Dagur - 11.12.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 11.12.1999, Blaðsíða 11
I.AUGARDAGUR 11. DESEMBER 19 99 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Þaö verður líklega býsna langt þangað til þessar moskuhvelfingar I Istanbúl tilheyra Evrópusambandinu, þótt Tyrkir hafi formlega verið teknir inn í hóp umsækjenda um aðild. Evropusambaiidió stækkar og stækkar Næsta vor verða tdlf ríki komin í aðildar- viðræður við ESB. Tyrkland fær aðild líka - einhvem tíma seinna. Á leiðtogafundi Evrópusam- bandsins í Helsinki, sem hófst í gær og Iýkur í dag, var í gær sam- þykkt að hef]a strax á næsta vori samningaviðræður um aðild 6 ríkja í viðbót við þau 6 ríki sem þegar eiga í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta þýðir að aðildarrfkjum sambandsins gæti fjölgað um 12 eftir nokkur ár, sennilega þó eftir ailmörg ár. Leiðtogafundurinn samþykkti einnig að taka Tyrkland formlega inn í hóp þeirra ríkja, sem bíða aðildarviðræðna. Sú bið gæti þó dregist verulega á langinn því sett var það skilyrði að ástandið í mannréttindamálum í Tyrklandi verði að batna til mikilla muna áður en af aðild geti orðið. Tyrkjum var þó mjög í mun að fá formlega staðfestingu frá Evr- ópusambandinu að af aðildarvið- ræðum gæti orðið, þótt síðar verði. Meira að segja Grikkir, sem verið hafa erkióvinir Tyrkja, stóðu að samþykktinni um að bjóða Tyrkjum í hópinn. Einnig var samþykkt á fundin- um í Helsinki að settur verði á stofn sérstakur viðbragðsher á vegum Evrópusambandsins. Þetta verður 50 til 60 þúsund manna herlið og gert er ráð fyrir að þetta verði orðið að veruleika ekki síðar en árið 2003. Á fundinum þurfti einnig að taka afstöðu til þess hvort refsa eigi Rússum vegna Téténíu- stríðsins. Niðustaðan varð sú að ekki yrðu lagðar neinar refsiað- gerðir á herðar Rússa, heldur verði látið nægja að fordæma framferði þeirra í Téténíu í harð- orðri yfirlýsingu. Rússar voru eindregið hvattir til þess að stan- da ekki við hótanir sínar gagnvart Grosní og reyna hvað þeir geta til að finna friðsamlega lausn á átökunum. Fá EvrópuríM verða ekki með Nýju ríkin sex, sem á næsta ári bætast í hóp formlegra umsækj- enda um aðild, eru Búlgaría, Lettland, Litháen, Malta, Rúm- enía og Slóvakía, en þau sem átt hafa í aðildarviðræðum við ESB frá því á síðasta ári eru Eistland, Kípur, Pólland, Slóvenía, Tékk- land og Ungverjaland. Ekki er þó búist við að neitt þessara ríkja fái aðild að ESB íyrr en í fyrsta lagi árið 2003. Ef samningar takast við öll þessi 12 ríki um aðild þá verða ríki Evrópusambandsins orðin alls 27, og einu betur ef einhvern tíma kemur að því að Tyrkir bæt- ist í hópinn. Þegar svo er komið verða ekki mörg ríki eftir í Evrópu sem stan- da utan við Evrópusambandið. Fyrir utan EFTA-ríkin Island, Noreg, Sviss og Liechtenstein eru það nánast eingöngu Albanía og þau ríki sem áður tilheyrðu Júgóslavíu heitinni, þ.e. Króatía, Bosnfa, Makedónía og Serbía- Svartljallaland. Auk þess má tína til smáríkin Mónakó og Andorra. Þau hafa ekki sótt um aðild, og heldur ekki Moldavía né Ukraína og Hvíta-Rússland. Og vitaskuld ekki Rússland sjálft, enda væri Evrópusambandið þá farið að teygja sig ansi langt til austurs ef Rússar bættust í hópinn. - GB Fresturmn rennur út Borgarstjóri Moskvu hefur nú hæst í hóp þeirra sem gagnrýna hótanir Rússa gagn- vart íbúum Grosni. I dag rennur út frestur sá, sem rússneski herinn gaf íbúum Grosní, höfuðborgar Téténíu, til þess að hafa sig á brott áður en innrás Rússa í borgina hefst. Þessi hótun hefur verið gagn- rýnd ákaflega, sérstaklega á Vest- urlöndum, en í gær bættist Lúsjkov, borgarstjóri Moskvu, í hóp gagnrýnendanna. Hann sagði að enn væru um 45.000 óbreyttir borgarar f Grosní. „Hvernig í ósköpunum á allt þetta fólk að komast út og hvað verður um þá sem geta það ekki,“ spurði borgarstjórinn. Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu á fundi sínum í Helsinki í gær harðorða yfirlýs- ingu þar sem framferði Rússa í Téténíu og hótun þeirra gagnvart íbúum Grosní var fordæmd. Hins vegar var fallið frá því að leggja refsiaðgerðir á herðar Rússum vegna þessa máls. Meðan leiðtogar Evrópusam- bandsins sátu að fundarhöldum í Helsinki í gær var Boris Jeltsín Rússlandsforseti að spóka sig í Peking þar sem hann átti fundi með ráðamönnum. Rússland og Kína sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem gagnrýni Vesturlanda á Téténíustríðið er vísað á bug. Kínverskir ráða- menn sögðu að Téténíustríðið væri eingöngu innanríkismál Rússa og erlend gagnrýni ætti þar engan rétt á sér. Svo virðist sem fáir borgarbúa hafi tekið boði Rússa um að forða sér. Mannréttindasamtök hafa bent á að þeir sem eftir eru í borginni séu margir hverjir aldraðir eða sjúkir og eigi því óhægt um vik að leggja í ferða- lag. Sömuleiðis eru margir orðn- ir máttfarnir eftir margra vikna umsátur. í gær beindu Rússar hins veg- ar þessu spjóti að skæruliðunum, sem Rússar segja að haldi óbreyttum borgurum nauðugum í borginni. Það séu því ekki Rúss- ar sem komi í veg fyrir flótta borgarbúa, heldur íslömsku skæruliðarnir. Jafnframt héldu Rússar í gær af fullum krafti áfram hernaði sínum í nágrenni Grosní. - GB Afsökimarbeiðni frá Sviss SVISS - Bæði ríkisstjórn og forseti Sviss hafa beðist afsökunar vegna framkomu landsins gagnvart flóttamönnum sem vildu leita hælis undan ofsóknum nasista á árum seinni heimsstyrjaldarinnar, en þeim var vísað frá á Iandamærunum í stórum stíl. Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar þess að birt var skýrsla, sem sagnfræðingum var falið að gera, um sögu Sviss á stríðsárunum. „Ekkert getur bætt fýrir af- leiðingarnar af ákvörðunum sem teknar voru á þessum tíma,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar og ennfremur vottar hún samúð sína gagn- vart sársauka þeirra sem vísað var frá á landamærunum. Hins vegar gagnrýnir stjórnin líka að í skýrslunni sé lítið gert úr því í hve erfiðri stöðu svissnesk stjórnvöld voru á stríðsárunum, þar sem landinu staf- aði veruleg ógn af nasistastjóminni í Þýskalandi. Friðarverðlaim til lækna NOREGUR - Friðarverðlaun Nóbels þetta árið voru í gær afhent samtökunum Læknar án lan- damæra, sem hefur tekist að ryðja nýjar brautir í alþjóðlegu hjálpar- starfi með því að taka áhættu og laga störf sín að aðstæðum á hverj- um stað. Samtökin ætla að nota verðlaunaféð, sem nemur nærri 70 milljónum íslenskra króna, til þess að útvega lyf gegn smitsjúkdómum sem vegna fátæktar í heiminum hafa verið að breiðast æ hraðar út. Það var Marie-Eve Raguenau sem tók við friðarverðlaunum Nóbels í gær fyrir hönd Lækna án lan- damæra. Hungursneyð blasir við Afgönum Alþjóðlega matvælastofnunin skýrði frá því í gær að nú þegar vet- ur er að ganga í garð í Áfganistan megi búast við alvarlegri hung- ursneyð þar. Matvælaskortur í Afganistan er nú verulegur, og hef- ur ástandið versnað mjög undan- farið. Meðal annars hefur mat- vælaverð hækkað upp úr öllu valdi og átt sinn þátt í að gera illt verra. Nýja herstjórnin í Pakistan hefur lagt milda áherslu á að koma í veg fyrir smygl yfir landamærin til Afganistan, sem kostað hefur Pakistan stórfé í töpuðum skatt- tekjum. Refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna á stjórn Talibana í Afganistan hefur einnig orðið til þess að hækka matvælaverð, þótt aðgerðirnar bitni ekki beinlínis á matvælainnflutningi. Vinsældir Kohls hrapa ÞÝSKALANDS - Þótt Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýska- lands, missi - a.m.k. ekki í bili - hvorki þingsæti sitt né titil sinn sem heiðursforseti Kristilega demókrataflokksins í kjölfar þess að upp komst um leynilegt reikn- ingshald flokksins, þá hefur fylgi bæði hans og flokksins meðal þýsku þjóðarinnar hrapað svo um munar í skoðanakönnun sem þýsk sjónvarpsstöð lét gera. Kohl er nú kominn niður í níunda sæti á vin- sældalista stjórnmálamanna, en hafði verið í þriðja sæti fram að því. Fylgi Kristilegra demókrata mælist nú vera 43%, en í nóvem- ber síðastliðinum reyndist flokk- urinn vera með 55% fylgi, enda hafði þá vandræðagangur ríkis- stjórnar Gerhards Schröders vald- ið verulegu fylgistapi bæði Sósíal- demókrata og Græningja. Bandarísk herþyrla fórst BANDARÍKIN - Talið var að sjö bandarískir hermenn hafi farist þegar þyrla frá bandarfska sjó- hernum hrapaði í Kyrrahafinu skammt út af strönd Kaliforníu. Ellefu af alls 18 manna áhöfn þyrlunnar var bjargað úr hafinu, en sjö manns var enn saknað í gær og talið Iíklegast að þeir væru af. Þyrlan var í æfingaflugi og átti að flytja hermennina um borð í skip. Verð á mat í Afganistan hefur rok- ið upp úr öllu valdi undanfarið. KAMÍNUR Vandaðar, fallegar. Ótrúlega hagstætt verð. “MIKIÐÚRVAL- PFAFF <rHeimilistœkjaverslun Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.