað er
það stundum ill-
þolandi að á Ak-
ureyri skuli orðið
sólskin í reynd
merkja rigning,
þetta veldur oft
misskilningi og
óþarfa öfund
vegna veðurfrétta
hér fyrir sunnan."
- Kristján Jóns-
son, blm. í Við-
horfum í Mbl. sl.
laugardag.
Sjúmalisti í anorakk
Pistlahöfundi hefur borist bréf frá Ingivari
Gíslasyni fv. menntamálaráðherra. Bréfið er
efirfarandi og er birt hér:
„Sjúmalisti, Siggi Ess,
sat á réttarvegg og drakk.
Svcpensara sett upp hress,
sveipaði um sig anorakk.
Kæri Sigurður Bogi. Eftir að hafa lesið frá-
sögn þína og skoðað myndir í Suðurlandi Dags
í dag brá fyrir innri sjónum mínum mynd sem
ég útmála með ofanrituðum orðum og fyrir-
sögn, sem sver sig í ætt við hina nýju „frasa-
flóru“ ykkar Dagsmanna, sem við sveitamenn
skiljum oft ekki nema til hálfs. í minn sveit
hét „sixpensarinn" þinn ensk húfa og
„anorakk“ (eða „anorakkur?) kuldaúlpa eða
hettuúlpa. Mér er hinsvegar ljóst að orðfæri
sveitamanna er ekki til frambúðar. Þ\a hlýtur
að víkja fyrir dönnuðu málfari sívilliséraðra
manna. I því sambandi legg ég m.a. til að
starfsheitið blaðamaður verði lagt niður og
tekið verði upp það ágæta internasjónala orð
sjúrnalisti. Þá ykist vegur stéttarinnar.
Vertu ætíð kært kvaddur,
Ingvar Gíslason."
í tveimur flokkum
Fyrir dyrum stendur að Samfylkingin verði gerð
að stjómmálaflokki, enda þótt fram hafi komið
líka að ekki standi til að leggja niður Alþýðuflokk
og Alþýðubandalag, Fólk á að vera í tveimur
Ilokkum. Rifjast þá upp saga sem Valdimar heit-
inn Jóhannsson bókaútgefandi í Iðunni sagði í
ævisögu sinni, frá úrslitum
kosninga 1956 en þá var Valdimar í forystusveit
flokksins - sem fékk afleitt gengi.
„Kosninganóttinn var ömurleg. Við fengum
ekki nema 1978 atkvæði í Reykjavík,á öllu land-
inu 3706 atkvæða eða 4,5% og komum ekki að
manni. Flokkurinn hafði þurrkast út.
Eitt spaugilegt atkvik gerðist þó þessa dapur-
Iegu kosninganótt. Eg er steinsofnaður, jiegar
dyrabjallan hringir í sífellu og vekur mig. UriIIur
og geðvondur opna ég útidymar og stendur þar
ekki snillingurinn Leifur Haraldsson sem þýddi
Stríð og frið eftir frið eftir Tolstoj, kostuiegur
maður og engum líkur, stórgáfaður en illilega
málhaltur.
„É-É-É-g ætla að s-segja mig úr Þjóðvarnar-
flokknum," stamar hann.
„Gastu ekki beðið með að tilkynna það til
morguns," ansa ég sárgramur og hneykslaður.
„N-N-Nei, ég er n-n-nefnilega genginn í Fra-
Fra-Framsóknar-flokkinn,“ segir hann.
„Þarftu að vekja mig um miðja nótt til að
segja mér það,“ hreyti ég út úr mér og er orðinn
bálreiður.
„J-J-J-J-J-já,“ svarar Leifur og rekur enn meira
í vörðurnar en áður.“É-E-Ég get ekki s-s-sofið í
tveimur flokkum!“
Nikolay Mateev,
skylmingaþjálfari segir
það helst vera hús-
næðismálin sem standi
Skylmingafélaginu fyrir
þrifum, „Félagið æfir í
ÍR-húsinu við Túngötu.
Það er Landakotsskóli
sem á lóðina og vill
flytja húsið í burtu og
byggja nýtt íþróttahús."
- Mynd Teitur
Skylmingarvoruá
í íþróttahúsi ÍR við Túngötu eru
stundaðar ólympískar skylmingar.
Þar er starfsemi Skylmingafélags fyrctll CílvrririlJllpÍhjlTJ- Til þess að stunda skylmingar þarf
Reykjavíkur, félagið hefur á haust- * * sverð, grímu til að verja andlitið og
dögum tekið inn nýliða. Þjálfari fé- jjjjj pjjá CTU fáOT íbrÓtt- Jahha l'l að veija búldnn. Nikolay
Iagsins er búlgarski skylminga- * ^ * segir að félagið eigi allan búnað,
meistarinn Nikolay Mateev. Hann jy gpjjj Jjjjfjl VCTÍð StUUd- l)ann'8 se kostnaðarsamt fyrir
kom til Islands fyrir rétt rúmum 0 fólk að stunda íþróttina, mánaðar-
Landakotsskóli vill byggja nýtt
hús
Til þ(
sverð, grímu til að verja andlitið og
átta árum og er orðinn íslenskur
ríkisborgari. „Ég byrjaði að æfa
skylmingar þegar ég var 11 ára.
Þegar ég var 13 ára var ég Búlgar-
íumeistari í mínum aldursflokki og
tveimur árum seinna var ég orðinn
atvinnumaður í íþróttinni. Ég var
atvinnumaður í ein 15 ár. Ég hef
keppt á 8 heimsmeistaramótum og
einum Olympíuleikum. Búlgarska
liðið vann tvisvar silfur á heims-
meistaramóti, þ.e. árin 1985 til
1987 og brons 1986. Svo urðum
við í 6. sæti á Olympíuleikunum í
SeouI.“
Félagið hefur stækkað mikið á
þessum átta árum og íslenskir
sky'lmingamenn hafa náð árangri á
alþjóðavettvangi. Þau Ragnar Ingi
Sigurðsson og Helga Eygló Magn-
úsdóttir hafa unnið Norður-Evr-
ópubikar og Helga varð í 6. sæti á
síðasta heimsmeistaramóti. ,Áður
voru þetta svona 10 til 20 manns sem æfðu skylm-
ingar. Núna eru þrír hópar í gangi. Við erum með
bama- starf og unglingastarf. 6 til 10 ára krakkar
em á þriðjudögum og föstudögum og 11 til 16 ára
hópur er á þriðjudögum og fimmtudögum. Svo
emm \ið með fullorðinshópa sem æfa þrisvar til
firnm sinnum í viku.“
aðarjafnlengi.Þettaer saldisé 2 - 3000 frónur- ’>Svohef;
ur Ragnar Ingi kennt íþrottrr 1
Landakotsskóla. Hann hefur kennt
krökkunum skylmingar og þetta er
eini skólinn á landinu sem það ger-
ir. Svo höfum við haldið kynningar
fyrir framahaldsskóla víðsvegar um
landið. Félagið á útbúnað sem það
Iánar byijendum.
Það em helst húsnæðismálin sem
standa félaginu fyrir þrifum. Félagið
æfir í ÍR-húsinu við Túngötu. Það
er Landakotsskóli sem á lóðina og
vill flytja húsið í burtu og byggja
nýtt íþróttahús. ÍR hefur nýlega ver-
ið dæmt til þess að flytja húsið í
burtu, ætli það verði ekki gert í vor,
þannig að við fáum þá nýtt og
stærra hús næsta haust,“ segir
Nikolay.
Nikolay er ekki ánægður með
styrktarkefið hjá ÍBR, hann vill að
kerfið verði notað til þess að umb-
una félögum sem ná árangri. „Þetta lottó-kerfi er
bara tengt fjölda iðkenda en ekki árangri. Það
furðulegasta við þetta styrkjakerfi er að það hjálpar
ekki íþróttunum, það hvetur ekld til þess að menn
reyni að ná meiri árangri. Aðalvandamálið er að allir
vilja fá peninga, en ég held að kerfið væri betra ef
styrkjakerfið væri tengt árangri." -PjESTA
íþróttsem stunduð erí
öllum háskólum íBret-
landi og Bandaríkjun-
um. Hjá Skylmingafé-
iagi Reykjavíkur æfir
einkonasemhejur
fengið háskólastyrk út
áskylmingamar.
SPJALL
■ FRÁ DE01 TIL DAGS
En hvað sem yfir okkur kann að dynja,
verður hver einstaklingur að lifa lífinu,
meðan það endist. Sigurður Nordal
Þau fæddust 22. september
• 1515 fæddist Anna af Cleves, fjórða
eiginkona Hinriks áttunda Englands-
konungs.
• 1800 fæddist breski grasafræðingur-
inn George Bentham.
• 1867 fæddist Sigurjón Friðjónsson
skáld frá Sandi.
• 1885 fæddist þýski kvikmyndaleik-
stjórinn Erich von Stroheim.
• 1931 fæddist breski rithöfundurinn
Fay Weldon.
• 1934 fæddist Ragnar Bjarnason
söngvari.
• 1940 fæddist danska leikkonana
Anna Karina.
• 1957 fæddist rokkarinn og rithöfund-
urinn Nick Cave.
• 1972 fæddist rokksöngvarinn Liam
Gallagher.
Þetta gerðist 22. september
• 1792 var franska Iýðveldið stofnað,
hið fyrsta í röðinni, en hið fimmta
hefur verið við lýði frá því 1958.
• 1827 skýrði Joseph Smith frá fundi
Mormónsbókar.
• 1949 sprengdu Sovétríkin fyrstu
kjarnorkusprengju sína.
• 1951 dæmdi dómstóll í Stokkhólmi
sjómann til að greiða sekt fyrir að hafa
kysst stúlkuna sína á almannafæri.
• 1957varArbæjarsafríiðíReykjavíkopnað.
• 1980 hófst stríð milli írans og íraks.
• 1986 skipti bandaríski tónlistarmaður-
inn Prince um nafrí, en nýja nafnið er
tákn sem ekki er hægt að bera fram.
• 1992 lauk fyrstu Ólympíuleikum
þroskaheftra í Madríd og hlaut ís-
Ienskt sundfólk 21 verðlaun.
• 1992 var Júgóslavía rekin úr Samein-
uðu þjóðunum vegna stríðsins í
Bosníu-Hersegóvínu.
Afmælisbam dagsins
Garðar E. Cortes, söngvari, fædd-
ist í Reykjavík 22. september árið
1940. Hann stundaði guðfræðinám
og tónlistarnám á Englandi á árun-
um 1959-1969. Hann lauk sön-
kennaraprófi frá Konunglegu tón-
listarakademíunni í Lundúnum og
einsöngvaraprófi frá Trinity Colla-
ge í sömu borg. Hann var tónlista-
skólastjóri á Seyðisfirði um tíma
en hann stofnaði söngskólann í
Reykjavík árið 1973. Garðar er
einn af stofríendum íslensku óper-
unnar og var lengi óperustjóri.
Brandari
Tveir gamlir kunningjar, annar Iögfræðingur
og hinn læknir, hittust óvænt á lúxushóteli á
frönsku Rivíerunni og höfðu þá ekki sést í
mörg ár. Læknirinn spyr lögfræðinginn
hvemig standi á ferðum hans. ,Jú, manstu
eftir gamla húsinu sem ég keypti fyrir slikk,
og var næstum því að falli komið? Það vildi
svo vel til að það kom upp eldur í því og allt
brann til grunna, og nú er ég hingað kominn
að njóta peninganna sem ég fékk út úr trygg-
ingunum," sagði lögfræðingurinn.
„Nú, þá er Iíkt á komið með okkur," sagði
læknirinn. „Þú manst kannski eftir hús-
garminum sem ég átti í Bandaríkjunum, og
gat aldrei selt hvemig sem ég reyndi. Eftir að
Mississippifljót flæddi yfir bakka sína fékk ég
háa upphæð í tryggingarbætur og er því hing-
að kominn að njóta lífsins."
Lögfræðingurinn rak upp stór augu.
„Vá,“ sagði hann hugsi, „hvernig fer maður
að því að koma af stað flóði?“
Veffang dagsins
Heimasíða Atla Harðarsonar heimspekings
er fróðleiksbrunnur mikill um heimspeki,
tölvur og skólamál: www.ismennt.is/~atli