Dagur - 21.12.1999, Blaðsíða 6
22- ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1999
LIFIÐ I LANDINU
SMATT OG STORT
UMSJON:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Sighvatur Björg-
vinsson.
Steingrímur J.
Sigfússon.
Miuutræpan og skallinn
Pað er rétt
að vera með
sérstakan
vísnaþátt að
þessu sinni,
enda hafa
mér borist
margar góð-
ar vísur að
undanförnu.
Sighvatur
Björgvins-
son orti
þessa vísu
eftir að þeir
Jón Bjarna-
son og
Steingrímur
J. Sigfússon
höfðu farið í
ræðustól æ
ofan í æ á
Alþingi og
gert grein fyrir atkvæði sínu
við atkvæðagreiðslu um íjár-
lagafrumvarpið, svo mörgum
þótti nóg um.
Jón á Hólum heldur margar
rœður,
hafa nokkrir fleiri þennan
galla.
Steingrímur og hann sem
bestur bræður,
báðir hafa munnrœpu og
skalla.
Tóti tölvukall
Pað hafa
margir gam-
an af að
fylgjast mað
Halldóri
Blöndal í
forsetastóli
á Alþingi
enda takt- Hjálmar Jónsson.
arnir h'flegir
og fram-
koman oft á tíðum stórfeng-
leg. Steingrímur J. Sigfússon
orti þessa vísu þegar Halldór
átti í einhverjum vandræðum
með tölvuna sem skráir nið-
urstöður atkvæðagreiðslu í
þingsalnum:
Forsetans er fasið kátt
og fallega er hann klœddur.
Silfurgráa hausnum hátt
hnykkir tölvuvœddur.
Hjálmar Jónsson bætti við:
Einatt stundar bögubrall
bjöllu oft þó klingi.
Nú er Tóti tölvukall
tekinn að stjórna þingi.
Þessi varð til í blaðamanna-
stúku Alþingishússins af
sama tilefni:
Eftir bjöllu alltaf man,
unir í stólnum glaður,
en virðist stundum viðutan
og vitlaust forritaður.
Valgerður á Lómatjöm
Valgerður
Sverrisdóttir
er bóndi að
Lómatjöm f
Grýtubakka-
hreppi. Hún
heitir eftir
ömmu sinni
sem einnig Valgerður
þjó að Sverrisdóttir.
Lómatjön. -----"
Um ömmu
Valgerðar var þessi vísa ort.
Það mim hafa verið húskarl
hennar sem það gerði. Þykir
mörgum sem vísan gæti vel
áttvið Valgerði yngri:
Skyldurœkin, skörp að vinna,
skemmtileg og framagjöm.
Vel um búið vön að sinna,
Valgerður á Lómatjöm.
.... .. i --------------—
FINA 00 FRÆGA FOLKIÐ
Emma
orðin
mamma
Leikkonan Emma Thompson fæddi dóttur
á dögunum. Faðirinn er unnusti hennar
til fjögurra ára, leikarinn Greg Wise en
þau kynntust þegar þau léku saman í
myndinni Sense and Sensibility, sem gerð
var eftir sögu Jane Austen. Fyrir tveimur
árum missti Emma fóstur og var nokkuð
lengi að jafna sig eftir þann missi. Hún
segist vera í sjöunda himni yflr litlu dótt-
ur sinni. Foreldrarnir hafa ekki ákveðið
nafn á afkvæminu. Emma segist hafa ver-
ið að hugsa um nöfnin Klementína eða
Winston en faðirinn hefur harðlega mót-
mælt þeim tillögum. Meðan þau deila um
nafngiftir kalla þau litlu stúlkuna
Jane.com, til heiðurs Jane Austen.
Emma Thompson ásamt sambýlismanni sínum
Greg Wise og nýfæddri dóttur þeirra.
p ^ if ir ■ ii n n ii i n
Iiðs-
myndin
Knattspyrnufélag teiknimyndahetja er
komið í bikarúrslit. En eitthvað skol-
aðist til á liðsmyndinni. Á neðri mynd-
inni eru fimm atriði sem ekki eru eins
og á þeirri efri. Getið þið fundið út
hver þau eru?
Abending Skralla
„Ætli bókhaldið sé í ólagi hjá Grýlu?
Hún er sko algjör leppalúði, veit ekki
ennþá hvar ég á heima og bara þrír
dagar til jóla.“
Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriltin er:
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akureyri
Tölvupóstur: pjetur@dagur.is
STJORNUSPA
Vatnsberinn
Gefðu 2000 jóla-
gjafir til öryggis.
Þá skapast ekk-
ert vandamál.
Fiskarnir
Ekki borga meira
en 2000 kall fyrir
hverja jólagjöf.
Enginn á dýrari
jólagjöf skilið.
Hrúturinn
Rjúpan leggur sig
á 500 kall.
Kauptu sléttar
fjórar rjúpur á
2000 krónur og
gæsir fyrir af-
ganginn.
Nautið
Sendu sjálfum þér
það sem upp á
vantar til þess að
þú fáir 2000 jóla-
kort. Allur er var-
inn góður.
Tvíburarnir
Nú eru liðin 2000
ár frá því forfaðir
þinn fæddist,
herúlinn Svarrkr.
Haltu upp á þessi
tímamót.
Krabbinn
Gefðu út úrval úr
Ijóðum þínum,
slétt 2000 Ijóð.
En ekki gera ráð
fyrir metsölu.
Ljónið
Flyttu úr bænum
þegar íbúafjöld-
inn fer yfir 2000
manns. Það kann
ekki góðri lukku
að stýra.
Meyjan
Hjónabandið hef-
ur staðið yfir í
2000 daga um
áramótin og tími
til kominn að
skilja og tengja
við einhvern ann-
an.
Vogin
Það má telja
2000 vanda þeg-
ar þér hættir að
standa. Kauptu
þér vasalyftara á
2000 kall.
Sporðdrekinn
Seldu 2000 tonn
af kvótanum og
gefðu Mæðra-
styrksnefnd
ágóðann. Þú sef-
ur betur á eftir.
Bogamaðurinn
Semdu texta um
2000 tonn af
sandi og fáðu
Lúdó og Stefán til
að sýngja lagið
inn á plötu. Það
verður hittið á
nýju ári.
Steingeitin
Þú ert aðeins
heimsfrægur í
augum 2000
manna. En það er
alveg nóg í ekki
stærri bæ.