Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 15

Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 15
 LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 - 31 Mikil ábyrgð að ættleiða bam Um 370 böm af erlend- um uppmna hafa veríð ættleidd hingað til lands. „Við Islendingar eigum hátt á 4. hundrað harna, sem á síðustu áratugum hafa verið ættleidd er- lendis ífá til Islands og sem þegar hafa og eiga eftir að gera þjóðfé- lag okkar enn ríkara. Reynsla mín af mínum þrcmur börnum hefur bæði gefið mér og kennt mér meira en nokkuð annað sem hef- ur komið fyrir mig á lífsleiðinni," sagði Valgerður Baldursdóttir, barnageðlæknir, sem fjallaði um sérstöðu ættleiddra bama af er- lendum uppmna á fjölsóttri ráð- stefnu Bamaheilla um börn af er- lendum uppruna hér á landi, sem haldin var í tilefni 10 ára afmælis Barnaheilla. Valgerður kvaðst ekki vita til að neinar rannsóknir hafi verið gerð- ar hér á landi á stöðu þeirra. Sérstöðu ættleiddra barna segir Valgerður margþætta. Eitt sé framandi útlit, flest séu þau dökk á brún og brá. Þau þekki ekki þann lúxus að falla inn í hópinn, vera ekki öðruvísi en hinir, sem öllu máli skiptir í æsku, eins og allir þekkja. Og þau skeri sig ekki bara úr í samfélagi barna heldur líka í eigin fjölskyldu. „Þetta getur kallað á alls kyns athugasemdir. Sennilega er sárast að heyra; þú átt ekki alvöruforeldra, eða af hveiju ertu ekki hjá alvöm- mömmu þinni?“ Mesta sérstaða þessara barna sé þó sú afdrifaríka lífsreynsla sem þau hafa gengið í gegnum. „Þau hafa í farteskinu lífsreynslu sem hefur meiri áhrif á líf þeirra en nokkuð annað sem þau eiga eftir að upplifa síðar á lífsleiðinni. Það er ekki hægt að hugsa sér meiri missi í lífi nokkurs einstak- lings heldur en þann sem þau hafa orðið fyrir,“ segir Valgerður. Ættleiðing eigi sér aldrei stað án Mesta lífsreynsla á lífsleiðinni Valgerður Baldursdúttir. missis og öllum missi fylgir sorg. Barnið sé skilið frá kynforeldrum sínum að eilífu og glati tengslum við allan sinn uppruna. Þessi að- skilnaður og missir hafi djúp áhrif á barnið, jafnvel þó það viti ekki hvað er að gerast. Sérhver missir og aðskilnaður síðar í lífinu verði fyrir hragðið erfiðari. Mikilvægt að vinna úr sorginni Valgerður segir kjörforeldra oft finna til sektarkenndar fyrir að útsetja börnin fyrir þetta álag. Mjög mikilvægt er að sérhver að- ili í þessu ættleiðingarferli syrgi sinn missi, sem geti þó verið erfitt í samfélagi þar sem rík tilhneiging er til að afneita þessum sársauka. En sé ekki unnið úr sorginni þá gerir hún vart við sig síðar og geti þá birst sem kvíði, örvænting, þunglyndi, reiði, hegðunarútrás og jafnvel misnotkun vímuefna svo nokkuð sé nefnt. Þessar til- finningar gera gjarnan vart við sig á hvers kyns tímamótum í lífinu. „Allar þær tilfinningar sem ég hef farið inn á hér geta haft trufl- andi áhrif á þær tilfinningar sem æskilegt er að myndist milli for- eldra og barna." Sum þeirra, bæði börn og fullorðnir, virðist forðast nálægð. „Það er mikil ábyrgð að ættleiða bam,“ sagði Valgerður Baldursdóttir. - HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.