Dagur - 01.12.1999, Síða 1
BLAÐ
Norsk Hydro setur sig
ekki á móti umhverf-
ismati vegna virkjim-
arframkvæmda eystra
þ» það tefji fram-
kvæmdir. Iðnaðarráð-
herra þöguU. Kafla-
skil, segja Umhverfis-
vinir.
Það er vilji norska stórfyrirtælds-
ins Norsk Hydro að umhverfisá-
hrif fyrirhugaðra virkjunarfram-
kvæmda norður af Vatnajökli
vegna álvers í Reyðarfirði fari í
lögformlegt mat á umhverfisá-
hrifum. Sá tími sem matsferlið
tekur skiptir ekki meginmáli fyrir
fraínkvæmdir og æski íslenska
þjóðin umhverfismats á það að
fara fram. Þetta kom fram á fundi
forystumanna Norsk Hydro með
fulltrúum alþjóðlegu náttúru-
verndarsamtakanna World Wide
Fund for Nature sem haldinn var
í Osló í gær. Greint var frá mál-
inu í fréttum Utvarps í gærkvöld.
Vilja ásættanlega niðurstöðu
fyrir flesta
Haft var eftir
Hydro að fyrir-
tækið hefði
aldrei verið á
móti lögform-
legu umhverfis-
mati og setji sig
ekki upp á móti
því. Muni fyrir-
tækið í einu og
öllu fara eftir
vilja Alþingis Is-
lendinga í mál-
inu - svo sem ef
það sé vilji
þingsins að umhverfimat verði
gert. Það sem Norsk Hydro vilji
sé að í þessu máli náist ásættan-
leg niðurstaða fyrir sem flesta og
þá skipti ekki öllu þó matsferlið
geti seinkað fyrirhuguðum álvers-
og virkjunarframkvæmdum um
allt að hálft ár. - Þess ber að geta
að upplýsingastjóri Norsk Hydro
fulltrúa Norsk
Finnur
Ingólfsson:
„Ég segi ekki
neitt."
sagði í Degi í síðasta mánuði að
yrði leikreglum í þessu máli
breytt myndi leikurinn einnig
óhjákvæmilega breytast.
„Á þessari stundu vil ég ekkert
um þetta mál segja, ég þarf að fá
frekari upplýs-
ingar,“ sagði
Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráð-
herra um málið
þegar Dagur
ræddi við hann í
gærkvöld. „Þetta
er alveg á skjön
við fyrri yfirlýs-
ingar sem við
höfum fengið
frá Norsk Hydro
og því bíð ég al-
veg rólegur," sagði flokksbróðir
Finns, Hjálmar Árnason, formað-
ur iðnaðarnefndar Alþingis.
Jakob Frímann
Magnússon:
„Kaflaskil í mál-
inu.“
Verðug jólagjöf
„Það eru að verða kaflaskil í mál-
inu,“ sagði Jakob Frímann Magn-
ússon sem er í forystusveit Um-
hverfisvina, samtakanna sem
safna undirskriftum til stuðnings
því að virkjunarframkvæmdir
eystra fari í lögformlegt umhverf-
ismat. Á vegum samtakanna,
málstað þeirra til stuðnings, af-
henti níu ára barn í Osló í gær-
morgun gjöf frá ófæddum kyn-
slóðum íslendinga, og var gjöfin
skjal með tilvitnun í
Heimskringlu Snorra Sturluson-
ar. Fulltrúar Norsk Hydro tóku,
að sögn Jakobs, gjöfinni vel en á
eftir móttöku hennar var áður-
nefndur fundur með fulltrúum
World Wide Fund for Nature.
Jakob Frímann kveðst telja að
yfirlýsingar þessar hljóti að auð-
velda íslenskum ráðamönnum að
taka þá ákvörðun að umhverfisá-
hrif virkjunarframkvæmda eystra
verði metin. „Að ná þeirri lend-
ingu í málinu er verðug jóla- og
aldamótagjöf til íslensku þjóðar-
innar og það er ljóst að umhverf-
ismat mun ekki teija framkvæmd-
ir, ef af þeim verður, nema um ör-
fáa mánuði og það getur Norsk
Hydro sætt sig við samkvæmt nýj-
ustu fréttum." - SBS
SMptiá
sóMium?
Deilan um séra
Gunnar Björnsson í
Holti í Onundarfirði
er í hörðum hnút.
Nú hefur biskup ís-
lands, herra Karl Sig-
urbjörnsson, skipt
sér af málinu og úti-
lokar ekki að flytja
séra Gunnar tíma-
bundið í starfi. Séra
Torfi Hjaltalín Stef-
ánsson á Möðruvöll-
um segist í samtali
við Dag ekki vera ffá-
bitinn þeirri hug-
mynd að þeir Gunn-
ar skipti á sóknum.
Séra Torfi hefur, líkt og Gunnar,
átt í deilum við sóknarbörn sín en
Torfi er ættaður frá Onundarfirði,
nánar tiltckið frá Valþjófsdal. I um-
fjöllun blaðsins í miðopnu er m.a.
vikið að umdeildri greinargerð
Gunnars til prófastsins, sr. Agnes-
ar Sigurðardóttur. — Sjá bls. 8-9.
Sr. Gunnar
Björnsson.
Sr. Torfi
Hjaltalín
Stefánsson.
í tilefni af útkomu Skógræktarritsins valdi Skógræktarfélag íslands „Tré ársins 1999“ með viðhöfn ígærmorgun.
Fyrir valinu varð voldugur álmur við Túngötu 6 í Reykjavík. Eigandi lóðarinnar er Reykjavíkurborg og tók Ingibjörg
Sólrún við viðurkenningarskjali úr hendi Magnúsar Jóhannessonar, formanns Skógræktarfélagsins, undir limum
álmsins. Á innfelldu myndinni sést tré ársins í allri sinni dýrð. - myndir: e.ól.
mm
Guðmundur Bjarnason.
Seld utan
ráðuneytis
Ríkisjörðin Hóll í Fljótsdalshreppi
var seld af Jóni Höskuldssyni fyrr-
verandi starfsmanni jarðadeildar
Iandbúnaðarráðuneytisins utan
veggja ráðuneytisins og fékk Jón
þetta sem nokkurs konar sérverk-
efni eftir að hann hætti störfum í
ráðuneytinu. Embættismenn
ráðuneytisins vissu ekki af þessari
sölu svo mánuðum skipti eftir að
hún hafði átt sér stað og veittu því
óafvitandi rangar upplýsingar í
svörum við fyrirspurn unt sölu rík-
isjarða.
Þetta má lesa út úr svörum land-
búnaðarráðuneytisins við fyrir-
spurnum Dags, sem blaðinu bár-
ust í gær. Þar upplýsir Björn Sigur-
björnsson ráðuneytisstjóri að vit-
neskja um sölu Hólsjarðarinnar
hafi ekki borist embættismönnum
ráðuneytisins „fyrr en löngu eftir
að gengið var frá sölunni. Sala
jarðarinnar var... í höndum fyrrver-
andi starfsmann ráðuneytisins sem
vann að undirbúningi sölunnar
utan ráðuneytisins á lögmanns-
skrifstofu þar sem hann starfar.
Jörðin var þvf ekki tilgreind í svar-
bréfi ráðuneytisins til yðar dags. 2.
júlí 1999“.
Þá upplýsir ráðuneytisstjórinn
að engar skjallegar upplýsingar séu
til um hvaða réttindi og hlunnindi
fylgdu Hólsjörðinni við söluna, að
öðru leyti en þeim sem í afsali
koma fram. í afsalinu segir meðal
annars aðjörðin sé seld á 1,7 millj-
ónir, að frádregnum nokkurra ára
álögðu afgjaldi uppá 200-300 þús-
und krónur. Kveðið er á um að
jörðin sé seld „ásamt öllum þeim
gögnunt og gæðum sem jörðinni
fylgir og fylgja ber, að engu undan-
skildu". - fþg
Afgrciddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI462 3524