Dagur - 25.09.1999, Qupperneq 12
l2- L ÁÚ G Á R D ÁG V R" 2 5. SEP t'ÚWbe'r' 'l 9 99
Prír íslenskir í sigtinu hjá Lilleström
Þnr íslenski leikmenn eru nú í sigtinu hjá norska úrvalsdeildarliðinu
Lilleström. Það eru þeir Grétar Hjartarson, framhetji Grindavíkinga,
Ármann Bjömsson, ungur og efnilegur framheiji, sem skoraði 36 mörk
fyrir Sindra frá Hornafirði í 2. deildinni í sumar og loks Indriði Sigurðs-
son, vamarmaðurinn ungi hjá KR. Armann, sem undanfama daga hef-
ur dvalið hjá Lilleström, var boðið að dvelja þar áfram í næstu viku, sem
þýðir að félagið mun eflaust fljótlega bjóða honum samning. Grétar var
aftur á móti væntanlegur til Lilleström í gær, þar sem málið verður skoð-
að betur.
Hvað varðar Indriða Sigurðsson, þá hefur Dagur fregnað að KR-ing-
ar hafi þegar hafið viðræður við Lilleström, sem hugsanlega sé tilbúið til
að borga 10 milljónir íslenskra króna íyrir strákinn. Málið mun þó vænt-
anlega ekki skýrast fyrr en í næstu viku, eftir að Norðmennirnir hafa
skoðað leikmanninn betur eftir bikarúrslitaleikinn um helgina.
Samkvæmt heimildum frá Noregi, má fastlega búast við því að Heið-
ar Helguson verði seldur frá Lilleström og hefur hugsanlegt söluverð
verið nefnt á bilinu 150 til 200 milljónir íslenskra króna. Hollenska Iið-
ið Arnheim hefur þar verið nefnt til sögunnar, auk annarra liða. Fastlega
er svo búist við að kóngurinn sjálfur, Rúnar Kristinsson, verði áfram hjá
félaginu og klári gerðan samning sem nær út næsta keppnistímabil.
Redknapp óánægðiir með Meistaradeild
Evrópn
Harry Redknapp, framkvæmdastjóri West Ham, segir það mistök að
Evrópukeppni meistaraliða skyldi hafa verið breytt í meistaradeild. Red-
knapp tekur þar með undir orð knattspyrnugoðsins Johan Cruyff, sem
segir að horfið hafi verið frá gamla útsláttarfyrirkomulaginu, aðeins til
að stóru ldúbbarnir græddu meiri peninga.
Redknapp er sammála og segir að aðal mistökin liggi í breytingunni
úr útsláttarfyrirkomulaginu í deildarkeppni. „Mér finnst að keppnin hafi
misst gildi sitt með þessari breytingu. Aður skipti hver viðureign máli og
því var spenna í keppninni frá upphafi til enda. Nú geta Iiðin leyft sér
að spila upp á jafntefli og geta jafnvel unnið upp tapleiki í seinni um-
ferðum. Svo er þetta ekki lengur keppni meistaraliða, því nú taka þátt í
henni Iið niður í þriðja sæti. Það leiðir af sér að leikirnir eru misgóðir,
þar sem mikill styrkleikamunur er á liðunum,“ sagði Redknapp. Hann
segir að meistaradeildin hafi einnig haft töluverð áhrif á árangur liðanna
í deildarkeppnunum heima fyrir. Þar tekur hann sem dæmi Lundúna-
liðið Chelsea, sem nú tekur í fyrsta skipti þátt í meistaradeildinni. „Þeir
léku til dæmis gegn Watford í síðustu viku og þurftu þá að hvíla sex lyk-
ilmenn vegna leiksins gegn Herthu Berlín í meistaradeildinni á þriðju-
daginn. Þetta segir okkur að Iiðið tekur meistaradeildina framyfir ensku
deildina. Þá hefur þetta einnig tekið sinn toll af ensku bikarkeppninni,
þar sem meistarar United geta ekki leikið með,“ sagði Redknapp.
Fyrsta lyfjabaimiö í þýska boltanum
Thomas Ziemer, miðvörður þýska Iiðsins FC Númberg, sem féll úr úr-
valsdeildinni í fyrra, var í gær dæmdur í níu mánaða Ieikbann fyrir mis-
notkun steralyfja.
Ziemer, sem er þrítugur, féll á lyfjaprófi í maí sl. eftir úrvalsdeildarleik
gegn Freiburg og er fyrsti leikmaðurinn í þýska boltanum til að hljóta
slíkt bann.
Að sögn Rainer Koch, formanns lyfjaeftirlitsnefndar þýska knatt-
spyrnusambandsins, sem tilkynnti um úrskurðinn, voru niðurstöður
lyfjaprófsins óvéfengjanlegar.
Ziemer sem taldi sig hafa verið ómeðvitaðan um inntöku ólöglegra
lyfja, viðurkenndi að hann hefði fengið lyf hjá fyrrum sjúkraþjálfara fé-
lagsins, Herbert Brand, vegna slæmra vöðvameiðsla, en ekki gert sér
grein fyrir innihaldi þeirra og afleiðingum.
Þessar afsakanir Ziemers voru ekki teknar til greina. „Leikmenn bera
sjálfir ábyrgð á því hvað þeir taka inn og verða að taka afleiðingunum,"
sagði Koch, formaður lyfjanefndarinnar.
Forsala á bikarurslitaleikinn gengur
vel
Mikill áhugi er fyrir bikarúrslitaleik IA og KR á morgun, sem marka má
af því að strax um miðjan dag í gær höfðu selst vel á þriðja þúsund mið-
ar í forsölu á Skaganum og í Reykjavík. Það stefnir því í aðsóknarmet,
sem var sameiginlegt takmark hjá félögunum.
Að sögn Sæmundar Víglundssonar hjá IA, er nú mikil stemmning á
Skaganum. „Okkar dagskrá hefst í íþróttahúsinu í dag kl. 17:00 með
skemmtidagskrá fyrir börnin og síðan frá ld. 22:00 fyrir fullorðna, sem
endar með dansleik fram eftir kvöldi. A morgun verða svo sætaferðir í
bæinn frá Skútunni kl. 9:30 og 13:00, og verður haldið í Akogessalinn í
Sóltúni 3, þar sem Skagamenn og annað stuðningsfólk mun hittast fyr-
ir Ieik. Húsið verður opnað kl. 11:00 og þar verður ýmislegt til skemmt-
unar áður en haldið verður í skrúðgöngu út á LaugardalsvöII,11 sagði Sæ-
mundur.
Að sögn Magnúsar Orra Schram hjá KR, byrja KR-ingar á því að vígja
nýja félagsaðstöðu í Frostaskjólinu í dag kl. 14:00, þar sem heilmikið
verður um að vera. A morgun hefst svo dagskráin með útsendingu KR-
útvarpsins strax kl. 10:00. Klukkan 11:00 verður svo meistaramorgun-
verður á Rauða ljóninu, eins og var um síðustu helgi, þegar um það bil
300 eldheitir stuðningsmenn borðuðu saman frískandi morgunverð. I
framhaldi af því verður svo andlitsmálun og dagskrá fyrir bömin á Eiðis-
torgi, þar til við höldum af stað í Laugardalinn, með rútum. Fyrri rút-
umar fara kl. 13:20 og þær seinni ld. 13:50. Eftir leik verðum við svo
auðvitað á Rauða Ljóninu eins og síðustu tvær helgar,“ sagði Magnús
Orri.
ÍÞRQTTIR UM HELGINA
Laugard. 25. sept.
■ HANDBOLTI
1. deild kvenna
Kl. 16:30 Stjarnan - Fram
Kl. 16:30 FH - ÍR
Kl. 16:30 Grótta/KR - Víkingur
Kl. 16:30 Haukar-KA
Kl. 16:30 UMFA-Valur
■ akstursíþróttir
Haustrall Esso
Rallið hófst í gær kl. 17:40 frá Ár-
túnshöfða og var ekið um Geitháls
og Kaldárselsveg.
I dag verður ræst frá bensínstöð
Esso við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði kl. 07:30 og aftur eftir hlé kl.
11:15.
Suiuiud. 26. sept.
■ fótbolti
Bikarkeppni KSI
KI. 15:00 KR-ÍA
Úrslitaleikur í Laugardal.
ÍÞROTTIR á skjánum
Laugard. 25. sept
WéKMim AúiM
Akstursíþróttir
KI. 10:55 Formula 1
Tímataka Lúxemborg.
Golf
Kl. 12:15 Ryder bikarinn
Útsending frá keppni Banda-
ríkjanna og Evrópu í golfi.
Kl. 17:40 Ryder bikarinn
KI. 19:45 Ryder bikarinn
Fótbolti
Kl. 12:30 Alltaf í boltanum
Kl. 13:45 Enski boltinn
Man. United - Southampton
Hnefaleikar
Kl. 22:55 Hnefaleikakeppni
Oscar de la Hoya og Felix Trinidad
Endursýnt frá síðustu helgi.
Sitnnud. 26. sept.
Akstursíþróttir
Kl. 11:30 Formula 1
Kappakstur í Lúxemborg.
Golf
Kl. 14:00 Ryder bikarinn
Útsending frá keppni Banda-
ríkjanna og Evrópu í golfi.
Kl. 17:00 Ryder bikarinn
KI. 17:40 Ryder bikarinn
Kl. 19:25 Ryder bikarinn
Fótbolti
Kl. 14:45 Bikarkeppni KSÍ
Úrslitaleikur KR - ÍA
STÖÐ 2
Akstursíþróttir
Kl. 12:30 Daewoo-Mótorsport
Hestaíþróttir
Kl. 13:30 Veðreiðar Fáks
Bein útsending frá Fáksvelli.
Fótbolti
Kl. 17:00 Meistarak. Evrópu
Fjallað almennt um keppnina
og farið yfir leiki.
Fótbolti
Kl. 18:20 ítalski boltinn
Parma - Lazio
Golf
Kl. 20:25 Golfmót í Evrópu
Fótbolti
Kl. 18:55 Enski boltinn
Liverpool - Everton
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
ALLIR KRAKKAR FA LINU
LANGSOKK
MIÐAVERÐ FYRIR 6 ARA OG YNGRI
%5 KR. 400, ELDRI EN 6 ÁRA KR. 650 .,
DOLBY
Sýndkl. 18, 21 og 23-B.Í.16
Sýnd laugard. og sunnud.
kl. 15 og 17
Mánud. kl. 17
SEX ANNABEL CHUNG
251KARLMAÐUR Á10 TÍMUM
Sýnd um helgina kl. 19,21 og
00.00 miðnætursýníng - B.i.16
Mánud. kl. 19 og 21
Sýnd laugard. kl. 15
Sunnud. kl. 15
■ ■ ■ ■ i iíi ■ ■ ■ 1 ■ «11 ■ ■■■■■■■■!■■■ ■ i i iii ■ i i ■ i i i i ■ ■■■■■■■■ i ■ « ■ ■ ■ ■■ »■■■■■■■■ |hiiiiiiiiiiiii ixil niiiiiini iii lilii iiiiniiiiinnn|