Dagur - 29.09.1999, Qupperneq 2
18- MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
D^itr
LÍFIÐ t LANDINU
L
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
,Annars hlusta ég
afar Iítið á útvarp
... Get þó engu að
síður haft gaman
af þessum kjafta-
þáttum sem eru á
dagskránni."
- Agúst Guðjóns-
son taekniskóla-
nemi í Degi, sl.
þriðjudag.
Ég reyni að forðast flugustöng
Margt fróðlegt og skemmtilegt er að finna í
ævisögu Halldórs E. Sigurðssonar, ráðherra,
en hún kom út í tveimur bindum fyrir um
hálfum örðum áratug. Þar segir Halldór meðal
annars frá sjónvarpsviðtali við Gunnar
Thoroddsen þegar hann varð sjötugur, þann
29. desember 1980. „Þar fór hann á" kostum
sem fýrr, og það svo að mér varð að orði við
konu mína: Forsætisráðherrann lítur út eins
og nýrunninn lax,“ segir Halldór, sem kveðst
jafnframt hafa sagt þetta í afmælisgrein sem
hann skrifaði um Gunnar. Og ekki stóð á við-
brögðum frá Gunnari sem sendi Halldóri
þessa vísu, orta í orðastað laxins:
Þótt sækifram um gljúfragöng
og götur hálarfeti,
ég reyni að forðast flugustöng,
ogfestast hvergi í neti.
Guðmund á þing
Margar ágætar sögur^r að finna í bók Gísla
Hjartarsonar á Isafirði, Nýjar vestfirskar þjóð-
sögur, sem kom út fýrir síðustu jól. Sögurnar
eru af ýmsum toga og er hér ein þeirra birt til
gamans: „I þingkosningunum 1991 voru fram-
bjóðendur í Vestfjarðakjördæmi á faraldsfæti
um kjördæmið eins og jafnan fýrir kosningar.
Fjórir efstu menn á lista Framsóknar voru á
fundaferð saman og tóku þeir litla flugvél frá
Reykhólum til Hólmavíkur. Þetta voru þau
Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður, Pétur
Bjarnason fræðslustjóri, Magnús Björnsson á
Bíldudal og Katrín Marísdóttir á Hólmavík.
Fimmti maðurinn á listanum var síðan Guð-
mundur Hagalínsson á Hrauni á Ingjalds-
sandi, en hann var ekki með í þessari ferð.
Veður var mjög slæmt og flugvélin lét ákaflega
illa. Farþegarnir voru þöglir og ekki laust við
að nokkrum fölva slægi á andlit. Eftir langa
þögn segir Ólafur með grafarraust sem hæfði
alvöru málsins. „Ef við förumst öll hérna, þá
er Guðmundur Hagalínsson þar með kominn
á þing.“
Það lekui úr afa
Sagan hér fyrir neðan gerðist einnig fyrir vest-
an, þó hún sé að vfsu ekki fengin úr bók Gísla.
En svo bar við að eldri maður lést að vetri til
og slfk var veðráttan og frerinn í jörðu, að ekki
var nokkurt viðlit að jarða manninn. Liðu
svona dagar og vikur. Var því brugðið á það ráð
að láta lík gamla mannsins uppá hanabjálka
heima á bæ, sem var þó ekki sú hentugasta
geymsluaðferð sem til er. Það var svo ein-
hverju sinni þegar farið var að vora að í Ijúfum
hnúkaþeynum varð litlum dreng á bænum lit-
ið til lofts og horfði á ná afa síns og taum sem
af honum rann. Mælti drengurinn þá þau
fleygu orð: „Pabbi, það Iekur úr afa.“
Örvar Kristjáns-
son. „Ég finn að
það er lær-
dómsríkt að
haida sýningu.
Það efiir mann
til dáða.“
MYND GUN
Efldur til dáða
„Ég er ofboðslega ánægður
með aðsóknina. Hingað eru
búnir að koma um 300 gestir
sem er nokkuð stór hluti af
íbúum sveitarfélagsins. Ég finn
að það er lærdómsríkt að halda
svona sýningu. Það eflir mann
til dáða.“
- Ertu húinn að selja margar
myndir?
„Ég seldi einar tíu og er mjög
sáttur við það. Þótt ég væri
með nokkrar myndir héðan þá
fóru þær ekkert frekar. Menn
horfa út fyrir túngarðinn og
kaupa ekki síður myndir annars
staðar frá.“
- Þú notar aðallega vatnsliti
en hregður Ukafyrir þig krít.
„Já, ég er nýlega byrjaður að
nota krítina og finnst hún
spennandi verkfæri. Svo á ég
eftir að fara út í olíumálning-
una. Ég þarf líka að fara að herða mig í að
mála úti. Hingað til hef ég gert skyssur úti og
svo lokið við myndirnar heima.“
- Hvað er langt st'ðan þú fórst að mála?
„Ég var nú farinn að fást við þetta sem
strákur. Mér skilst það hangi uppi myndir eftir
mig á þremur heimilum hér á Höfn sem ég
málaði um miðja öldina.“
- Ertu uppalinn hér?
„Ég ólst upp í Volaseli í Lóni til 10 ára ald-
urs, þá flutti ég til Hafnar. Var hér m.a. á sjó í
uppvextinum en fór að heiman 16-17 ára.“
- Varstu hyrjaður að spila á harmóníku þá?
„Ég fékk að spila á balli í
klukkutíma á fermingardaginn
minn og upp frá því byrjaði fer-
ill minn sem harmónikuleikari,
bæði á böllum í bryggjukjallar-
anum í Nesjum og víðar. Það er
ar
Hamwnikuleikarínn
góðkunni, Örvar
Krístjánsson, varað
pakka niður myndum ZS i? 4
í Pakkhúsinu i Höfn l , nikkllna M.
Homafirði eftirsína “j4^Iók hana upp 4
fyrstu sjálfstæðu mál-
i 4 . . Djúpavogi þar sem verið var að
verkasymngu . via nýjan hótelsal.“
- Hvað er svo framundan?
„Við hjónin erum farin að
telja dagana þar til við förum til
Kanarí þann 20. október. Þar
verðum við allan veturinn eins
og við höfum gert undanfarin 5
ár. Ég er fastráðinn harmóníku-
spilari þar hjá íslenskri konu á Cosmos eða
Klörubar, eins og hann er gjarnan nefndur af
Islendingum. Svo spila ég fyrir Urval-Utsýn
líka, á kvöldvökum, jólaskemmtunum og
þorrablótum. Yfirleitt spila ég á hverju einasta
kvöldi allan veturinn."
- En ertu farinn að skipuleggja næstu mál-
verkasýningu?
„Nei, ég lifi á ánægjunni af þessari næstu
mánuði. Gott að hafa minningarnar um hana í
farteskinu út.“
GUN
SPJALL
FRÁ DEGI TIL DAGS
Allt þarf maður að gera sjálfur - meira
að segja að hlæja.
Michael Friedrichs
Þau fæddust 29. september
• 1547 fæddist spænski rithöfundurinn
Miguel de Cervantes.
• 1864 fæddist spænski rithöfundurinn
og heimspekingurinn Miguel de Una-
muno.
• 1881 fæddist austurríski hagfræðíng-
urinn Ludwig von Mises.
• 1912 fæddist ítalski kvikmyndaleik-
stjórinn Michelangelo Antonioni.
• 1916 fæddist breski leikarinn Trevor
Howard.
• 1931 fæddist sænska Ieikkonan Anita
Ekberg.
• 1942 fæddist bandaríska leikkonan
Madeline Kahn
• 1943 fæddist pólski verkalýðsleiðtog-
inn og síðar forseti Lech Walesa.
• 1950 fæddist Pálmi Gunnarsson
söngvari.
Þetta gerðist 29. september
• 1906 tók Landssími Islands til starfa.
• 1923 tóku Bretar til við að stjóma
Palestínu í umboði Þjóðabandalagsins.
• 1936 var útvarpið fýrst notað í kosn-
ingabaráttu í Bandaríkjunum.
• 1955 var leikritið „Horft af brúnni"
eftir Arthur Miller frumsýnt í New
York.
• 1974 var Auður Eir Vilhjálmsdóttir
vígð til prests, fyrst íslenskra kvenna.
• 1990 var Nesjavallavirkjun formlega
tekin f notkun.
• 1992 bauð Madonna Díönu
prinsessu að koma og búa hjá sér í
Bandaríkjunum.
Vísa dagsins
Eggjaði skýin öfund svört,
upp rann morgunstjarna:
„Byrgið hana, hún er ofhjört
helvítið að tarna".
Steingrímur Thorsteinsson
Afmælisbam dagsins
Þórunn Sigurðardóttir, Ieikstjóri,
Ieikari og leikritaskáld, fæddist í
Reykjavík 29. september árið 1944.
Hún útskrifaðist sem leikari frá
Leildistarskóla LR árið 1967. Hún
hefur leikið á Ijölum Þjóðleikhúss-
ins, Leikfélags Reykjavíkur og í út-
varpi og sjónvarpi. Auk þess að sinna
leildistargyðjunni hefur hún starfað
sem blaðamaður, fararstjóri og setið
í ýmsum stjómum og nefndum.
Lengsta servétta 1 heimi
Maður nokkur sat að snasðingi á litlu veit-
ingahúsi, og tók þá eftir að servéttu vant-
aði á borðið. Hann kallaði á þjóninn og
bað um servéttu. Þjónninn fór fram til að
ná í servéttu, en þá stóð svo á að hvergi
var servéttu að finna. Hann sendi aðstoð-
armann kokksins strax út í búð til að
kaupa servéttur, en til að bjarga málunum
í bili fór hann fram á klósett og náði þar í
klósettpappír, sem hann fór síðan með að
borðinu þar sem maðurinn sat enn að
snæðingi. Maðurinn sá strax hvers konar
pappír þetta var, og sagði: „Þetta er ekki
servétta, þetta er klósettpappír." Þjónninn
svaraði: „Það fer nú eftir ýmsu. I sumra
augum er þetta klósettpappír, en aðrir líta
svo á að þetta sé lengsta servétta í heirni."
Veffang dagsins
Allt um dagatöl og tímatalsreikning að
fornu og nýju, og í ýmsum heimshlutum:
untnv. wehexhihits. com/calendars/