Dagur - 23.09.1999, Side 2
2 — FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
D0gur
SUÐURLAN D
Búa sig ímdir
flóð frá Kötlu
Almannavamir í Vest-
maimaeyjiiin í við-
bragðsstöðu vegna
Kötlugoss. Menn búa
sig iindir allt. Gengur
flóðbylgja á land?
Karl Gauti Hjaltason, sýslumað-
ur og lögreglustjóri í Vestmanna-
eyjum, segir almannavamanefnd
Vestmannaeyja vera þessa dag-
ana að vinna að viðbragðsáætlun
vegna hugsanlegs Kötlugoss,
meðal annars í samvinnu við Al-
mannavarnir ríkisins. Hann seg-
ir mikilvægt að gögnum sé safn-
að um öll hugsanleg fyrri flóð af
völdum Kötlugosa í Vestmanna-
eyjum. „Það er nýverið sem þessi
möguleiki kom inn á borð hjá
okkur í almannavarnanefnd og
því hafa menn verið að vinna
hratt að áætlunum, einn þáttur
er að kynna málið fyrir bæjarbú-
um,“ segir hann.
Aimálar greina ekM frá flóð-
hylgju í Eyjum
Sýslumaður segir að það sé
reyndar ekki mikil hætta á stór-
kostlegum hamförum sem gætu
steðjað að Vestmannaeyjabæ af
Kötlugosi. „Þó eru dæmi frá fyrri
Kötlugosum um flóðbylgju í Eyj-
um samfara gosi í Kötlu. Það er
erfitt að meta hve miklar þessar
bylgjur hafa verið. Eg vil Ieggja
áherslu á að annálar greina ekki
frá flóðbylgju í Eyjum nema í
tveimur eða þremur tilvikum,
svo vitað sé. Það virðist vera
undantekning, en ekki regla að
slík flóðbylgja fylgi gosi og
hlaupi vegna Kötlugoss. Þá er
erfitt að gera sér grein fyrir
hversu umfangsmikíar þessar
bylgjur hafa verið og þó annálar
greini frá því að lýsistunnur hafi
farið á flot og á haf út í flóði
samfara gosi 1721, þá hefur á
þeim tfma ef til vill ekki þurft
:jJJJ
Gardínuefni frá 100 kr. metrinn
Tilbúnir kappar frá 400 kr. metrinn
Lofthá stofuefni frá 750 kr. metrinn
3ja m breitt voal 520 kr. metrinn
Falleg ný tvíofin efni - 20% afsláttur
og margt fleira.
GARDÍNUBÚÐIN
Skiphoiti 35 - sími 553 5677
Opið kl. 10-18
Opið laugardaga
kl. 10 -14
mikið til, mannvirki og hafnir
eru auðvitað með allt öðru móti
nú, en fyrir 280 árum.“
Karl Gauti segir að hlaup úr
Kötlu séu breytileg frá einum
tíma til annars og verður hugs-
anleg flóðahætta að skoðast í því
Ijósi. „Það er ekki öruggt að gosi
nú fylgdi stórt hlaup, enda
myndi flóðbylgja og stærð henn-
ar fremur ákvarðast af því hve
hlaupið dreifði sér um sandana
og til dæmis hvernig stæði á
sjávarföllum. Þá skiptir líka máli
veðurlag, sem vissulega gæti
magnað upp skemmdir af flóð-
bylgju. Sigkatlar á jöklinum nú
benda til dæmis til þess, að mati
helstu sérfræðinga, að jökullinn
hafi í reynd Iosað sig við töluvert
vatn í sumar og haust og mætti
samkvæmt því gera ráð fyrir
minna flóði nú ef Kötlugos hæf-
ist. Þannig eru margir þættir
sem þarf að meta og reynsla af
flóðbylgjum hérlendis er næsta
engin. Það er hlutverk almanna-
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, Karl Gauti Hjaltason, hefur í mörg horn
að líta. Vilja Eyjamenn vera við öllu búnir ef Katla, nágranni þeirra á fasta-
landinu, fer að leika listir sínar - með ófyrirséðum afleiðingum.
varnanefndar að gera ráðstafanir
til þess að mæta hættuástandi og
meta hættuna og það erum við
einmitt að fara yfir þessa dag-
ana. Það má gera ráð fyrir að
fólk í nágrenni Kötlu fái í versta
falli eina til þrjár klukkustundir
og upp í sólarhringsfyrirvara á
hlaupinu og þá berast okkur
fréttir af stærð þess og við getum
gert viðeigandi ráðstafanir. Flóð-
bylgjan kemur í kjölfar hlaups og
fýrirvari ætti því að geta orðið frá
sex til tólf klukkustundum £ Eyj-
um.“
Hofnin rýmd
Karl Gauti segir að í versta til-
felli geri áætlun almannavarna
ráð fyrir rýmingu á næsta ná-
grenni hafnarsvæðisins og að
skip og bátar verði send út úr
höfninni. „Ég tel það mikilvægt
að ef minnsti möguleiki er á
flóðbylgju að skip og bátar fari úr
höfninni á dýpra vatn. Það er
mikilvægt að fólk sé upplýst um
þessa flóðahættu, hér hafa orðið
flóð af völdum jökulhlaups úr
Mýrdalsjökli og það getur því
auðvitað endurtekið sig,“ segir
Karl Gauti.
Síðustu fréttir af Kötluslóðum
greina frá því að allt sé nú þar
með kyrrum kjörum. -BEG
Samþykkir vikur-
nám við Þjórsá
Vilatrnám Jarðefna-
iðnaðax hf. milli
Þjórsár og Rangár og
á Hafi norðan Skála-
feHs. Aðgát skal höfð
við sáningu.
Skipulagsstjóri ríkisins hefur
fallist á fyrirhugað vikurnám
Jarðefnaiðnaðar hf. milli Þjórsár
og Rangár og á Hafi norðan
Skálafells. Vikurnám þetta var
tekið til umfjöllunar hjá Skipu-
lagsstofnun í sumar og lá frum-
matsskýrsla víða frammi til
kynningar. Engin athugasemd
Göngum hreint til verks
Hjá Blindravinnustofunni færðu mikið úrval ræstiáhalda,
hvort sem er fyrir skóla, fyrirtæki eða heimilið.
Leyfðu okkur að aðstoða þig við að fegra umhverfið.
Burstar
f mörgum
stærðum
og gerðum. .
DIT og FILMOP
ræstivagnar í miklu úrvali.
1
U.
í J'
Ruslafötur,
ýmsar stærðir og gerðir.
Moppusett,
ýmsar stærðir.
BLINDRAVINNUSTOFAN VI
Hamrahlíðl7 • Síml 525 0025
barst á kynningartíma.
I frétt frá Skipulagsstofnun
segir að svæðin sem vinnslu-
svæði og -samningar ná til séu
víðáttumikil og í nágrenninu sé
fjölfarin ferðamannaleið inn á
hálendið. Rangárbotnar eru í
næsta nágrenni og segir skipu-
lagsstjóri mikilvægt að þeim sé
ekki raskað eða aðgengi hindrað.
„Námasvæðin eru tiltölulega
sléttir og lítt grónir vikrar. Fram-
kvæmdaaðili leggur mikla
áherslu á hreinleika umhverfis
námusvæðin og að vikurinn sé
hreinn og laus við fræ. Upp-
græðsla lands er hafin í nágrenni
námusvæðanna og er viss hætta
á að fræ berist þaðan inn á
vinnslusvæðin. Verði sáð árlega í
hvern vinnsluteig, þegar vinnslu
er lokið, eykst hætta á fræmeng-
un vikursins frá því sem nú er,
þar sem töluverð fjarlægð er frá
vinnsluteigum að næsta upp-
græðslusvæði," segir skipulags-
stjóri og metur málið svo að ekki
skuli sáð í vikurvinnslusvæðin
meðan á vinnslu þar stendur, því
það geti spillt þeim vikri sem
verið sé að afla.
„Dregið verði úr hættu á foki
úr vinnslusvæðum með vandaðri
umgengni, opin vinnslusvæði
verði takmörkuð einsog kostur
er og jaðrar vinnsluteiga jafnaðir
niður eins fljótt og auðið er. Við
lok vikurnáms á svæðinu eða ef
forsendur um hreinleika vikurs-
ins breytast verði uppgræðsla
námasvæðanna endurskoðuð,"
segir skipulagsstjóri. - Fleiri at-
riði eru tíunduð í úrskurði hans
sem má kæra til umhverfisráð-
herra til 20. október næstkom-
andi. -SBS