Dagur - 11.11.1999, Blaðsíða 4
4 - FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
SUÐURLAND
Ég vil hampa
samtrnianiun
Jón Þórðarson með Goðastein, sem nýlega kom út. „Það getur alltaf verið
meiningarmunur milli fólks um hvaða efni eigi heima í héraðsritum af
þessum toga."
Nýtt hefti af Goða-
steini - héraðsriti
Rangæinga - er komið
út. Margvíslegur fróð-
leikur úrhéraði er í rit-
inu, hæði sögur frá lið-
iuni tíð og sitthvað frá
líðaudi stundu.
Nýlega er komið út nýtt hefti af
Goðasteini - héraðsríti Rangæ-
inga, sem hefur að geyma marg-
víslegan fróðleik úr héraði. Þetta
er 35. árgangur ritsins, sem þeir
Þórður Tómasson og Jón R.
Hjálmarsson hófu útgáfu á fyrir
margt löngu, en er 10. árgangur
nýs flokks rítsins þar sem Héraðs-
nefnd Rangæinga er útgefandi.
Ritið er annáll um mannlíf og
menningu í héraði og hefur
einnig að geyma ýmsar frásagnir
frá fyrri tíð. Valinkunnir Rangæ-
ingar koma að útgáfu ritsins, en
Jón Þórðarson blaðamaður í Foss-
hólum í Holtum er ritstjóri. Hann
segir ritið hafa fengið góðar við-
tökur nú sem endranær og stefn-
an sé sú að auka veg þess í næstu
framtíð.
Úr sagnabrunni Oddgeirs
„Það getur alltaf verið meiningar-
munur milli fólks um hvaða efni
eigi heima í héraðsritum af þess-
um toga,“ sagði Jón í samtali við
Dag. ,/\lit sumra er að þau eigi
fýrst og fremst að geyma efni og
fróðleiksþætti frá fyrri tíð og
vissulega á slíkt efni heima í
svona ritum. En ég vil líka hampa
samtímanum, kannski vegna þess
að ég er blaðamaður og hef mína
daglegu vinnu við að skrifa frá-
sagnir úr daglegum veruleika
fólksins. Frásagnir líðandi stund-
ar eru fyrst í stað kannski ekki
ýkja merkilegar en verða það með
tímanum. Nefni ég þar til dæmis
myndir af fermingarbömum í
Rangárþingi sem við erum nú
byijuð að birta. Þær verða afar
merk heimild eftir tíu ár eða svo.“
Meðal efhis í Goðasteini má
nefha greinar úr sagnabrunni
Oddgeirs Guðjónssonar í Tungu,
efhi úr fórum Þorsteins Danfels-
sonar í Guttormshaga í Holtum,
grein Bjöm Bj. Jónssonar um
Suðurlandsskóga og birt er drápa
sem ort var til Ingólfs Jónssonar
ráðherra á Hellu á 75 ára afmæli
hans árið 1984. - Viðtal er birt við
Halldór Óskarsson kórstjóra, sem
er listamaður Goðasteins að
þessu sinni, en hann stjórnar kór-
um bæði í Rangárþingi og Hafn-
arfirði sem í það heila telja um
200 manns. Þá er sagt frá störf-
um á vettvangi kirkjunnar í
Rangárþingi og einnig frá ungum
Rangæingum í fremstu röð, með-
al annars Helgu Arnadóttur á
Hellu sem seint á síðasta ári út-
skrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suð-
urlands með einhveijar bestu
einkunnir sem nokkur nemandi
við skólann hefur náð. „Ég þakka
þetta áhuga, góðu skipulagi, sam-
viskusemi og metnaði að vilja
gera sem best. Ef maður Ieggur
sig fram og situr yfir þessu er allt
hægt," segir meðal annars í viðtali
við Helgu í Goðasteini.
Möguleikar í líurækt
I Goðasteini eru jafnframt birtar
frásagnir úr hveiju sveitarfélagi
sýslunnar um sig, sem oddvitar
þeirra rita. Þannig gerir Margrét
Einarsdóttir, oddviti Austur-Ey-
fellinga, að umfjöllunarefni í
sinni grein mikla möguleika lín-
ræktar í héraðinu, en tilraunir á
því sviði hafa verið gerðar á Þor-
valdseyri undir Ejjafjöllum.
„Þetta er framtíðarsýn í grófum
dráttum, en eitt er víst að það
góða land og þau ræktunarskil-
yrði sem við búum hér við undir
Eyjafjöllum gæti reynst stóriðja í
komandi framtíð," segir Margrét
Einarsdóttir. -SBS.
SUÐURLA NDSVIÐTALIÐ
.Lyagpr
Hátíð á Kotströnd
Þess verður minnst
við guðþjónstu í
Kotstrandarkirkju í
Ölfusi á sunnudag
að 90 ár eru liðin
frá vígslu hennar.
Við guðþjónust-
una, sem hefst
klukkan 14, pré-
dikar biskup Is-
lands, herra Karl
Sigurbjörnsson og
að athöfn lokinni
verður boðið til
kirkjukaffis í Básn-
um að Efstalandi í
Ölfusi. „Kotstrandarkirkja er enn sem fyrr mjög í alfaraleið og vek-
ur aðdáun vegfarenda. Þeir unna sér þó fæstir þess að leggja þá
lykkju á leið sína, sem er til hennar af þjóðvegi, og njóta þessa
fagra helgistaðar. Hafa margir undrast þá leti sína, eða óþol í
dagsins önn og látið í ljós löngun til bæta þar úr,“ segir í frétt frá
sóknarnefnd kirkjunnar.
Kotstrandarkirkja í Ölfusi.
Fimdað uni sauðfjárrækt
Búnaðarsamband Suðurlands stendur fyrir opnum fundum um
sauðfjárrækt, þar sem niðurstöður hrútasýningar í haust verða
kynntar, viðurkenningar fyrir efstu hrúta veittar og hrútar Sauð-
fjársæðingastöðvarinnar kynntir.
Fundirnir verða á Þingborg í Hraungerðishreppi miðvikudaginn
17. nóvember klukkan 13:30, á Hótel Kirkjubæjarklaustri fimmtu-
daginn 18. nóvember klukkan 13:30 og að Heimalandi undir Vest-
ur-Eyjafjöllum að kvöldi sama dags klukkan 20:30. -SBS.
Verkalýðsfélög sameinast
Sameining verkalýðsfélaganna Bárunnar á Eyrarbakka og Þórs á
Selfossi var samþykkt samhljóða á félagsfundi í Þór á dögunum,
en fyrirliggjandi var áður samþykkt Bárufélaga um sameiningu.
Nýtt félaga tekur til starfa um áramót, en áformað er að stofn-
fundur þess verði þann 11. janúar á næsta ári. Eftir að sameining
þessara félaga hefur tekið gildi verða aðeins tvö verkalýðsfélög
starfandi í Arnessýslu og sex á Suðurlandi öllu. Þykir mönnum og
líklegt að félögunum muni fækka enn frekar í náinni framtíð í
þeirri hrinu sameiningar félaga sem nú gengur yfir. -SBS.
Afram Ríki í Eyjiim
Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í sl. viku var tekið til umfjöllunar
fyrirliggjandi erindi frá Afengis- og tóbaksverslun ríkisins, þar sem
sótt er um endurnýjun leyfis til rekstrar vínbúðar að Strandvegi 50.
Fyrir sitt Ieyti samþykkti bæjarráð erindið og er því Ijóst að áfram
verður Ríki í Eyjum. -SBS.
Ólafur
Marteinsson9
framkvæmdastjóri Þormóðs
ramma - Sæbergs á Siglufirði og
Ólafsfirði
ÚtgetðorfyrirtæM
Grandi hefurséltÞor-
móði ramma - Sæbergi
90,6% hlutsinn íÁmesi
íÞorlákshöfn. Ámes verð-
ur sameinaðÞormóði
ramma - Sæbergi.
FisMstofnar Ámess að styrkjast
Rekstri Árness í Þorlákshöfn
verður haldið áfram óbreyttum.
Samhliða þessu hefur Grandi
keypt 15,2% af 20,2% hlut Þor-
móðs ramma-Sæbergs í Hrað-
frystihúsinu-Gunnvör á Isa-
firði.
Ólafur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma
- Sæbergs, segir að Grandi hafi
keypt meirihluta hlutabréfa í
Árnesi fyrr á þessu ári. Félagið
hafi verið í erfiðleikum vegna
aflasamdráttar í flatfisktegund-
um og einsýnt hafi verið að fé-
lagið hafi þurft aukinn stuðn-
ing til að takast á við þær
breytingar sem nauðsynlegar
voru til að bæta rekstrargrund-
völl þess.
- Hvaða vinnsla verður hjd
ykkur í Þorldksliöfn?
„Vinnslan hefur verið í gangi
til þessa og hún verður að
mestu óbreytt, þ.e. vinnsla á
flatfiski og humri, en Árnes
hefur sérhæft sig í veiðum og
vinnslu á þessum fisktegund-
um auk vinnslu á Ioðnu. Afla-
heimildir Þormóðs ramma-Sæ-
bergs í skarkola eru tæplega
5% og munu þær styrkja rekst-
ur Árness umtalsvert. Þess hef-
ur verið vænst að þeir fiski-
stofnar sem rekstur Árness
byggist á næðu að styrkjast og
með sölu óhentugra eigna og
nýjum fjárfestingum tækist
með tímanum að koma rekstri
félagsins í viðunandi horf. Ár-
nes hefur á síðustu mánuðum
hagrætt í rekstri félagsins með
sölu eigna og fjárhagslegri end-
urskipulagningu," segir Ólafur
Marteinsson.
- Hvað veldur því að þið eruð
að kaupa hlut Granda í Ár-
nesi og hefja starfsemi í Þor-
Idkshöfn. Hangir eitthvað
fleira d þeirri spýtu eða teng-
ist það einhverri frekari starf-
semi ykkar í Þorldkshöfn í
ndnustu framtíð?
„I kaupsamningi er tekið
fram að kaupanda séu Ijós þau
fyrirheit sem Grandi gerði um
áframhaldandi rekstur Árness
þegar félagið eignaðist meiri-
hluta í því og mun Þormóður
rammi-Sæberg af fremsta
megni Ieitast við að framfylgja
þeim. Það er að mörgu leyti
hentugra að við komum inn í
þennan rekstur í Þorlákshöfn
en Grandi, en við getum ekki
gert allt og því seljum við
stærstan hluta hlutabréfa okk-
ar í Hraðfrystihúsinu-Gunn-
vöru. Það er miklu virkari að-
gerð að kaupa í Þorlákshöfn og
sameinast því fyrirtæki og það
hefur meiri áhrif á Þormóð
ramma-Sæberg en eignarhlutur
f Hraðfrystihúsinu-Gunnvör."
- / sex mdnaða uppgjöri Ár-
ness fyrir drið 1999 kemur
fram uð um síðustu dramót
var yfirfæranlegt skattalegt
tap Ámess um 948 milljónir
króna. Hverjar voru rekstrar-
niðurstöðumar?
„Árnes var rekið með svolitl-
um hagnaði fyrri hluta ársins
þó ekki væri hann mikill. En
það er umtalsverð breyting þvf
fyrirtækið hefur verið rekið
með tapi, og þá stundum um-
talsverðu, síðustu árin. Það eru
engin áform uppi með breyt-
ingar á mannahaldi við fyrir-
tækið.“