Dagur - 23.10.1999, Page 3
LAVGARDAGUR 23. OKTÓBER 1999 -IU
TT
Pálína Þorsteinsdóttir
Pálína Þorsteinsdóttir, hús-
móðir á Akranesi, f. 28. janúar
1908, dáin 13. október 1999.
Starfsferill
Pálína fæddist í Þorsteinshúsi á
Stöðvarfirði en ólst frá fjögurra
ára aldri upp hjá afa sínum og
ömmu, þeim séra Guttormi Vig-
fússyni, í Stöð í Stöðvarfirði, og
Þórhildi Sigurðardóttur frá
Harðbak á Sléttu.
Pálína stundaði heimanám hjá
afa sínum, séra Guttormi, var
einn vetur í unglingaskóla á Fá-
skrúðsfirði þegar hún var sextán
ára, stundaði nám við 2. og 3.
deild Hvítárbakkaskóla 1926-28
og sótti tíma í KÍ 1928-29.
Pálína kenndi í Breiðdal og á
Stöðvarfirði 1929-30 og var
einnig farkennari í Miðfirði
1933-34. Þá gifti hún sig og var
síðan húsmóðir á Akranesi.
Fjölskylda
Pálína giftist 1934 Guðmundi
Björnssyni, f. 24. mars 1902, dá-
inn 1989, kennara. Hann var
kennari í Miðfirði 1921-33 og
einnig eftirlitskennari í Vestur-
Húnavatnssýslu 1932-33 en
kenndi eftir það á Akranesi, við
Barnaskólann og Iðnskólann.
Guðmundur var sonur Björns
Jónssonar, f. 21. nóvember 1866,
dáinn 4. maí 1938, bónda í
Núpsdalstungu í Miðfirði, og
k.h., Asgerðar Bjarnadóttur, f.
24. ágúst 1865, d. 26. september
1942, húsfreyju.
Börn Pálínu og Guðmundar
eru Ormar Þór, f. 2. febrúar
1935, arkitekt í Reykjavík,
kvæntur Kristínu Valtýsdóttur
ferðaráðgjafa og eru börn þeirra
Sif, Harri, Orri Þór og Björk;
Gerður Birna, f. 2. apríl 1938,
snyrtifræðingur í Reykjavík, gift
Daníel Guðnasyni lækni og eru
börn þeirra Guðríður Anna,
Guðni Páll, Guðmundur og Þór-
hildur Margrét; Björn Þorsteinn,
f. 13. júlí 1939, lagaprófessor í
Reykjavík, kvæntur Þórunni
Bragadóttur deildarstjóra og eru
synir þeirra Guðmundur og
Bragi; Asgeir Rafn, f. 18. maí
1942, framkvæmdastjóri á Akra-
nesi, kvæntur Fríðu Ragnarsdótt-
ur bankamanni og eru börn
þeirra Ragnheiður, Pálína og As-
geir; Atli Freyr, f. 3. apríl 1948
skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu, búsettur í Reykjavík,
maki hans er Þorgerður Jónsdótt-
ir læknaritari og eru börn Atla
Freys og fyrri konu hans, Halínu
Bogadóttur, þau Svava María og
Guðmundur Páll .en dóttir Þor-
gerðar er SigríðunArna.
Afkomendur PáÍínu og Guð-
mundar eru nú Qörutíu og þrír
talsins.
Systkini Pálínu: Skúli Þor-
steinsson, f. 24. desember 1906,
d. 1973, skólastjóri á Eskifirði og
námsstjóri, var kvæntur Onnu
Sigurðardóttur, forstöðukonu
Kvennasögusafnsins, látin; Frið-
geir Þorsteinsson, f. 15. febrúar
1910, d. 1999, útvegsbóndi og
fyrrv. útibússtjóri Samvinnu-
bankans á Stöðvarfirði, var
kvæntur EIsu Sveinsdóttur sem
er látin; Halldór Þorsteinsson, f.
23. júlí 1912, d. 1983, vélvirki á
Akranesi, var kváentur Rut Guð-
mundsdóttur, Iátin; Anna Þor-
steinsdóttir, f. 8. apríl 1915, pró-
fastsfrú, gift Kristni Hóseassyni,
fyrrv. prófasti í Heydölum; Björn
Þorsteinsson, f. 22. maí 1916, d.
1939; Pétur Þorsteinsson, f. 4.
janúar 1921, d. 1993, sýslumað-
ur í Búðardal, var kvæntur
Björgu Ríkarðsdóttur.
Ætt
Foreldrar Pálínu voru Þorsteinn
Þorsteinsson Mýrmann, f. 12.
maf 1874, d. 28. september
1943, frá Slindurholti í Austur-
Skaftafellssýslu, kaupmaður og
bóndi á Oseyri í Stöðvarfirði, og
k.h., Guðríður Guttormsdóttir, f.
30. apríl 1883, d. 27. janúar
1975, húsfreyja.
Þorsteinn Mýrmann var sonur
Þorsteins, b. í Slindurholti á
Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu
Þorsteinssonar. Móðir Þorsteins
í Slindurholti var Sigríður Jóns-
dóttir, prests á Kálfafellsstað Þor-
steinssonar.
Móðir Þorsteins Mýrmanns
var Valgerður Sigurðardóttir, Ei-
ríkssonar, Einarssonar. Móðir Ei-
ríks var Þórdís, systir Jóns Eiríks-
sonar konferensráðs. Móðir Val-
gerðar var Valgerður Þórðardótt-
ir, systir Sveins, afa Þórbergs
Þórðarsonar.
Guðríður var dóttir Guttorms
prófasts á Stöð Vigfússonar, pr. í
Asi Guttormssonar, prófasts í
Vallanesi Pálssonar. Móðir Gutt-
orms var Björg Stefánsdóttir,
prófasts á Valþjófsstöðum Arna-
sonar, pr. í Kirkjubæ í Tungu
Þorsteinssonar. Móðir Stefáns
var Björg Pétursdóttir, sýslu-
manns á Ketilsstöðum á Völlum
Þorsteinssonar.
Móðir Guðríðar var Þórhildur
Sigurðardóttir, b. á Harðbak á
Sléttu Steinssonar, b. á Harðbak
Hákonarsonar. Móðir Steins var
Þórunn Stefánsdóttir, prests á
Presthólum Scheving. Móðir
Þórhildar var Friðný Friðriks-
dóttir, b. í Klifshaga Arnasonar
og Guðnýjar Björnsdóttur, b. í
Haga í Reykjadal. Móðir Guðnýj-
ar var Sigurlaug Arngrímsdóttir,
b. á Hrafnabjörgum í Hlíð Run-
ólfssonar, b. í Hafrafellstungu
Einarssonar „galdrameistara" og
pr. á Skinnastað Nikulássonar.
Móðir Arngríms var Björg Arn-
grímsdóttir, sýslumanns á Stóru-
Laugum í Reykjadal Hrólfssonar.
Utför Pálínu fór fram frá Akra-
neskirkju fimmtudaginn 21.
október 1999.
***
Ein fyrsta minningin sem upp
kemur við fráfall ömmu minnar,
Pálínu Þorsteinsdóttur, er þegar
ekið var uppá Akranes til að
dvelja hjá ömmu og afa yfir helgi.
Við systkinin sátum aftur í bíln-
um og þegar við nálguðumst bæ-
inn var hrópað. „ég sé Akranes,
ég sé Akranes",... spenningurinn
f alglcymingi. Þá brást heldur
sjaldan að skammt fyrir utan bæ-
inn mættum við uppáklæddum
manni með hatt og staf sem var
tekinn upp í bílinn. Það var afi
sem hafði þann sið að fá sér
göngutúr á móti, er hann vissi af
gestum á leiðinni, ellegar hann
stóð á tröppunum á Jaðarsbraut-
inni og rétti fram hendurnar þeg-
ar við komum. Eftir situr í minn-
ingunni ilmurinn af steiktu
lambslæri sem Iá í loftinu og
amma Pála, eins og við kölluðum
hana, faðmaði og kyssti okkur
börnin á þann einstæða og hlý-
Iega hátt sem aðeins ömmum
virðist unnt að gera.
A uppvaxtarárum mínum þótti
m,éf ,fýtt skenrmtjlegrjt, en ?ð fap
með Akraborginni uppá Skaga og
dvelja þar í Iengri eða skemmri
tíma. Heimili ömmu og afa var
heimur útaf fyrir sig. Hægt var að
fara inn um litlar dyr í risinu og
skríða um með vasaljós hringinn
í kringum súðina. Þar voru stafl-
ar af gömlu dóti sem hægt var að
gramsa í og rannsaka og fara í
leiki. Afi átti geymslu í kjallaran-
um þar sem geymd voru gömul
verkfæri og annað sem taka mátti
til handargagns. Hinum megin
við götuna dældu skipin sandi í
gryfju sementsverksmiðjunnar og
var þá oft handagangur í öskj-
unni hjá okkur krökkunum að
tína sandsíli og annað það sem
skolaðist með og atast í mávin-
um. Afraksturinn var síðan borið
heim við misjafnar undirtektir.
Langisandur og næsta nágrenni
ævintýraland. Að dveljast á Jað-
arsbrautinni hjá ömmu og afa var
eins og að vera á fínu hóteli.
Alltaf nóg að bíta og brenna og
uppábúin rúm á kvöldin. Enginn
mátti fara svangur í háttinn og
því var gjarnan raðað í sig ban-
anatertum, randalínum og brún-
kökum áður en gengið var til
náða. Síðan spurði amma hvað
maður vildi fá í matinn daginn
eftir. Dásamlegir dagar.
Amma Pála ólst upp í byrjun
aldarinnar. Þegar hún var fjög-
urra ára gömul var hún send í
fóstur hjá afa sínum og ömmu,
séra Guttormi Vigfússyni í Stöð í
Stöðvarfirði og Þórhildi Sigurð-
ardóttur. Amma leið aldrei skort
og lét alltaf vel af þessum árum
og hafði hún gaman af að rifja
upp bernsku sína. Séra Guttorm-
ur kenndi henni að lesa og var
amma orðin fluglæs á fimmta
aldursári. Amma var vel menntuð
og upplýst kona sem hafði áhuga
á lestri góðra bóka og eins og hjá
mörgum voru þeir Halldór Kiljan
Laxness og Gunnar Gunnarsson
í miklum metum hjá henni.
Amma var gamansöm og hlátur-
mild og kunni svo sannarlega
lagið á sínu fólki. Mér er minni-
stæð saga sem hún sagði mér af
óknyttapilti einum, sem hún sá
henda tveimur eggjum í eldhús-
gluggann hjá sér og taka svo til
fótanna. Amma þekkti stráksa og
skömmu síðar hóaði hún í hann
og sagði honum að einhver hefði
verið að henda eggjum í rúðuna
hjá sér og hvort hann væri nú
ekki til f að þrífa rúðuna fyrir sig
þar sem hún næði ekki almenni-
lega til hennar. Það þarf varla að
taka það fram að pilturinn sá
gekk strax til verks og aldrei sáust
egg á eldhúsglugganum hennar
Pálínu eftir það.
Amma var einstök kona, ein-
stök amma og alltaf fannst mér
eins og ég hlyti að vera uppá-
h aldsbarpabíirn i ð h e n n a r, eins
og hún dekraði mig á allan hátt.
Attaði mig auðvitað ekki á því
fyrr en síðar að öll barnabörn
hennar héldu það sama um sig.
Þannig virtist amma ætíð geta
gefið óendanlega af sér af hlýju,
ást og umhyggju. Aldrei heyrði ég
hana tala illa um nokkurn mann
og veit ég að hún amma mín var
vel metin af samferðafólki sínu,
þekkt af rausnarskap og góðri
lund. Eru enn í minnum hafðar
hangikjöts - og spagettíveislurnar
sem þau hjónin héldu mér og
skólafélögum mínum þegar við
komum á Akranes til að horfa á
knattspyrnuleiki. Eftir að afi dó
fyrir tíu árum kærði amma sig
ekki um að sitja aðgerðarlaus
Iengi á elliheimili, heldur fluttist
til Reykjavíkur og keypti sér
snotra íbúð rétt hjá heimili mínu
í austurbænum. Það var eins og
að hún væri að hefja nýtt lff, þó
komin væri yfír áttrætt, alltaf að
laga til og breyta. Amma var alla
sína ævi stök reglumanneskja en
þó brást það aldrei að hún ætti
sérríflösku inn í skáp og var
gjarnan boðið í eitt eða tvö staup
þegar gesti bar að garði. Til
hennar var ætíð gott að koma og
sem fyrr voru það börnin sem
áttu hug hennar allan. Skömmu
efir að við hjónin eignuðumst
son okkar á síðasta ári, bað ég
ömmu að finna nafn á drenginn.
Amma hugsaði sig ekki um
tvisvar og ákváðum við að hafa
nafngiftina okkar á milli fram á
síðustu stundu. Er ég viss um að
henni var skemmt þegar fólk var
að velta uppi nöfnum á drenginn
og aðeins hún vissi.
Eg mun ætíð sakna ömmu
minnar en minnast hennar með
mikilli gleði og ánægju, því
þannig voru stundirnar sem við
áttum saman. Ég veit að hún er
hvíldinni feginn eftir langan ævi-
dag og að við himnahliðið stend-
ur afi og réttir fram hendurnar til
að taka á móti henni.
Guð blessi ömmu Pálu og
varðveiti.
Harri Ormarsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug,
blómasendingar, minningargjafir, kort og skeyti
vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS KRISTINS RÖGNVALDSSONAR,
Hnjúki, Skíðadal.
Erna Kristjánsdóttir,
Margrét Kristinsdóttir, Haukur Valdimarsson,
Snorri Kristinsson, Rannveig Guðnadóttir,
Ingibjörg Kristinsdóttir, Jón Þórarinsson,
Kristjana Kristinsdóttir, Jón Þórir Baldvinsson
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu, við andlát og útför elskulegs eig-
inmanns míns, föður og afa okkar,
RAGNARS ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR,
Eyri, Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa Elísabetu
Hjörleifsdóttur, Val Þóri Marteinssyni og öðru
starfsfólki Heimahlynningar á Akureyri, fyrir
góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Freygeröur S. Jónsdóttir,
Kristín Ragnarsdóttir,
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Sæunn Kristinsdóttir,
Ágúst Björnsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug, við andlát
og útför eiginmanns míns
LUCIEN LÚÐVÍK MESSIAEN
Skólastíg 3, Akureyri
Guð blessi ykkur öll
Ólöf Þórhallsdóttir