Dagur - 25.09.1999, Qupperneq 9

Dagur - 25.09.1999, Qupperneq 9
8 - LAUGARDAGUR 2 5. SEPTEMBER 19 9 9 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING L. X>^MT FRÉTTIR Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum í nýju Kringlunni. Alls eru um 400 manns að störfum, þar af eru um 100 erlendir iðnaðarmenn. myndir: hilmar þór setningu verslana í Kringlunni. Hann segir markaðsrannsóknir hafa sýnt fram á að meiri þörf sé t.d. fyrir verslanir með kvenfatn- að svo dæmi sé tekið. Auk þess koma margar erlendar verslana- keðjur inn með sínar merkjavörur sem landinn þekkir vel erlendis frá. Dæmi um það má nefna herrafataverslunina Hugo Boss, Knickerbox, Elégance, Inwear- Matinique, Bison Bee-Q, Sasha, Only og fleiri. Hann segist ekki eiga von á því að þessar miklu Ijárfestingar í verslun muni Ieiða til hærra vöruverðs. Opið á siumudögum I því sambandi bendir hann á að húsnæðiskostnaður nýrra versl- ana verði álíka og verið hefur, eða 8-9% af veltu. Þá sé þessi stækk- un grundvölluð m.a. á spá um áframhaldandi hagvöxt og spám um fólksfjölgun á höfuðborgar- svæðinu. Hann gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði um 2-3% næstu fimm sex árin í stað 5% eins og verið hefur. Þá hafa um 60 fyrir- tæki af um 1 50 ákveðið að lengja afgreiðslutíma með því að hafa opið á sunnudögum frá klukkan 13-17 og byrjar það í næsta mán- uði. Eignarhaldsfélagið hefur hins vegar fallið frá því að skylda alla að hafa opið á sunnudögum, þótt það hafi heimild til þess. Hálfur rnilljarður hjá borginni Hjörleifur Kvaran borgarlögmað- ur segir að hlutur borgarinnar í stækkaðri Kringlu sé á mörgum sviðum, eins og t.d. með nýjum 250 manna sal í Borgarleikhús- inu og með útibúi Borgarbóka- safnsins sem verður opnað á næsta ári. Þetta tvennt sé þó sér- eignir borgarinnar. Auk þess tek- ur borgin þátt í byggingu bíla- stæða með 140 milljóna króna framlagi og kostnaðarsömum gatnagerðarframkvæmdum og breytingum á umhverfi svæðisins. I því sambandi bendir hann á að borgin taki þátt í kostnaði vegna Iistaverka sem verða á torgum Kringlusvæðisins. Hann áætlar að heildarkostnaður borgarinnar vegna þess alls sé um 500 millj- ónir króna. Nær aLmenningi Borgarlögmaður segir að ástæður þess að borgin sé að taka þátt í þessu með Kringlumönnum séu margvíslegar. Fyrir það fyrsta hafi borgin haft áhuga á þvi að reyna að tengja Borgarbókasafnið betur inn á þá línu sem almenningur sækir í. Hið sama sé uppá ten- ingnum varðandi Borgarleikhús- ið, þ.e. að gera það sýnilegra fyrir almenningi þannig að menningin verði hluti af Kringlunni. Að- spurður hvort rekstrargrundvöll- ur sé fyrir nýjum sal í Borgarleik- húsi með tilliti til þeirra erfiðleika sem verið hafa í rekstri þess, seg- ir Hjörleifur að það sé mat borg- arinnar að þessi salur hafi betri forsendur til að standa undir sér en margt annað í rekstrinum. Þarna sé um millistærð á sal að ræða sem hentar oft betur en bæði litli salurinn og stóra sviðið. Þá sé komið á samstarf á milli Borgarleikhússins og Islenska dansflokksins og því mun nýi sal- urinn nýtast dansflokknum íyrir sjmingar. Auk þess sé verið að skoða það hvort frjálsir Ieikhópar muni fá aðgang að þessum sal, enda sé vilji fyrir því að opna leik- húsið meira. Borgarlögmaður bendir einnig á að það hafi ekki verið tekin ákvörðun um það hvort þessi nýi salur verði hluti af starfsemi Leikfélags Reykjavíkur þótt margt bendi til þess. Ys og þys Þegar breytingarnir á Kringlunni voru kynntar fyrir fjölmiðlum í gær með vettvangskynningu mátti í fljótu bragði ætla að erfitt yrði að standa við þá áætlun að opna formlega eftir tæpar þrjár vikur. I það minnsta virðist sem æði margt ætti eftir að vinna áður en af því gæti orðið. A margan hátt var álíka umhorfs og þegar verið var að leggja lokahöndina á Kringluna sumarið 1987. Hins vegar voru Kringlumenn og tals- menn verkatakafyrirtæksins Istaks ekki sömu skoðunar og sjálfsagt munu þeir hafa rétt fyrir sér, enda landinn þekktur fyrir að klára verk með áhlaupi á loka- sprettir.um. Þótt opnað verði á til- skyldum tíma verður nóg að gera við alls konar frágangsvinnu og eru verklok ekki áætluð fyrr en 1. desember nk. A nýbyggingarsvæð- inu var manngrúi af iðnaðar- mönnum úr nær öllum iðngrein- um við vinnu í marglitum búning- um. Þar var ys og þys, enda um 400 manns þar við vinnu og þar af um 100 útlendingar. Þar af voru nokkrir ítalskir iðnaðarmenn frá Mílanó við að Ieggja gólfefni eftir kúnstarinnar reglum. Ingimar Ragnarsson hjá Istaki segir að menn hafi byrjað á þessu verki í byrjun janúar í ár og því sé þetta um níu mánaða verktími. Hins vegar sé engin launung á því að erfitt hafi verið að fá menn í vinnu vegna þenslunnar á vinnu- markaði. Til að bregðast við því hefur Istak orðið að fresta nokkrum framkvæmdum til að geta notað sem flesta af starfs- mönnum sínum í Kringlunni. Alls hefur Istak verið með 240 manns í vinnu á svæðinu. Sem dæmi um umfang þessa verkefnis má nefna að við grunninn voru grafnir upp um 40 þúsund rúmmetrar og þar af var helmingurinn klöpp sem þurfti að sprengja. Þá er talið að um 400 tonn af stáli séu í nýbygg- ingunni og um 4 þúsund rúmmetrar af steypu hafa farið í bygginguna. Fram til þessa hafa aðeins tvö alvarleg vinnuslys orð- ið á svæðinu. Á svæðinu vekur at- hygli sérstök bygging þar sem ætl- unin er að koma fyrir 1000 mun- um úr verslunarsögu Kringlunnar. Þessi bygging verður síðan inn- sigluð og ekki opnuð íyrr en eftir kannski 100 ár. Hún verður í um- sjón Þjóðminjasafnsins og er stefnt að því að áhugasamir geti skoðað þessa muni á netsíðu safnsins. Hugað að stækkun til norðurs Með þessari nýbyggingu ná Kiinglan og Borgarleikbúsið sam- an frá Miklubraut til Listabrautar. Þá munu Kringlumenn þej^ar farnir að huga að enn frekari stækkun og þá til norðurs. I þess- ari framkvæmd sé aðalinntakið að skapa eina lifandi heild þar sem hægt verður að fullnægja sem flestum þörfum fjölskyldunnar undir sama þaki. Hugmyndafræð- in að baki þessu sé að skapa nokk- urs konar Vetrarborg á norður- hveli þar sem Mammon og menn- ingin taka höndum saman með nýjum 250 manna sal í Borgar- leikhúsinu auk þess sem í nýbygg- ingunni verður útibú frá Borgar- bókasafni Reykjavíkur. Með því er talið að tengsl menningar og list- ar myndist þarna með sérstökum hætti. Samfara þessu aukast möguleikar á allskyns uppákom- um í tónlistarflutningi, upplestri skálda og fyrirlestrum. Mjukt og hlýtt Auk þessa hefur verið unnið að miklum endurbótum og breyting- um á eldra húsnæðinu, jafnt í sameiginlegu rými og hjá einstaka fyrirtækjum. Þá verða einnig rót- tækar breytingar á innviðum Kringlunnar. Rýmið eykst og litir og Iýsing verða mýkri og hlýlegri, jafnt í eldri hlutanum og í nýbygg- ingunni. Þá verður hljóðeinangr- un endurbætt til að draga úr kliði á göngunum. Allt miðar þetta að því að gera umhverfið sem vistleg- ast og þægilegast til að viðskipta- vininum líði sem best. Með þvf telja sérfræðingar að fólk gefi sér meiri tíma til að versla. I því sam- bandi má nefna að sérstök svæði á göngum verða Iögð parketi, auk þess sem þar verða sófar í stað bekkja þar sem fólk getur hvílt sig. 50% aukning Með þessari stækkun verða versl- anir Kringlunnar Ijölbreyttari og allt vöruúrval eykst til muna. Fyr- ir stækkun voru rekstraraðilar um 100 en nú bætast við um 46, þannig að aukningin er tæplega 50%. Ymsar af þeim verslunum sem fyrir eru flytjast til og eða stækka eða breytast umtalsvert. Þessar breytingar ná meira og minna yfir allt húsið. Þá verður gjörbreyting á öllu veitingahaldi í Kringlunni. I nýbyggingunni verð- ur sérstakt svæði matsölustaða og kaffihúsa með breytilegum áherslum. Þetta svæði, sem verð- ur á svonefndu Stjörnutorgi þar sem loftið verður eins og himin- hvelfing alsett stjörnum, verður í sterkum tengslum við Borgarleik- húsið. Með því móti getur fólk notið lystisemda í mat, drykk, menningu og skemmtun án þess að fara útúr húsi. Það eina sem á vantar er kannski hótel fyrir þá sem vilja gista. Tvö þúsund bílastæði Þá batnar öll aðkoma að Kringl- unni til muna frá því sem verið hefur. Bílageymslan stækkar, úti- bílastæðum fjölgar og einnig inn- göngum í húsið. Fyrir voru alls 1.750 bílastæði en þeim fjölgar um 420 við Listabrautina. Þá verður hægt að komast í Kringl- una í gegnum Borgarleikhúsið. Jafnframt verður umhverfi Kringl- unnar fegrað og bætt við torgi. Það er úr íslensku grjóti. Þar verður einnig grasagarður með belckjum þar sem hægt verður að njóta lífsins á góðviðrisdögum. Hugmyndin að baki stækkun Kringlunnar og breytingum innan sem ut- andyra er að skapa tengsl á milli verslunar og menningar I yfirbyggðu rými, eða nokkurs konar Vetrarborgar með mýkt og hlýju fyrir veðri og vindum á norðurhjara veraldar. 7%' GUÐMUNDUR ,1 RÚNAR ■} HEIÐARSSON •K S SKRIFAR Ný og stærri Kringla verðux opnuð eftir tæpar þrjár vikur. Um 50% aukuing á versl- uuum. Erlendar versl- auakeðjur. Fjárfesting fyrir 3-4 milljarða. EkM áhrif á vöruverð. Hlutiir borgar um 500 milljónir króna. Um 1100-1200 stöðu- gildi. Opið á sunnu- dögum. Um tólf árum eftir að Kringlan hóf starfsemi sína er verið að stækka hana með 10 þúsund fer- metra nýbyggingu en eldri bygg- ingin er um 40 þúsund fermetrar. Með tengingu við 10 þúsund fer- metra stórt Borgarleikhúsið sem stækkar um 2 þúsund fermetra verður því Kringlan alls um 62 þúsund fermetrar eftir þessar breytingar. Stefnt er að því að formleg opunun verði 14. októ- ber nk. en nýju verslanirnar verða opnaðar þann 11. október. Nokkrar verslanir verða þó opn- aðar þann 7. október. Hugmynd- in að baki stækkun Kringlunnar og breytingum innan sem utan dyra er að skapa tengsl á milli verslunar og menningar í yfir- byggðu rými, eða nokkurs konar Vetrarborg með mýkt og hlýju fyr- ir veðri og vindum á norðurhjara veraldar. Straumhvörf Kringlumenn telja að með þessari stækkun séu að verða ný straum- hvörf í sögu verslunarhátta á Is- landi þar sem nýjar áherslur um samtengingu verslunar, menning- ar, Iista og afþreyingar munu líta dagsins Ijós í fyrsta skipti hér á landi. Talið er að stöðugildi í Kringlunni aukist úr 900 í 1100- 1200 og þýðir að staðurinn verð- ur með stærstu vinnustöðum landsins ef þá ekki sá stærsti. Fyrir utan þessa miklu stækkun á verslunarrými í Kringlunni hefur verslunarrými á höfuðborgar- svæðinu stóraukist og þá einkum í Kópavogi. A því svæði á það rými eftir að stækka þegar tug þúsunda fermetra verslunarrisi á vegum Smáralindar verður byggður þar á næstu árum. Leiðir ekki tU hærra vöru- verðs Ragnar Atli Guðmundsson, stjórnarformaður Eignarhaldsfé- lags Kringlunnar, segir að kostn- aður vegna þessara framkvæmda verði vel yfir þrjá milljarða króna. Þar af sé hlutur félagsins um 2 milljarðar og kostnaður vegna innréttinga verslunareigenda sé áætlaður um 700 milljónir króna. Þá nemur hlutur borgarinnar um hálfum milljarði króna en hluti af þeim kostnaði skarast við útgjöld Eignarhaldsfélagsins. Aðspurður hvort menn sé ekki að færast of mikið fang með allri þessari aukningu í verslunarrými með til- liti til þess sem t.d. Smáralind hyggst fyrir í Kópavogi, segir Ragnar að menn viti ekkert um áform þeirra. Hins vegar segir hann að Kringlan byggi á ákveð- inni velgengni. Til marks um það bendir hann á að þegar Kringlan var opnuð fyrir 12 árum hefðu strax byrjað að myndast biðlistar eftir verslunarplássi. Þeirri eftir- spurn hefðu menn aldrei náð að fullnægja á þessum árum. Þá séu þegar farnir að myndast nýir biðlistar þrátt fyrir þessa íjölgun á verslunarrýmum. Með stækkunininni sé verið að styrkja Kringluna í samkeppni við önnur verslunarsvæði í borginni og á höfuðborgarsvæðinu. Það sé m.a. gert með því að auka veru- lega framboð af veitingastöðum og fá inn stóra og sterka verslun til mótvægis við Nýkaup og Hag- kaup sem nefnist Akkeri. Það er 2.600 fermetra verslun á sviði útivistar og Iífsstíls. Síðast en ekki síst sé verið að bæta sam- Mammon og meiming í Vetrarboig Frá fyrsta ársfundi Vinnumálastofnunar. Páll Pétursson ásamt Gissuri Pét- urssyni, forstjóra stofnunarinnar. mynd: hilmar þór Nýju síörfin orðrn 14.500 F élagsmálar áðherra segir enn sem komið er góða reynslu af ný- legum lögum uin viuuumarkaðsaðgerð- ir og breyttri vinnu- löggjöf. „Mér er það minnisstætt að á út- mánuðum 1995, vorum við að heyja kosningabaráttu og þá var verulegt atvinnuleysi í landinu á okkar mælikvarða. Við framsókn- armenn héldum því fram að það þyrfti að skapa 12.000 ný störf til aldamóta. Það var hlegið að okkur fyrir þetta og sagt ómerki- legt yfirboð, en þetta hafði nú samt hljómgrunn hjá fólkinu í landinu. Og þessi 12.000 störf sem við framsóknarmenn vorum að tala um eru líklega orðin um 14.500 að minnsta kosti og at- vinnuleysinu hefur nú verið nær útrýmt, sem betur fer,“ sagði Páll Pétursson félagsmálaráðherra í ávarpi á ársfundi Vinnumála- stofnunar, til marks um hraðar breytingar á veröldinni í kring- um okkur og viðhorfum okkar og aðstæðum. Atvinnuleysishætur miUj- arði iiiiniii Arsskýrsla Vinnumálastofnunar sýnir árangurinn í tölum. Greiðslur atvinnuleysistrygg- ingasjóðs hafa minnkað jafnt og þétt, úr 3,2 milljörðum 1995 niður í 2,1 milljarð á sl. ári. Greiðslur til átaksverkefna minnkuðu úr 240 milljónum í 74 milljónir - en hins vegar þre- földuðust greiðslur sjóðsins vegna kauptryggingar fisk- vinnslufólks úr 58 milljónum í 156 milljónir á sama tíma. Heildargreiðslur ábyrgðarsjóðs launa hafa Iíka minnkað stórum, úr 510 milljónuin árið 1991 nið- ur í 140 milljónir í fyrra. Og út- gefin atvinnuleyfi hafa nærri tvöfaldast á sl. tveim árum, í 2.222 í fyrra. Draugurinn hlundar - en ekki dauður Páll minnti á að það hafi verið meginmarkmið ríkisstjórnarinn- ar sem mynduð var 1995 að vinna bug á atvinnuleysinu, sem mældist allt upp í 7%. Vinnulög- gjöfin og lög um atvinnuleysis- tryggingar hafi verið endurskoð- uð og ný lög sett um vinnumark- aðsaðgerðir. „Nú er dálítil reynsla komin á þessa lagasetn- ingu og ég leyfi mér að halda því fram að hún hafi verið góð - svo er ykkur (fulltrúar stéttarfélaga og vinnuveitenda) fyrir að þakka.“ Hagvöxtur hafi verið mikill, atvinnuleysi nær útrýmt og kaupmáttur vaxið mjög hratt. Þessi árangur hafi vakið athygli á norrænum og evrópskum vett- vangi og þykir glæsilegur. „Reyndar er svo komið að við erum orðin verulega háð erlendu vinnuafli, bæði til verðmæta- sköpunar og eins til að halda þjóðfélaginu gangandi," sagði Páll. Enda hafi lítið þýtt að tala um atvinnuleysisböl eða nauðsyn atvinnuuppbyggingar í síðustu kosningabaráttu - a.m.k. ekki á höfuðborgarsvæðinu. Ekki megi þó slaka á. „Efnahagslíf okkar er viðkvæmt og ef við missum verð- bólguna á stað aftur þá fylgja óhjákvæmilega í kjölfarið aukið atxdnnuleysi og önnur óáran,“ sagði félagsmálaráðherra. - HEI Nýtt jafnréttisráð skipað Páll Pétursson félags- málaráðherra hefur skipað nýtt Jafnréttisráð. Fulltrúi ráðherra og jafnframt formaður er Elín R. Líndal bóndi. Varamaður hennar er Gunnar Bragi Sveins- son, aðstoðarmaður fé- lagsmálaráðherra. Full- trúi ASI er Þórunn Sveinbjörnsdóttir, vara- formaður Eflingar, og til vara Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ. Fulltrúi BSRB er Þórveig Þormóðsdóttir deildarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir til vara. Frá Kvenfélagasambandi Islands er Jónína Steingrímsdóttir hár- greiðslumeistari skipuð og varamaður hennar er Kristín B. Kristinsdóttir skrifstofustjóri. Fulltrúi Kvenréttindafélags Is- lands er Ellen Ingva- dóttir, lögg. skjalaþýð- andi, og til vara Hulda Karen Olafsdóttir. Full- trúi VSI er Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræð- ingur VSI, og henni til vara er Guðrún Lárusdóttir. I ráðinu situr einnig formaður jafnréttismála, Sigurður Tómas Magnússon héraðsdómari, og varamaður hans er Hjördís Há- konardóttir héraðsdómari. Elín R. Líndal verður formaður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.