Dagur - 11.11.1999, Side 3
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 - 3
Höggmyndir afhentar
Myudlistarverkefniim
ILraun og menn lauk
með afhendingu
þriggja listaverka.
Fyrir skömmu var myndlistar-
verkefninu Hraun og menn
formlega slitið, með afhendingu
þriggja listaverka eftir Orn Þor-
steinsson, Helga Gíslason og
Halldór Ásgeirsson. Það var blíð-
skaparveður þennan dag og ekki
annað hægt að segja en að veð-
urguðirnir hafi verið í góðu formi
ekki síður en Iistagyðjan.
Verk Arnar Þorsteinssonar er
suður á Stórhöfða, verk Halldórs
Ásgeirssonar úti í Nýja hrauni og
verk Helga Gíslasonar er úti á
Eiði og má telja mikinn feng fyr-
ir Vestmannaeyinga að fá verk
eftir þessa íslensku myndhöggv-
ara til þess að prýða eyjuna og
veita Eyjamönnum vonandi ein-
hverja myndlistarlega fullnægju.
Verkin þrjú taka sig vel út þar
sem þeim hafa verið valdir staðir
og er fengur að og aðstandend-
um til mikils sóma. I lokin var
gestum og listamönnunum boðið
til dálítillar móttöku í Fiska- og
Náttúrugripasafninu, hvar
nokkrar ræður voru haldnar í til-
efni af deginum. -BEG.
Samið um Klettsvíkumet
Nýlega var skrifað undir samning
milli Netagerðarinnar Ingólfs hf.
og Ocean futures vegna fram-
leiðslu á netinu sem strengt mun
verða fyrir Klettsvíkina. „Þetta
verkefni verður góð búbót fyrir
fyrirtækið og styrkir vonandi
stöðu þess,“ sagði Birkir Agnars-
son, framkvæmdastjóri Neta-
gerðarinnar.
Það var Charles Vinick, fram-
kvæmdastjóri Ocean Futures,
sem skrifaði undir samninginn
fyrir hönd Ocean Futures og
Birkir Agnarsson sem skrifaði
undir samninginn fyrir hönd
netagerðarinnar Ingólfs.
-BEG.
SUÐURLAND
VE STM ANNAE YJAR
Deiliskipulag Ofanbyggjarasvæðis
Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja nýverið var lögð fram tillaga
þar sem tekið er undir það að nýtt skipulag fyrir Ofanbyggjarasvæð-
ið sé að mörgu leyti áhugavert. Þannig er talið rétt að endurbyggja
íbúðarhús þar sem þau stóðu áður og að ákveðin svæði inan íbúða-
svæðanna verði nýtt til gróðursetningar af ýmsu tagi. Tillöguflytjend-
ur, Þorgerður Jóhannsdóttir, Guðrún Erlingsdóttir og Ragnar Osk-
arsson, vilja þó gera ákveðna fyrirvara við tillöguna. Áður en
deiliskipulagið verður gert verður að vera búið að ganga frá samning-
um við sauðfjár- og hrossabændur á svæðinu um landnýtingu; út-
hlutun skika undir sumarhús eigi alfarið að vera í höndum bæjaryf-
irvalda og ekki eigi að framseija þá úthlutun til íbúðarhúsaeigenda á
svæðinu, enda takmarkist Ióðir undir íbúðarhús við það sem kalla má
eðlilega stærð íbúðarhúsalóða; verði íbúðarhús endurbyggð á þeim
stöðum þar sem þau áður stóðu er eðlilegt og sjálfsagt að auglýsa lóð-
ir undir þau laus til úthlutunar. Ennfremur lögðu tillöguflytjendur
fram tillögu um að í deiliskipulagi fyrir Ofanbyggjarasvæðið verði
lóðir undir fbúðarhús þar auglýstar Iausar til úthlutunar. Eftir að um-
sóknarfrestur er liðinn verði síðan tekin afstaða til úthlutunarinnar.
Tillögunum var vísað til skipulagsnefndar.
Útsvarstekjur
drógust saman um 14,5%
Þorgerour Jóhannsdóttir, Guðrún Erlingsdóttir og Ragnar Óskarsson
lögðu fram hókun, þar sem m.a. kemur fram að ýmsir liðir í fjármál-
um Vestmanneyjabæjar virðast ætla að fara langt fram úr áætlun. Al-
varlegasta telja þau hins vegar vera þá staðreynd að útsvarstekjur séu
hvorki meira né minna en um 60 milljónum króna minni en áætlað
var og hafa dregist saman um 14,5%. Slík niðurstaða sé áfall fyrir
bæjarsjóð og auki enn á fjárhagsvanda hans sem þó var nægur fyrir.
Tekjur hafnarsjóðs dragast enn saman og að brýn nauðsyn beri til að
finna lausn á fjárhagsvanda félagslega íbúðakerfisins. Rekstur Bæjar-
veitna sé hins vegar í góðu jafnvægi. Niðurstöður milliuppgjörsins
sýni berlega að viðvaranir minnihluta bæjarstjórnar um versnandi
tjárahagsafkomu hafa verið á rökum reistar þótt sjálfstæðismenn hafi
til þessa ekki viljað viðurkenna þær staðreyndir. Tillöguflytjendur
telja höfuðástæðu versnandi efnahags bæjarfélagsins sé aðgerðar-
leysi sjálfstæðismanna í uppbyggingu atvinnumála.
Aukin þjónusta en minnkandi tekjur
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Guðjón Hjörleifsson, Sigurður
Einarsson, Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Elsa Valgeirsdóttir, benda
á að rekstur Bæjarveitna og hafnarsjóðs sé í góðu jafnvægi og tekist
hefur að lækka skuldir veitnanna ár eftir ár þrátt fyrir lækkun gjald-
skrár. Því miður hafi útsvarstekjur dregist saman miðað við áætlun.
Vestmannaeyjabær eins og mörg önnur sveitarfélög á landinu hafi átt
í erfiðleikum m.a. vegna minnkandi tekná, en jafnframt aukinnar
þjónustu. Ljóst sé að snúa þarf vörn f sókn er varðar þessi atriði.
Útvarp Suðurlands
FM 96,3 og 105,1
Fimmtudagurinn 11. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur
22:00-01:00 Kvöldsigling / Þórður og Kjartan
Föstudagurinn 12. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
08:20-09:00 Svæðisútvarp SuðurlandsSoffía Sig.
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-22:00 Dýsel. Unnar Steinn
22:00-01:00 Lífið er Ijúft. Valdimar Bragason
Laugardagurinn 13. nóvember
09:00-12:00 Morgunvaktin. Valdimar Bragason
12:00-13:00 islenskt tónlistarhádegUóhann Birgir
13:00-16:00 Vanadlsin. SvanurGísli
16:00-19:00 Tipp topp. Gulli Guðmunds
19:00-22:00 Draugagangur. Kiddi Bjarna
22:00-01:00 Bráðavaktin. Fannar
Sunnudagurinn 14. nóvember
10:00-11:00 Heyannir. Soffia Sigurðardóttir
11:00-13:00 Kvöldsigling (e) Þórður og Kjartan
13:00-14:00 GrænirTónar. Skarphéðinn
14:00-15:00 Mjólkurbú Flóarmanna 70 ára.
Valdimar Bragason
15:00-17:00 Árvakan. Soffia M . Gústafsdóttir.
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir.
20:00-21:00 Elvis frá A-Ö. Jói og Halli.
21:00-22:00 Spurningakeppni HSK. Valdimar
22:00-24:00 Sögur og klassik fyrir svefnin.Friðrik
Mánudagurinn 15. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19:00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
19:00-20:00 Heyannir (e). Soffia Sigurðardóttir
20:00-21:00 Spurningakeppni HSK (e) Valdimar
21:00-22:00 MBF 70 ára (e) Valdimar Bragason
22:00-24:00 Dag skal að kveldi lofa. Sigurgeir
Hilmar
Þriðjudagurinn 16. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19:00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
19:00-22:00 Skeggjaða beljan. Vignir Egill
22:00-24:00 í minningu meistarana. Jón Hnefill
Miðvikudagurinn 17. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir.
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn.
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds.
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason.
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-20:00 Með matnum. Tölvukallinn
20:00-22:00 Árvakan (e). Soffía M. Gústafsdóttir.
22:00-24:00 Meira en orð. Sigurbjörg Grétars.
Fimmtudagurinn 18. nóvember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt Önnur EllaSoffía M. Gústafsdóttir.
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn.
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds.
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason.
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur.
22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Bjömsson.
Á sunnudag
verður Valdi-
mar Bragason
með þátt í til-
efni af 70 ára
afmæli
Mjólkurbús
Flóamanna.
Er fundur framundan?
Tækjaleiga Nýherja sér þér fyrir öllum tæknibúnaði
fyrir fundi, námskeið og ráðstefnur. Ef við eigum það
ekki til, þá hefur það ekki verið fundið upp!
Meða! vöruúrvals: skjávarpar, tölvur,
Ijósritunarvélar, hljóökerfi, túlkakerfi.
<Q>
NÝHERJI
Skipholti 37 • Sími: 569 7700
www.nyherji.is