Dagur - 11.12.1999, Qupperneq 1

Dagur - 11.12.1999, Qupperneq 1
Kemutölusöfnim í bankasölunni Alþingi samþykkti í gær fnunvarp ríkis- stjómarínnax um bankasöluna, sem hefst á midvikudag. Skiptar skoðanir em um aðferðina. Reikn- að er með kennitölu- söfnun á ný. Mikil umræða hefur verið um sölu ríkisins á 15% hlutum í Bún- aðarbanka og Landsbanka. Um- ræða um lagafrumvarp, sem heimilar söluna, var fjörug á þinginu í vikunni og sýndist þar sitt hverjum. Helst var gagnrýnt af hálfu stjórnarandstöðunnar að verið væri að selja bankana á undirverði. Frá fjármálamarkaðn- um hefur síðan heyrst sú gagn- rýni að gengi bréfanna sé of hátt. Frumvarpið var staðfest í gær á Alþingi og salan hefst næsta miðvikudag. Henni á að vera lokið tveimur dögum síðar, eða föstudaginn 17. desember, þannig að hama- Olafsson. gangurinn verð- ur mikill hjá fjárfestum í næstu viku. Líklegt er talið að kenni- tölusöfnun eigi sér stað aftur, Iíkt og gerðist með fyrstu einkavæð- ingu ríkisbankanna í fyrra. Smá jólabónus Jafet Olafsson hjá Verðbréfastof- unni sagðist í samtali við Dag reikna með einhverri kenntölu- söfnun í tengslum við sölu á 15% hlutum ríkisins í Búnaðarbanka og Landsbanka, þó ekki í sama mæli og þegar bréf í bönkunum voru seld lyrir ári. „Gengið á bréfunum er sanngjarnt, mið- að við núverandi markaðsgengi. Sölutíminn er stuttur, mitt í jólaannríkinu, en ég held að Sigurdur fjárfestar víli Einarsson. það ekki fyrir sér. Þátttaka meðal almennings verður vafa- laust mikil en meiri óvissa ríkir varðandi tilboðshlutann. Eg spái því að boðið verði í stærri hlutana á því gengi sem var áður en út- boðsgengi var ákveðið. Markaðs- gengi mun aftur fara upp hjá báð- um bönkunum. Mér finnst hið besta mál ef einstaklingar og skattborgarar þessa lands geta grætt smávegis á þessari sölu. Eg skil ekki þingmenn sem gagnrýna að verið sé að færa skattborgur- unum smá jólabónus,“ sagði Jaf- et. „Gengið of hátt“ Varðandi kennitölusöfnunina tók Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, undir með kollega sínum, Jafet. Hann vildi þó ekki fullyrða um hvort Kaupþing tæki þátt í þeirri söfnun. Það færi eft- ir vilja viðskiptavina fyrirtækisins hvort þeir tækju þátt í útboðinu. „Við munum að sjálfsögðu skoða þann möguleika að taka þátt, líkt og í öllum útboðum," sagði Sig- urður. Hann sagði að gengi bréfanna í útboðinu væri of hátt. Einnig hefði mátt vanda útboðið betur. Leggja ekki fram frumvarp sem keyrt væri í gegn á nokkrum dög- um á Alþingi. Bankasölunni og umræðunni um bankasameiningar eru gerð nánari skil í miðopnu blaðsins í dag þar sem að auki er rætt við nokkra þingmenn og formann einkavæðingarnefndar. — Sjá bls. 8-9. Jafet Sendiherra í annað sinn Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrum forseti Islands, var í gær út- nefnd af Mannrétt- indastofnun Sam- einuðu þjóðanna sérstakur velgjörða- sendiherra (Good- will Ambassador) í baráttu samtakanna gegn kynþáttafordómum og mis- rétti kynjanna. Vigdís er í góðum hópi annarra heimsþekktra ein- staklinga sem eiga að styðja mál- staðinn þar til alþjóðleg ráðstefna fer fram um þessi mál árið 2001. Vigdís sagðist í samtali við Dag vera ánægð með útnefninguna en þetta er í annað sinn sem hún er valin velgjörðarsendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum. Fyrir er hún sendiherra tungumála hjá UNESCO. „Ég er afskaplega fegin þegar ég er beðin að gera gagn. Verkefnið er mjög aðkallandi, að beijast gegn kynþáttafordómum og fordómum almennt, t.d. gagnvart konum,“ sagði Vigdís. — BJB Vigdfs Finn- bogadóttir. GafaU usafnið Vel fór é með Sveini Þormóðssyni Ijósmyndara og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra í Ráðhúsinu í gær þegar Sveinn kom færandi hendi og gaf borginni allt filmusafnið sitt sem næryfir árin 1950-1974. Tiiefni þessarar ríkulegu gjafar er útkoma ævisögu Sveins, Á hælum löggunnar. Fllmusafnið, sem hefur að geyma tugþúsundir mynda úr mannlífi Reykvíkinga, fer til varðveislu Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sveinn er nú á 74. aldursári og í fullu starfl sem Ijósmyndari á DV. - mynd: þök skiptir gagnrýni engu máli „En ef við tölum um hluti eins og gagnrýni, tilnefningar og verðlaun þá óttast maður það kannski dálít- ið að hörð gagnrýni eða það að bók sé ekki tilnefnd til verðlauna verði þess valdandi að hún falli strax í skuggann, nái ekki neinni athygli og týnist og gleymist. En ef í ljós kemur að bókin lifir þetta af þá skipta gagnrýni og tilnefningar engu máli lengur.“ Þetta segir Ein- ar Kárason rithöfundur í Ijörugu helgarviðtali Dags - en hann er á leið af landi brott, ætlar að setjast að í Berlín í eitt ár og ljúka við skáldsögu. „Ég held því fram í bókinni að alveg fram til 1960 hafi í raun ver- ið unnið að því bæði í sovéska Kommúnistaflokknum og meðal íslenskra sósíalista að gera Island efnahagslega háð Sovétríkjunum," segir Jón Olafsson, höfundur bók- arinnar „Kæru félagar," í viðtali við helgarblað Dags. Jón Kristinsson gaf á dögunum eina milljón króna til byggingar menningarhúss á Akureyri. I við- tali við helgarblað Dags segir Jón í viðtali frá draumnum um húsið góða, leikJistinni, hárskurði, öldr- unarmálum og málarekstri sínum, sem varð til þess að gjörbreyta öllu íslenska dómskerfinu. Margt, margt fleira er að lesa í helgarblaðinu, svo sem um jólavín- ið, jólabækurnar, dægurtónlist, veiðimennsku, sönn dómsmál og fleira og fleira. Góða helgi! mmmmmm mmm ts Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI462 3524

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.