Dagur - 25.09.1999, Qupperneq 4
4- LAUGARDAGUR 2S. SEPTEMBER 1999
FRÉTTIR
Ungtr jafnaðarmenn mótmæla
Framkvæmaastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna sendi nýlega frá
sér ályktun þar sem áformum forsvarsmanna Ríkissjónvarpsins um nýja
sjónvarpsrás er harðlega mótmælt. Enn fremur lýsa ungir jafnaðarmenn
vonbrigðum sínum með að sumir ráðamenn virðist reiðubúnir að veita
hugm)Tidinni stuðning sinn. „Ungir jafnaðarmenn telja enga þörf á því
að ríkið sé að auka umsvif sín á fjölmiðlamarkaði. Þvert á móti telja ung-
ir jafnaðarmenn rétt að þegar sé hafinn undirbúningur að sölu Rfkisút-
varpsins-sjónvarps," segir m.a. í ályktuninni.
Iimhverf átök í Ananda Marga
Harðar deilur hafa risið upp innan jógahreyfingarinnar Ananda Marga
á Islandi vegna sölu á húsnæði hreyfingarinnar að Lindargötu 14 og
hefur Gunnlaugur Sigurðsson, fyrrum oddviti stjómar, verið rekinn úr
hreyfingunni fyrir að selja húsið heimildarlaust. Fyrirhugað er dómsmál
gegn honum þar sem iireyfingin hyggst krefja Gunnlaug um andvirði
sölunnar, sem hann hefur haldið eftir.
Eftir því sem næst verður komist hafði Gunnlaugur umboð í höndum,
sem aðrir forsvarsmenn hreyfingarinnar telja falsað og fór salan fram án
samráðs við þá. Enginn kaupsamningur var þinglýstur, heldur eingöngu
afsal. Miðað við aðstæður ætlar hreyfingin ekki að reyna að endur-
heimta húsið, en hefur dregið að flytja endanlega úr húsinu og hefur
kaupandinn höfðað útburðarmál. — FÞG
Bíórásín opin öllion
Bíórásin fagnar um þessar mundir 1 árs afmæli sínu og af því tilefni
verður hún í kynningarskyni opin öllum sjónvarpsáhorfendum allan sól-
arhringinn frá 24. september til 4. október næstkomandi. A Bíórásinni
eru sendar út textaðar kvikmyndir allan sólarhringinn og eru í hvetjum
mánuði sýndar um 190 myndir. Af mörgum myndum sem sýndar verða
í opinni dagskrá næstu daga má nefna Jackie Brown, Sugar Hill, Dou-
ble Team og Cop Land.
Skjámifyrir
heymar-
lausa
Landssíminn hefut !át-
ið þýða textasímaforrit,
Skjáma, úr norsku til
nota fyrir heyrnarlausa
hér á landi. Forritið
veldur byltingu í sam-
skiptum heyrnarlausra
sín á milli og við aðra,
t.d. þjónustufyrirtæki
og stofnanir.
Evrópukeppni taflfélaga
Um helgina fer tram í húsakynnum Taflfélagsins Hellis í Reykjavík
nokkurs konar Evrópukeppni taflfélaga þar sem 8 öflugar skáksveitir
mæta til leiks. Þar af eru þrjár íslenskar sveitir með öllum íslensku stór-
meisturunum innanborðs, að Friðriki Olafssyni undansldldum. Hinar
sveitinar koma frá Danmörku, Irlandi, Rússlandi, Wales og Englandi og
þar eru margir sterkir skákmenn á ferð, m.a. Rússinn Morozevich, sem
er fjórði stigahæsti skákmaður heims um þessar mundir. Þessar 8 sveit-
ir munu keppa um eitt Iaust sæti í úrslitakeppni bestu sveita Evrópu síð-
ar á þessu ári. Þetta er eitt sterkasta skákmót sem fram hefur farið hér
á Iandi í langan tíma. Fram á sunnudag verður einnig hægt að fylgjast
með mótinu á Intemetinu. Slóðin er www.simnet.is/hellir/ECC99.htm
Fréttahlað Hafnarfjarðarhæjar
Fréttablað Hafnarfjarðarbæjar, 2. tbl. 1. árg., er nú komið út og hefur
verið dreift inn á hvert heimili í bænum. í blaðinu er fjallað um umferð-
armál og umferðarviku, nýjar leiguíbúðir, menningu, endurbættan
Engidalsskóla, nýja höfn, bætt samskipti og þjónustu bæjarstarfsmanna,
bjarta framtíð bókasafhsins og góðan árangur í ferðamálum. Einnig er
að finna í blaðinu útivistarreglur fyrir foreldra sem má ldippa út úr blað-
inu og hafa á áberandi stað inni á heimilinu.
Bjöm í Höfðahorg
Bjöm Bjamason menntamálaráðherra veitti verð-
launum viðtöku í Höfðaborg í S-Afríku sl. fimmtu-
dag fyrir hönd norrænu ráðherranefndarinnar.
Nefndin fékk viðurkenningu frá Lista- og menn-
ingarsjóði S-Afríku fyrir menningarverkefnið
Shuttle ‘99. Bjöm fór fyrir norrænni sendinefnd á
ferð hennar til Jóhannesarborgar, Durban og
Höfðaborgar í S-Affíku til að fylgjast með fram-
gangi verkefnisins Shuttle ‘99, sem síðustu mán-
uði hefur notið beins og formlegs stuðnings nor-
rænu ráðherranefndarinnar. „Það er einstakt að
heimsækja listamenn og ræða við stjórnmálamenn
um þetta norræna menningarverkefni. Eg er þeirrar skoðunar að verk-
efnið eigi eftir að efla samstarf listamanna á öllum sviðum. Stjórnmála-
menn hér líta einnig á þetta víðtæka menningarsamstarf sem mikilvæg-
an þátt í alhliða samvinnu við Norðurlöndin,“ segir Björn Bjarnason.
- lijli
Hér vígir Bertind Stefánsdóttir, formaður Féiags
heyrnarlausa, tækið í húsakynnum Landssim-
ans. - mynd: e. ól.
Frjálslyndir vílja
ljuka flakksstofnim
Sverrir Hermannsson
segir ýmislegt hafa orð-
ið útimdan við flokks-
stoflmnina sl. vor sem
nú eigi að ljúka við.
Hann segir deilur
Valdimars og Gunnars
Inga heldur dmerkilegt
mál sem ekki verði tek-
ið upp á landsflmdin-
um.
Að sögn Sverris Hermannssonar,
formanns Frjálslynda flokksins,
hefur verið ákveðið að kalla saman
auka landsfund flokksins seinni
hlutann í nóvember.
„Okkur tókst ekki að ljúka full-
komnu skipulagi á flokknum fyrir
þingkosningarnar í vor. Nú blasir
líka við breytt kjördæmaskipan og
það kallar á nýja sýn. Við ætluðum
að hafa landsstjórn í flokknum,
þar sem saman kæmu fulltrúar frá
kjördæmunum, en ekkert af því
komst í gagnið fyrir kosningar. Við
vorum heldur ekki búin að stofna
kjördæmafélög í öllum kjördæm-
unum en það eru þau sem eiga að
tilnefha fólk í landsstjórn. Og síð-
ast en ekki síst ætlum við að slípa
okkar stefnu og fara vandlega yfir
stefnumótunina, því allt snérist
þetta hjá okkur um að koma sam-
an framboðslistum fyrir kosning-
arnar í vor og þess vegna þurfum
við að fylla í þær eyður sem ekki
tókst að ljúka við þá,“ sagði Sverr-
ir Hermannsson, formaður flokks-
ins, í gær.
Hann bendir líka á að þegar
auka landsfundurinn verður hald-
inn verði þingstörfin að komast í
gang og að þingmenn flokksins
þurfi að fá bakland flokksfólks við
sfna stefnu.
Ómerkilegt mál
Sverrir var spurður hvort hann eigi
von á því að deilur þeirra Valdi-
mars Jóhannssonar og Gunnars
Inga Gunnarssonar, varaformanns
flokksins, sem blossuðu upp á dög-
unum, verði tekin fyrir á auka
Iandsfundinum.
„Nei, ég á ekki von á því. Þetta
er „duelering" sem hvorki ég sem
formaður eða flokkurinn í heild
skipta sér nokkurn hlut af. Það er
svo sem ekkert skrýtið þegar ólíkir
menn koma saman í nýjum flokki
þótt þeir ýtist eitthvað á. Eg geri
mér engin læti þess vegna og ekki
síst þar sem mér þykir málið afar
ómerkilegt," sagði Sverrir Her-
mannsson. — S.DÓR
Aflamarkskerfl fær
aukin hljónigriimi
Sendmefnd íslands
lýsti sig mjög andvíga
tfllögu um aðgang fé-
lagasamtaka að NAFO
sem láta sig fiskveiðar
og fískitegundir á
NAFO-svæðinu varða,
og lét bóka mótmæli
sín og viðvaranir á
fundinum
Tillaga íslands á ársfundi Atlants-
hafsveiðistofnunarinnar, NAFO,
sem nýlega fór fram í Nova Scotia,
að í framtíðinni yrði aflamarkskerfi
notað við stýringu veiða á Flæm-
ingjagrunni, náði ekki fram að
ganga og því verður stjóm rækju-
veiðanna áfram byggð á sóknar-
stýringu sem byggir á úthlutun
veiðidaga til hvers lands. Þó var
ákveðið að fulltrúar aðildarríkja
NAFO hittust á aukafundi í mars-
mánuði árið 2000 og ræddu kosti
þess að taka upp aflamarkskerfi og
hugsanlega skiptingu veiðiheim-
ilda samkvæmt slíku kerfi. Mál-
flutningur íslands hefur því fengið
mjög aukinn hljómgrunn, og þvf til
staðfestingar má benda á að sam-
starf var um að rækjuveiðum á
hinu nýja veiðisvæði vestur af nú-
verandi veiðisvæði skuli stjómað
með aflamarkskerfi.
Ársfundur NAFO ákvað að
heildaraflinn á árinu 2000 yrði sá
sami og á þessu ári, eða 30 þúsund
tonn og hafnar verði veiðar á nýju
veiðisvæði, eins og kemur ffarn hér
að framan, en heildarafli þar verð-
ur 6 þúsund tonn en af þeim kvóta
fær Kanada 5 þúsund tonn.
Ársfundurinn samþykkti aðgang
félagasamtaka að fundum NAFO.
I samþykktinni felst að félagasam-
tök, sem Iáta sig fiskveiðar og fisk-
tegundir á NAFO-svæðinu varða,
koma í framtíðinni til með að hafa
heimild til að sitja fundi tveggja af
aðalstofnunum NAFO, General
Council og Fisheries Commission,
sæki þau sérstaldega um það og
koma þar á framfæri munnlegum
yfirlýsingum. Sendinefnd íslands
lýsti sig mjög andvíga tillögunni og
lét bóka mótmæli sín og viðvaranir
á fundinum. - GG
Ottast ekki iiin orðstír BMW
„Ég get ekki séð að þetta skaði
orðstír BMW bifreiða. Þetta er
auðvitað leiðinlegt, en ég held að
áhrifin á söluna hjá okkur verði
lítil sem engin og staðreyndin er
sú að við höfum aukið söluna um
100% frá því í fyrra,“ segir Gísli
Guðmundsson, forstjóri Bifreiða-
og landbúnaðarvéla í samtali við
Dag, um hugsanleg neikvæð áhrif
þess að lúxustýpur af BMW er á
meðal þeirra eigna sem teknar
hafa verið af handteknum og
grunuðum í stóra fíkniefnamál-
inu.
Gísli tekur skýrt fram að B&L
hafi ekki stærstu tegundirnar af
BMW til sölu. „Við erum með
ódýrustu tegundirnar og þær
millistóru. Við höfum ekki verið
að selja þessar dýrustu týpur, sem
verið er að Ieggja hald á af lögregl-
unni í þessu fíkniefnamáli, heldur
eru þetta undantekningarlítið bíl-
ar sem fluttir hafa verið inn notað-
ir. Við getum ekki leyft okkur að
hafa áhyggjur af þessu og ekki má
gleyma því að fleiri bílategundir
eru þarna með í spilinu, jeppar og
Benzar," segir Gísli. - FÞG