Dagur - 30.09.1999, Page 4

Dagur - 30.09.1999, Page 4
4 -FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999 Nýir stjórnendur Netverks I samræmi við auknar áherslur íslenska hugbúnað- ar- og hátæknifyrirtækisins Netverks á þráðlausa símamarkaðinn hefur Bretinn John Huckle verið ráðinn sem forstjóri Netverks. Holberg Másson, sem verið hefur forstjóri, verður stjórnarformaður fyrirtækisins. Huckle er verkfræðingur og endur- skoðandi að mennt og hefur langa reynslu í rekstri hátæknifyrirtækja. Innkoma hans tengist áformum erlendra fjárfesta um að taka þátt í rekstri Net- verks, sem og undirbúningi fyrir skráningu fyrir- tækisins á erlenda hlutabréfamarkaði. Þá hefur Netverk ráðið Ingólf Hjörleifsson til starfa sem aðstoðarforstjóra. Ingólfur hefur und- anfarin níu ár starfað hjá Ericsson í Svíþjóð, síðast sem yfirmaður þróunarverkefnis fyrir símafyrir- tæki. Netverk hefur að undanförnu verið að víkka út starfssvið sitt á fjarskiptamarkaði. Þekktust er hugbúnaðarlausnin MarStar, sem hentar fyrir gervihnattakerfi, en fyrirtækið hefur einnig þróað nýja lausn fyrir gagnasendingar yfir GSM-kerfi, sem kynnt verður á næstunni. - BJB Ingólfur Hjörleifsson. FRÉTTIR rD^tr Seinni partinn í þessari viku verður gengið frá kaupum Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum CKHBJ á Melabúðinni í Neskaupstað. Landsvirkjim æfir sig fyrir aldamótin Viðbúnaðaráætlun Landsvirkjunar vegna aldamótanna er tilbúin og í vikunni fóru fram fyrstu tvær af þremur æfingum í að starfa eftir henni. Annars vegar voru prófaðar boðleiðir og hins vegar æft að stýra raforkukerfi Landsvirkjunar án kerfiráðs stjórnstöðvarinnar, þ.e. tölvukerfisins. Þann 5. október verður síðan æfð stýring raforku- kerfisins við aðstæður þar sem íjarskipti eru takmörkuð. Samkvæmt tilkynningu ffá Landsvirkjun hefur fyrirtækið unnið að því frá árinu 1998 að raforkuafhending um nk. áramót verði jafn trygg og áður þrátt fyrir hættu á að hugbúnaður tölvukerfa getið unn- ið vitlaust vegna 2000-vandans. Staðan núna hjá Landsvirkjun er sú að nær allur búnaður hefur verið yfirfarinn og lagfærður, aðeins er eftir að lagfæra nokkrar símstöðvar. Lurkaleik lokið Nú er Lurkaleikn- um á vegum Emmessíss lokið en hann var fólginn í því að þeir sem gæddu sér á Lurk- um í sumar leituðu að sérstökum mekj- um á íspinnaspýt- unni. Mikil eftir- spurn var eftir Lurkum og tveir nýir Lurkar, Blár lurkur og Sirkus- lurkur, fengu mjög góðar móttökur. Þátttakan í leikn- um var því geysigóð enda voru stór- glæsilegir vinningar í boði, ævintýraferð fyrir tvo til London og Parísar, 20 GSM-símar með GSM-frelsi, frysti- kista full af ís, G-Shock úr o.fl. Lerðavinninginn hlaut Heiðrún Þóra Aradóttir, Tunguvegi 3, Njarðvík en nöfn annarra vinningshafa má sjá á heimasíðu Emmessíss: emmess.is. Kaupfélag Héraðsbúa kauptr í Neskaupstað Kaupfélag Háraðsbúa kaupir Melabúðiua í Neskaupstað og tekur upp samstarf við Sam- kaup. Miklar hræringar hafa verið á matvörumarkaðinum á lands- byggðinni síðustu mánuði. Er þar skemmst að minnast sam- vinnu Kaupáss og Kaupfélags Austur-Skaftfellinga (KASK) vegna verslana KASK á Horna- firði og Djúpavogi. Seinni partinn í þessari viku verður gengið frá kaupum Kaup- félags Héraðsbúa á Egilsstöðum (KHB) á Melabúðinni f Nes- kaupstað. Að sögn Inga Más Að- alsteinssonar, kaupfélagsstjóra KHB, er fyrirhugað að reka Melabúðina með óbreyttum hætti til áramóta og munu fyrri eigendur, Sigurður Sveinbjörns- son og Guðbjörg Lriðjónsdóttir, annast daglegan rekstur þangað til. Eftir áramót verður Melabúð- inni breytt í Sparkaupsverslun. „Eg reikna með að í kjölfarið muni Norðfirðingar fara að sjá lægra matvöruverð en þeir hafa vanist hingað til,“ sagði Ingi Már. Samstarf við Samkaup Opnun Sparkaupsverslunar á Norðfirði í janúar nk. verður að- eins fyrsta skrefið í samstarfi KHB og Samkaupa í verslunar- málum því á döfinni er enn nán- ari samvinna. „Verslanamynstrið í landinu er að breytast og við erum að sjá stærri einingar. Til- gangur kaupanna á Melabúð- inni, og samstarfið við Samkaup, er að ná fram hagkvæmari inn- kaupum og hagstæðari rekstrar- einingu fyrir félögin tvö sem gera mun þau bæði samkeppnisfær- ari,“ sagði Ingi Már. Aðspurður sagðist hann ekkert geta sagt til um hvort KHB kaupi fleiri matvöruverslanir á Austur- landi. „Það verður bara að koma í ljós,“ sagði hann. Hann vildi heldur ekki gefa upp hvert kaup- verðið á Melabúðinni væri. Kaupin á Melabúðinni hafa verið í deiglunni í nokkurn tíma og sagði Ingi Már að samvinna KASK og Kaupáss hefði í sjálfu sér ekki flýtt neitt fyrir. „Það er mikið um að vera á matvöru- markaðinum og hlutirnir gerast hratt," sagði hann. Líst ágætlega á nýja sam- keppni I Neskaupstað eru þijár mat- vöruverslanir: Melabúðin, Versl- unin Nesbakki og K-Bónus en þær tvær fyrst nefndu eru með ráðandi markaðshlutdeild. A undanförnum mánuðum hafa eigendur Nesbakka, hjónin Ás- valdur Sigurðsson og Kolfinna Þorfinnsdóttir, verið að láta byggja við verslunina og sagðist Asvaldur reikna með að viðbygg- ingin yrði tekin í notkun í desem- ber. Sagði hann að við það myndi verslunarplássið stækka um 70 fermetra og öll starfsmannaað- staða batna til muna. En hvemig líst Ásvaldi á að fá nýja samkeppnisaðila? „Mér Iíst ekkert illa á það í sjálfu sér. Það má reikna með einhverjum breytingum á mark- aðinum en hveijar þær verða kemur bara í Ijós. Markmið okk- ar mun ekkert breytast en það er að viðskiptavinurinn fari frá okk- ur ánægður, hér eftir sem hingað til.“ KHB rekur fyrir fimm verslan- ir á Austurlandi: Á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði, Seyðisfirði og á Borgarfirði eystri. Sam- kaupsverslanir eru í Reykjanes- bæ, Hafnarfirði, Reykjavík og á Isafirði en auk þeirra rekur Sam- kaup Sparkaupsverslanir í Garð- inum og í Sandgerði. - kjk EXPRESS HAGLASKOHN Mávahlíð 41, Rvik, sími 562 8383 OG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND —HÆFA BEIUR 9 Sjörnubrotin plasthylki 9 Plastbolla forhlöð 9 16-24mm sökkull 9 VECTAN-hágæða púður 9 36, 42 og 46 gr. hleðsla • 3% ANTIMONY-högl 9 Stærðir 1, 3, 4, 5 9 Hraði: 1375fet/sek. • ClP-gæðastaðall _______ SPORTVÖRU GERÐIN HF. Treg síldveiði á Papagnmni Alliir afli af Jónu Eð- valds SF fer í niður- lagningu á Homafirði þar sem markaðshorf- ur em ekki mjög góð- ar og allir markaðir fyrir síldarafurðir mjög óvissir, og mark- aðsverð lækkandi. Jóna Eðvalds SF-20 frá Horna- firði hefur verið á sfldveiðum að undanförnu. Enginn kraftur hef- ur verið í veiðunum í upphafi þeirra, slagkrafturinn lítill, en báturinn hefur verið á Papa- grunni ásamt 5 öðrum bátum, en þar var bræla aðfaranótt þriðju- dags en í gær var batnandi veður. Sjómenn gera sér þó vonir um að sfgandi lukka sé best í sambandi við síldveiðarnar. Eitthvað hefur orðið vart síldar fyrir vestan land hjá skipum á bolfiskveiðum en ekkert nótaskip hefur nýlega farið þangað. Síldin sem hefur verið að fást á Papa- grunni er blönduð, millisíld. All- ur afli af Jónu Eðvalds SF fer í niðurlagningu á Hornafirði þar sem markaðshorfur eru ekki mjög góðar og allir markaðir fyr- ir síldarafurðir mjög óvissir, og markaðsverð Iækkandi. Hlutur bræðslusíldar hefur farið mjög vaxandi á undanförnum árum. A vertíðinni 1996/1997 fóru 23% síldarinnar til bræðslu en á síð- ustu vertíð, 1998/1999, fóru hins vegar 72% af aflanum í bræðslu. Á vertíðinni 1999/2000 mun mest veiðast af árganginum frá 1994, þ.e. fimm ára síld, en veiðin að öðru leyti dreifast jafnt á aðra árganga. Vegna þess að tveir mjög sterkir árgangar verða í stofninum sumarið 2000 mundi hann stækka í um 526 þúsund tonn en minnka aftur í 516 þúsund tonn árið 2001 mið- að við sömu sókn. Ef veidd yrðu 140 þúsund tonn næstu þrjár vertíðir er ljóst að stofninn mun minnka í 439 þúsund tonn þrátt fyrir tvo góða árganga sem nú eru að bætast í stofninn. Ef veidd yrðu 60 þúsund tonn næstu þrjár vertíðir myndi stofninn hins veg- ar vaxa í 598 þúsund tonn árið 2001. Hafrannsóknastofnun lagði til að leyfilegur hámarksafli yrði miðaður við kjörsókn, eða 100 þúsund tonn á vertíðinni 1999/2000. Úthlutun sjávarút- vegsráðuneytisins er í samræmi við það. - gg

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.