Dagur - 22.09.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 22.09.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 - 21 Ttwpir. LÍFIÐ í LANDINU Rj ómiim af norræmri myndgerð Um 300 útlendingar mæta á norrænu Stutt- og heimíldamyndahá- tíðina sem hefst í dag, enda erþetta stærsta samnorræna kvik- myndahátíð Norður- landafyrir bæðifag- fólk og almenning. Nordisk Panorama eins og há- tíðin nefnist upp á skandinav- fsku verður í Háskólabíói og stendur hún frá 9 á morgnana til kl.l 1 á kvöldin. Má því búast við að einkum fagfólk sæki há- tíðina en hún er þó öllum opin og ætti áhugafólk um kvik- myndagerð að finna þarna ýmis- legt sem annars væri ógjörning- ur að nálgast hér á Iandi. Þor- geir Gunnarsson, framkvæmda- stjóri hátíðarinnar hvetur sem flesta til að kíkja á hátíðna, „því að þessar myndir sjáum \áð ekki í bíó og sjaldan í sjónvarpi". Há- tíðin skiptist í tvennt, annars vegar keppa 54 myndir til verð- launa í flokkum stutt- og heim- ildamynda en hins vegar eru um 10 hliðardagskrár með fjár- mögnunarfundum, málþingi um stafræna tækni í kvikmyndum, kvikmyndamarkað o.fl. Þá verð- ur einnig sýnt úrval íslenskra stutt- og heimildamynda (m.a. Maður og verk- smiðja eftir Þor- geir Þorgeirson), úrval norrænna unglingamynda og svokallaðar „rusl- myndir“, eða ósj ónvarpshæfar myndir verða sýndar á föstu- dagskvöldið kl. 22.30 til miðnætt- is og sendar voru hingað frá stutt- myndahátíðinni í Hamborg, en þeir hafa sérhæft sig í „skrýtnum og öðruvísi mynd- (( um. Verið útundan hér - Nií hefur þessi hátíð verið hald- in í 10 ár, hefur ekkert gengið að koma heimilda- og stuttmyndum á kortið? „Jú, hin Norðurlöndin standa sig mikið betur í að sýna þessar tegundir kvikmynda í kvúk- myndahúsum og svo fara þær allar í sjónvarp í sfnum eigin löndum. Þær hafa hins vegar verið dálítið útundan hér heima. En á hátíðinni verður sýndur rjóminn af þeim heimilda- og stuttmyndum sem framleiddar hafa verið á undanförnu ári á Norðurlöndunum.“ Er mikil gróska í t.d. stutt- myndagerð á Norð- urlöndunum? „Já, sérstaklega á Norðurlöndun- um enda hefur þessi hátíð auk annarra aðgerða á þessu sviði síðasta áratuginn hjálpað mjög til að stækka og efla þessa gerð kvikmyndagerðar,“ segir Þorgeir og telur norræna heimildamynda- gerð afar fjöl- breytta. „Þær spanna allt sviðið, menn fara út um heiminn til að finna sér viðfangsefni en eru lfka í sínu heimalandi og allt inní eigið fjölskyldulíf. Þeim er ekkert óviðkomandi." Saga-fílm komst að Einn mikilvægasti liður hátíðar- innar fyrir fagfólk í kvikmynda- geiranum eru tveir samnorrænir fjármögnunarfundir þar sem 23 útvaldir kvikmyndagerðarmenn fá 9 mínútur til að kynna hug- Þrjár íslenskar myndir komust í keppnina, segir Þorgeir, Sjáif/irkinn eftir Júlíus Kemp og tvær myndir eftir Dag Kára Pétursson (Old Spice/Lost weekend). Von Trier aðdáendur geta fylgst með vinnubrögðum kappans í dönsku heimildamyndinni Hinir auðmýktu (De ydmygede, 79 mín.) sem Jesper Jargil gerði um tilurð kvikmyndarinn- ar Fávitarnir. mynd sína fyrir fjármögnunarað- ilum og norrænum sjónvarps- stöðvum. Þorgeir segir þessa fundi hafa verið mjög árangurs- ríka. „Það eru dæmi þess að menn hafi fullfjármagnað hug- myndir sínar á þessum fund- um.“ Einu Islendingarnir sem komust inn á hina eftirsóttu fundi að þessu sinni voru full- trúar frá Saga-film. -LÓA Dönsk mynd hlaut Óskarsverðlaunin árið 1999 í flokki stuttmynda (sá Óskars-flokkur er sem sagt til). Myndin heitir Kosningakvöld (Val- ga ften), er 12 mín. og hér sjást þeir Kim Magnusson, framleiðandi myndarinnar og Anders Thomas Jensen leikstjóri. SVOJUA ER LIFIÐ Pjetur svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Pjetur svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 460 6124 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: pjeturst@ff.is Umost Ostur er mannamatur, hvort sem hann er notaður til þess að h'fga upp á veislur eða borðaður hvunndags með brauði og smjöri. Það er ákaflega misjafnt hvað menn eru hrifnir af osti. Víða um lönd getur ostur myndað uppistöðu í heilu réttunum. Eða hann er borðaður eins og „snakk.“ Víða er vinsælt að djúp- steikja ost, og er hann þá borðaður með frönskum kartöflum og salati. Ef bjóða á fólki í heimsókn að kvöldlagi er tilvalið að bjóða upp á ostabakka. A bakkann er ekki þörf á fleiri en fimm teg- undum af osti. Með ostinunum er gott að hafa ávexti, græn- meti og brauð eða ósætt og ósalt kex. Það er best að láta ost standa við stofuhita í u.þ.b. I. klst. áður en hann er borinn fram. Þannig nýtur osta- bragðið sín best. Þegar bornir eru fram ostar ásamt brauði, ávöxtum og grænmeti og osturinn á að vera aðalatrið- ið, þá er gert ráð fyrri 200 til 250 grömmum af osti á mann. Sé ostur hinsvegar borinn fram sem ábætir er passlegt að reikna með u.þ.b. 70 til 75 grömmum á mann. Ostakökur eru bestar ef þær fá að standa f kæli í 3-5 daga eftir að þær eru búnar til og þar til þær eru notaðar. Ráðlegt er að taka þær úr forminu, þegar þær eru orðnar kaldar, annars er hætta á að formið ryðgi. Ostakökur geymast í 3- 4 vikur í kæli en hægt er að frysta þær og Iáta þiðna f kæli. Bestar eru þær þó án þess að hafa frosið. Sælgætisostakaka Efrii: 2 bollar mulið súkkulaðikex 75-100 g brætt smjör 500 g rjómaostur 6-8 msk kaffilíkjör 150 g mulið súkkulaði (Mars, Snickers eða annað) 5 dl þeyttur rjómi Aðferð: Blandið mylsnunni og smjörinu sama og setjið í form. Þjappið vel í botninn. Setjið síðan rjómaostinn í formið og heílið líkjörnum yfir. Sáldrið súkkulaðinu í formið og smyrjið rjóman- um saman við. Geymið í kæliskáp áður en kökunnar er neytt. ■ HVAD ER Á SEYÐI? SJÖ ÁR Á GÖNGU Hafnargönguhópurinn heldur í sjóferð með strönd Skerjafjarðar í kvöld kl. 20.00. Farið verður frá Hafnarhúsinu að vestanverðu og gengið niður á Mið- bakka og um borð í Árnesið við Ægis- garð. Siglt verður út á Engeyjarsund og fyrir Gróttutanga og Suðurnes inn á Skerjafjörð. Þaðan með ströndinni inn á Fossvog, Kópavog og Arnarnesvog fyr- ir Seltjarnarnesið og í höfn við Ægis- garð. 1 tilefni af því að um þessar mundir eru sjö ár liðin frá því Hafnargönguhópur- inn hóf gönguferðir sínar, verður ýmis- legt sér til gamans gert á leiðinni. Ljósadýrð höfuðborgarsvæðisins verður notið af sjó ásamt léttum veitingum um borð. Göngufélagar úr Hafnargöngu- hópnum sem kalla sig HGH-tríóið leika ljúfa tónlist uppá þiljum. Allir eru vel- komnir. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Finnsk-íslensk tónlist í Kaffileikhúsinu. Dúettinn Helvík heldur tónleika í Kaffi- leikhúsinu, miðvikudagskvöldið 22. sept- ember, kl. 21:00. Dúettinn skipa þeir Kristján Eldjárn gítarleikari og Samuli Kosminen slagverksleikari, en þeir hafa starfað saman um nokkurra ára skeið. Þó eru þetta fyrstu opinberu tónleikar þeirra á íslandi. Tónlist þeirra félaga er frum- samin spunatónlist sem byggir á samleik gítara og slagverkshljóðfæra. Sérstakur gestur þeirra á tónleikunum er finnska söng- og leikkonan Ona Kamu, sem mun taka þátt í flutningi nokkurra verka. Þau Samuli og Ona starfa bæði við tónlist í heimalandi sínu auk þess sem Ona hefur töluvert leikið í kvikmyndum, þ.á.m. Juha, nýjustu myndi Aki Karismakis. Tónlistardagskrá þessi hefst kl. 21:00 og opnar húsið kl. 20:30. Miðasala verður við innganginn. Alan James sýnir í Kringlunni Alan James opnaði í gær málverkasýn- ingu í sameiginlegu sýningarrými Gallerís Foldar og Kringlunnar á annarri hæð Kringlunnar gegnt Hagkaupum. Alan sýnir 8 olíumálverk og stendur sýningin til 15. október. Sýningin er opin á venju- legum opnunartíma Kringlunnar. Alan hóf nám við Myndlistaskóla Akureyrar og útskrifaðist þaðan árið 1997 og hélt sína fyrstu einkasýningu í Eyjafirði 1995. Einnig tók hann þátt í haustsýningu Listaskálans í Hveragerði 1998 og var með einkasýningu í Gerðubergi í janúar 1999. Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ Kaffistofan opin kl. 10-13. Matur í há- deginu. Línudans Sigvalda kl. 20.15- 21.45 í kvöld. Námskeið í framsögn hefst aftur mánudaginn 27. september. Leið- beinandi er Bjarni Ingvarsson. Skráning er hafin á skrifstofunni. Þeir sem hafa skráð sig í Þinvallaferðina eru vinsamlega beðnir um að staðfesta eigi síðar en í dag. Stillum okkur saman Dagskrá vímuefnaviku miðvikudaginn 22. september er þemadagur um vímu- varnir í Valhúsaskóla. Skemmtun á veg- um nemenda og kennara í Félagsheimili Seltjarnarness um kvöldið frá ld. 20.00- 22.00. Allir velkomnir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.