Dagur - 11.12.1999, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 - S
FRÉTTIR
60% landsmaima
vilj a umhverfismat
Niðurstöður könnunarinnar kynntar blaðamönnum í gær. - mynd: e.úl.
Um 60% þeirra sem
afstöðu tóku vilja að
Fljótsdalsvirkjun fari
í umhverfismat.
Nær helmingur (47%) lands-
manna (30% Austfirðinga) telja
að Alþingi eigi að ógilda með
lagabreytingu virkjunarheimild
Landsvirkjunar í Fljótsdal til
þess að Fljótsdalsvirkjun þurfi að
fara í mat á umhverfisáhrifum,
en 31% landsmanna (56%
Austf.) svaraði slíkri spurningu
neitandi og rúmur fimmtungur
tók ekki afstöðu. Um 60%
landsmanna sem afstöðu tóku
eru því fylgjandi umhverfismati:
47% sjálfstæðis- og framsóknar-
manna, 71% Samfylkingarsinna
og 86% VG. Fylgni við umhverf-
ismat er mun meira meðal Reyk-
víkinga en annarra Iandsmanna
og meðal háskólamenntaðra en
annarra. Athygli vekur að næst-
um tvöfalt fleiri eru fylgjandi
ógildingu virkjunarheimildar og
umhverfismati heldur en lýsa sig
á móti Fljótsdalsvirkjun.
Endanlegar niðurstöður um-
fangsmikillar könnunar á af-
stöðu íslendinga til stóriðju,
virkjana og umhverfisáhrifa, sem
Félagsvísindastofnun gerði fyrir
STAR (Austfirðinga) hafa nú
verið kynntar í 120 bls. sk'xslu.
Könnunin ver gerð í okt.-nóv.
meðal 18 ára og eldri; 1.500
manna úrtaks alírar þjóðarinar
og 500 íbúa Austurlandskjör-
dæmis.
Flestir óvissir um Fljótsdals-
virkjun
Tæplega 60% landsmanna eru
fylgjandi áframhaldandi virkjun-
um fallvatna á Islandi. En aðeins
35% sögðust hlynntir Fljótsdals-
virkjun, en flestir voru óvissir,
eða 40%. Fjórðungurinn er svo
bæði andvígur Fljótsdalsvirkjun
og áframhaldandi virkjunum al-
mennt. Styrking atvinnulífs á
Austurlandi og íslensks efnahags
eru meginástæður þeirra sem
eru fylgjandi Fljótsdaísvirkjun en
náttúruspjöll og slæm áhrif á
dýralíf heístu ástæður þeirra sem
eru á móti.
Um 65% landsmanna eru já-
kvæðir gagnvart þeirri stóriðju
sem fyrir er í landinu en 15%
neikvæðir. En helmingurinn
hlynntur álveri á Reyðarfirði og
25% andvígir.
Treysta þó mest á sjávanit-
veginn
Afstaða Austfirðinga er allt önn-
ur. Um 66% þeirra eru hlynntir
Fljótsdalsvirkjun (flestir mjög)
og aðeins 20% andvígir (flestir
mjög). Um 72% eru híynntir ál-
veri á Reyðarfirði en 20% and-
vígir. Nær 90% telja að álverið
mundi styrkja byggð og atvinnu-
líf á Austurlandi, yfir 80% að
fólki fjölgi og 75% að laun muni
almennt hækka í landshlutanum
með tilkomu þess.
Þrátt fyrir það eru þeir heldur
fleiri (37%) sem telja sjávarút-
veginn áhrifamesta atvinnuveg-
inn til að styrkja byggð og at-
vinnulíf á Austurlandi heldur en
stóriðju (35%). Margir (16%)
treysta líka mest á ferðaþjónust-
una. Enda telja 70% að stór-
iðja/virkjanir og ferðaþjónusta
fari vel saman og 20% að Fljóts-
dalsvirkjun hafi engin áhrif á
Eyjabakka. — HEI
Vildi meiri
hörku
„Nei, nei, nei, ég
er ekki reið þing-
flokknum vegna
atlcvæðagreiðsl-
unnar um
bankasöluna, ég
er sátt,“ segir Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir, þingmað-
ur Samfylkingar-
innar. Hún neit-
ar því aðspurð
að sú staðreynd að allir þingmenn
Samfylkingarinnar nema hún og
Sigríður Jóhannesdóttir hafi greitt
atkvæði með sölu 15% í Lands-
banka og Búnaðarbanka hefði
leitt hana til að endurskoða veru
sína í þingfiokknum. „Aherslur
manna í málinu eru misjafnar,
eins og gerist og gengur í stórum
þingflokki, og þessar vangaveltur
eru bull,“ segir Jóhanna.
I nefndaráliti Jóhönnu og Mar-
grétar Frímannsdóttur um banka-
sölufrumvarpið kemur fram hörð
gagnrýni á þau vinnubrögð sem
ríkisstjómin viðhefur við banka-
söluna. „Engin stefnumótun ligg-
ur fyrir um æskilega þróun á fjár-
málamarkaði né tímasettar áætl-
anir ríkisstjórnarinnar um sölu
bankanna. ... Þótt þingflokkur
Samfylkingarinnar telji gott að
selja það hlutafé í Landsbanka Is-
lands hf. og Búnaðarbanka ís-
lands hf. sem frumvarpið gerir ráð
fyrir átelur hann harðlega hvemig
staðið hefur verið að undirbún-
ingi þessa máls.“ — FÞG
Jóhanna Sigurð-
ardóttir.
Ráðimeytm sein
Reynsluverkefni Ak-
ureyrarbæjar rædd
við ráðuneytin. Sam-
komulagsgmndvöllur
um heilsugæslu og
öldnmarþ j ónustu.
Enn reyut að semja
um málefni fatlaðra.
Enn er óvissa um framhald á
svokölluðu reynslusveitarfélags-
verkefni Akureyrarbæjar varð-
andi rekstur á málefnum fatlaðra
en samkomulagsgrundvöllur
liggur fyrir varðandi heilsugæslu
og öldrunarþjónustu.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar og formaður
reynsluverkefnanefndar bæjar-
ins, segir að samkomulagsgrund-
völlur sé í þeim hugmyndum
sem nú liggi fyrir af hálfu ráðu-
neytisins vegna heilsugæslu og
öldrunarþjónustu. Upphaflegar
áætlanir í fjárlagaí’rumvarpi voru
mun lægri en sá raunkostnaður
sem Akureyrarbær telur sig hafa
af verkefnunum en síðan þá hef-
ur dregið nokkuð saman.
Sigurður J. Sigurðsson.
Hækka eða skUa
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri og Karl Guðmundsson,
sviðsstjóri félagssviðs, fóru suður
í gærmorgun til fundar við
starfsmenn félagsmálaráðuneyt-
isins vegna framhalds á rekstri
bæjarins á málefnum fatlaðra.
Ekki náðist í þá Kristján Þór eða
Karl í gær en Sturlaugur Tómas-
son í félagsmálaráðuneytinu seg-
ir að málin séu í „góðum gangi“
og eftir fundinn séu meiri líkur á
samningi en fyrir hann.
„Það hefur alltaf verið skiln-
ingur okkar að reynslusveitarfé-
lagsverkefnin væru ekki út-
gjaldaaukandi fyrir þau sveitarfé-
lög sem tækju slík verkefni að sér
í tilraunaskyni, þó maður sé ekki
að tala um eitthvað örlítið frávík
til eða frá,“ segir Sigurður J. Sig-
urðsson.
Tíniiim naiumir
Sigurður segir samninga ekki
fasta á blaði varðandi heilsu-
gæsluna og öldrunarþjónustuna
en þó mjög góðar líkur á að
samningar náist þannig að Akur-
eyrarbær telji mögulegt að halda
áfram þeim verkefnum, þó menn
hefðu viljað fá örlítið meira svig-
rúm peningalega til að gera
ákveðnar tilraunir og þróa verk-
efnin.
Sigurður Ieggur áherslu á að
ljúka málinu því tími til að ganga
frá skiptum sé orðinn naumur, ef
til þess kæmi. „Það hefur ekki
staðið upp á okkur. Það hefur að
mínu mati verið ráðuneytin sem
hafa verið fremur sein til verka í
þessu. Það var löngu orðið ljóst í
hvað stefndi.11 — HI
„Enint í talnaleilmiiin66
„Eigum við ekki að segja að við
séum í talnaleiknum,“ segir
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambands ís-
lands, spurður um gang við-
ræðna við atvinnurekendur.
„Það Ieið ekki yfir neinn og það
slitnaði ekki upp úr viðræðum,"
bætti hann við. Fimmti fundur
samninganefndanna var haldinn
í gær en samkomulag er um að
gefa ekki upp tölur út íyrir hóp-
Björn Grétar Sveinsson.
inn að svo stöddu. Björn Grétar
segist halda sér á jörðinni spurð-
ur um hvort hann sé bjartsýnn á
að breyting á viðræðuáætlun
gangi eftir, það er að almennum
samningum verði frestað gegn
því að lægstu taxtar verði hækk-
aðir sérstaklega núna. „Hug-
myndin er góð og þetta er auð-
velt í framkvæmd,“ segir Björn
Grétar. — H1
i
Skiptar skoðanir um
seðlabaukastjóra
Mjög skiptar skoðanir eru um
hvort ráða eigi stjórnmálamann í
embætti bankastjóra Seðlabanka
íslands - en sú staða verður auglýst
fljótlega.
Dagur spurði á vefnum hvort
skipa ætti enn einn stjórnmála-
manninn sem seðlabankastjóra.
Tæplega tvö þúsund notendur
vefsins tóku þátt í atkvæðagreiðsl-
unni. Meirihlutinn, eða 54 prósent, sagði nei, en 46 prósent þeirra
sem greiddu atkvæði töldu rétt að ráða stjórnmálamann í stöðuna.
Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja spurningu Dags á vefnum.
Hún er svohljóðandi: A að leyfa sölu áfengis á ÞingvöIIum á Kristni-
hátíð? Vefslóðin er sem fyrr: visir.is
BSRB öskrar á fjármálaráðherra
Sameiginlegur fundur stjórnar og formanna aðildarfélaga BSRB mót-
mælir harðlega þeirri ákvörðun Ijármálaráðherra að breyta einhliða
leikreglum sem gilda um kjarasamninga hjá starfsmönnum ríkis og
sveitarfélaga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BSRB. Þar
kemur fram að fjármálaráðherra hafí lagt fram á Alþingi frumvarp um
breytingar á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna án þess
að gert hafi verið um það samkomulag við opinbera starfsmenn.
Kjarasamningalögin hafi verið sett eftir samkomulag um efni þeirra
milli ráðherra, sveitarfélaga og opinberra starfsmanna. „Þessu sam-
komulagi hefur Ijármálaráðherra nú rift. Þetta eru óábyrg og með öllu
óforsvaranleg vinnubrögð og Iýsir BSRB fullri ábyrgð á hendur fjár-
málaráðherra," segir enn fremur í yfirlýsingunni.
Heilsusamlegt hjá Eskimo
„Eskimo Models tengist Elite umboðsskrifstofunni á engan hátt og
hefur aldrei sent fyrirsætur til starfa hjá Elite. Eskimo Models hefur
umboð fyrir Ford fyrirsætukeppnina en Ford umboðsskrifstofurnar
eru þekktar fyrir að hugsa vel um fyrirsætur sem starfa á þeirra veg-
um,“ þetta kemur fram í yfirlýsingu Þóreyjar Vilhjálmsdóttur og Astu
Kristjánsdóttur hjá Eskimo Models í framhaldi af sýningu á heimild-
armyndinni „Bak við tjöldin í tískuheiminum". I yfirlýsingunni kem-
ur fram að stefna Ford umboðsskrifstofanna sé að Ietja fyrirsætur sín-
ar til að fara á næturklúbba, „enda leggur Ford mikla áherslu á
heilsusamlegt lífcrni." Enn fremur kemur fram að Eskimo Models
hafi sent nokkrar stúlkur á aldrinum fjórtán til sextán ára utan til fyr-
irsætustarfa. Allar hafí þær verið í fylgd foreldra sinna nema ein, sem
dvaldi hjá eiganda Ford umboðsskrifstofunnar.
wísiir is
w m wUP m m m m