Dagur - 11.11.1999, Page 3
FIMMTUDAGVR 11. NÓVEMBER 1999 - 19
LÍFIÐ t LANDINU
Guðmundur Ragnar útskýrir fyrir
nemendunum Magnúsi [sitjandi],
Eyjólfi, Úskari og Úmari hvaö nú er
að gerast á skjánum. myndir: gun.
Hugmyndimar
eru auðlind
Dimmt og kalt haust-
kvöld vesturá Granda.
Mérlíðureins og í bíó-
mynd. Hafði verið sagt
að mæta á tilteknum
stað á tilteknum tíma.
ÍNetstofu.
Ljóstýrur eru í nokkrum glugg-
um efst í margra hæða
steinkumbalda. Feta mig hik-
andi upp stigana, inn í stóra
sali hvern af öðrum. Þungir
dropar falla í einu horninu.
„Halló, er nokkur þar!“ Ekkert
svar. Sennilega verð ég fest í
einhverju neti - jafnvel vegin úr
launsátri. Kem í lítið herbergi
með mannvistarleyfum, hálfum
kókflöskum, kaffivél og tölvum,
öllum í rúst. Hér gæti hafa ver-
ið unnið spellvirki. Eg hlýt að
vera í bíómynd...
Inn úr herberginu dyr. Það
brakar í hurðinni. En viti
menn. Bak við hana, í endan-
um á stórum sal, sitja nokkrar
ungar manneskjur og hlýða
andaktugar á fyrirlestur ein-
hvers gúrú um undravíddir
tölvuheimsins.
Kannski ég sé á réttum stað á
réttum tíma. Netstofan ekki
bara gabb. Anda léttar og bíð
átekta innan um tölvuruslið.
Þetta er skóli - tolvuskóli
Þegar fyrirlestrinum er lokið
koma bæði gúrúinn og ungu
manneskjurnar og ég spyr: Hvað
fer hér fram?
Guðmundur Ragnar (gúrú-
inn): „Þetta er skóli - tölvuskóli.
Hér kynnast nemendur upp-
byggingu tölvunnar og tækninni
bak við Netið. Hvernig allt er
byggt upp og hvernig pípulögnin
virkar!"
- Byrja þeir kannski d að búa
til tölvur? spyr ég og bendi á allt
draslið kring um mig.
Guðmundur: „Fyrsta atriðið
sem nemendur læra er hvernig
tölvan er uppbyggð og þessvegna
fengum við nokkrar hálfónýtar
vélar sem áttu að fara á haugana
og byrjuðum á að rífa þær sund-
ur, kanna innihaldið og koma
þeim í nothæft
ástand. Eftir það
er sett inn Linux
stýrikerfi og síð-
an snýst námið
um að læra á
UNIX/Linux
sem er grunn
búnaður sam-
skipta á Inter-
netinu. Þannig
lærist hvernig
tölvan tengist
Netinu og allt
sem því tilheyr-
ir.“
- Er þetta und-
irbúningur undir
frekara ndm eða útskrifast menn
með di-plóm héðan?
„Menn ráða því að sjálfsögðu
hvort þeir bæta einhveiju við
það sem þeir læra hér, en það er
miðað við að þeir sem fara á
þetta námskeið geti sett upp vél-
ar og kerfi sem tengjast Netinu.
Geti borið
ábyrgð á því að
setja upp net-
Iögn fyrir fyrir-
tæki og reka
það. Þarna fel-
ast miklir at-
vinnumöguleik-
ar.“
- Hversu lang-
an tíma tekur
námið?
„Námsferlið
er skilgreint
sem 6 mánuðir.
Það fer svo eftir
einstaklingun-
um hversu langt
Tölvuheimurinn
margslunginn og sviðið
Það ermiðaðviðað
þeirsemfara á þetta
námskeið geti sett upp
vélarog kerfi sem
tengjastNetinu. Geti
borið ábyrgð á þvi að
setja upp netlögn fyrir
fyrirtæki og reka það.
þeir vilja fara.
er svo
stórt."
- Af hverju
eruð þið i þessu
Hér er verið að kanna innihald tölvunnar og átta sig á hvernig „pípulögnin virkar".
Þessir spekúlantar eru
örugglega á réttri hillu í
Netstofunni hugsa ég
um leið og ég feta mig
aftur út í myrkrið á
Granda og Osannfærist
um það sem einn þeirra
sagði í upphafi: Hug-
myndir í tölvuheiminum
eru auðlind.
GUN.
hráslagalega hiísi?
„Reykjavíkurborg lánar okkur
afdrep í þessu gamla húsi Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur og styður
vel við bakið á okkur í sambandi
við Nettengingar og annað.“
Óendanleg þróun
Nemendurnir á þessu fyrsta
námskeiði hafa greinilega
kynnst tölvum áður. En vilja vita
meira. Framtíðin er spennandi
og þeir sjá lyrir sér óendanlega
þróun...
... í tölvuheiminum eru hug-
myndimar auðlind ... það þarf
heldur ekki svo mikið fjármagn
til að hrinda þeim f framkvæmd
... ef maður getur lýst hugmynd-
inni og komið henni í forrit þá
er hún kapítalið í sjálfu sér ... í
framtíðinni verður litið á heim-
ilistölvurnar sem meiri nauð-
synjahlut en gert er nú ... þær
verða eins og hver önnur heim-
ilistæki ... örugglega innbyggð-
ar í innréttingarnar ...
bara eins og eldavélar í
dag ... og látnar fylgja
íbúðunum við sölu ...
þær verða líka allar
Nettengdar ... það verð-
ur bara skylda ... senni-
lega verður enginn
harður diskur ... bara
geymslupláss á risa-
stórri tölvu einhvers-
staðar í heiminum ...
þetta verður eins og
með pósthólfin ... þú
sækir þinn póst
þannig verður það með
allt sem gert er á tölv-
una ... þú sendir það í
einhverja móðurtölvu og
getur farið inn í það úr
hvaða tölvu sem er ...
hvar sem er í heiminum
BÆKUR
Hákon glottir
Glott í golukald-
ann er nafnið á
nýútkominni bók,
sem Sigurdór
Sigurdórsson
skráði eftir Há-
koni Aðalsteins-
syni, hagyrðingi,
sagnamanni og
skógarbónda. Er þetta önnur
bókin sem þeir vinna saman,
en Það var rosalegt, var met-
sölubók ársins 1997.
í sögunum sem nýja bókin
geymir bregður Hákon upp
myndum af mörgu skemmti-
Iegu, svo sem jarðarför, þar
sem allir fengu sér vel í staup-
inu, prestur ekki síður en aðr-
ir, og flutti hann ógleyman-
lega útfararræðu. Sagt er frá
bónda sem barnaði mágkonu
sína og taldi sér það heimilt
með tilvísun til konungsbréfs
og margt fleira skondið er Há-
koni frásagnarefni.
Hákon Aðalsteinsson hefur
sent frá sér kvæðabækur sem
nú eru fágætar á markaði.
Vestfirsk kjamakona
Hulda Valdi-
marsdóttir
Ritchie átti við-
burðarfka ævi
allt frá tvítugs-
aldri þegar hún
giftist skoska
sjóliðanum
Samúel
Ritchie. Finnbogi Valdimars-
son skráði sögu hennar, sem
komin er út hjá Hörpuútgáf-
unni, og ber bókin heitið
Hulda.
Hulda ólst upp Hnífsdal og
þar kynntist hún sjóliðanum
sem varð maður hennar. Þau
fluttu til Bretlands og bjuggu
þar, en fluttu síðar til Islands.
Þó oft blési á móti missti
Hulda aldrei kjarkinn, eins og
fram kemur í ævisögu hennar.
Lífsglaðar
minningar
IMMf:
L
Lífsgleði, mmn-
ingar og frásagnir
kemur nú út í
áttunda sinn.
Sem fyrr eru þær
ritaðar af Þóri S.
Guðbergssyni og
rilja nú fimm Islendingar upp
minningar og slá á létta
strengi.
Þeir sem segja frá í því hefti
sem nú var að koma út eru:
Séra Arni Pálsson, fyrrverandi
sóknarprestur, Herdís Egils-
dóttir, kennari og rithöfundur,
Margrét Hróbjartsdóttir, geð-
hjúkrunarfræðingur og
kristniboði, Rúrík Haralds-
son, leikari og Ævar Jóhann-
esson, sem jafnframt öðrum
störfum hefur þróað og fram-
leitt lúpínuseyði.
Þakkir
Mér líður vel þakka þér fyrir,
heitir ljóðabók eftir Inga
Steinar Gunnlaugsson. Fyrir
þrem árum kom út bókin Sól-
skin eftir sama höfund.
Hörpuútgáfan gefur út.
Kisubók
Einar Kárason sendir frá sér
barnabókina Litla systir og
dvergarnir sjö, sem fjailar um
tvær litlar kisur og heitir önn-
ur Mjallhvít og hin Dvergarn-
ir sjö. Og svo er sagt frá litlu
systur. Sigurborg Stefánsdótt-
ir myndskreytti. Mál og
menning gefur út.
V__________________________