Dagur - 11.11.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 11.11.1999, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 11. nóvember 1999 íbúaaukning í Árborg sú mesta á landsbyggðiuiii Það ríkir gódæri á Selfossi og raunar í Árborg allri. Nettóskuldir námu 77,9% hjá saman- burðarsveitarfélög- unum en einungis 44,6% hjá Árborg. Karl Björnsson, bæj- arstjóri, segir að reynt hafi verið að sníða sér stakk eftir vexti á undanfömum árum og framkvæma mest fyrir eigið fé og halda lántökum í skefjum. Fyrsti ársreikningur sveitarfé- Iagsins Arborgar eftir að það varð til við sameiningu Eyrar- bakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrar- hrepps þann 7. júní 1998 hefur séð dagsins ljós. Skuldir sam- stæðu bæjarsjóðs, atvinnuþró- unarsjóðs, byggingarsjóðs aldr- aðra, bæjar- og héraðsbóka- safns og félagslegra íbúða í árs- lok án lífeyrisskuldbindinga hækkuðu úr 210 þúsund krón- um í 225 þúsund krónur á íbúa borið saman við fjárhagsáætlan- ir áðurnefndra sveitarfélaga. Peningaleg staða án lífeyris- skuldbindinga versnaði um eitt þúsund krónur á íbúa og var neikvæð um 167 þúsund krón- ur í árslok 1998. Karl Björns- son, bæjarstjóri, segir að Iífeyr- isskuldbindingar byggist á gamla lífeyrissjóðskerfinu með B-deiIdarfyrirkomulaginu, þar sem lífeyrisiðgjöldin og mót- framlag atvinnurekenda duga ekki fyrir lífeyrisávinningnum. Því greiði atvinnurekandinn nú 11,5% á móti 4% framlagi Iaun- þegans í stað 6% áður. I samanburði við önnur sveit- arfélög með fleiri en 1000 íbúa, en án Reykjavíkur, þegar aðeins er tekið tillit til sveitarsjóða, ekki samstæðu, kemur m.a. í ljós að helstu niðurstöður bæði reksturs og efnahags eru hag- stæðar Arborg. Afgangur eftir rekstur er 79,1% hjá Arborg en 80,2% hjá samanburðarsveitar- félögunum. Nettóskuldir námu 77,9% hjá sveitarfélögunum en einungis 44,6% hjá Arborg. Bæjarstjóri segir að reynt hafi verið að sníða sér stakk eftir vexti á undanförnum árum og framkvæma mest fyrir eigið fé og halda lántökum í skefjum. Fjármagnsgjöldin hjá Arborg eru 3,6% sem hlutfall af tekjum sveitarfélagsins en eru 5,6% hjá samanburðarsveitarfélögunum. Rekstrarafgangur er því 17,3% hjá Arborg en „aðeins" 14,2% hjá öðrum sveitarfélögum með yfir 1000 íbúa. Framkvæmdir hjá Arborg voru 17,1% af rekstrartekjum og afgangur eft- ir framkvæmdir 0,2% en fram- kvæmdir annarra sveitarfélaga 28,1% þannig að rekstrarhalli þeirra er 13,9% af rekstrartekj- um svo í raun eru þeirra fram- kvæmdir tvöfalt meiri en þau hafa efni á. - Hlutfall Árborgar til félags- þjónustu er 14,2% af tekjum, eða 1% lægra en t samburðar- sveitarfélögunum og 0,5% lægri til fræðslumála. Er þjónusta ykkar lakari sem þvt' nemur? „Það verður að taka í þessu sambandi tillit til þeirra gæða sem Iiggja að baki félagsþjón- ustunni og hvernig fjármunirnir eru nýttir. Ég veit að félagsþjón- usta þykir hér ágæt en hlutfall- ið hjá litlum sveitarfélögum er mjög hátt en fer Iækkandi sem hlutfall eftir því sem sveitarfé- lögin eru stærri. Hlutfallið til atvinnumála er einnig Iægra en atvinnuástand er hér mjög gott og stöðug íbúaaukning og fólk leitar i þá þjónustu sem hér er. Hér hefur íbúum fjölgað um 1 19 manns fyrstu þrjá ársfjórð- unga þessa árs, sem er það mesta sem þekkist á Iands- byggðinni. Ég býst við að íbúa- tölur 1. desember nk. muni sýna að íbúum hafi fjölgað um 200 manns og séu orðnir um 5.700 talsins. Á Selfossi er þjónustukjarni Suðurlands og atvinnutækifærum í þjónustu- geiranum er alltaf að fjölga en fækkar í frumvinnslunni. Sveit- arfélög sem byggja á atvinnu á sviði þjónustu hafa betri vaxtar- skilyrði en önnur,“ segir Karl Björnsson, bæjarstjóri. GG Námskeið í jóla- skreytingimi Eins og undanfarin ár býður Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykj- um f Ölfusi, upp á nokkur jóla- skreytingarnámskeið fyrir þá sem áhuga hafa. Að þessu sinni verður hægt að velja um þrjár dagsetningar, laugardaginn 27. nóvember, sunnudaginn 28. nóvember og laugardaginn 4. desember. Öll námskeiðin standa yfir frá kl. 10 til 16 og eru hald- in í húsakynnum skólans. Á námskeiðunum í nóvember út- búa þátttakendur aðventukrans og kertaskreytingu og laugar- daginn 4. desember verður út- búin jólaskreyting og hurða- skreyting. Leiðbeinandi á nám- skeiðunum verður Erla Rann- veig Gunnlaugsdóttir, blóma- skreytir. Takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið. Skrán- ing og nánari upplýsingar fást hjá endurmenntunarstjóra skól- ans. „Eyrarbakkakirkja var mér erfið. í henni eru svo margir gluggar og ég var lengi að eiga við hana," segir Theódór Kristjánsson, sem síðustu ár hefur haft dægradvöl við smíði líkana af kirkjum. Þetta er merkileg listgrein sem at- hygli margra hefur vakið, enda er hún verðskulduð því líkönin góðu eru listavel smíðuð. mynd: hilmar 2. árgangur -37. Tolublað Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson kynnir dagskrá tónleikanna í Selfosskirkju í kvöld. Kristnitöku- tónletkar 1 Selfosskirkju I tilefni af þúsund ára afmæli kristnitöku á Islandi heldur Kirkjukór Selfoss hátíðartón- leika í Selfosskirkju í kvöld, kl. 20:30. Á efnisskrá eru verk úr kristnum arfi þjóðarinnar og einnig sitthvað nýtt. Elín Gunn- laugsdóttir, tónskáld á Selfossi, hefur af þessu tilefni raddsett gamalt íslenskt þjóðlag við kirkjulegan texta, Kvöld er kom- ið í heim. Þá flytur Rósa B. Blöndals frumortan Árþúsunda- sálm sem hún hefur ort af þessu tilefni. Skáldið flytur einnig sálminn með þátttöku tónleika- gesta. Einsöngvari með kirkjukórn- um er Halla Dröfn Jónsdóttir, 17 ára sópransöngkona á Sel- fossi. Hún er nemandi Margrét- ar Bóasdóttur sem hefur undan- farin ár stjórnað Unglingakór Selfosskirkju. Glúmur Gylfason organisti Selfosskirkju stjórnar tónleikunum í kvöld, ásamt Margréti. Það er hinsvegar sr. Þórir Jökul Þorsteinsson sem kynnir efnisskrána og flytur ávarp við upphaf tónleikanna, sem hefjast kl. 20:30. -SBS. Nálastimgiilæknir í Hveragerði Kínverskur nálastungu-læknir, Minghai Hu, er nú kominn til starfa við Heislustofnun NLFI í Hveragerði, að frumkvæði for- svarsmanna Heilsustofnunar, samkvæmt frétt í Læknablað- inu. Hér er um að ræða sam- vinnuverkefni Heilsustofnunar og kínverskarar stofnunar un> aö kynna hefðbundnar kínverskar lækningar á Islandi. Minghai Hu hefur að baki 20 ára reynslu í nálastungumeðferð ásamt vest- rænum lækningum á sjúkrahúsi í Peking. Ólafur Egilsson sendi- herra í Peking hafði, að því er fram kemur í Læknablaðinu, milligöngu um að Hu kæmi hingað til lands. Að óbreyttu mun hann dvelja hér í eitt ár og ætlunin að nota þann tíma til að kynnast nálastungumeðferð eins og hún er framkvæmd í Kína. -HEI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.