Dagur - 14.12.1999, Síða 2
2 -ÞRIÐJUD AGV R 14. DESEMBER 1999
Ttoptr
FRÉTTIR
Logið að Islendiiiguin
árið 1985, segir Arkin
B andaríkj ameim
sögðu íslendmgum
ósatt árið 1985 segir
William M. Arkin. En
hann hafði rangt fyrir
sér um að nafn ís-
lands væri á
leyniplagginu yfir
lönd þar sem handa-
rísk kjamorkuvopn
voru staðsett á sjötta
áratugnum.
WiIIiam M. Arkin og aðrir höf-
undar greinar í „Bulletin of the
Atomic Scientists" um staðsetn-
ingu bandarískra kjarnorku-
vopna, hafa játað að þeir hafi
gert mistök varðandi Island. I
nýrri grein í tímaritinu kemur
fram að það nafn í leyniskýrslu
sem þeir töldu að ætti við Island
hefði í reynd verið japanska eyj-
an Ivo Jima.
I bandaríska leyniplagginu var
strikað yfir nöfn 27 landa þar
sem Bandaríkjamenn höfðu haft
kjarnorkuvopn á sjötta og sjö-
unda áratugnum. Höfundar
greinarinnar gátu ráðið rétt í 25
þeirra, en höfðu rangt fyrir sér
um Island og enga lausn á einu
nafninu. Nú segja þeir að það sé
önnur japönsk eyja, Chichi Jima.
Arkin skrifar sérstaka grein í.
tímaritið um Island og fullyrðir
þar að sagnfræðingar hafi vart
klórað í yfirborð sögunnar á þátt
tslands í kjarnorkuvopnavígbún-
aði kalda stríðsins.
WÍHiam M. Arkin viðurkennir að hafa
haft rangt fyrir sér með kjarnorkuvopn
á íslandi.
Hann staðhæfir ennfremur að
fyrir liggi sönnun þess að banda-
rískir ráðamenn hafi Iogið að ís-
lenskum stjórnvöldum árið
1985. Það mál snýst um leyni-
skjal dagsett 7. október árið
1974. Þetta er minnisblaðið
„NSDM 274“ sem ber heitið
„Nuclear Weapons Dcployment
Authorization for FY75“ og er
undirritað af þáverandi öryggis-
ráðgjafa Nixons Bandaríkjafor-
seta, Henry Kissinger. I fylgi-
skjali C er listi yfir „Conditional
Deployments" - en með því er átt
við lönd þar sem geyma megi
kjarnorkuvopn á stríðstímum.
Eitt Iandanna á þessum lista er
Island.
Schultz og Burt lugu!
Arkin kveðst hafa látið utanríkis-
ráðherra Islands fá afrit af þessu
skjali. I febrúar 1985 hafi New
York Times skýrt frá málinu og
um leið að stjórnvöld þeirra ríkja
sem þarna voru nefnd hafi ekki
haft hugmynd um þessar áætlan-
ir Hvíta hússins. Þetta hafi vakið
blaðaskrif og deilur. 14. mars
þetta sama ár hafi George
Schultz, utanríkisráðherra, og
aðstoðarmaður hans, Richard
Burt, því komið óvænt við í
Reykjavík á leiðinni frá Moskvu
til að ræða málið. Burt hafi þar
fullyrt að þetta skjal hefði „aldrei
verið samþykkt af forseta Banda-
ríkjanna“ og þar með afgreitt
málið út af borðinu.
En annað kom í ljós á þessu
ári, 1999, segir Arkin. Þá aflétti
Hvíta húsið leynd af Iista yfir til-
skipanir forseta Bandaríkjanna
allt frá tímum Trumans til dags-
ins í dag. A þeim lista var „sönn-
un þess að Schultz og Burt lugu
í Reykjavík fyrir 14 árum,“ segir
Arkin. Þar var sem sagt skráð
’sem tilskipun forsetans fyrrnefnt
minnisblað, sem Burt hafði full-
yrt að Nixon hefði aldrei sam-
jiykkt.
Landssímiim til í aldamótin
Undirbúningi vegna ársins 2000 er nú lokið hjá Landssímanum.
Byrjað var að huga að lausnum vegna 2000-vandans strax árið 1996
en vinnan hófst formlega snemma á síðasta ári. Búið er að uppfæra
hugbúnað í öllum símstöðvum fastanetsins, útlandastöðvum, skipti-
stöðvum og svæðisstöðvum. Sama á við um símstöðvar farsímakerf-
anna GSM og NMT. Allur búnaður Landssímans er tengdur varaafli
þar sem því verður við komið og allar mikilvægustu sambandsleiðir
eru tvöfaldar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Landssíminn sendi
frá sér í gær.
Landssíminn hefur samið sérstaka viðbragðsáætlun vegna ársins
2000 og verður unnið eftir henni um áramótin. Starfsmenn fyrirtæk-
isins munu hefja forvöktun á hádegi 31. desember til að fylgjast með
fregnum frá löndum austan við okkur, þar sem nýja árið gengur fyrr
í garð. Skömmu fyrir miðnætti mætir stór hópur tæknimanna á vakt
til að sannreyna sem fyrst ástand allra mikilvægra kerfa og bregðast
við, fari eitthvað úrskeiðis. Samtals verða um 60 manns á vakt um
áramótin en venjulega eru um 20 manns að störfum á þessum tíma.
„Man þetta öðruvísi“
Davíð Oddsson upp-
ljóstraði um helgiua
að hanu hafi í upphafi
verið andvígur bygg-
iugu Ráðhússius.
Dóuiuefndarmaður
inan hlutiua öðruvísi.
„Eg man þetta ekki eins og hann
setur þetta fram,“ segir einn
nefndarmanna í dómnefnd um
Ráðhús Reykjavíkur í samtali við
Dag, um þá uppljóstran Davíðs
Oddssonar fyrrum borgarstjóra,
að hann hafi innan dómnefndar-
innar greitt atkvæði gegn þeirri
byggingu sem á endanum var
valin og stendur nú við Tjörnina.
„En í guðanna bænum hlífðu
Davíð Oddsson.
mér við því að hafa það eftir
mér,“ bætti þessi dómnefndar-
maður við. Davíð greindi frá því
á Skjá 1 um helgina að hann hafi
ekki viljað þá útgáfu af Ráðhúsi
við Tjörnina sem nú blasir við.
Fullyrti hann í þætti Egils Helga-
sonar dagskrárgerðarmanns að
innan dómnefndar hafi hann
greitt atkvæði gegn tillögunni, en
hinir fjórir nefndarmennirnir
greitt atkvæði nieð byggingunni.
Hafi Davíð þá beðið um að at-
kvæðagreiðslan yrði endurtekin
og þá greitt atkvæði með tillög-
unni og skýrði hann sinnaskiptin
svo, að honum hefði ekki þótt við
hæfi að það vilnaðist að borgar-
stjórinn hefði verið á móti bygg-
ingunni. Ekki náðist í nokkurn
dómnefndarmann í gær sem vildi
tjá sig opinberlega um málið, en
einn þeirra undirstrikaði að allar
umræður og afgreiðslur nefndar-
innar hefðu verið trúnaðarmál.
- FÞG
Landsbankinn bendir á gróðann
I tilefni af sölu á 15% af
hlutafé ríkissjóðs í Lands-
bankanum, sem hefst á
morgun, hefur bankaráðið
ákveðið að birta niðurstöð-
ur úr níu mánaða uppgjöri
af rekstri þessa árs. Sam-
kvæmt óendurskoðuðu
uppgjöri nam hagnaðurinn 1.170 milljónum króna, sem er um 63%
aukning frá sama tímabili í fyrra þcgar plústalan stóð í 719 milljón-
um. Arðsemi eigin íjár á tímabilinu nam 16%.
Hreinar vaxtatekjur bankans námu alls um 4 milljörðum króna
fyrstu níu mánuðina og höfðu aukist um 25,5% frá því á sama tíma
í fyrra. Hreinar rekstrartekjur í heild námu alls um 6 milljörðum og
höfðu þær aukist um 20,8%.
Heildareignir Landsbankans í lok september námu alls tæplega
193,2 milljörðum króna og höfðu aukist um 22,2% frá áramótum.
Utlán námu í lok september um 132 milljörðum króna og höfðu á
tímabilinu aukist um 14,4%. Innlán námu tæplega 80 milljörðum,
sem er aukning milli ára um 8,7%. Eigið fé í lok september nam 10,9
milljörðum króna. - BJI!
44 milljónir í plús hjá SL
Samvinnuferðir-Landsýn högnuðust um 44 milljónir króna af rekstri
fyrstu níu mánuði ársins. Til samanburðar nam hagnaðurinn um 18
milljónum eftir sama tímabil í fyrra. Hagnaður af reglulegri starfsemi
lyrir skatta var 40 milljónir króna á móti 25 milljónum sama tímabil
1998. Velta félagsins fyrstu níu mánuði ársins 1999 nam tæpum 2
milljörðum króna og jókst um 15% milli ára. Beinn kostnaður jókst
um 1 5% en laun og annar rekstrarkostnaður jukust um 10%. Mest er
veltuaukning í sölu á feröum til erlendra ferðamanna eða 24%. Far-
þegafjöldi í sólarlandaferðir var svipaður og árið 1998 en 80% aukn-
ing var í sölu flugsæta í leiguflugi til London og Kaupmannahafnar.
L
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
Opið uin Moðrudals-
ðræfin í jólavikunni
Snjómokstursmenn Vegagerðarinnar hafa haft i nógu að snúast að undanförnu og verða að
störfum eins lengi og þörfkrefur til jóia. mynd: brink
Þokkalegt veður var víðast hvar á
landinu í gær og voru allir helstu
þjóðvegir landsins opnir. Einna
seinlegast hefur verið að opna
vegi á Suðurlandi, en þar hefur
snjóað víða meira síðustu daga
en í fjöldamörg ár þar á undan.
Hjörleifur Olafsson hjá Vegaeft-
irlitinu sagði að ekki hefðu borist
formlegar beiðnir um að halda
veginum um Möðrudalsöræfi
milli Egilsstaða og Akureyrar
opnum, en Austfirðingar hafa
undanfarin ár sótt mjög til Akur-
eyrar fyrir jólin til að versla.
Hrafnseyrarheiði verður opnuð
íyrir jól en óvíst er með Dynjand-
isheiði, sem þýðir að t.d. Bíld-
dælingar komast ekki landveginn
til Isafjarðar í verslunarerindum
fyrir jól. Vegurinn um Lágheiði
og Öxarfjarðarheiði verður ekki
opnaður fyrir jól, og þannig er
einnig um fleiri fáfarnar heiðar
vfða á landinu, svo sem Hcllis-
heiði milli Vopnafjarðar og Hér-
aðs.
Hjörleifur Ólafsson segir að
það sé orðin hefð fyrir því að
auka þjónustuna fyrir jól og um
áramót. Vegurinn um Möðru-
dalsöræfi er í dag mokaður á
mánudögum, miðvikudögum,
fimmtudögurn og fösttidögum en
einnig verður haldið opnu
sunnudaginn 19. desember og
síðan alla daga þar frá til og með
aðfangadegi. Síðar verður tekin
ákvörðun um hvernig mokstri
verður hagað um áramótin. - gg