Dagur - 28.10.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999 - 21
Unglist - óheft hugmyndaflug
Árleg Listahátíð ungs
fólks hefst í Sundhöll
Reykjavíkur í kvöld.
Gerterráðfyrirað
blautt verði í tuskun-
um.
Unglist Listahátíð ungs fólks,
hefur verið árviss viðburður á
haustdögum í Reykjavík frá ár-
inu 1992 og hefur hátíðin staðið
yfir í 10 daga í hvert sinn með
fjölda þátttakenda og njótenda.
Unglist hefur verið starfrækt í
tengslum við Hitt liúsið, upp-
lýsingar- og menningarmiðstöð
ungs fólks. Dagskráin sam-
anstendur af tónlist, hönnun,
tísku, ljósmyndun, myndlist og
leiklist svo að eitthvað sé nefnt.
Hátíðin hefur endurspeglað það
helsta sem hefur verið í gangi í
listsköpun hjá ungu fólki.
Meginmarkmið hátíðarinnar
verður sem fyrr að allir menn-
ingarkimar fái tækifæri á að
koma listsköpun sinni á fram-
færi.
Og svo blotna
Setning Unglistar verður í
Sundhöll Reykjavíkur fimmtu-
dagskvöldið 28. október kl.
20.00, þegar hrint verður af stað
Ljósmynda-, myndlistar- og
stuttmyndamaraþoni. Afhent
verða gögn og reglur um þátt-
töku og verða vegleg verðlaun í
boði.
Hljómsveitin Neogeo stendur
fyrir tónleikum frá kl: 20:00.-
24:00 og þurfa menn að blotna
til þess að hlusta á tónlist
Neogeo, því að þetta verða neð-
anvatnstónleikar af bestu gerð
þar sem spiluð verður „chillli
chillli“ electrónisk tónlist. Sem
sagt brjálað „stuð“ sem eins gott
er að komist ekki í vatnið.
SkonRokk og meíra fjör
A föstudagskvöldið verður boðið
til tónlistarveislu í Tjarnarbíói
kl. 20.00, þar sem fram koma
hljómsveitirnar: Maus, Ensími,
Nova, Brain Police og Moðhaus.
Og áfram heldur fjörið á
laugardaginn þegar nemendur í
Fataiðn í Iðnskólanum sína af-
rek vinnu sinnar á tískusýningu
í Tjarnarbíói kl. 17.00 og kl.
20.00. Nemendurnir sem taka
þátt í sýningunum eru bæði ný-
nemar sem og lengra komnir í
náminu. Hár, förðun og skreyt-
ingar eru í höndum nemenda
Iðnskólans úr öðrum deildum.
Sama dag kl. 14.00 verður
Graffiti-djamkeppni í þjónustu-
miðstöð ITR í Skerjafirði -
Tunnuhúsið. Þar munu 15 bestu
„graffararnir'* keppa um titilinn
+live hip hop. Vídeógláp. Fjöl-
miðla zoo. Breikmotta. Hugsan-
lega opin mic. Quarashi og Tha
Faculty þegar nær dregur kvöldi.
Óheft hugmyndaflug
Sunnudaginn 31.10. kl. 16.00
opna nemendur úr Hönnunar-
deild Iðnskólans í Reykjavík sýn-
ingu á óheftu hugmyndallugi í
sambandi við hönnun á hinum
ýmsu fyrirbrigðum í Gallerí
Geysi, Hinu Húsinu.
Jazzupplifun verður í Norður-
kjallara Menntaskólans við
Hamrahlíð mánudaginn 01.11
kl. 20:00.
Alveg skelfileg skemmtileg-
heit verða á þriðjudagskvöldið
ld. 20.00 á Geysi Kakóbar þar
sem skapandi og skínandi Lista-
kvöld framhaldsskólanna fer
fram. Dagskránni verður fram
haldið á fimmtudagskvöldið á
sama tfma.
Leikhússport-spuni er á dag-
skrá í Leikhúsinu Ægisgötu 7,
kl. 17:30 á miðvikudag. Leik-
skólinn, samanstendur af ungu
fólki með brennandi áhuga á
leiklist. Leikskólinn býður gest-
um og gangandi að líta við í
Leikhúsinu og sjá spunaæfingu í
leikhússporti. Stjórnandi verður
Agnar Jón Egilsson og er að-
gangur ókeypis.
Föstudaginn 05.11. á Geysir
Kakóbar kl. 17:00, Síðdegistón-
leikar Hins Hússins. Tónlistar-
menn frá hinu framsækna út-
gáfufyrirtæki Thule troða upp.
Götuleikhúsið-aldrei eins, ávallt
nýtt ferskt og spennandi. Sýn-
ingar í Gallerí Geysi Hinu Hús-
inu v/lrgólfstorg:
3L10.-07.11. Hönnunarsýn-
ing Iðnskólanema.
10.11. -17.11. Sýning á verk-
um myndlistarmaraþons.
Hinir heppnu
Verðlaunaafhending fer fram
laugardaginn 13.1 l.kl. 16:00.
20.11. -27.11. Sýning á
myndum ljósmyndamaraþons-
ins.
Verðlaunaafhending fer fram
laugardaginn 20.11. kl. 16:00.
28.1 1.-05.11. Sýning á verk-
um Graffitidjamsins. 28.11. kl.
16:00. — w
Varist iimantómar
hótanir
SVOJMA
ER LIFIÐ
Pjetup St.
flrason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
460 6124 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netíáng:
])jeturst@ff.is
Að ala upp barn get-
ur verið eilíft stríð
um völd og áhrif.
Heimilið er eins og
lítið ríki, þar sem
þarf að vera góð
stjórn. Sumir taka
það ráð að stjórna í
anda lýðræðishug-
mynda, meðan að á
öðrum heimilum rík-
ir harðstjórn, sem
flestir einræðisherrar
gætu verið fullsæmdir með. Æskilegasta stjórnarformið á
heimilum er eflaust einhverskonar upplýst einræði. Þar sem að
foreldrarnir eru í hlutverki konungshjóna og börnin þegnarnir.
Þegnarnir fá þá að vita um réttindi sín og skyldur og hafa til-
lögurétt, málfrelsi en atkvæðisrétturinn er takmarkaður. Á öll-
um heimilum fer fram valdabarátta. Barnið berst fyrir sjálf-
stæði sínu og valdi. Það er fullkomlega eðlilegt og náttúrlegt.
OIl viljum við að börnin okkar verði þæg og góð en einnig
að þau standi sig í samkeppninni út á við. Stundum verða for-
eldrum á slæm mistök þegar þau ætla að aga börnin sín, fara
að hóta einhverju sem ekki er hægt að standa við og gefa börn-
um sínum óraunhæfa valkosti. Dæmi um slíkt er þegar að fjöl-
skyldan er í sunnudagsgöngu og kemur við á róluvellinum. Þar
vill barnið ekki hætta að róla sér, og foreldrarnir hóta því að
skilja barnið eftir. Börnin læra mjög fljótt að slíkar hótarnir eru
merldngarlausar og þeim er aldrei framfylgt.
Ódýrara kaffl
Hingað hringdi lesandi og var með athugasemd við frétt í Degi
um könnun sem Ncytendasamtökin gerðu á kaffiverði á Akur-
eyri. Þar kom fram að ódýrasta kaffið í bænum væri á „Terí-
unni“ eða 140 kr. Lesandinn benti að ágægist kaffihús væri á
Eyrinni, þar sem væri Litla-kaffistofan. Þar kostaði kaffibollinn
80 kr. og hægt væri að fá ótakmarkaða ábót.
Afgreiðslustúlka í Litlu-kaffistofunni staðfesti verðið og
sagði að -kaffistofan væri mikið sótt af iðnaðarmönnum, sem
koma jafnvel saman eldsncmma á morgana til þcss að drekka
morgunkaffið sitt. A skrifstofu Neytendasamtakanna fengust
þær upplýsingar að könnunin á kaffiverði hafi verið miðuð við
kaffihús í miðbænum en þar á bæ vissi fólk af því að víða
mætti fá ódýrara kaffi í hænum ogjafnvel ókeypis.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
PETRI SAKARI STJÓRNAR Á NÝ
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands, sem verða í
Háskólabíói í kvöld kl. 20.00, flytur hljómsveitin tvö
verk eftir tónskáldið Gustave Mahler. Það eru „Söngvar
förusveinsins" og sinfónía nr. 10. Einsöngvari á tónleik-
unum er finninn Raimo Laukka en hann er einn af
fremstu baritónsöngvurum Finnlands. Stjórnarndi á
tónleikunum er fyrrum aðalhljómsveitarstjóri hennar
Petri Sakari.
Petri Sakari.
hofuðborgarsvæðið
Kristján Þórður vill Ritlistarhópi
Kópavogs vel
í kvöld klukkan 17.00 les Kristján Þórð-
ur Hrafnsson úr bók sinni Jóhann vill
öllum í húsinu vel í Gerðarsafni, lista-
safni Kópavogs. Upplesturinn er á veg-
um Ritlistarhóps Kópavogs og er öllum
opin. Aðgangur er ókeypis.
Þróunarlínur í kynbundnu ofbeldi
Fimmtudaginn 28. okt. frá kl. 12-13 í
stofu 101 í Odda verður Ingólfur V.
Gíslason félagsfræðingur með rabb á
vegum rannsóknastofu í kvennafræðum.
Þar verður vikið að því hvers vegna svo
virðist sent ofbeldi gegn konum virðist
mjög mismikið á Norðurlöndum þrátt
fyrir svipaða samfélagslega stöðu kynj-
anna í öllum þessum Iöndum. Rabbið
ber yfirskriftina „Þróunarlínur í kyn-
bundnu ofbeldi". Þar verður vikið að því
hvort minnkandi oflieldi gegn konum
merki minna heimilisofbeldi eða hvort
það sem áunnist hafi sé „aðeins" að það
sé síður kynbundið vandamál.
Fiðlungahefðin
Þjóðhátta- og þjóðlagafræðingurinn
Ann-Mari Haggman segir frá söngva- og
fiðlungshefð alþýðunnar í sænskumæl-
andi byggðum Finnlands í erindi sínu
„Draumar þjóðar í tónlist þjóðar" í
lundarsal Norræna hússins fimmtudag-
inn 28. október kl. 20.30. Fiðlunga-
hefðin ber vitni um áhrif bæði úr austri
og vestri. Nú á tímum hafa finnlands-
sænskar þjóðlagahljómsveitir náð mild-
um árangri á heimsvísu með „fornnor-
rænni“ framsetningu þar sem finnlands-
sænskum, finnskum, íslenskum og
norskum áhrifum er blandað saman af
list. Ann-Mari Hággman er forstjóri
Finnlandssænsku alþýðustofnunarinnar,
þekkt útvarpskona og virk í mörgum
samtökum sem starfa að menningu og
tónlist. Árið 1992 varði hún doktorsrit-
gerð sína um norræna helgisagnavísu,
vísuna um Maríu Magdalenu, sem
einnig er þekkt á lslandi síðan á fyrri
hluta 17. aldar. Aðgangur er ókeypis.
Félagi eldri borgara, Ásgarði Glæsibæ.
Kaffistofa opin alla virka daga frá kl.
10.00-13.00. Matur í hádeginu. Brids í
dag kl. 13:00. Bingó í kvöld kl. 19:15
allir velkomnir. Almennur félagsfundur
um kjör aldraðra verður haldinn í Ás-
garði Glæsibæ laugardaginn 30. október
kl. 14:00. Skagfirska söngsveitin mun
syngja nokkur lög. Allir velkomnir.
Dansveisla á Kaffi Thomsen
Föstudagskvöldið 29. október verður
sannkölluð dansveisla í gangi á Kaffi
Thomsen. Þrír breskir plötusnúðar, þeir
George Bowie, Alex Knight og Jamie
Cruiscy munu þar snúa skífum ásamt
Gus Gus manninum Herb Legowitz.
Búist cr við þónokkrum fjölda blaða-
manna frá breskutn tónlistar-og tísku-
blöðum til landsins, sem ætla sér að
vera viðstaddir spilamennsku þcírra hér
í Reykjavík.