Dagur - 14.12.1999, Qupperneq 4
é-I’KIDJUDAGUR 14. DESEMBER 1999
í>^ur
FRÉTTIR
Fjötdi nemenda á hvert stöðugildi við kennslu fækkaði í öllum kjördæmum en er töluvert mismunandi: Kennarar í Reykjaneskjör-
dæmi höfðu flesta nemendur (14,7 að meðaltalij og i Reykjavík næstflesta\(12,3] en á Vesturiandi, Vestfjörðum og Austurlandi eru
tæpiega 10 nemendur að meáaltali á hvern kennara.
Færri krakkar á
hvem keimara
Starfsliði gnumskólaima
í landinu fjölgaði um 7%
milli áraima 1997 og
1998 eu fjöldi nemenda
stóð í stað.
Rúmlega sex þúsund manns unnu
samtals 4.940 ársverk í grunnskólum
landsins árið 1998. Hafði þeim þá
fjölgað um 320 ársverk frá árinu áður,
eða tæplega 7% samkvæmt skýrslum
Hagstofunnar. Fjöldi grunnskólanem-
enda stóð hins vegar nánast í stað milli
ára (um 42.400) - eins og hann hefur
raunar gert a.m.k. í tvo áratugi. Nem-
endum á hvern starfsmann skólanna
fækkaði því úr 9,2 niður í 8,6 milli
ára. Þessi fjölgun starfsmanna hefur
varla kostað sveitarfélögin minna en
500-600 milljónir króna í auknar
Iaunagreiðslur í fyrra.
80 nýir kennarar 100 leiðbein-
endur
Af 320 manna fjölgun eru aðeins um
180 við kennslu, hvar af 100 voru leið-
beinendur, sem fjölgaði úr 600 upp í
700 milli ára. Starfslið við kennslu,
þ.e. skólastjórar, kennarar og leiðbein-
endur voru aðeins um 71% allra starfs-
manna skólanna á s.l. ári. Nemendum
á hvern kennara í fullu starfi íækkaði
úr 12,7 niður í 12,1 milli ára.
Fjöldi nemenda á hvert stöðugildi
við kennslu fækkaði í öllum kjördæm-
um en er töluvert mismunandi: Kenn-
arar í Reykjaneskjördæmi höfðu flesta
nemendur (14,7 að meðaltali) og í
Reykjavík næstflesta (12,3) en á Vest-
urlandi, Vestfjörðum og Austurlandi
eru tæplega 10 nemendur að meðaltali
á hvern kennara.
Þriðjimgs fjölgun „stuðnings-
liða“
Oðru starfsliði skólanna, í alls 1.420
ársverkum fjölgaði hlutfallslega tvöfalt
meira en kennurum, eða um 11% milli
ára. Stuðnings- og uppeldisfulltrúum,
skólasálfræðingum, námsráðgjöfum og
þroskaþjálfum fjölgaði t.d. úr 160 upp
í 220. eða um rösklega þriðjung milli
ára. Arsverkum við gæslu skólabarna,
húsvörslu og gangbrautavörslu fjölgaði
úr 560 í 630, eða um 12%. Aftur á
móti fjölgaði ekkert í hókasöfnum og
heldur ekkert í mötuneytum skólanna.
- HEI
Atvinnuauglýsing í
Mogga varð tilefni um-
ræðna í pottinum. í um-
ræddri auglýsingu óskar
landh ú 11 a ð a rrá ð u n ey t i ö
eftir starfskrafti til að vinna við
skjalavörslu, í tímabundiö starf
tiJ að byrja með en síðan í hluta-
starf í framhaldi af þvl. Pottverj-
ar voru á einu máli um það í ljósi
yfirlýsinga Guðna Ágústssonar
ráðherra, að umbeðinn starfs-
kraftur hlyti til að byrja með að
eiga að gera skurk í að flokka skjöl ráðuneytis-
ins sem varða sölu bújarða en síðan í framhald-
inu bara eitthvað að sniglast eftir því sem
ástæða þykir....
Guðni
Ágústsson.
í pottinum í gærmorgun rakti
einn samviskusamur heimilis-
faðir farir sínar ekki sléttar eftir
jólainnkaup helgarinnar. Hami
hafði verið á höttunum eftir
jólasteikinni og rak augun í auglýsingu frá Bón-
us-búðunum. Þar voru hamborgarhryggir aug-
lýstir á sérstöku tilboði, gott ef ekki 20% af-
slætti, og sá okkar maður sæng sína útbreidda.
fíann skundaði í Bónus, gramsaði í kæliborðinu
og greip einn álitlegan og passlegan hrygg fyrir
sína litlu fjölskyldu. Taldi hami sig hafa gert
kjarakaup þegar hann kom heim og sýndi konu
sinni hrygginn góða. En gleðin breyttist fljótt í
martröð. Hamborgarhrygguriim var jú á 20%
afslætti en á miðanum stóð að hann væri bestur
íyxir 19. desember...
Pottverjar ræddu virkjunar- og álversmál tölu-
vert um helgina og voru sammála um að eimi
vænlegur stóriðjukostur lyrir landshyggðina
væri vanræktur með öllu. Hann er fólgimi í því
að opna nektarbúlluhöll með stórum súlnasöl-
um á Vestfjöröum eða Austfjöröum. Atvinnu-
sköpunin er augljós; tugir innlendra jafnt sem
erlendra nektardansara, ljölgim lögreglustarfa,
nýjar umboðsskrifstofur tryggingafélaga, lítil
skiltagerðaJyrirtæki, húðflúrsíyrirtæki, innrétt-
ingafyrirtæki, félagsráðgjafar, lögfræðingar, sól-
baðsstofur, húðsjúkdómalæknar, handrukkarar
og svo framvegis. Sem sé; Úrsúlur en ekki álver!
V
FRÉTTAVIDTALIÐ
Flokkuriim orðinn þreyttur
Ámi Gunnars-
son
fráfarandifonnaður SUF.
Ámi hejursagtafsérsem for-
maðurSambands ungrafram-
sóknarmanna og varaformaður-
inn tekiðvið, Einar Skúlason.
Ámi erað taka við nýju starfi
hjá eignarhaldsfélagi í sjávar-
útvegi á Sauðárkróki. Hann
segistekki vera hætturípólitík
og eráfram varaþingmaður fyr-
irPál Pétursson.
- Af hverju tókstu þá ákvörðun að hætta
sem formaður SUF?
“Ég er að taka við nýju starfi hérna á Sauð-
árkróki. Þetta er mikið og krefjandi starf og
ég sá fram á að ég hefði ekki tíma til að
sinna hvoru tveggja. Ég varð að velja á milli.
Þar sem aðeins er eftir hálft ár af mínu kjör-
tímabili, stjórnin vel mönnuð og starfsemin
í góðum gír þá ákvað ég þetta. Ég mat það
svo að ég gæti ekki sleppt þessu tækifæri."
- Hvaða rtýja starf erum við að tala um?
“Þetta er hjá eignarhaldsfélagi í sjávarútvegi
sem nefnist Fiskiðja Sauðárkróks og er í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga. Eignarhaldsfélagið
á meirihlutann í Fiskiðjunni Skagfirðingi en
ég er ekki að fara að vinna þar. Ég mun
sinna atvinnuþróunarverkefnum á vegum
Fiskiðju Sauðárkróks. Þetta er nýtt starf og
ég mun formlega byrja um áramótin."
- Nú liafa ungir framsóknannenn verið
duglegir að henda á það sem miðurfer hjá
rikisstjóminni. Hefur eitthvað verið hlustað
áykkur?
"Já, við sáum t.d. glæsilegan árangur í LIN-
málinu þegar við börðumst fyrir endurskoð-
un á lögum um lánasjóðinn. Jafnframt höf-
um við haldið uppi baráttu fyrir endurskoð-
un. á .skattalöggjöfinni með tilliti til hags-
.í.iy.K’ui'ihí- þjniÁ.j i |
muna barnafólks. Því miður er það mál ekki
enn f höfn en vonandi tekst það.“
- Þið hafið einnig verið með gagnrýni
uppi í hankasölumálum, ekki rétt?
“Jú, það er rétt. Við höfum haldið uppi tölu-
verðri gagnrýni þar. Okkur hefur Framsókn-
arflokkurinn þótt full samstíga Sjálfstæðis-
flokknum í mörgum málum og eldd látið
nógu oft sverfa til stáls.“
- Talandi um ríkisstjórnina, finnst þér
ekki vera komin þreyta í samstarfið hjá
Framsóknarflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum?
“Að vissu leyti. Það má segja að ákveðin
þreyta sé komin í Framsóknarflokkinn. Ég er
þeirrar skoðunar að framsóknarmenn þurfi
aðeins að staldra við og fara í smá naflaskoð-
un áður en Iangt um líður, hvert llokkurinn
vill stefna og fyrir hvað hann vill standa. Við
höfum, meðvitað og ómeðvitað, mark-
aðsvætt þjóðfélagið mjög mikið. Við höfum
markaðsvætt sjávarútveginn og mjólkuriðn-
aðinn með kvótasetningu og framsali í báð-
um kerfum. Við erum á fullu í því að koma
eignum ríkisins á hlutafjármarkað. Ég held
að flokkurinn þurfi að staldra við og spyrja
hvort menn séu á réttri Ieið.“
, - Þú tengisl óheint ráóherramálum í rík-
isstjórninni sem varamaður Páls Péturs-
sonar á þingi. Þú styður liann væntanlega
í þeirri baráttu að víkja ekki sæti sjáljvilj-
ugur úr ríkisstjórninni?
“Já, ég styð Pál heils hugar. Mér finnst hann
hafa staðið sig vel sem ráðherra og styð hann
í þeirri baráttu að fá að halda áfram. Ég vona
eindregið, hvernig sem þessi ntál fara, að
það takist að ganga frá þeim í sátt og sam-
Iyndi. Flokkurinn má ekki við miklum leið-
indum í málinu.“
Stefnirðu að framboði fyrir flokkinn t
næstu kosningum?
“Enginn veit sinn næturstað í pólitík en ég
stefni að framboði. Ég er alls ekki að hætta í
pólitík, frekar að skipta um vettvang, þar
sem ég er að flytja í mitt heimahérað. Ég
mun væntanlega starfa með ungum fram-
sóknarmönnum í Skagafirði og öðrum fram-
sóknarmönnum í kjördæminu. Eg er síður
en svo að draga mig til hlés í pólitík."
- Komu þau tíðindi þér á óvart úr her-
húðum Páls Péturssonar að hann ætlaði sér
i framboð í næstu þingkosnittgum?
“Nei, í raun og veru kom það mér ekki á
óvart að hann vildi halda þeim möguleika
opnum. En hvað verður úr þessu, er allt of
snemmt að segja til Lim." - «JH
Ipgílp, -iq tejtffiiln m 453W41 töþil idftp,