Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 21
• o » « H a u ítH' 4 i. cv i- ti íi o *. ti a k w (i i « -rtf
LAIJGARDAGUR 3 0. OKTÓBER 1999 - 37
V*f<ur
R A Ð A U G L Ý S 1 N G A R
*
NAMSKEID 0 T B 0 Ð S T Y R K 1 R
ák VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
-Ya Administaion of occupational saftv and health
jœS&ÉÉf Bí^shöfða 16 - Pósthólf 12220 - 132 Reykjavík
Réttindanámskeið fyrir
bílstjóra um flutning á
hættulegum farmi.
Athugið að vegna mistaka birtist röng
dagsetning um fyrirhugað námskeið á
Reyðarfirði, í auglýsingu í Morgunblaðinu
sunnudaginn 24. október 1999. Rétt dagsetning
er 4. - 7. nóvember 1999.
Fyrirhugað er að halda námskeið, ef næg
þátttaka fæst, fyrir stjórnendur ökutækja, sem
vilja öðlast réttindi (ADR-skriteini) samkvæmt
reglugerð nr. 139/1995 til að flytja tiltekinn
hættulegan farm á vegum á íslandi og innan
Evrópska efnahagssvæðisins. Reyðarfirði 4. - 7.
nóvember 1999: Grunnnámskeið og flutningur í
tönkum.
Námskeiðsgjald er kr. 28.000, fyrir
grunnnámskeið og kr. 9.000 fyrir námskeið um
flutning í tönkum. Greiða skal staðfestingargjald
kr. 10.000 fyrir grunnnámskeiðið og kr. 5.000
fyrir síðara námskeiðið í síðasta lagi
viku fyrir upphaf námskeiðanna.
Skráning og nánari upplýsingar hjá
umdæmisskrifstofu Vinnueftirlits
ríkisins, Bláskógum 3, 700 Egilstöðum, s. 471-
1636, fax471 2017, netfang vinnueftirlit@ver.is
Utanríkisráðuneytið
Þýðendur
Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins óskar eftir að
ráða þýðendur til starfa. Helstu hæfniskröfur eru
sem hér segir:
• háskólamenntun
• staðgóð þekking á íslensku og ensku
• reynsla af að vinna með tölvur og þekking á
nútímatölvuumhverfi
• reynsla af þýðingum og/eða vinnu með texta
og/eða orðasöfn
Æskilegt er jafnframt að viðkomandi hafi þekkingu á
öðru eða öðrum tungumálum ESB.
Umsóknir, sem ekki þurfa að vera á sérstökum
eyðublöðum, ertilgreini menntun, fyrri störf og
minnst einn meðmælanda þurfa að hafa borist
þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins, Þverholti 14,
3. hæð, 105 Reykjavík, eigi síðar en 12. nóvember
næstkomandi. Afrit af prófskírteinum skulu fylgja
með.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Litið verður svo á að umsóknir
gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur,
nema annað sé sérstaklega tekið fram. Eldri
umsóknir skulu staðfestar.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
fljótlega. Fólk, sem er að Ijúka háskólanámi, er
einnig hvatt til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir
Aldís Guðmundsdóttir, deildarstjóri
þýðingamiðstöðvarinnar í síma 545 8900 (01)
á skrifstofutíma.
Netfang: aldis.gudmundsdottir@utn.stjr.is.
Góð kjör og gott vinnuumhverfi.
www.visir.is
FYRSTUR MEO FRÉTTIRNAR
HUSAVIKURKAUPSTAÐUR
Utboð á tryggingum
Húsavíkurkaupstaður óskar eftir tilboðum í
tryggingar fyrir bæjarsjóð og bæjarfyrirtæki eins
og nánar er lýst í útboðsgögnum.
Um er að ræða brunatryggingar fasteigna,
húseigendatryggingar, lausafjártryggingar,
bifreiðatryggingar, slysatryggingar, frjálsa
ábyrgðatryggingu o.fl.
Útboðsgögn verða til afhendingar á
bæjarskrifstofunni, ketilsbraut 9, Húsavík, frá og
með þriðjudeginum 2. nóvember 1999.
Tilboðum skal skilað á bæjarskrifstofuna,
Ketilsbraut 9, Húsavík, fyrir kl. 14.00
mánudaginn 22. nóvember, þar sem þau
verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi þannig
merktu:
Húsavíkurkaupstaður
Ttryggingar
Tilboð
allar frekari upplýsingar veita bæjarstjóri og
bæjarritari í síma 464 1222.
Húsavíkurkaupstaður.
Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir
tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
1. Toyota Yaris skr. 1999
2. Galloper JK TOl skr. 1998
3. MMC Galant GLXi 4x4 árg. 1991
4. Nissan Prairie árg. 1988
Bifreiðarnar verða til sýnis á Tjónaskoðunarstöð
VÍS, Furuvöllum 11, mánudaginn 1. nóvember n.k.
frákl. 9.00- 16.00.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl. 16.00
sama dag.
Flensborgarskólinn
í Hafnarfirdi
Námsstyrkur
Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar hefur það
hlutverk að styrkja til framhaldsnáms efnilega
nemendur sem hafa lokið stúdentsprófi eða öðru
lokaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Styrkur úr sjóðnum verður veittur í áttunda sinn við
brautskráningu frá Flensborgarskólanum 18.
desember 1999 og verður þá úthlutað 200 þúsund
krónum úr sjóðnum.
Umsóknir um styrkinn þurfa að berast til
Flensborgarskólans, Pósthólf 240, 222 Hafnarfirði í
síðasta lagi 29,nóvember 1999.
Umsóknum þarf ekki að skila á sérstöku eyðublaði
en þeim þarf að fylgja staðfest gögn um námsferil
eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk.
Stjórn Fræðslusjóðs Jóns Þórarinssonar
—
H| BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
I I BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag og breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Kjalarnes, Brautarholt
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til
kynningar tillaga að deiliskipulagi hluta jarðarinnar Brautarholt á Kjalarnesi. Tillagan
gerir ráð fyrir íbúðarhúsi á norðurhluta jarðarinnar og færslu vegar frá Bæjarhóli að
Músanesi og nýjum vegi frá norðurhluta jarðarinnar að nýja húsinu.
Áland, Eyrarland
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deilsikipulagi við Áland/Eyrarland í þá veru að götu
verði lokað fyrir gegnumumferð.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:00 frá 29. október til 26. nóvember 1999.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
fyrir 10. desember 1999.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.