Dagur - 11.12.1999, Qupperneq 10

Dagur - 11.12.1999, Qupperneq 10
10-LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 ro^tr t ÞJÓÐMÁL SIGBJORJV KJARTANS SON JARÐEÐLISFRÆÐINGUR OG ARKÍTEKT SKRIFAR Annað opið bréf til Jóns Kristjánssonar al- þingismanns. Sæll aftur Jón Kristjánsson al- þingismaður. Þú kvittaðir fyrir bréf mitt á þriðjudaginn í Degi, takk fyrir það. Eg verð að bæta örlitlu við, til að leiðrétta misskilning og ítreka spurningar. Byggðaþáttur- inn og framtíðin. Því fer fjarri að ég telji 2500 manna fjölgun á Austurlandi smámál. Eg hef hins vegar efa- semdir um að kostnaðurinn sem fylgir þeim áformum sem eru til umræðu, sé réttlætanlegur. Það er stórkarlaleg byggðastefna, lítill ávinningur fyrir miklar fórnir, á hæpnum forsendum. Eins og ég nefndi í fyrra bréfi mínu mun hún kannske duga til að fjöfga á landsbyggðinni um 10.000 manns með virkjun allrar vatns- orku Iandsins, samkvæmt þeim forsendum sem gefnar eru í frum- matsskýrslu fyrir álver í Reyðar- firði. Mér er kunnugt um verkefnið „Maður-nýting-náttúra“ og held að það lofi góðu. Þar hefur verið Iýst aðferð sem m.a. nýtir sér um- hverfismat sem alhliða tæki til að móta þær skipulagsáætlanir sem virkjunaráform réttilega eru. Ekki síst í ljósi þess er offorsið í kring- um Fljótsdalsvirkjun og málsmeð- ferðin á Alþingi óskiljanleg tíma- skekkja. Mergurinn málsins er sá að það er óráð að fjalla um 480 þús. tonna álver og þrjár stórvirkj- anir, sem munu umturna ásýnd Norðaustur- lands, í róman- tískum ljóma. Þú skrifar að engar bindandi yfirlýsingar hafi verið gefnar um viðbótarvirkjanir við Kárahnjúka og Jökulsá á Fjöllum. Gott ef satt er, en hverju hefur verið „lof- að“? - og um hvað verður samið? Þú svaraðir engu um valkosti við fyrr- nefndar virkjanir - hverjir eru þeir? Það þarf mikla orku til að knýja 480 þúsund tonna álver, svona u.þ.b. eins og núna fæst úr öllum raforkuverum þjóðarinnar. Hvað er snjallt við staðsetningu þvílíks verksmiðju-trölls í Reyðar- firði ef ekki á að virkja við bæjar- dyrnar? Enda hef ég ástæður til að efast um að þú skrifir þetta af fullum heilindum. í fylgiskjali II m. þingsályktun- artillögu um framhald fram- kvæmda við Fljótsdalsvirkjun, sem er greinargerð Orkustofnun- ar um orkuöflun f. álver í Reyðar- firði kemur fram (undir liðnum nr. 8) að Kárahnjúkavirkjun verði einmitt hagkvæm ef hún fram- Ieiði raforku sem svari til álvers með um 240 þúsund tonna af- kastagetu á ári. Það er auðvitað engin tilviljun að 2. áfangi álvers í Reyðarfirði verður stækkun um 240 þúsund tonn - úr 120 í 360 þúsund tonn. 1 bréfi mínu vísaði ég til um- mæla ráðherra um framvindu málsins. Eg get nefnt tvö dæmi sem eru mér í fersku minni. A morgun- fundi Samtaka iðnaðarins hinn 6. október lýsti iðnaðarráðherra framtíðarsýn sinni (hann not- aði ártalið 2010 sem skilgrein- ingu á sinni framtíð), sem er fullbyggt álver í Reyðarfirði, og það var engin leið að misskilja hvar hann gerði ráð fyrir orkuöfl- un til þess. I viðtali við RÚV 27. október talaði utanríkis- ráðherra tæpi- tungulaust, þeg- ar hann var spurður um upp- byggingu sam- göngumann- virkja f Fljótsdal vegna fyrirhug- aðra fram- kvæmda við Fljótsdalsvirkjun. Um forsendur nýrrar brúar yfir Jökulsá á Fljótsdal sagði hann: „Það þarf líka að gera ráð fyrir því að þarna komi meira vatn f fram- tíðinni. Hugmyndir eru uppi um það að virkja Jökulsá á Dal og þær áætlanir sem uppi eru gera ráð fyrir því að það verði að veruleika. ... Það er ekkert vit í öðru því að við gerum ráð fyrir því ef af þessu álveri verði þá verði það stækkað og það kallar á virkjun Jökulsár á Dal.“ Áróður og ábyrgð Alþingis Að sjálfsögðu undirrita margir kröfuna um umhverfismat Fljóts- dalsvirkjunar sannfærðir um að alls ekki eigi að fórna Eyjabökk- um. Það er ekkert athugavert við það, það sjónarmið er uppi og á fullan rétt á sér, og það er mögu- leg niðurstaða umhverfismatsins. Krafan um umhverfismat er þó ekki svæsnari en svo að þar er vís- að til ferlis sem skilgreint er í lög- um sem samþykkt voru á Alþingi 1993 og eru í anda alþjóðlegra samþykkta og viðhorfa til mann- virkjagerðar og umhverfisverndar. (Af nýlegri umfjöllun í Morgun- blaðinu virðist mér að þú sért einn þeirra þingmanna sem veittu lögunum brautargengi, og húrra fyrir því.) Ég get auðvitað ekkert útskýrt fyrir þér sjóuðum pólitíkusi og fjölmiðlamanni um málarekstur og áróðurstækni, en ég held að þú hafir enga ástæðu til að barma þér í þessu tilviki. Þú ættir að gefa því gaum hvaða afl er á bak við rekstur málsins af hálfu ykkar forvígismanna þess. Og minnast þess jafnframt að marktækar ábendingar hafa komið fram um að skýrsla Landsvirkjunar sé ekki einhlítt fyrirmyndarplagg. Það er Iíka efast um rannsóknarsöguna sem þú telur svo ágætan grund- völl hennar. Kapp er best með forsjá! „Aö sjálfsögðu undirrita margir kröfuna um umhverfismat Fljótsdalsvirkj- unar sannfærðir um að alls ekki eigi að fórna Eyjabökkum. Það er ekkert athugavert við það", segir Sigbjörn m.a. Igrein sinni. Myndin er af Eyja- bakkasvæðinu. - mynd: gva Auðn eða álver? Afhugasemd vió Friðrik Þorsteinn Siglaugsson hag- fræðingur sendi Degi athuga- semd við ummæli Friðriks Sophussonar, forstjóra Lands- virkjunar, sem birtust í blað- inu í gær um útreikninga Þor- steins á arðsemi Fljótsdals- virkjunar: „Vegna um- mæla Friðriks Sophussonar í frétt í Degi um útreikninga mína á arðsemi Fljótsdalsvirkj- unar vil ég koma á fram- færi eftirfarandi athugasemd: Utreikningar mínir birtust í heild í Morgun- blaðinu þann 4. september síð- astliðinn ásamt öllum forsend- um. Þar kemur skýrt fram að gert er ráð fyrir 40 ára líftíma virkjana, ekld I 5 ára líftfma eins og Friðrik nefnir. A hinn bóginn er gert ráð fyrir 1 5 ára öruggri raforkusölu til álvers á Reyðar- firði og algerri óvissu um raf- orkusölu eftir það. Þessi for- senda byggir á staðhæfingu iðn- aðarráðherra um að umrætt ál- ver muni verða óhagkvæmt eftir 1 5 ár. Það er augljóst að ekki er hægt að reiða sig á tekjur frá rekstri sem nýtur ekki hag- kvæmni. Varðandi raforkuverðið er það einföld hagfræðileg stað- reynd, að raforkuverð ræðst ekki af því hvað Frið- rik Sophusson langar að fá fyr- ir raforkuna; aldrei verður hægt áð fá hærra verð en greitt er á heimsmarkaði. Ennfremur: Til þess að Fljóts- dalsvirkjun standi undir sér þarf raforku- verð að vera það sama og til al- mennings- veitna. Augljóst er að slíkt næst aldrei. Ég bendi á að lokum, að þess- ar athugasemdir Friðriks eru ekki nýjar af nálinni; þær komu fram í Morgunblaðinu þann 9. september sl. og var svarað með grein minni á sama vettvangi þann 2. október sl.“ ÞÓRA ^ GUÐMUNDSDÓTTIR ARKITEKT SKRIFAR Þeir eru sem betur fer margir Austfirðingar sem efast um að orkufrek stóriðja verði það bjarg- ræði fjórðungnum sem bæði sveitastjórnarmennirnir okkar og þingmenn hafa haldið fram um árabil. Austur á landi eins og ann- arstaðar á Islandi er líka fólk sem hefur þá trú, að framtíð þjóðarinn- ar byggist á hugviti þess sjálfs og skynsamlegri nýtingu á Iandsíns gæðum en ekki því að falbjóða bæði mannauðinn og náttúruna til ódýrrar hráefnaframleiðslu. Það er alröng mynd af okkur Austfirðing- um að við höfum setið auðum höndum undir fjárhúsvegg eða á bryggjusporði og beðið eftir álveri í hartnær aldarfjórðung. Flest okkar hafa haft meira en nóg að starfa og fengist við verk- efni dagsins af sömu bjartsýni og atorkusemi og aðrir landsmenn. Það eru stjórnmálamennirnirnir sem af og til bylta sér í fleti og viðra við okkur stóriðjudrauma sína, álver, rafstreng til Evrópu, máhnblendi og olíuhreinsunar- stöðvar. Og sama sagan endurtekur sig í hvert sinn. Austfirðingar eins og aðrir landsmenn skiptast í tvær fylkingar. Þá sem vilja virkja og vera stórframleiðendur og hina sem vilja halda inn í framtíðina með nútímalegri og vistvænni at- vinnuvegi. Og hvaða atvinnuvegi? spyija ráðþrota stjórnmálamenn- irnir: ætlið þið að hlaupa um öræf- in á kúskinnsskóm og selja ferða- mönnum lummur? Nei segjum við. Þið eigið að hlusta á fólkið og virkja athafna- semi þess. Ykkar hlutverk er að skapa aðstæður, Ijárhagslegar og umhverfislegar til þeirra mörgu góðu verka sem Austfirðingar eru fúsir að vinna. I stað þess að ala á vanmáttarkennd og vonleysi með sífelldu tali um að annað tveggja standi til boða, auðn eða álver. Ef Austfirðingar hefðu aðgang að þó ekki væri nema brot af virkjana og álvers miljörðunum til annarar uppbyggingar, velkist ég ekki í vafa um að þeir myndu ávaxta sitt pund vel og una glaðari við sitt, en þeir koma til með að gera í drauma kerskálum álversins ofurvaxna.Eg hef reyndar ekki hitt einn einasta Austfirðing sem svarar því játandi þegar hann er spurður hvort hann vilji vinna í væntanlegri álsmiðju. Kannski að Pólverjarnir, sem nú manna stóran hluta fiskvinnslunn- ar fyrir austan verði líka uppstað- an í vinnuafli álversins. A Aust- urlandi bjuggu þegar flest var árið 1989, 13,200 landsmanna en við erum í dag 12,300. Okkur hefur því fækkað um 900 manneskjur á 10 árum. Þetta er vissulega óhag- stæð þróun, sem rekja má til margra hluta, til að mynda hvern- ig kvótakerfið bæði í landbúnaði og fiskveiðum hefur reynst byggðunum skeinuhætt ef ekki stórhættulegt. Til að snúa þessari þróun við er svo gripið til þeirra örþrifaráða að leggja hald á drjúgan hluta af orkuforða framtíðarinnar og fórna ómetanlegum náttúruperlum. Segullin sem togar fólkið suður verður ekki veikari þó boðið sé upp á störf í álveri við Reyðarfjörð. Afl hans er flóknara en svo og marg- brotnara. Sú umræða sem nú á sér stað í þjóðfélaginu um framtíðina í land- inu er sú umræða sem sem stjórn- málmennirnir forðuðust eins og heitan eldinn í kosningunum í vor og ætla nú að drepa í dróma með góðu eða illu í krafti meirihluta- valds á Alþingi. Krafan um umhverfismat á Eyjabökkum er krafa mikils meiri- hluta þjóðarinnar, um að hún fái að minnsta kosti umsagnarrétt um hvernig landinu og lífi hennar verði ráðstafað á nýrri öld. Ég öf- unda ekki þá stjórnmálamenn, sem hunsa þessa kröfu og þennan rétt, þegar þeir leita liðsinnis um- bjóðenda sinna í næstu kosning- um. Vonandi skynja þeir sinn vitj- unartíma. „Raforkuverð ræðst ekki afþví hvað Friðrik Sophusson langar að fá fyrir raforkuna, “ segir greinarhöfundur.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.