Dagur - 03.11.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 03.11.1999, Blaðsíða 4
20-MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 LÍFIÐ í LANDINU Xte^iíir Einn nektardansstaður á hverja 5000 íbúa? Það er von að Akureyringum blöskri. A höfuðborgarsvæð- inu er hlutfallið margfalt „óhagstæðara" og þykir flest- um þó nóg um. Hörð við- brögð flestra landsmanna við þessari innreið lágmenn- ingar vekja vonir um að tak- ist að sporna við þessum ófögnuði. Um nektarstaðina og umraeðuna um þá má segja ýmislegt, en eitt stend- ur uppúr: hér er viðfagnsefni sem reynir verulega á hæfni okkar og getu að skapa samfélagsmynd sem við sættum okkur við. Klámvæðing landsins er ekki hluti af þeirri mynd. Ekkert hægt að gera? Hér er áhugavert mál út frá fræðilegu sjón- arhorni. Varla þarf að efast um almanna- vilja: lang stærsti hluti landsmanna vill ekki klámbúllur í menningarlandslagi þjóðarinn- ar. Þegar þessi vilji er látinn í ljós með ýms- um hætti eru svör ráðamanna á einn veg: „ja, við getum eiginlega ekkert gert“. Mark- aðurinn verður að hafa sinn gang. Þegar yf- irvöld stynja mæðulega og segjast ekkert geta gert eru þau einfaldlega að lýsa því yfir að pólitískur vilji og samfélagsleg vitund hafi ekki roð við frelsi markaðarins. Klámvæð- ingin sé hluti af markaðsvæðingunni. Við eigum ekki að sætta okkur við svo frumstæð lífsskilyrði. Tvískiimiiiigiir Hvergi er jafn stutt í hræsni og tvískinung og þegar kynferðismál ber á góma. Hvort sem okkur líkar betur eða verr endurspeglar klámvæðingin eftirspurn á meðal vor. Hafi stöku nektardansmeyjar laun á bilinu 500 þúsund og upp í eina milljón á mánuði, má Ijóst vera að mörgum er Iaus aurinn fyrir þjónustuna. Símaldámið veltir samkvæmt lauslegri úttekt fjölmiðla ótrúlegum upp- hæðum. Og þegar farið er niður í botn sam- félagsins og lögreglan gerir rassíu hjá klám- myndakóngum kemur bæði magnið og inni- haldið öllu „venjulegu" fólki gjörsamlega í opna skjöldu. En minnumst þess að við- skiptavinir klámiðnaðarins er ótrúlega stór hluti þess fólks sem við í daglegu tali köllum venjulegt. Aður en við töpum okkur gjör- samlega í réttmætri fordæmingu skulum við minnast þess að „eftirspurnin“ er bara ann- að orð yfir okkur sjálf. Samt I raun er hvorki hægt, né réttlætanlegt, að banna fólki að dansa nöktu. Og klám er ekk- ert nýtt fyrirbrigði. Það er óþarft að fara á taugum út af því. Klám mun verða hluti af samfélaginu. Að því sögðu er þó ljóst að meirihluti þjóðarinnar vill halda þessari þjónustu utan alfaraleiðar, takmarka hana mjög og ýta út á jaðar neyslusamfélagsins. UMBUÐA- LAUST Stefán Jón Hafstein skrifar margt bendir tii þess að þær út- lendu stúlkur sem hér hafa starfað séu tengdar eða hreinlega gerðar út af glæpahringjum erlendis; þá erum við að tala um mafíur sem stunda mannsal og hrelnt þrælahald. Klámvæðingin Mörg gild rök eru fyrir því. í fyrsta lagi er vitað að klámbúllur eru oft tengdar margvís- Iegri ólöglegri starfsemi, vændi og eiturlyf eru þar á meðal, eins og reynsla erlendis sýnir. I öðru lagi bendir margt til þess að þær útlendu stúlkur sem hér hafa starfað séu tengdar eða hreinlega gerðar út af glæpahringjum erlendis; þá erum við að tala um mafíur sem stunda mannsal og hreint þrælahald. I þriðja lagi setja þessar búllur ljótan svip á miðbæi á sama hátt og veggjakrot og tyggjóldessur. Og í fjórða lagi má leiða líkur að því að vaxi þessum iðnaði fiskur um hrygg muni hann draga að sér ungt atgervisfólk til starfa, sem þá nýtist ekki til betri hluta. Sem sagt: það mælir margt með því að láta ekki klámvæðinguna yfir sig ganga. Pólitísk uppgjöf? Sveitarfélögin í landinu horfa nú til Alþingis og biðja um hjálp. Þau hafa engin færi á að stöðva ldámvæðinguna. Reykjanesbær reyndi, og neitaði nektardansstað um vín- veitingaleyfi. Það bann var hrakið. Og þótt skattstjóri sé nú (af hveru núna fyrst og vegna klámumræðu?) að ganga á eftir skatt- skilum, má ljóst vera að bókhaldstæknilega verður þetta mál ekki afgreitt. Hvað þá? Við höfum reyndar fordæmi um boð og bönn. Við umgöngumst áfengi af mun meiri varúð en nektardansmeyjar: Rík- ið sér um smásölu í búðum sem hafa tak- markaðan afgreiðslutíma. Fyrir því eru viss rök, þótt Nýkaup sjáí sóma sinn í því að láta róna fara í mótmælabindindi (hvílíkur húmor!). Við bönnum hnefaleika. Og íjár- hættuspil verða menn að stunda í stranglega afmörkuðum hólfum (sem mættu vera þrengri). A öllum þessum sviðum hefur „eft- irspurnin“ skapað hliðarþjónustu, oft ólög- lega, á jaðri samfélagsins. Svo verður einnig um klámið. En skítt með það. Við eigum, og getum vel búið svo um hnútana með reglu- gerðar- og skrifræðistækni, að klámbúllur fái ekki þrifist með góðu móti. Með réttum við- brögðum núna getum við komið í veg fyrir að klámið fái með ítrekuðu áreíti að festa sig í sessi sem „viðurkennd" þjónusta. Væri klámið ný stórbygging í náttúrunni færi það í umhverfismat. Og félli. En af því að það er hervirki í menningarlandslagi okkar ætla menn að deyja ráðalausir. ■menningar! LÍFIO Ljóðakvöld með Jóni Erlendssyni og Jóhannesi úrKötlum Ljóðakvöld- in í Sigur- hæðum Húsi skáldsins eru öll miðviku- dagskvöld og verður engin und- antekning gerð á því í Jóhannes úr kvöld, en Kötlum. þá er kom- ið að fimmta ljóðakvöldi haustsins. Gestur í húsinu að þessu sinni er Jón Erlendsson, starfsmaður Vegagerðarinnar. A síðustu árum hefur Jón nokkrum sinnum birst sem athyglisvert skáld, vann m.a. til verðlauna í Ljóðasam- keppni DAGS og MENOR fyrir nokkrum árum. Eftir hann hefur ekki enn komið út bók, en hann á sitthvað óprentað og munu áheyrend- ur fá að njóta þess í kvöld. Þá hefur Jón einnig fengist nokkuð við þýðingar og ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Þannig er hann Iangt kominn með nýja þýðingu á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen - sem forvitni- legt verður að fá að kynnast. Ekki verður gengið fram- hjá hinu mikilsvirta skáldi Jóhannesi úr Kötlum, en hinn 4. nóvember eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Er- lingur Sigurðarson, forstöðu- maður Sigurhæða mun minnast skáldsins með því að fara með lítið brot af ljóð- um hans. Hús skáldsins er opið kl 20 - 22 á miðvikudagskvöld- um en flutningur ljóðaskrár- innar hefst kl 20.30 og tekur um það bil þrjá stundarfjórð- unga. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm Ieyfir. V____________________________/ Vakíis Viðars. Guðaveigar í verslanir? Fyrir síðustu helgi var í verslun Nýkaupa í Kringlunni í Reykjavík opnuð vínbúð, sem þó er engin venjuleg vínbúð. Hún er afgirt með þéttu vírneti „... í mótmæla- skyni við þau lög sem varna smá- sölu léttvíns og bjórs í matvöru- verslunum," einsog segir í frétt Dags um málið. Segir ennfremur að þessi afgirta búð sé sett á lagg- irnar til að koma af stað þjóðfé- lagsumræðu um fyrirkomulag áfengissölu, en allar kannanir sýni að „meirihluti almennings er þeirrar skoðunar að leyfa skuli sölu létt- víns og bjórs í matvöruverslunum," einsog segir í tilkynningu Nýkaupa. MiMð alvörumál Ef til vill er nokkuð táknrænt að - og lýs- ir kannski vel ábyrgðartilfinningu Ný- kaupsmanna í áfengismálum - að til þjónustu skulu fengnir í vínbúðarleikrit- inu Spaugstofurónarnir Bogi og Orvar. Þó mörgum þyki gaman að lyfta glasi í góðra vina hópi, skal fólk undir öllum kringumstæðum hafa í huga að áfengi er vímuefni og notkun þess og sala er alvöru- mál. Það er jafnframt morgun- ljóst að verði áfengi aðgengilegra í verslunum frá því sem nú er, mun neysla þess jafnframt aukast - enda er á öllum varningi á markaði bein fylgni milli betra framboðs og aukinnar sölu. Jafn- vel þó vínsalan sé „háð ströngu eftirliti og skilyrðum," rétt einsog Nýkaupsmenn komast að orði í frétt Dags. Leikritið í Nýkaup er á svið sett á sama tíma og sífellt alvarlegri fréttir ber- ast af afleiðingum vímuefnanotkunar landsmanna. I flestum tilvikum hefst misnotkun vímuefna með neyslu áfengis - og þaðan svo koll af kolli til sífellt hættumeiri efna. Og í nýlegum fréttum frá SAA kemur fram að vímuefnavandi MENIMINGAR VAKTIN Sigurður Bogi Sævarsson skrifar Það lýsir vel ábyrgðartilfinningu Nýkaupsmanna I áfengismálum - að til þjónustu skulu fengnir I vínbúðar- leikritinu Spaug- stofurónarnir Bogi og Örvar, segir m.a. hér í greininni. ungs fólks sé sífellt alvarlegri. „íslend- ingar hafa misst þau tök á vímuefna- vandanum sem þeir höfðu áður,“ er haft eftir Þórarni Tyrfingssyni, yfirlækni SAA, í Morgunblaðinu í sl. viku. Dæma sig úr leik Það er ágætt að kóngarnir í Nýkaupum vilji koma af stað þjóðfélagsumræðu um áfengismál. En þá verður að hafa í huga að mikill vill alltaf meira og væntanlega gæti áfengissala skilað kaupmönnum vænni inntekt. Einmitl það er meginat- riði málsins, en ekki umhyggja þeirra fyrir neytendum einsog í veðri er látið vaka. Rétt einsog neysla áfengis þá er sala þess jafnframt alvörumál. Það er rangt að hreyfa við stórum þjóðfélags- málum með leiksýningum, umræðan verður að fara fram með skýrum rökum og úr því Nýkaupsmenn nefna þau ekki dæma þeir sjálfa sig úr leik í þessu máli.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.