Dagur - 11.11.1999, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
SUDURLAND
Ánægja með ríMsstjómina
Framsóknarmenn á Suðurlandi, sem héldu kjördæmisþing á Hvols-
velli á dögunum, hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir lýsa yfir
stuðningi við þátttöku Framsóknarflokksins í núverandi stjórnarsam-
starfi „og ánægju með árangur ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtíma-
hili. Enginn vafi lék á að mikill meirihluti þjóðarinnar vildi svipaða
stjórnarstefnu áfram og stefna að því að varðveita þann mikla árang-
ur sem náðist á því kjörtímabili. A því tókst að ná jafnvægi í ríkisfjár-
málum og efnahagsstjórn var styrk. Vaxtabyrði lækkaði og markmið
framsóknarmanna um 12.000 ný störf náðist og gott betur,“ segir í
ályktuninni.
Guðna fagnað sem ráðherra
I ályktun um landbúnaðarmál er því
fagnað að landbúnaðarráðuneytið
hafí komið í hlut Guðna Agústssonar
þegar ný ríkisstjórn tók við völdum sl.
vor og treystir þingið „...honum til að
helja nýja sókn í atvinnugrein, sem
lengi hefur átt undir högg að sækja.
Nýr búvörusamningur sem nú er í
undirbúningi getur skipt sköpum fyr-
ir sauðfjárrækt í landinu en landbún-
aður í heild er undirstaða blómlegs
atvinnulífs í hinum dreifðu byggðum
og jafnframt óaðskiljanlegur hluti
sögu og menningar þjóðarinnar fyrr
og síðar. Þingið hvetur til að útflutn-
ingsmál og ný sóknarfæri verði ræki-
lega könnuð og nýir möguleikar í líf-
rænni ræktun nýttir þar sem henta
þykir. Jafnframt hvetur þingið ríkis-
stjórnina til að yfirfara og endurskoða kröfugerð ríkisvaldsins í þjóð-
lendumálinu. Það er siðlaust og brot á eignarréttarákvæðum stjórn-
arskrárinnar að gera kröfu í jarðir sem einstaklingar sannarlega eiga
samkvæmt þinglýstum rétti.“
Áliyg^jur vegna byggðaröskunar
I ályktun kjördæmisþingsins er Iýst yfir áhyggjum vegna mikillar
byggðarröskunar og talin að nauðsynlegt sé að auka fjölbreytni í
atvinnulífinu ekki síst með því að fjölga störfum í þekkingariðnaði
og þjónustu tengdri nýrri fjarskiptatækni. „Þingið telur brýnt að
ganga þegar til framkvæmdar þingsályktunar um aðgerðir í
byggðamálum sem samþykkt var á síðasta þingi. Þingið fagnar því
að byggðamál komi í hlut Framsóknarflokksins á næstu mánuðum
og hvetur iðnaðarráðherra til öflugrar sóknar í þessum efnum.
Þingið vonar að sátt náist milli sjónarmiða vegna orku- og stóriðju-
framkvæmda sem yrðu mjög til að styrkja atvinnulxf á Iandsbyggð-
inni til langrar framtíðar. Góð heilbrigðisþjónusta og haldgóð fjöl-
breytt menntun eru sömuleiðis undirstaða byggðar. Um leið og
úrhótum í þessum efnum er fagnað, þá hvetur þingið þing- og
sveitarstjórnarmenn Ilokksins í kjördæminu til að standa vörð um
þessa mikilvægu málaflokka, sem raunar ætti að vera góð pólitísk
samstaða um.“
Áherslu á öflugt
forvamarstarf
Jafnframt er ályktað um fíkniefna-
vandann og sagt er þar að kosninga-
fyrirheit Framsóknarflokksins í þeim
málum hafi verið orð í ti'ma töluð
einsog fréttir síðustu vikur sanni.
„Einskis má Iáta ófreistað til að ná
tökum á þessum ógnvaldi og beita
þarf hörku í baráttunni við sölumenn
dauðans. Framsóknarmenn leggja
áherslu á öflugt forvarnarstarf og í því
efni er gott uppeldi og heilbrigðir
fjöskylduhættir besti grunnurinn.
Þingið fagnar skipun nefndar undir
forystu Jónínu Bjartmarz, sem ætlað
er að gera tillögur um aðgerðir gegn
fíkniefnavánni. “
Dómkirkjan í Reykjavík.
Byrjaði á
St ran darkirkj u
íslenskar kirkjur eiga
marga vini. Einn
þeirra er Theodór
Kristjánsson í Hvera-
gerði, sem sérhæfir sig
í smiði Mrkjulíkana
efdr myndum.
„Margir eiga ldrkjur með lampa
inn í sem stungið er í samband,
einkum íyrir jólin. Eg sá svoleiðis
kirkju hér úti í búð í Hveragerði,
innflutta frá Þýskalandi og það
kveikti þá hugmynd að prófa að
smíða íslenska kirkju og lýsa hana
upp. Þetta var í kringum 1990. Eg
byxjaði á Strandarkirkju. Fór niður
í Selvog og teiknaði hana. Síðan er
ég búinn að smíða Iíkön af 18 mis-
munandi kirkjum. Þær komu
svona ein af annarri," segir
Thódór Kristjánsson í Hveragerði.
TTieodór var kennari en veiktist af
krabbameini og varð að hætta
kennslu. Hann segir kirkjusmíð-
ina hjálpa sér við að láta tímann
Iíða og hann eyði löngum stund-
um í bílskúrnum, sem er verk-
stæðið hans. Ahugi hans á íslensk-
um kirkjum var þó vaknaður löngu
áður en hann hóf smíðarnar.
„Eg Safíia myndum af kirkjum,
teknum frá ólíkum sjónarhornum
og á mörg hundruð slíkar myndir.
Hef sjálfur verið með myndavélina
í bílnum í fjöldamörg ár og svo hef
ég líka fengið myndir sendar frá
byggðarlögum, sem ég hef ekki
komið til. Eg þarf Ijórar til sex
myndir af hverri kirkju til að geta
smíðað líkan af henni. En það get-
ur verið varasamt að treysta litum
í ljósmyndum, því þeir eru ekki
alltaf réttir. Það hefúr hrekkt mig
þannig að ég hef orðið að mála
upp á nýtt.“
Gamla lagið
Theodór smíðar einungis líkön af
kirkjum með gömlu hefðbundnu
lagi. Kirkjur sem teiknaðar eru af
Rögnvaldi Olafssyni eru í sérstöku
uppáhaldi. „Rögnvaldur teiknaði
óskaplega fallegar kirkjur. Guðjón
Samúelsson er arkitekt að
nokkrum þeirra kirkna sem ég
smíða eftir. Hann kom á eftir
Riignvaldi og undir greinilegum
áhrifum frá honum. Nýju kirkj-
urnar eru hinsvegar þannig að
sumar ræður maður við að smi'ða
en aðrar alls ekki því að þær eru
svo flóknar og ég hef því alveg ein-
skorðað mig við kirkjumar með
gamla hefðbundna laginu. Það er
mjög inismunandi mikil vinna á
þessum kirkjum og það er líka
misjafnt hversu vel þær heppnast
hjá mér. Maður er heldur ekki
alltaf jafn vel upplagður en ef þær
lukkast ekki í upphafi þá getur
mér reynst erfítt að eiga við þær.“
Siglufjarðarkirkja vinsælust
Sigluljarðarkirkjan er lang erfíð-
asta og dýrasta kirkjan sem
Thódór hefur smíðað, segir hann
sjálfur. „Hún er vinsælust Iíka,“
bætir hann við. „Landakirkjan
kemur næst. Þær eru báðar með
þykkum veggjum og á þeim eru
þrír byrðingar sem ég verð að
smíða, hvem utan yfír annan og
það sama gildir með turnana.
Landakirkja tókst nokkuð vel og
ég var ánægður með hana. Hins-
vegar var Eyrarbakkakirkja mér
erfið. I henni eru svo margir
gluggar og ég var lengi að eiga við
hana.“
Theodór smíðar ekld bara kirkj-
ur heldur les hann allt sem hann
finnur um þær og kynnir hann sér
sögu þeirra. „Ég var líka byrjaður
að lesa um kirkjurnar löngu áður
en byrjaði að smíða þær. Eg er
bara ekki nógu kraftmikill. Mig
langaði alltaf að handskrifa útlín-
ur að sögu hverrar kirkju, geta um
byggingarár, arkitekt og yfirsmið
og láta fylgja með líkönunum. Það
mundi gefa þeim ótvírætt gildi."
-GUN.
Kirkjur Theodórs. í efri röð Reydarfjarðarkirkja, Eyrarbakkakirkja, gamla kirkja á Djúpavogi, Borgarkirkja á Mýrum,
Siglufjarðarkirkja, Landakirkja í Vestmannaeyjum, Garðakirkja á Álftanesi, Stokkseyrarkirkja, Flateyrarkirkja og Strandar-
kirkja. Neðri röð: Sólgarðakirkja í Grímsey, Eyrarkirkja á ísafirði sem brann fyrir fáum árum, Dómkirkjan f Reykjavík,
Ólafsfjarðarkirkja, Kotstrandarkirkja, Holtastaðakirkja í Langadal, Víkurkirkja t Mýrdal og Norðfjarðarkirkja.
Breytt kjördæmisskipan
Þá ítrekar þingið nauðsyn þess að skipulagsmál Framsóknarflokksins
verði endurskoðuð „...og stefna verði tekin til skoðunar og fagnar
þeirri vinnu sem hafin er á vegum varaformanns flokksins í þeim efn-
um. Þá lítur þingið svo á að breytt kjördæmaskipan hljóti að koma til
kasta stjórnar kjördæmissambandsins á því starfsári sem framundan
er og leggur áherslu á sterka stöðu Suðurlands í hinu nýja kjördæmi,
samfara góðri samvinnu við Suðurnesjamenn. Þingið hvetur til þess
að áfram verði unnið að stofnun launþegaráða í hverju kjördæmi og
að samstarfið við samtök Iaunþega verði eflt. Fagnað er stofnun
verkalýðsmálaráðs Framsóknarflokksins."
Byggðamerki afhjúpuð
Á morgun, föstudaginn 12. nóv-
ember, kl. 12:30, verður opnuð
sýning á þeim tillögum sem bár-
ust f samkeppni um merki Sveit-
arfélagsins Árborgar. Sýningin er
haldin á annari hæð Hótels Sel-
foss og verður opin f tvær vikur.
Á -sýningunni en verðlaunatilliig-
unni gerð sérstök skil auk þess
sem þær tillögur sem stóðust
keppnissldlmála og reglur um
gerð byggðarmerkis eru sýndar.
Athöfnin hefst með ræðu for-
manns merkisnefndar, Samúels
Smára Hreggviðssonar, en síðan
.verður. mexkið. aflijúpað af .höf- .
undi og Kristján Einarsson, for-
seti bæjarstjórnar, afhendir verð-
launaféð, 300 þúsund kr. Boðið
verður upp á snittur, gos og kaffi.
Sýning á tillögunum fyrir al-
menning hefst samkvæmt aug-
lýsingu kl. 14:00.
. - - ........................rSBS.