Dagur - 30.09.1999, Síða 6

Dagur - 30.09.1999, Síða 6
6 - f'iMMTÓÖAÓÚR 3 0. SÉPTÉMÉEtí 1999 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði Lausasöluverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is - gunnarg@dagur.is Sírnar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRIJ460-6191 Gunnar Gunnarsson 460-6192 Gréta Björnsdóttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyrd 551 6270 (reykjavík) Stríð gegn íhaldsöfLion 1 fyrsta lagi Þrumandi ræða sem Tony Blair, forsætisráðherra Breta, hélt á flokksþingi Verkamannaflokksins í fyrradag, hefur vakið mikla athygli. Þar Iýsti hann yfir nánast heilögu stríði gegn íhaldsöfl- unum - ekki aðeins þeim sem ráða ríkjum í Ihaldsflokknum, heldur gegn öllum þeim afturhaldsöflum í samfélaginu sem veija staðnað kerfi forréttinda og standa í vegi fyrir því að öll- um þegnum þjóðfélagsins gefist jöfn tækifæri til að njóta hæfi- leika sinna allt frá barnæsku til elliára. Blair var um leið að leggja grunn að þeirri stefnu sem hann hyggst fylgja fram á nýja öld og sem hann treystír að muni skila Verkamanna- flokknum endurnýjuðum meirihluta í næstu þingkosningum. í öðru lagi LykiIIinn að því framtíðarþjóðfélagi sem Blair stefnir að er krafan um jafnrétti þegnanna. „Stéttarstríðinu er lokið,“ sagði hann í ræðu sinni, „en baráttan fyrir raunverulegu jafnrétti er rétt að hef]ast.“ Hann boðar að hinir „nýju róttæklingar" sínir muni leysa þjóðina úr fjötrum íhaldsaflanna á nýrri öld. Hann lofar betri skólum, bættri heilsugæslu, skipulegum aðgerðum til að útrýma fátækt barnafjölskyldna, aukinni atvinnu og bættu öryggi þegnanna með stórhertum aðgerðum gegn fíkni- efnavá. Meginforsendan er sá skilningur hans að auður þjóða í samtímanum felist ekki í ljármagninu heldur í fólkinu sjálfu. í þriðja lagi Ríkisstjórn Blairs hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa farið sér of hægt í umbótum á þjóðfélaginu. En með ábyrgri efnahags- stjórn hefur boðberi þriðju leiðarinnar sýnt að atvinnulíf getur blómstrað undir stjórn Verkamannaflokksins. Það er jafnframt forsenda þess að hægt verði á næstu árum að breyta bresku þjóðfélagi í átt til raunverulegs jöfnuðar og réttlætis, sem er yf- irlýst markmið þess stríðs sem hinir nýju róttæklingar Blairs boða nú gegn íhaldsöflunum. Það ætti að verða lærdómsríkt fyrir íslenska stjórnmálamenn að fylgjast vel með þeirri bar- áttu. Elías Snæland Jónsson Enn 1650 gröinui af ágreiningi Garri minnist þess að hafa fyr- ir rúmum áratug Iesið gagn- merka frétt í Tímanum um ágreining í Alþýðubandalaginu fyrir landsfund. I þeirri frétt hafði flokkurinn farið þá Ieið að láta stríðandi fylkingar skrifa skýrslur um mál sfn sem síðan voru Iagðar fram sem umræðu- plögg á fundinum. Eins og við var að búast var stefna í þess- um skýrslum austur og vestur og þær mættust alls ekki á miðri leið. Enda var yfirskrift fréttarinnar „1650 grömm af ágreiningi" og mynd af skýrsl- unum þar sem þær höfðu verið lagðar á póstvigt. Allur þessi ágreiningur varð að sjálfsögðu ekki jafnaður á einum lands- fundi, þó skýrsluhöfundar jafnt sem aðr- ir lýstu yfir miklum árangri í lok fundarins. Afram starfaði Alþýðubandalagið því á þeim grundvelli sem það hefur þrifist best - innanflokksátökum. Hálft kíló eftir Eftir að Samfylkingin komst á koppinn og bauð sameiginlega fram í síðustu kosningum, hef- ur minna heyrst af þessum 1650 grömmum sem þó voru alltaf í geymslu í herbúðum flokksins. Raunar töldu margir að Steingrímur J. hefði tekið svona eins og eitt kíló með sér yfir til vinstri grænna, ef ekki meira. Nú er hins vegar að koma í ljós að í það minnsta hálft kíló, jafnvel heilt kíló af ágreiningi hefur orðið eftir í Al- þýðubandalaginu og oltið fram óvænt þegar menn fóru að í góðan jarðveg og hefur þrifíst vel í rekjunni í sumar. Hann sprettur nú fram fullþroska í fréttum Dags af Arna Þór Sig- urðssyni og óánægjuhópi úr ABR í fyrri viku, og svo aftur í Morgunblaðsgrein í þessari viku. Sannkallaður pólitískur haustlaukur. Heimsmet? Garri veltir því nú fyrir sér hvað myndi gerast ef þau Margrét Frímannsdóttir og Arni Þór Sigurðsson færu út í gömlu að- ferðafræðina og skrifuðu hvort sína skýrsluna um markmið og leiðir Alþýðu- bandalagsins. Miðað við hvern- ig glósurnar og skeytin milli þeirra hafa verið að stigmagnast síðustu daga kæmi ekki á óvart þótt þykkt skýrslnanna yrði slík að þær slagi hátt í 1650 grömmin frá því fyrir áratug. Það hlýtur að teljast frábær ár- angur ekki síst í ljósi þess að Steingrímur J. er ekki lengur í flokknum. Mesta afrekið er þó að ná að magna upp slíkar deil- ur og slíkan ágreining í flokki sem ekki starfar lengur og hef- ur þá yfirlýstu stefnu að Ieggja sjálfan sig niður við fyrsta tæki- færi. Garri hallast helst að því að þetta hljóti að vera heims- met, nema ef vera kynni að sá hatrammi varaformannsslagur sem í uppsiglingu er í Alþýðu- flokknum slái allaböllum við, en ásóknin í varaformanns- embættið hefur aldrei verið meiri en eftir að ákveðið var að leggja hann niður. GARRI hrista værðarvoðirnar á vordög- um síðustu. Agreiningurinn féll Árni Þór Margrét Sigurðsson. Frímannsdóttir. JÓHANNES SIGURJÓNS SON skrifar Islenska guðslambið lastað! Við erum vanir því, íslendingar, að upphefðin komi að utan. Því við eigum það sammerkt með íbúum fleiri smáþjóða að þó við belgjum okkur út hér heima og Iýsum því yfír að við séum góðir eða bestir á flestum sviðum og land vort hið besta í heimi, þá erum við ekki alveg vissir. Við höfum óljósan grun um að kannski sé þetta ekki alveg rétt. Þess vegna þurfum við að fá staðfestingu erlendis frá, útlend- ingar þurfa að hlaða undir sjálfs- ánægju okkar með jákvæðum ummælum. Og skiptir þá engu hvaða erlendir slordónar eiga í hlut, ef þeir segja að við séum bestir, að allt sé hest á Islandi, þá eru þetta um leið málsmetandi menn sem mark er á takandi, jafnvel þó um sé að ræða löggilta hálfvita eða sauðdrukkna sí- brotamenn. Heimsfræg gáfumenni afturá- móti sem Ieyfa sér að tala miður vel um land og þjóð eru umsvifa- laust afgreidd sem neikvæðir aft- urúrkreistingar sem ekkert viti í sinn haus. Náttúrulögmál Við viljum fá staðfestingu á því að við eigum fegurstu konur í heimi, sterkustu steralausu karl- ana, besta fót- boltaliðið (miðað við höfðatölu), gáfaðasta forset- ann, langbestu Björkina, hreinasta loftið, óspilltustu náttúruna, hagmælt- ustu hagyrðinga og svo framveg- is og svo framvegis. Og við þurf- um staðfestingu á þessu öllu til að vera viss. Heimafengin full- vissa nægir okkur ekki í þessum tilvikum. Það eina sem við höfum aldrei þurft að fá staðfestingu á erlend- is frá, vegna þess að við höfum talið það óumdeilanlegt náttúru- lögmál sem kunngjört hefur ver- ið allri heims- byggðinni, er sú staðreynd að ís- lenska lamba- kjötið sé það besta í heimi. Þetta hefur alltaf verið trú- aratriði á Islandi og hefur þvf ekki verið orð- um á eyðandi. Bragöskynleysi? Frétt Dags í gær um það að ís- lenska lambalærið sé ekki það besta í heimi er því gríðarlegt áfall fyrir þjóðina, mýtur hennar og trúarbrögð. Dagur greinir frá því að 36 fjölskyldur á Islandi, Englandi, Frakklandi, Spáni, Italíu og Grikklandi hafi etið og metið lambakjöt frá þessum sex löndum og niðurstaðan varð sú að íslenska Iambakjötið lenti harla aftarlega á merinni. Jafnvel hjá íslensku fjölskyldunum varð íslenska lambakjötið ekki í efsta sæti! Þetta er náttúrlega fáheyrt og þarna hljóta að vera maðkar f mysunni. Annaðhvort hefur hist svo á að umræddar ljölskyldur eru smekk- og bragðskynlausar skepnur og með öllu óhæfar til að meta og dæma kjötgæði. Ellegar hitt, sem er trúlegra, að íslenska lambakjötið hafi ekki verið af þingeysku fé. Þar nefni- Iega gæti grænmetið legið grafið. Það er sum sé sitthvað íslenskt Iambakjöt og íslenskt lambakjöt. Vonandi verður tekið tillit til þess þegar næsta könnun á evr- ópsku lambakjöti fer fram. spur^bi svanrad Hvaðfinnst þér unt vin- áttu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta ís- lands, ogDorrit Mussaieff? Sr. Þórix Jökull Þorsteinsson sókmrprestur á Selfossi. „Þetta er eðli- legur hlutur. Astin setur sér aldrei tíma- mörk og ef for- setar verða ást- fangnir verða þeir að fá að vera það. A tím- um kaþólsku kirkjunnar giltu ákveðnar reglur óskráðar, svo sem um ákveðinn sorgartíma og klæðaburð sem gaf til kynna að viðkomandi hefði orðið fyrir missi. En í samfélagi samtímans er engar slíkar viðmiðanir að finna, og ná þær jafnt til forseta sem annarra. Mikilvægt er að forseti Islands fái í þessum efn- um ákveðna friðhelgi, hvað sem pressunni finnst um það.“ Valdís Guimarsdóttir Útvarpi Matthildi. „Forsetinn verður að fara varlega. Það er stutt síðan Guðrún Katrín lést og það hef- ur komið fram að þau Dorrit kynntust í mars síðastliðnum. Ef hann ætlar að eiga hana fyrir eiginkonu er þetta allt í lagi, en mér fínnst að sumu leyti einsog allt þetta fjöl- miðlafár nú sé markaðssett af auglýsingastofu - einsog hans forsetaferill hefur verið. Dæmi um það er að Ijósmyndara DV var boðið með í hestaferðina á Leirubakka. Olafur vann kosn- ingarnar ekki síst út á að vera með Guðrúnu Katrínu sér við hlið og nutu þau mikillar samúð- ar í veikindum hennar. En við nýjar aðstæður núna verður hann að gæta sín.“ Karl Th. Birgisson ritstjóri Austurlands. „Ég er afskap- lega hamingju- samur fyrir hönd forsetans. Hinsvegar held ég að þjóðin ætti að gefa Olafí og Dorrit frið til að leyfa þessu vináttu- sambandi þeirra að þroskast." Sverrir Leósson útgeióarmaðurá Akureyri. „Mér þykir mjög vænt um þetta og vona að þeirra sam- band verði far- sælt og mikið gæfuspor. Þjóð- in tók öll þátt í veikindum Guðrúnar Katrínar og við skynjuðum að þar var mikil ást á milli hjóna. Það fólk sem ég umgengst hér á Akureyri og hef heyrt tala um þetta er mjög ánægt fyrir hönd Olafs - og við ætlum öll að þetta verði þeim Dorrit til hamingju."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.