Dagur - 14.12.1999, Qupperneq 10
10 - ÞRIDJUDAGUR 14. 1) E S F. M B E R 1999
SMÁAUGLÝSINGAR
Ökukennsla_________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari,
Þingvallastræti 18,
heimasími 462-3837,
GSM 893-3440.
VIÐ ERUM MIÐSVÆÐIS
MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA
SÍMI 451 2617 • FAX 451 2890
Happdrætti Bókatíðinda
Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíðinda
14. desember er 68.777.
Kirkjustarf__________________________
Ljósavatnsprestakall
Sameiginlegt aðventukvöld allra sókna í
Ljósavatnsprestakalli verður I kvöld í Stóru-
tjarnarskóla og hefst kl. 21.00. Söngfélagið
Sælubót syngur undir stjórn Jaan Alavere,
börn sýna aðventuleikþátt, lesa jólasögu
og leika á hljóðfæri og sóknarpresturinn
flytur hugleiðingu. Boðið verður upp á létt-
ar kaffiveitingar i veitingasal skólans.
Sr. Arnaldur Bárðarsson.
Glerárkirkja
Kyrrðar- og tilbeiðslustund í dag kl. 18.10.
Miðvikudagur 15. desember hádegissam-
vera kl. 12-13, orgelleikur og léttur hádeg-
isverður. Fimmtudagur 16. desember opið
hús fyrir mæður og börn kl. 9-12.
Elskuleg móöir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
LAUFEY PÓRMUNDARDÓTTIR,
Reykholti, Borgarfirði
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 11. desember.
Jarðaförin fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 18.
desember nk. kl. 11:00.
Póra Þórisdóttir, Grétar Samúelsson,
Sigrún Pórisdóttir, Ámundi G. Óiafsson,
Kristján Þór Þórisson, Aðalheiður Helgadóttir,
Steinþóra Þórisdóttir, Halldór Einarsson,
Steingrímur Þórisson,
Jón Þórisson, Haildóra Þorvaldsdóttir
og aörir aöstandendur
andaðist að heimili sínu, Freyjugötu 26 Sauðárkróki,
að morgni föstudagsins 10. desember.
Börn, tengdabörn, afa og langafabörn.
ÖNDUNARSÝNAMÆLAR
ný tæki lögreglu gegn ölvunarakstri
Eftír einn ei aki neinn!
mÉUMFERÐAR •?-
liRÁÐ
nyjfl bio
RÁÐHUSTORGI
□Dl°°^l
D I G I T A L
I H X
SÍMI 461 4666
kl. 16:10,18:35, 21
og 23:30
Sýndkl. 19og21 B.1.14 ára
Sýnd kl. 23
kl. 16:50
m/fsl.tali
-íl^ur
HVAB ER A SEYÐI?
HVAR ER STEKKJASTAUR?
Möguleikhúsið hefur
nú hafið sýningar á
jólaleikritinu Hvar er
Stekkjarstaur? eftir
Pétur Eggerz. Leikritið
var frumsýnt fyrir jólin
1996 og hefur verið
sýnt fyrir hver jól síðan
við miklar vinsældir.
I leikritinu segir frá því
þegar það gerist eitt
sinn fyrir jólin að
Halla, aðalpersóna
Ieikritsins, veitir þ\ í at-
hygli að Stekkjarstaur
kemur ekki á tilsettum
tíma til byggða. Þar
sem enginn virðist ætla
að gera neitt til að
kanna hvernig á þessu
standi ákveður hún að
leggja af stað til að leita
að honum. Eftir nokkra leit og ævintýri, finnur hún loks Stekkjar-
staur í helli sínum í Esjunni. Það kemur í ljós að jólasveinunum er
orðið svo illa við ysinn og þysinn í mannheimum að þeir hafa
ákveðið að hætta við að fara til byggða. Það verður því verkefni
Höllu að sýna Stekkjastaur fram á nauðsyn þess að jólasveinarnir
haldi áfram að koma til byggða.
Leikstjóri er Pétur Eggerz, leikarar Drífa Arnþórsdóttir og Bjarni
Ingvarsson. Leikmynd og búningar voru í höndum leikhópsins.
Leikritið verður sýnt á leik- og grunnskólum á höfuðborgarsvæð-
inu, auk þess sem sýnt verður á Vestur- og Norðurlandi.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Jólasýning á Rauðarárstígnum
Laugardaginn 12. desember
var opnuð hin árlega jólasýning
í baksalnum í gallerí Fold á
Rauðarárstígnum. Þar er sýn-
ing á úrvali verka eftir gömlu
meistaranna. I fremri hluta
gallerísins eru verk núlifandi
listamann. Islensk list í jóla-
pakkana. Islensk listaverk eru
ávallt kærkomin í jólapakkana.
Heitir drykkir og piparkökur.
Frá 1. til 15. desember verður
opið í Gallerí Fold frá ld. 10.00
til 18.00 (18:30 í Kringlunni)
alla daga nema sunnudaga, en
þá verður opið frá kl. 13.00 til
17.00.
Jólasveinarnir í ráðhúsi
Reykjavíkur
Islensku jólasveinarnir 13 leggja
leið sína í ráðhús Reykjavíkur
síðustu 13 dagana fyrir jól og
heilsa þar upp á börn og full-
orðna. Það eru Þjóðminjasafn
íslands og Möguleikhúsið sem
hafa milligöngu um heimsókn-
ir sveinanna. I ár koma þeir í
nýjum búningum sem íslenskt
handverksfólk hefur saumað
og prjónað handa þeim undir
forystu og fyrirsögn Bryndísar
Gunnarsdóttur kcnnara. í dag
er von á Stúf. Miðvikudaginn
15. des. Þvörusleiki, fimmtu-
daginn 16. des. Pottasleiki og
föstudaginn 17. des. Askasleiki.
Félag eldri borgara Ásgarði,
Glæsibæ
Kaffistofan opin alla virka daga
frá kl. 10-13.30. Skák í dag kl.
13. Alkort kennt og spilað kl.
13.30. Bókmenntakynning
verður haldin miðvikudaginn
15. desember kl. 13.30 í Ás-
garði. Kynntar verða nýjar og
eldri barna- og unglingabækur.
Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins í síma 588-211 1 frá kl. 9-
17.
LANDIÐ
Tónlistaskólinn á Egilsstöðum
Jólatónleikar Tónlistarskólans
á Egilsstöðum verða haldnir í
dag kl. 16.30 á Hallormsstað.
Miðvikudagskvöldið 15. des-
ember flytur söngdeild skólans
jólasöngva í hátíðarsal Alþýðu-
skólans að Eiðum. Lokatón-
leikar verða svo í Egilsstaða-
kirkju fimmtudaginn 16. des-
ember kl. 19.30. Aðgangur
ókeypis.
FRA DEGI TIL DAGS
ÞRIÐJUDAGURINN 14. DESEMBER
348. dagur ársins, 17 dagar efitir.
Sólris kl. 11.13, sólarlag kl. 15.31.
Þau fæddust 14. desember
• 1546 fæddist danski stjörnufræðing-
urinn Tycho Brahe.
• 1890 fæddist norski rithöfundurinn
Sigurd Hoel.
• 1895 fæddist franska skáldið Paul
Éluard.
• 1901 fæddist Páll, konungur Grikk-
lands 1947-64.
• 1923 fæddist bandaríski leikarinn Ric-
hard Gere.
• 1924 fæddist indverski kvikmynda-
leikarinn Raj Kapoor, sem er mikil
stjarna í Indlandi og víðar í Asíu.
• 1935 fæddist bandaríska Ieikkonan
Lee Remick.
• 1950 fæddist Guðrún Pétursdóttir Iíf-
eðlisfræðingur.
• 1951 fæddist Guðmundur Ólafsson,
leikari og rithöfundur.
Þetta gerðist 14. desember
• 1913 tóku Grikkir formlega til sín völd
á Krít.
• 1927 hlaut írak sjálfstæði, en breski
herinn dvaldist þó áfram í landinu.
• 1981 innlimuðu Israelsmenn Gólan-
hæðir, sem þeir höfðu hertekið árið
1967.
• 1989 voru haldnar fyrstu Iýðræðislegu
kosningarnar í Chile frá því Pinochet
hershöfðingi gerði þar valdarán árið
1973.
• 1911 komst Norðmaðurinn Roald
Amundsen til Suðurskautsins, fyrstur
manna.
Vísa dagsins
Það er vandi að velja sér
vtf í standi þrifa,
en óláns fjandi ef illa fer
í því bandi að lifa.
Sigurður Breiðfjtírð
Afmælisbam dagsins
Hannes Pálmi Pétursson rithöfund-
ur fæddist 14. desember árið 1931
á Sauðárkróki. Að loknu stúdents-
prófi tók hann kandídatspróf í ís-
lenskum fræðum frá Háskóla Is-
lands og nam síðan í Köln og
Heidelberg. Hann gaf’ út sína fyrstu
Ijóðabók árið 1955 en síðan hefur
hann gefið út Qölda bóka. Auk þess
að skrifa sínar eigin bækur hefur
Hannes verið mikilvirkur þýðandi.
Öryggi er að mestu leyti hjátrú. Það er
ekki til í náttúrunni.
Helen Keller
Heilabrot
Hvaða blöð eru það, sem enginn maður
getur án verið?
Lausn á síðustu heilabrotum: Fjórði
sonurinn hlýtur að vera Áki, sá er fyrst var
nefndur.
Veffang dagsins
Almanak Háskóla Islands er hið merkasta
rit, eins og margir vita, og síður Almanaks-
ins á netinu eru ekki síður fróðlegar:
www.almanak.hi.is - þar er m.a. að finna
drjúgt efni um hið umdeilda mál: hvenær
aldamót verða.