Dagur - 14.12.1999, Page 1

Dagur - 14.12.1999, Page 1
Loðnutamð er 2,5 milljarðar Rekstrarstjóri SR- mjöls svartsýnn á að loðna veiðist fyrir jól. Verksmiðjur SR-mjöls hafa tekið á móti 40 þúsund tomniTn á móti 150 jnisimd tommm á sama tima í fyrra. Loðnuleiðangur gefur þó ágæta raun. SR-mjölverksmiðjurnar á Siglu- firði, Raufarhöfn, Seyðisfirði, Reyðarfirði og Helguvík hafa verið að taka starfsmenn af Iaunaskrá vegna hráefnisskorts verksmiðjanna en ekkert hefur veiðst af loðnu að undanförnu. Síðan veiðar hófust í haust hefur aðeins veiðst um þriðjungur þess sem veiðst hafði á sama tíma í fyrra og er heildartap útflutn- ingsverðmæta um 2,5 milljarðar króna. Þórður Jónsson, rekstrarstjóri SR-mjöls, segir að einnig sé ver- ið að draga saman seglin í yfir- vinnu þeirra sem ekki fara af launaskrá svo þetta ástand bitni á öllum starfs- mönnum verk- smiðjanna, en mismikið. A Siglufirði hætta um 15 manns en heldur færra hjá hinum verk- smiðjunum því misjafnlega stendur á spori til þess að hafa verksmiðjurnar ldárar til að taka á móti loðnu fyrirvaralítið. „Búnir að vera í löngu fríi“ „Eg er orðinn svartsýnn á að það veiðist einhver loðna íyrir jól. Við erum búnir að vera í mjög löngu „fríi“, en okkur vantar 100 þús- und tonn til þess að vera á með- alróli í loðnunni seinni hluta árs- ins. Við erum búnir að fá í allar verksmiðjurnar um 40 þúsund tonn á móti 1 50 þúsund tonnum á sama tíma í fyrra. Utflutnings- verðmæti þessara 40 þúsund tonna eru um 320 milljónir króna svo okkur vantar um 800 milljónir króna til samanburðar við árið f fyrra. Eg sé hins vegar engin merki þess að það sé einhver óáran í stofninum. Sú loðna sem hefur komið upp hjá togurum er mun betur á sig kom- in en hún var í fyrra, og rækju- skipin hafa verið að Ienda í vand- ræðum vegna þess að þau hafa verið að fá allt of mikið af loðnu í trollið, nánast fylla þau stund- um. Hvort hún lætur sjá sig eftir áramótin er svo annað mál, en ég sé enga ástæðu til þess að vera svartsýnn. Hún liggur niður við botn og Iætur ekki ná í sig, og það hefur hún gert stundum áður,“ segir Þórður Jónsson. Loðnuleiðangri lokið Loðnuleiðangri rannsóknar- skipsins Bjarna Sæmundssonar fyrir vestan, norðan og austan land er lokið. Loðnu varð víðast vart utan landhelginnar frá norð- vestur af Látrabjargi, norður og austur fyrir land suður til móts við Gerpi. Mest var af loðnu á Vestfjarðamiðum og út af vestan- verðu Norðurlandi, frá Hala norður og austur um á Stranda- grunn. Vestan var uppistaðan ársgömul loðna en út af Aust- fjörðum svo til eingöngu ókyn- þroska loðna. Minna mældist af fullorðinni loðnu en búist var við, en það veldur ekki teljanleg- um áhyggjum þar sem loðnan var nokkuð dreifð. Astandið er því svipað og á síðasta sumri eða snemma hausts. Ástand allra aldursflokka var gott, sérstaklega fullorðnu loðnunnar sem er mun þyngri en á síðustu vertíð. — GG Loðnuvertídin hefur brugðist til þessa og stefnir í stórtap af grein- inni. Undtrbúa kvótakaup Stærstu hluthafar í Básafelli á Isa- firði, undir forystu Isafjarðarbæjar, undirbúa nú kaup á aflaheimild- um frystitogarans Skutuls. Jafnvel hefur verið rætt um að kaupa togarann ásamt aflaheimildum. „Það er verið að ræða um það hvort við náum sem flestu fólki með okkur til að fjármagna kaup á aflaheimildum. Á togaranum Skutli eru um 1.500 tonna rækju- kvóti, þar af um 1.000 tonn á Flæmingjagrunni, en við einangr- um okkur ekkert við það skip eða þann möguleika. Hluthafar í Bása- felli eru að athuga að skipta á kvóta og hlutabréfum í Básafelli. Enn er þetta á viðræðustigi en við höfum verið að bjóða öðrum fjár- festum að koma inn í verkefnið. Þó er Ijóst að aflaheimildimar verða nýttar innan Isafjarðarbæjar. Við viljum ekki missa meiri heim- ildir en orðíð er,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Isafjarð- arbæjar. - GG Hafnfirski sundkappinn Úrn Arnarson kom til landsins í gær, ásamt öðrum ísienskum keppendum, eftir frækilega framgöngu á Evrópumeistaramótinu í sundi í Lissabon í Portúgai Keppt var í 25 metra laug og varð Örn Evrópu- meistari í tveimur greinum. Fjallað er um árangurinn á íþróttasíðu á bls. 13 og rætt við föður Arnar, Örn Ólafsson, á bls. 20 í Lífinu í landinu. - mynd: e.ól. HHHBHHBMHBKHflHHHHHHHHHHN ■HHHHBHHI Leigubilstjóri, sem ók gerandanum blóðugum af vettvangi Espigerðis- morðsins, er í óbeinum fjölskyldu- tengslum við hann. Leigubíl- stjón raim- sakaður Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum Dags er liður í rannsókn lögreglunnar á Espigerðismorð- inu fólginn í því hver þáttur til- tekins leigubílstjóra er í málinu, en vitað er að hinn meinti 26 ára morðingi hélt alblóðugur frá vettvangi í leigubíl. Lögreglan neitar því ekki að verið sé að rannsaka þátt leigu- bílstjórans, en þá sem vitnis, en ekki sem grunaðs manns hvað manndrápið sjálft varðar. Hins vegar kann svo að fara að rann- sóknin leiði yfirhylmingu í ljós af hálfu Ieigubílstjórans, en hann mun vera í óbeinum fjölskyldu- tengslum við hinn meinta ger- anda. Svo sem fram hefur komið var lögregla kvödd að Espigerði 4 kl. 21 föstudaginn 3. desember, þeg- ar Sigurbjörg Einarsdóttir 80 ára fannst látin í íbúð sinni. Beindist rannsókn málsins þegar í stað að umferð manna í og við húsið frá kl. 16 síðdegis sama dag og var hinn meinti gerandi handtekinn daginn eftir. Samkvæmt heimild- um blaðsins hafði hann flúið af morðvettvangi með því að biðja leigubílstjórann, sem er í óbein- um Qölskyldutengslum við hann, um að sækja sig. Rannsókn máls- ins beinist meðal annars að því hvort líta beri á leigubílstjórann sem vitni í málinu eingöngu eða hvort hann hafi látið hjá líða að tilkynna um atburðinn strax og mögulegt var. — FÞG ■HHHflHH TV0FALDUR . VINNINGUR Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI • SÍMI 462 3524

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.