Dagur - 03.11.1999, Side 5
MIDVIKVDAGVR 3. NÓVEMBER 1999 - 21
Thypr.
LÍFID í LANDINXJ
Amað heilla
„Þetta var besti dagurinn í
lífi mínu, hann var aldeilis
frábær. Það gekk allt mjög
vel upp og brúðurin var al-
veg stórkostleg,“ segir Karl
Matthías Helgason, raf-
virki, um brúðkaupsdaginn
sinn. Hann kvongaðist í
byrjun ágúst Irisi Björgu
Eggertsdóttur. Hún starfar
sem ljósmyndari á ljós-
myndastofunni Mynd í
Hafnarfirði. Þau eru til
heimilis að Eskihlíð 8,
Reykjavík.
Þau eru bæði úr Stykk-
ishólmi og Karl segir þau
hafa vitað hvort af öðru.
„Eg er fimm árum eldri en
hún en við kynntumst
þannig að ég var að vinna í
Rækjunesi, sem er skel-
fiskvinnskla í Hólminum.
Afi hennar á fyrirtækið,
þar fórum við að kynnast
náið. Við höfÐum verið í
sambandi í 10 ár, áður en
þessi stóri dagur rann upp.
Þegar athöfnin stóð sem
hæst fór öryggiskerfi í gang
í kirkjunni. Gestirnir
kímdu og sögðu að það
væri bara svona heitt á
milli okkar,“ segir Karl.
Þann 7. ágúst voru gefin saman í Háteigskirkju í Reykjavfk þau Írís
Björg Eggertsdóttir og Karl Matthías Helgason afSéra Helgu Soffíu
Konráðsdóttur. Þau eru til heimilis að Eskihlíð 8, Reykjavík.
(UÓSM. MYND HAFNARFIRÐIj
Þau Stefanía Ljótunn
Þórðardóttir og
' Heiðar Björgvin Er-
lingsson voru gefin
saman í Hofskirkju, 4
september. Prestur
var Séra Sigurður Kr.
Sigurðsson. Þau eru
tii heimilis að Silfur-
braut 7c, Hafnarfirði.
(UÓSM. JÓH. VALG.]
efin voru saman þann 7. ágúst1999
/ Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, afSera
Þórhalli Heimissyni, þau Kristrún
Ellen Arinbjarnardóttir og Heimir
Jónsson. Þau eru til heimils að
Löngumýr 4 í Garðabæ.
Gefin voru saman
þann 4. september
í Þjóðkirkjunni
Hafnarfirði, þau
Úlöf Aðalsteins-
dóttir og Rafn A.
Sigurðsson af
Séra Þórhalli
Heimissyni. Þau
eru til heimilis að
Breiðvangi 46,
Hafnarfirði. (uósm.
MYND HAFNARFIRÐlJ
Pann 11. september voru gefin
saman í hjónaband afSéra
Sigurði A rnasyni í Háteigskirkju
i Reykjavík þau Ragnheiður
Gísiadóttur og Ævar Sigurðs-
son. Heimili þeirra er að Jötna-
borg 12, Reykjavík.
(UÓSM. S/GR/ÐUR BACHMANNj
Agi heima og í skóla, tvær
hliðar á sama peningi
SVOJMA
ER LIFIÐ
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
460 6124 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
pjeturst@ff.is
Það er eðli
kennararstarfs-
ins að ef kenn-
arinn er vel vak-
andi þá lærir
hann sífellt eitt-
hvað af nem-
endum sínum.
Kennarar verða
að taka tillit til
nemenda sinna,
hver þeirra er
einstakur og
hann getur ekki
ætlast til þess að þeir hagi sér allir á sama hátt eða bregðist all-
ir eins við. Kennarinn á að vera sér meðvitaður um það að aga-
leysi á sér ætíð einhverjar sálfræðilegar eða félagslegar orsakir.
Nemendur herma mikið eftir fullorðnum þannig að ef kennar-
inn er árásargjarn, þá eru miklar líkur á því að einstakir nem-
endur verði það einnig. Skólaagi er grundvöllur þess að ná
ákveðnu markmiði. Að ná góðum aga f bekknum er flestum
kennurum efst f huga, þar sem það er nauðsynlegt fyrir allt
kennslustarf.
í bók sinni Svo eða svo heldur svissneski uppeldisfræðing-
urinn Bruno Peyer því fram að agi geti líka halt neikvæðar
afleiðingar. Ef kennarar haldi uppi aga með því að hræða
nemendur sína geti agi brotist út í árásargirni. Þannig að um
leið og nemendur fari undan umsjón kennarans fari allt úr
böndunum. Þannig sé því nauðsynlegt að útskýra fyrir nem-
endum reglur eða láta þá búa þær til og fá þá til þess að
samþykkja þær. Best sé að halda uppi aga með áhugaverðum
tímum þar sem kennarinn leggur fyrir mátulega krefjandi
efni og með því að kennarinn sé varkár og fylgist með því
sem fram fer í bekknum.
Agi í skóla og agi á heimili eru tvær hliðar á sama pen-
ingi. Komi barnið vel agað heiman frá sér er líklegt að það
verði til fyrirmyndar í skólanum. I bók sinni Agi og hegðun
segir Helga Hannesdóttir, barna- og unglingageðlæknir, að
ástæðan fyrir því að foreldrum og öðrum uppalendum bregð-
ist stundum bogalistin í agamálum geti verið sú að óþægðin
hefur alltaf tvær hliðar. Foreldrar líta vanalega aðeins á aðra
hliðina en sniðganga hina. Onnur hliðin er sú að barnið er
óþægt. Hin hliðin er sú að barninu líður illa. Það gerir
slæma hluti vegna þess að það þjáist af óþægilegum tilfinn-
ingum vegna liðinna atburða. Tilfinningar barnsins eru or-
sök gerða þess. Það sem við gerum vanalega er að einblína á
hegðunina en vanrækja tilfinningarnar sem leiða til hegðun-
arinnar.
HVAB ER Á SEYfll?
MARILYN HERDIS MELLK
Listamaður mánaðarins í Listfléttunni á Ak-
ureyri er að þessu sinni Marilyn Herdis
Mellk, myndlistarkona sem er af íslensku
bergi brotin fædd í Bandaríkjunum 1961 þar
sem hún ólst upp, en dvaldi þó sumarlangt á
íslandi á ári hverju. Hún stundaði nám við
California College of Arts and Crafts og
Myndlista- og handíðaskóla íslands, þaðan
sem hún útskrifaðist 1987 úr grafíkdeild.
Fyrstu einkasýningu sína hélt hún árið 1987
og hefur síðan tekið þátt í fjölda samsýninga
hérlendis og erlendis.
Grafíkmyndir Marilynar einkennast gjarnan
af dýrum eins og t.d. hundum og hestum og
þykja afar líflegar og skemmtilegar, en sjón er
sögu ríkari og er Listfléttan opin alla virka
daga frá kl. 11.00 til 18.00, en laugardaga frá kl. 11.00 til 14.00, en þó er opið til kl.
16.00 fyrsta laugardag í mánuði.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Háskólatónleikar
Aðrir háskólatónleikar vetrarins verða í
Norræna húsinu í kvöld ld. 20.30.
Sophie Schoonjans og Marion Herrera
leika á hörpu. Sophie Schoonjans lærði
hörpuleik í heimalandi sínu, Belgíu, en
Marion Herrera er frönsk og lærði í
Frakklandi. A tónleikunum leika þær
fjögur verk. Fyrsta verkið er „Prelúdía,
fúga og tilbrigði" op. 18 eftir César
Franck. Eftir Cor de Groot er „Rauða
kisan: llmandi vals“, stutt verk fyrir tvær
hörpur. Þriðja verkið á dagskránni er
„Solfeggietto" eftir Carl Philipp Emanuel
Bach. „Solfeggietto“ eða „dálítil söngæf-
ing“ er hér leikið í útsetningu fyrir tvær
hörpur eftir Woolridge. Síðasta verkið er
„Sónantína“ fyrir tvær hörpur eftir Jean-
Michel Damase.
Aðgangseyrir er kr. 500. Ókeyjris er fyrir
handhafa stúdentaskírteina.
Opinber fyrirlestur
Fimmtudaginn 4. nóvembcr flytur Sól-
veig Jakobsdóttir opinberanfyrirlestur á
vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum
í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist
A „uppleið" með upplýsingatækni: Eru
stelpur og strákar samferða á þeirri
leið?“. Tölvúnotkun er talin mikilvæg fyr-
ir börn og unglinga til þess að búa þau
undir líf og starf í nútímaþjóðfélagi eins
og stefnumótun menntamálaráðuneytis-
ins og nýjar námskrár bera með sér. En
þær þrýsta á skóla á öllum skólastigum
að bæta nýtingu tölva og upplýsingatækni
í skólastarfi.
LANDIÐ
Námstefna á Akureyri
Námstefnan „5x5 stjórnun enn betri yfir-
sýn“ verður haldin af Stjórnunarfélagi
íslands á Akureyri fimmtudaginn, 4. nóv-
ember á Fosshótel Kea. Fyrirlesari er
Thomas Möller, framkvæmdastjóri,
markaðssviðs þjónustustöðva OLÍS.
Samkeppnishæfni fyrirtækja byggist að
miklu leyti á þekkingu stjórnenda, hug-
myndaauðgi þeirra, yfirsýn og viðbragðs-
flýti. 5x5 stjórnun þarf að vera ljós hverj-
um stjórnanda í nútímarekstri. Yfirsýnin
verður skýrari. Hugmyndir að lausnum
verða fleiri. Námstefnan gerir þér auð-
veldara að koma áætlunum, hugmyndum
og breytingum í framkvæmd. Á nám-
stefnunni nálgast Thomas grundvöll ár-
angursríkrar stjórnunar með nýjum og
óvenjulegum hætti. Nánari upplýsingar
hjá Stjórnunarfélaginu f síma 533-4567
og á www.stjornun.is