Dagur - 30.09.1999, Side 1

Dagur - 30.09.1999, Side 1
á Seltj amamesi Leíkskólagjðld hækka imt 20%. Útgjöld for eldra med tvö böru ankast uin 74 þúsund á ári. Töluverður hiti er í foreldrum leikskólabarna á Mánabrekku í Seltjarnarnesbæ vegna þeirrar ákvörðunar bæjarins að hækka leikskólagjöld um 20%. Her- mann Valsson, formaður For- eldrafélagsins, segir að þetta auki útgjöld foreldra sem séu með tvö börn á leikskóla í átta tíma á dag um 74.536 krónur á ári og 42 þúsund krónur fyrir foreldra með eitt barn. Hann telur að foreldr- ar verði að auka árstekjur sfnar um 120 þúsund krónur til að standa straum af þessari hækk- un. Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri segir að hækkunin sé vegna betri þjónustu og fjölgunar leik- skólakennara. Alveg úr takti A fundi Foreldrafélags Mána- brekku í gærkvöld var þess kraf- ist að Seltjarnarnesbær taki þessa hækkun til baka eða að hluta til svo þessi mikla hækkun lendi ekki af fullum þunga á for- eldrum á einu bretti. Eftir hækk- un kostar t.d. átta tíma viðvera fyrir eitt Ieikskólabarn 23.232 krónur á mánuði. Formaður For- eldrafélagsins bendir einnig á að útvarstekjur bæjarsjóðs hafi auk- ist um 236 milljónir króna á tímabilinu 1996-1998. Þá sé Frá fundi foreldrafélagsins á Mánabrekku í gærkvöld. Árstekjur foreldra leikskólabarna á Mánabrekku í Seltjarnarnesbæ þurfa aö aukast um 120 þúsund krónur á ári til að standa straum af20% hækkun leikskólagjalda. mynd: e.ól þessi hækkun sem á að koma til framkvæmda á föstudag, eða 1. október nk., aðeins um 3,79% af þessum auknu tekjum bæjar- sjóðs. Auk þess lendir hún af fullum þunga á barnafólki sem einatt sé að koma undir sig fót- unum og má því ekki við miklum útgjaldaaukum til viðbótar Hð það sem gengur og gerist. Hann bendir einnig á að þessi hækkun sé alveg úr takti við það sem hef- ur verið að gerast í öðrum bæjar- félögum vegna leikskóla. Hann gagnrýnir einnig bæjaryfirvöld fyrir að taka þessa ákvörðun ein- hliða í stað þess að ræða málin fyrst við foreldra leikskólabarna. Þá hafi foreldrar fengið að vita af þessari hækkun fyrir aðeins viku síðan. Betri þjónusta Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri segist ekki bera brigður á út- reikninga Foreldrafélagsins að öðru leyti en því að hækkanir séu ekld jafn miklar og fullyrt sé með tilliti til systkinaafsláttar. Þar munar nokkrum þúsundum króna. Auk þess sé það ekki skylda að hafa börn á Ieikskóla. Hins vegar sé því ekki að Ieyna að kostnaður bæjarfélagsins vegna Ieikskóla hefur aukist í framhaldi af betri þjónustu og þeirri staðreynd að ráðnir hafa verið um 12 nýir leikskólakenn- arar. - GRH Reiði í foreldrum Stöndiun vel gagnvart EES Því er haldið fram að íslensku ráðuneytin hafi verið kærulaus og alltof sein að koma fram með Iagafrumvörp í tengslum við EES-samninginn og þær skyldur sem hann Ieggur okkur á herðar. Halldór Asgrímsson utanríkisráð- herra segir íslendinga standa sig nokkuð vel í þessum efnum. „Við höfum bætt okkur mikið á þessu sviði og á síðasta fundi EFTA, sem var haldinn í Noregi, kom fram að Islandi hafði tekist að lagfæra mjög margt í þessum efnum. Við vor- um þó heldur aftar en Noreg- ur. Hér er um að ræða um- fangsmikil mál og flókin. Við erum með litla stjómsýslu og það tekur einfald- lega sinn tíma að koma þessum málum áfram. Síðan þarf Alþingi að fylgjast vel með þessu og fara yfir málin. Eg tel að þetta hafi verið í öllum aðalatriðum í eðli- Iegum farvegi," sagði Halldór As- grímsson í samtali við Dag. - En stefnir í að utanríkisráðn- neytið taki að sér aukin verkefni við það mikla verk sem er á bak við að koma EES-löggjöf og regl- um ígildi hér á landi? „Við erum alltaf að aðstoða ráðuneytin í þessum málum og þoka þeim áfram. Það er enda á okkar ábyrgð í utanríkisráðuneyt- inu að samræma þessi mál og standa fyrir því gagnvart Evrópu- sambandinu. Þetta hefur skánað hjá okkur Islendingum en við erum þó ekki í fyrsta sæti. Það eru mörg lönd innan Evrópusam- bandsins, sem eru langt á eftir okkur að koma ýmsu á sem þeim ber að gera. Við þolum því að mínu mati allan samanburð í þessu efni,“ sagði Halldór As- grímsson. - S.DÓR Geymslan á Kringlusvæðinu sem hýsa mun um 1000 verslunarmuni úr Kringlunni. Innsiglað í lOOár Um 1000 munir úr verslunum í Kringlunni verða innsiglaðir í 100 ár í sérstakri geymslu sem þar hefur verið byggð. Síðan verða þessir munir í umsjón Þjóðminjasafnsins eftir eina öld þegar geymslan verður opnuð. Þá geta menn séð hvaða varn- ingur það var sem var einna vin- sælastur á Islandi árið 1999 þegar Kringlan var stækkuð um 10 þúsund fermetra. Eitt neysluaugnablik Kristinn E. Hrafnsson myndlist- armaður segir að þetta sé sam- eiginleg hugmynd hans, Studio Granda og Eignarhaldsfélags Kringlunnar. Hann áréttar einnig að geymslan sé aðeins hluti af miklu stærra verki í hönnun nýbyggingu Kringlunn- ar þar sem áhersla sé lögð á samspil myndlistar, umhverfis og arkitektúrs. Með þessu sé verið að frysta eitt neysluaugna- blik í Kringlunni. Hann segir að munirnir komi frá öllum þeim verslunum sem séu í Kringlunni og þegar sé búið að fá marga muni og skrá. Við val á munum sé Iögð áhersla á að þeir séu nýir og vinsælir. Kristinn segir aðeins einn glugga verða á þessari geymslu og það verði netgluggi á heimasíðu Þjóðminjasafnsins. Hins vegar sé gert ráð fyrir því að þessir munir verði til sýnis á vegum Þjóðminjasafnsins eftir 100 ár. Einstakt tilvik Þór Magnússon þjóðminjavörð- ur segir að söfnun og varðveisla verslunarmuna í eina öld sé trú- lega alveg einstakt tilvik og eigi sér vart hliðstæðu í öðrum at- vinnugreinum. Hann býst ekki við að þessu verði fylgt eftir mjög víða. Hann segir að hlutverk Þjóðminjasafnsins í þessu sé nánast ekki neitt að frátöldu því að samþykkja það að safnið muni taka við þessum munum til varðveislu þegar geymslan verð- ur opnuð eftir eina öld. - GRH www.1x2.is Nú er getraunaseðiUinn allur enskur ir\

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.