Dagur - 21.10.1999, Page 3
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 - 3
SUDURLAND
Listakonumar Ráðhildur Ingadóttir, til vinstri, og Úsk Vilhjálmsdóttir, sem
sýna verk sín í Eyjum næstu tvær helgarnar.
1575 laxveiðimeim
skora á Guðna
Fulltrúar áhugamanna um lax-
veiðar á vatnasvaeði Hvítár og
Olfusár ætla að ganga á fund
Guðna Agústssonar landbúnað-
arráðherra í dag. Þeir ætla að
afhenda honum áskorun 1575
laxveiðimanna þess efnis að
hann beiti sér fyrir að eftirlit
með netaveiði og veiðivarsla á
svæðinu verði efld og farið að
lögum um lax- og silungsveiði.
Laxveiðimennirnir eru m.a.
að mótmæla framgöngu neta-
veiðibænda á þessum veiði-
svæðum. Tímabært sé að benda
á hvernig netaveiðar fari þar
Guðni Ágústs- Bubbi
son landbúnað- Morthens er í
arráðherra. hópi áskorenda
laxveiðimanna.
fram. ,,Það er opinbert leyndar-
mál í Arnessýslu að eftirlit með
netaveiðum í Ölfusá og Hvítá er
ekkert. Samkvæmt lögum eiga
netalagnir að vera bundnar við
land en staðreyndin er sú að
með minnkandi netaveiði á
undanförnum árum hefur „sjó-
ræningjalögnum" verið komið
fyrir úti um alla á og þrengt enn
frekar að laxastofnunum,“ segir
í tilkynningu frá hópnum.
Meðal þeirra fulltrúa áhuga-
manna um laxveiði sem ganga á
fund ráðherra eru Orri Vigfús-
son, Bubbi Morthens, Þórarinn
Sigþórsson og Hilmar Hansson.
Iistakonur
sýna í Eyjum
ListakomiT tvær opna
sýningu í Eyjum um
helgina. Unnið úr
fjölbreyttum efnum
og ekki alltaf á hefð-
bundinn hátt.
Ráðhildur Ingadóttir og Ósk Vil-
hjálmsdóttir munu opna sýning-
ar f gamla áhaldahúsinu á horni
Græðisbrautar og Vesturvegar í
Vestmannaeyjum nú á laugar-
daginn. Þær hafa unnið að list
sinni bæði á íslandi og erlendis,
en koma nú í fyrsta sinn með
sýningu til Eyja. Þær vinna í fjöl-
breytt efni til að koma list sinni á
framfæri og ekki alltaf á hefð-
bundinn hátt. I Eyjum munu
Ráðhildur sýna afrakstur af
vinnu er tengjast athugunum
hennar á tvístirninu Algol, en
Osk mun sýna videóverk, sem
tengjast ferðalögum, eða spenn-
una milli brottfarar og komu.
Benedikt er óþreytandi
Benedikt Gestsson, blaðamaður
og áhugamaður um myndlist,
sem hefur verið óþreytandi við
að koma myndlistinni til Eyja og
með þá sannfæringu að leiðar-
ljósi að myndlistin eigi ekki bara
heima á stór Reykjavíkursvæðinu
hefur enn ákveðið að fara af stað
í Eyjum. Benedikt leitaði til Eim-
skipafélagsins um hvort það vildi
koma að þessu sýningarhaldi nú
og fengust jákvæð svör við þeirri
málaleitan og ákvað Eimskipafé-
lagið að styrkja þær tvær sýning-
ar að fullu sem nú hafa verið
ákveðnar. Eimskipafélagið hefur
verið ötull styrktaraðili ýmissa
menningarviðburða og í því sam-
bandi er rétt að geta þess að fé-
Iagið er stærsti styrktaraðili,
Reykjavík menningarborg árið
2000.
Rúrí í nóvember
Auk þessa mun listakonan Rúrí
verða með einkasýningu í Eyj-
um. Sýning Ráðhildar og Óskar
stendu yfir í tvær helgar, það er
23. og 24., og 30. og 3i.október.
Sýning Rúríar verður opnuð
Iaugardaginn 20. nóvember og
verður opin tvær helgar, það er
20. og 21., og 27. og 28. nóvem-
ber. Ahugi er á því að nemendur
grunnskólanna geti fengið að
skoða sýningarnar og mun það
verða samkomulagsatriði hvenær
hægt yrði að koma því við.
Útvarps Suðurlands
EM96,3& 105,1
Fimmtudagurinn 21. október
07:00-09:00 Góöan dag Suðurland Sigurgeir H.
09:00-12:00 Eyjólfur. Guörún Halla
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæöisútvarp Suöurlands Soffía M.
19:00-22:00 TP3. Svanur Bjarki
22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Björnsson
Mánudagurinn 25. október
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Eyjólfur. Guðrún Halla
12:00-13:00 Spurningakeppni HSK (e). Vaídimar
13:00-14:00 Heyannir(e). Soffía SigurÖardóttir
14:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-19:00 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
19:00-22:00 Bleika tunglið. Fannar
22:00-24:00 Dag skal að kveldi lofa. Sigurgeir H.
Föstudagurinn 22. október
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
08:20-09:00 Svæöisútvarp SuöurlandsSoffía Sig.
09:00-12:00 Eyjólfur. Guörún Halla
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 SvæÖisútvarp Suöurlands.Soffía Sig.
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-22:00 Dýsel. Unnar Steinn
22:00-01:00 LífiÖ er Ijúft. Valdimar Bragason
Laugardagurinn 23. október
09:00-12:00 Morgunvaktin Valdimar Bragason
12:00-13:00 íslenskt tónlistarhádegi. Jóhann B.
13:00-16:00 Vanadísin. Svanur Gísli
16:00-19:00 Tipp topp. Jón Fannar
19:00-22:00 Draugagangur. Kiddi Bjarna
22:00-02:00 BráÖavaktin. Jón Fannar
Sunnudagurinn 24.október
09:00-10:00 Heyannir. Soffía SigurÖardóttir
10:00-12:00 Kvöldsigling (e). Kjartan Björnsson
12:00-15:00 Tóneyraö. Jón Fannar
15:00-17:00 Árvakan. Soffía M. Gústavsdóttir
17:00-19:00 Davíössálmar. DavíÖ Kristjánsson
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-21:00 Elvis frá A-Ö. Jói og Halli
21:00-22:00 Spurningakeppni HSK. Valdimar B.
22:00-24:00 Spáöu í mig. Gestur og Lilja
Þriöjudagurinn 26. október
07:00-09:00 Góöan dag Suöurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Eyjólfur. Guörún Halla
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19:00 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
19:00-22:00 Skeggjaöa beljan. Vignir Egill
22:00-24:00 í minningu meistarana. Jón Hnefill
Miövikudagurinn 27. október
07:00-09:00 Góöan dag Suðurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Eyjólfur. GuÖrún Halla
12:00-14:00 Árvakan (e). Soffía M. Gústavsdóttir
14:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guömunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suöurlands Soffía M.
19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur Bjarki
22:00-24:00 Meira en orö. Sigurbjörg Grétarsd.
Fimmtudagurinn 28.október
07:00-09:00 GóÖan dag Suðurland. Sigurgeir H.
09:00-12:00 Eyjólfur. Guörún Halla
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæöisútvarp SuöurlandsSoffía Sig.
19:00-22:00 TP 3. Svanur Bjarki
22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Björnsson
Hver vill kaupa rafveitu?
Hveragerðingar sam-
þykkja að skoða sölu á
raiveitu bæjarins.
RARIK og Orkuveita
Reykjavfloir sýua
áhuga. Mikilvægt að
losa um eignir vegna
skulda, segir bæjarfull-
trúi.
Bæjarstjórn Hveragerðis sam-
þykkti á fundi sínum á þriðjudag
að kanna möguleika á sölu á raf-
veitu bæjarsins til annarra orku-
fyrirtækja. Sex bæjarfulltrúar
greiddu tillögu meirihlutans um
þetta atkvæði sitt, en einn var á
móti.
Orkuveita Reykjavfkur hefur
sýnt kaupum eða leigu á Rafveitu
Hveragerðis áhuga, en upphaflega
ætluðu bæjaryfirvöld sér að leggja
til að rafveitan yrði seld til Raf-
magnsveitna ríkisins. Tillögunni
var hinsvegar breytt á síðari stig-
um, að ósk bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokks, og opnað
fyrir möguleikann á að
önnur orkufyrirtæki
gætu einnig keypt hlut í
fyrirtækinu.
I samtali við Dag
sagði Ami Magnússon,
bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, að
hann teldi sölu á raf-
veitunni geta verið hið
besta mál í ljósi þess að
losa þyrfti um Ijármagn
og mikilsvert væri að ná
niður skuldum Hvera-
gerðisbæjar, en lang-
tímaskuldir f dag eru
um 213 milljónir kr. Vegna þeirrar
skuldastöðu hefði bærinn til að
mynda fengið varnaðarorð frá
endurskoðanda sínum í síðasta
ársreikningi Þá væri Ijóst að bær-
inn þyrfti á allra næstu árum að
fara í umfangsmiklar og dýrar
framkvæmdir, svo sem við ein-
setningu grunnskóla, annar af
tveimur leikskólum bæjarins væri
í bráðabirgðahúsnæði og þá væri
endurbóta þörf á sundlauginni í
Laugaskarði.
í umræðum um raf-
veitumál á fundi bæj-
arstjórnar Hveragerðis
fyrradag gagnrýndi
Knútur Brunn hug-
myndir þessar mjög og
sagði að sala rafveit-
unnar væri ávísun á
hækkun gjaldskrár,
jaíhffamt því sem góð-
ur arður hefði verið af
veitunni í áranna rás
og hún staðið undir
ýmissi starfsemi bæjar-
ins. Því var hann á
móti, einn bæjarfull-
trúa.
Um þennan málflutning Knúts
hefur stjórn Bæjarmálafélags
Hveragerðis, sem stendur að
meirihluta bæjarstjómar, sent frá
sér áyktun þar sem málflutningur
Knúts er harmaður og hann sagð-
ur hafa einkennst af röngum for-
sendum - og niðurstöðum. Það
eina sem ávinnist með málflutn-
ingi einsog hann hefur stundað sé
að rýra álit bæjarfélagsins út á við
og það sé andstætt lögum um
hlutverk sveitarstjórnarmanna.
-SBS.
Árni Magnússon,
bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í
Hveragerði.
á tölvukerfió?
Ef starfsemin í þínu fyrirtæki reiðir sig á tölvukerfið
er eins gott að rafmagnið sé alltaf til staðar. Eina
vörnin við straumrofi eða truflunum er varaaflgjafi.
Við bjóðum mjög gott úrval varaaflgjafa frá stærsta
Hefuróu hugleitt að...
• Þremur mánuðum eftir að tölvan þín var
tekin í notkun eru gögnin sem hún hefur
að geyma verðmætari en tölvan sjálf?
• 70% allra bilana í tölvubúnaði eru vegna
rafmagnstruflana?
• Varaaflgjafi er eina lausnin sem þú hefur
til að vernda bæði tölvuna og þau gögn
sem í henni eru fyrir rafmagnstruflunum?
framleiðanda heims, APC, sem henta m.a. fyrir
netþjóna, einmenningstölvur, búðarkassa, símstöðvar
og faxtæki.
Frábært verð!
NYHERJI
Skaftahllð 24 • S:569 7700
Sölu- og þjónustuaöilar Nýherja: Suöurland: Tölvu- og Rafeindaþjónustan Selfossi og Tölvun Vestmannaeyjum. Austurland:
Martölvan Höfn í Hornafiröi og Tölvusmiöjan Egilsstöðum/Neskaupsstað. Noröurland: Nett Akureyri, Element Sauöárkróki og
Ráðbarður Hvammstanga. Vestfiröir:Tölvuþjónusta Helga Bolungavík