Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 1
T
Vilja samema
Ámessýslu alla
Enginn er eyland. Myndin er af Oddgeirshólum í Hraungerðishreppi, en
svo kann að fara að þessir bær - einsog allir hinir - verði í náinni framtíð í
sveitarfélagi sem myndi ná yfir Árnesþing allt. Hver veit? mynd: sbs
Fimm sveitahreppar í
Ámessýslu vilja við-
ræður um sameiuiugu
allra sveitafélaga í
sýsluuui. Nauðsyn,
segir talsmaður þeirra.
Jákvæðni í Árborg en
Hvergerðingar hafa
þegar hlásið á hug-
myndina.
Nefnd fulltrúa hreppsnefnda
Hraungerðis-, Villingaholts-,
Skeiða-, Gnúpveija- og Hruna-
mannahreppa hefur sent sameig-
inlegt bréf til allra sveitarstjóma í
Arnessýslum, þar sem óskað er
eftir viðræðum um „framtíð sveit-
arfélaganna" einsog það er orðað.
Oskað er eftir svari fyrir 1. desem-
ber en í bréfinu segir að verið sé
að „kanna áhuga og skoðanir fleiri
sveitarstjóma á víðtækari samein-
ingu í Arnessýslu,“ einsog það er
orðað.
Stærri, viðameiri
og flóknari verkefni
Nefnd fulltrúa áðurnefndra sveit-
arfélaga var mynduð síðastliðinn
vetur og eiga í henni sæti tveir
fulltrúar frá hverju sveitarfélagi.
Umræður um sameiningarmál
hafa verið óformlegar til þessa, en
nú þykir mönnum rétt að setja
meiri alvöru í málið og leita eftir
því hver raunverulegur vilji manna
til stærri sameiningar sé. Er sam-
eining Árnessýslu allrar í eitt sveit-
arfélaga settur fram sem fyrsti val-
kostur.
Guðmundur Stefánsson, odd-
viti Hraungerðishrepps, fer fyrir
hópnum sem sendi þetta erindi
út. Hann segist telja sameiningu
sveitarfélaga í stærri einingar mið-
að við núverandi aðstæður vera
orðna nauðsyn. Meðal annars
vegna þess að sveitarfélögin séu í
dag að taka að sér sífellt stærri,
viðameiri og flóknari verkefni. Og
það sé tæpast á færri fámennra
sveitarfélaga, sem telja kannski
100 til 200 íbúa og séu aðeins
með einn starfsmann á sínum
snærum, til dæmis oddvita í hluta-
starfi, til að sinna þeim verkefn-
um. „Eg á von á einhverskonar
sameiningu sveitarfélaga hér í Ár-
nessýslu á líðandi kjörtímabili,"
segir Guðinundur.
Nú fara menn að reikna
Sem áður segir er óskað eftir því
að fyrir 1. desember segi sveitar-
stjórnir í Árnessýslu af eða á hvort
þær hafi áhuga á viðræðum um
sameiningarmál „sem yrðu fyrst í
stað óformlegar og án skuldbind-
inga,“ einsog segir í áðumefndu
bréfi. Nú þegar hefur í sveitarfé-
laginu Árborg verið skipaður hóp-
ur bæjarfulltrúa sem mun, ásamt
bæjarstjóra, fara í þessar viðræður.
Kristján Einarsson, forseti bæjar-
stjórnar, kveðst vera jákvæður
gagnvart málinu og bendir m.a. á
að yfirlýstur vilji allra þeirra sem
koma að sveitarstjórnarmálum í
Árborg að vinna að sameiningu
sveitarfélaga í Amessýslu. Hún sé
líka um margt rökrétt, enda hafi
sveitarfélögin með sér samvinnu á
ýmsu sviðum og eigi sameiginlega
hagsmuni á ýmsa Iund. „Samein-
ingarviðræður kalla á reikninga og
nú fara menn að reikna og reikna
og athuga hagkvæmni þess að
þessi sveitarfélög sameinist," sagði
Kristján Einarsson.
1 Hveragerði hafa menn þegar
gert upp hug sinn til þessa máls og
hafa ákveðið að vera ekki með í
sameiningarviðræðum. „Við telj-
um sameiningu einfaldlega ekki
tímabæra. Við eigum margt eftir
ógert í framkvæmdum hér í bæn-
um sem við viljum einbeita okkur
að núna, þó ekki sé rétt heldur að
útiloka sameiningu á síðari stig-
um,“ sagði Gísli Páll Pálsson, for-
seti bæjarstjórnar.
-SBS.
Samhygð
sigraði
Lið Ungmennafélagsins Sam-
hygðar í Gaulverjabæjarhreppi
er komið í undanúrslit í spurn-
ingakeppni aðildarfélaga Hér-
aðssambandsins Skarphéðins,
sem fram fer í Utvarpi Suður-
lands. Fyrsta lota keppninnar
var sl. sunnudagskvöld, þar sem
lið Samhyggðar atti kappi við lið
Laugdæla. Lyktir leiks urðu 18-
17 og geta Samhyggðarmenn
heppnir talsist, en þeir eiga titil
að verja eftir sigur í þessari
keppni á síðasta ári.
Stjórnandi keppninnar er
Valdimar Bragason og dómari er
Guðrún Halla Jónsdóttir. Jafn-
framt því að vera spyrill semur
Valdimar jafnframt spurningar
keppninnar og eru þær ekki síst
um ýmis þekkingaratriði er
varða Suðurland. Dæmi: Hvert
er fjallið á Hellisheiði sem er á
vinstri hönd þegar ekið er frá
Selfossi og til Reykjavíkur. Svar:
Skálafeil.
i ’.’jBOÍ -SBS.
Keppendur Samhygðar, dómari og spyrill. Frá vinstrl talið; Guðrún Halla Jónsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Jón M.
ívarsson, Markús Kr. íyarsson og Valdimar Bragason. mynd: sbs
Á leikskóla. Fjárveiting bæjar-
stjórnar Árborgar til átaksverkefnis
leikskóla hefur snúið leikskóla-
kennurum sveitarfélagsins aftur til
starfa.
Leikskóla-
keimumm
snmðtíl
starfa
Bæjarstjórn Árborgar hefur
ákveðið að leggja fé til átaks-
verkefnis, sem miðar að því að
fylgja eftir nýrri aðalnámskrá
fyrir leikskóla sem mennta-
málaráðuneytið gaf út þann 1.
júlí sl. Verkefnið verður unnið
á tímabilinu frá október 1999
til Ioka næsta árs. Átakið verð-
ur á ábyrgð og í umsjón leik-
skólastjóra í hverjum leikskóla
og áætlun, framkvæmd og mat
á starfinu verður unnið í sam-
starfi við leikskólafulltrúa Ár-
borgar, leikskólanefnd og
fræðslustjóra. Fræðslu- og
menningarsvið Árborgar leggur
leikskólunum til faglega ráð-
gjöf. Matsnefnd sem leikskóla-
nefnd skipar mun fylgjast með-
framgangi verkefnisins.
Þann 1. september sl. Iá fyrir
bæjarráði fundargerð Ieikskóla-
nefndar með áskorun Félags ís-
lenskra leikskólakennara þess
efnis að sveitarstjórnir veittu fé
til að fylgja eftir nýrri aðal-
námskrá. Leikskólanefnd lagði
málinu lið og samþykkti bæjar-
ráð að fela fræðslustjóra að
gera tillögur um hvernig standa
mætti að átaki í leikskólum Ár-
borgar varðandi þetta verkefni.
Fræðslustjóri skilaði tillögum
sem sendar voru til umsagnar
leikskólastjóra. Þeir lýstu yfir
áhuga á verkefninu og bentu á
mögulegar útfærslu'r. Að fengn-
um þessum viðbrögðum leik-
skólastjóra var ákveðið að
kynna þeim leikskólakennur-
um sem sagt höfðu upp störf-
um verkefnið ásamt áformum
bæjarstjórnar um að veita fé til
þess. I kjölfar kynningarfundar
bæjarstjóra, fræðslustjóra og
formanns bæjarráðs með leik-
skólakennurunum í gær
ákváðu þeir á grundvelli átaks-
ins að koma til starfa á ný.
ö., i I, •i.-.-SBS. .