Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 4
4 -FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
^SUÐURLAND
Frá stofnfundi Samfylkingarfélagsins á Suðurlandi, sem haldinn var á Selfossi sl. laugardagskvöld. Margrét Frí-
mannsdóttir I ræðustól.
Grasrótin vegvlsir
þingmaima
SamfylMngarfélag
stofnað á Suðnr-
landi. 400 stofnfé-
lagar. Alþýðan virkj-
uð í pólítíska um-
ræðu.
Ekki hefur verið neinn mál-
efnalegur ágreiningur sem
hefði átt að koma í veg fyrir
sameiningu vinstri manna á Is-
landi. Sú staðreynd að menn
hafi nú farið sitt í hverja áttina
í hinu pólítíska umhverfi að
undanförnu hefur hinsvegar
komið til af einstaklingsfram-
taki manna og metnaðargirni
þeirra. Þetta kom fram í máli
Margrétar Frímannsdóttur á
stofnfundi kjördæmafélags
Samfylkingarinnar á Suður-
landi sl. laugardagskvöld.
Fundurinn var fjölsóttur, en nú
þegar hafa um fjögur hundruð
Sunnlendingar gerst stofnfé-
Iagar Samfylkingarinnar.
Ekki sameiginlegur
vettvangur fvrr
Alþingismennirnir Margrét Frí-
mannsdóttir og Lúðvík Bergvins-
son ávörpuðu fundinn ásamt
fleirum. I máli þeirra kom fram
að Samfylkingin á Suðurlandi
muni leggja sérstaka áherslu á
umhverfismálin, jöfnuð og rétt-
læti og byggðamál, sérstaklega
með tilliti til möguleika ungs
fólks á landsbyggðinni. - Um
þessar mundir er verið að stofna
kjördæmafélög Samfylkingarinn-
ar vítt og breitt um landið og
sagði Margrét Frímannsdóttir það
vera fagnaðarefni og leggja grunn
að þvf að Samfylkingin yrði gerð
að sérstökum stjórnmálaflokki, en
fram til þessa hefði hún f raun
ekki haft annan sameiginlegan
vettvang en þingflokkinn.
I stjórn Samfylkingarinnar á
Suðurlandi eru Björgvin G. Sig-
urðsson, Guðjón Ægir Sigurjóns-
son, Katrín Andrésdóttir, Hjálm-
fríður Sveinsdóttir, Solveig Ad-
olfsdóttir, Sigurbjörg Grétarsdótt-
ir, Kristinn Bárðarson, Magnús
Ágústsson, Árni Gunnarsson,
Dagbjört Hannesdóttir, Guðni
Kristinsson, Unnar Þór Böðvars-
son, Torfi Áskelsson, Þórunn
Bjarkadóttir, Soffia Sigurðardótt-
ir. Mun stjórnin svo skipta með
sér verkum á fundi sem áformað
er að halda í þessari viku.
Vlrkja grasrótina
I samtali við Dag sagði Björgvin
G. Sigurðsson að ýmis félagsstarf-
semi væri fyrirhuguð af hálfu
Samfylkingarinnar á Suðurlandi á
næstu mánuðum. Mikilvægt væri
að virkja grasrótina - alþýðufólk -
í hina pólítísku umræðu, til dæm-
is með því að efna til funda um
þau málefni er brenna á hverju
byggðarlagi um sig. Slík umræða
væri til dæmis alþingismönnum
mikilvægur vegvísir um með
hvaða hætti skyldi móta stefnu í
einstökum málum. - Þá nefndi
Björgvin að nú í vikunni myndi
ungliðahreyfing Samfylkingarinn-
ar á Suðurlandi halda fund, en
hreyfing sú var stofnuð á liðnu
vori í aðdraganda kosninga. -SBS.
Góðar gjafir til heilsugæslu
Á dögunum nélt stjórn Heilsu-
gæslu Þorlákshafnar kaffisam-
sæti þar sem formaður Heilsu-
gæslunnar, séra Baldur Krist-
jánsson, lýsti gjöfum frá
Krabbameinsfélagi Árnessýslu
og Kvenfélagi Þorlákshafnar.
Krabbameinsfélagið gaf skoð-
unarlampa til notkunar fyrir
kvensjúkdómalækni og kvenfé-
lagið gaf fræðsluefni um fæð-
ingu, meðgöngu og bijóstagjöf
svo og barnastól á biðstofu.
Mættir voru fulltrúar beggja
þessara félaga og flutti Baldur
þeim alúðarþakkir, og sagði
það ómetanlegt, hve vel hin
ýmsu félög styddu við starfsemi
heilsugæslustöðva. Sagði hann
meðal annars að án hjálpar og
velvilja félaganna væri heilsu-
gæsla í landinu ekki jafnvel
tækjum búin og raun ber vitni.
Bað hann fulltrúa félaganna að flytja góðar kveðjur til sinna félaga og
alúðarþakkir. - HS
Frá athöfninni. Frá vinstri, Bergdís Sigurð-
ardóttir, hjúkrunarfræðingur, Maria Kjart-
ansdóttir, gjaldkeri Krabbameinsfélags Ár-
nessýslu, Helgi Hauksson, heilsugæslu-
læknir, Baldur Kristjánsson, formaður
stjórnar Heilsugæslu Þoriákshafnar, Jón B.
Stefánsson, varaformaður Krabbameins-
félags Árnessýslu, Björg Sörensen, for-
maður Krabbameinsfélags Árnessýslu,
Edda Laufey Pálsdóttir, ritari Heilsugæslu-
stöðvar og Kotbrún Skúiadóttir, gjaldkeri
Kvenfélags Þorlákshafnar. mynd: hs
Athuga með sjónvarpssendingar
Sigurgeir Scheving, sem lengi hefur haft umsjón með bíósýningum,
hefur ásamt öðrum manni verið að prófa sig áfram með að koma upp
beinum sjónvarpssendingum og varpa á tjald í bíósalnum. Þeir sögðu
að miklir möguleikar væru í þessari tækni og hefði þeim miðað vel með
tilraunir sínar. „Við höfum náð skýrri mynd með þessum búnaði, sem
við höfum verið að prófa, en möguleikarnir eru ótæmandi og íramfarir
örar. Við viljum hins vegar undirstrika að þetta eru bara prófanir enn
sem komið er, en hugsanlega má sjá fyrir sér beinar útsendingar frá
stórviðburðum í framtíðinni í bíósalnum,“ sagði Sigurgeir. -BEG.
SkaLholtskóriim syngur í Fríldrkjiuuii
Skálholtskórinn heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík næstkomandi
sunnudag, 24. október, kl. 16. Á tónleikunum munu Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Skáholtskórinn flytja Ijölbreytta dagskrá með kirkju- og verald-
legri tónlist. Kórinn, sem syngur undir stjórn Hilmars Arnar Agnarsson-
ar, er nú að koma heim úr vel heppnuðu söngferðalagi um Frakkland
og Italíu, þar sem meðal annars var sungið fyrir lslendinga í bændaferð
við Gardavatnið. Með í ferðinni voru Sigrún Hjálmtýsdóttir og maður
hennar, Þorkell Jóelsson, hornleikari og Kári Þormar, orgelleikari. -SBS.
Uiilingahreyíing fundar
Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar á Suðurlandi boðar til opins fundar
á föstudagskvöldið, kl. 20:30, í húsnæði Samfylkingarinnar á Kirkjuvegi
7 á Selfossi. Efni fundarins eru stjórnmál almennt. I fréttatilkynningu
frá félaginu er fagnað stofnun félags Samfylkingarinnar á Suðurlandi
og er fólk í kjördæminu hvatt til að fylkja liði um það. Sérstaklega er
fagnað áherslum Samfylkingarinnar í málefnum ungs fólks og lands-
byggðarinnar.
RagnarM.
Sigutðsson9
íþrótta- og æskulýðsfulltmi
í Ölfusi.
Ráðiðhefurveriðístarf
íþrótta- og æsktdýðsfiill-
trúa hjá Sveitaifélaginu
Ölfusi. RagnarM. Sig-
urðsson hennari varráðinn
og segirhannforvamir
mihilvægan þátt í sínu
starfi. Íþróttalífiðer
blómlegt og margtgottað
gerast. ' •
Félagsmiðstöðm 1 ferðatöskum
- Ragnar, segðu okkur frá
sjálfutn þér?
„Eg er fæddur og uppalinn í
Ólafsvík. Foreldrar mínir eru
Sigurður Þorsteinsson, verka-
maður í Ólafsvík, sem nú er
látinn, og móðir mín er Pálína
Halldórsdóttir. Eg er lærður
iþróttakennari frá Laugarvatni,
útskrifaðist þaðan 1986. Eftir
það kenndum við hjónin í þrjá
vetur á Selfossi, og fluttum svo
hingað til Þorlákshafnar 1989.
Konan mín er Jóhanna Hjartar-
dóttir, sem einnig er íþrótta-
kennari við Grunnskólann í
Þorlákshöfn, og eigum við þrjá
syni á grunnskólaaldri. Síðan
við komum hingað hef ég
kennt við Grunnskólann þar tib
í fyrra að ég tók mér smáfrí og
starfaði um tíma hjá Tal hf.
Þegar þessi nýja staða var aug-
lýst ákvað ég að sækja um og
fékk starfið. Eg var mjög
ánægður með að hafa hlotið
’s'toðuna, þar sem þetta var
einmitt það sem ég hef mikinn
áhuga á; að starfa að íþrótta-
og æskulýðsmálum. Það er
mjög gefandi og skemmtilegt
að vinna að slíkum rnálurn."
- í hverju er starf þitt fólg-
ið?
„Starf mitt er einkum fólgið í
því að ég er í raun starfsmaður
fyrir íþrótta- og æskulýðsnefnd
staðarins, og heyrir starfið
undir bæjarstjóra. Eg á að vera
ráðgefandi í ýmsu því er við-
kemur íþrótta- og æskulýðs-
málum sveitarfélagsins. Þá á
ég að hafa eftirlit með fram-
kvæmd laga sem heyra undir
þennan málaflokk. Undir þau
lög heyra hvers kyns íþrótta-
mál, málefni félagsmiðstöðvar,
forvarnarmál og aðrar tóm-
stundir æskulýðsins."
- Hvernig líst þér á þig í
hinu nýja starfi?
„Eg er spenntur fyrir því að
takast á við þetta starf. Þetta er
krefjandi verkefnij ogj um leið
gefandi. Það verður að segjast
eins og er að á þessum vett-
vangi er mikið eftir ógert og
ekki hægt að ætlast til að
byggja heilu borgirnar á einni
nóttu. Eg vil þó segja það að
það sem hefur verið gert í
gegnum árin fyrir unga fólkið
hér er margt mjög gott. Iþrótta-
starfið hefur staðið í miklum
blóma í gegnum árin, tónlistar-
Iíf er mjög blómlegt og margt
annað gott er til dæmis í starfi
skólans með unglingunum. Ég
get bent á leiksýningar skólans
sem dæmi um hve vel er í raun
staðið að hlutunum. Menn
sýndu mikla framsýni hér 1988
þegar hreppsnefnd Ölfus-
hrepps samþykkti að styðja við
bakið á því að koma félagsmið-
stöð á laggirnar. Hún hefur
skilað miklu í gegnum tfðina.
- Hvað með málefni félags-
miðstöðvarinnar ?
„Eins og stendur er félags-
miðstöðin í ferðatöskuni, því
eins og menn vita er húsnæðið
sem hún hafði orðið byggingar-
svæði. Starfsemi hennar fer nú
fram í sal grunnskólans, ásamt
því að salurinn gegnir hlutverki
kennslustofa, skólaathvarfs og
er nýttur undir samkomur sem
annars voru í félagsheimilinu.
Eins og er heftir þetta að sjálf-
sögðu starfsemi félagsmið-
stöðvarinnar, en þetta stendur
þó vonandi til bóta. Unnið er
að því að finna henni varanleg-
an stað þar sem starfsemi
hennar fengi að njóta sín. Öfl-
ugt íþrótta- og æskulýðsstarf er
í raun bestu forvarnirnar og
best til þess fallnar að virkja og
efla hvern einstakling til af-
reka, svo við skildum alltaf
horfa til þess að hlúa vel að
þessum málum, því það sem
við látum í þessi mál fáum við
margfalt til baka.“
-ltS.
J