Dagur - 15.01.2000, Síða 10
t'' - 4DOS a llf k\S\ y\
10 — LAVGARDAGUR 8. JAXÚAR 2000
FRÉTTIR
Stoke-bréfm uppseld
Almennu útboði á hlutabréfum í Stoke
Holding S.A. er lokið og seldust alls 450
þúsund hlutir að markaðsvirði tæplega
70 milljónir króna á aðeins tveimur dög-
um. Hlutabréfin voru seld í gegnum
heimasíðu Kaupþings og skráði fjöldi
kaupenda sig beint með þeim hætti. Alls
keyptu um 360 einstaklingar hlutabréf í
félaginu og eru hlutafar því samtals um
380 að útboðinu loknu. Verðbréfamiðlar-
ar Kaupþings höfðu varað ijárfesta við að
um talsvert mikla áhættufjárfestingu væri
að ræða í þessu ensk/íslenska knatt-
spyrnufélagi. Viðbrögðin sýna, svo ekki
Guðjón Þórðarson. verður um villst, að íslenskir fjárfestar
hafa mikla trú á Guðjóni Þórðarsyni og
hans lærisveinum.
Sótt hefur verið um auðkenni fyrir Stoke Holding S.A. á Opna til-
boðsmarkaðnum til að byrja með en engin ákvörðun hefur verið tek-
in um skráningu félagsins á skipulegum verðbréfamarkaði.
Telja að Vatneyrardómur verði stað-
festur
Mikill meirihluti þeirra sem greid-
du atkvæði á visir.is um spurningu
Dags er sannfærður um að Hæsti-
réttur muni staðfesta Vatneyrar-
dóminn. Þátttaka í atkvæðagreiðsl-
unni var óvenju mikil að þessu
sinni - hátt á þriðja þúsund not-
endur netsins tóku afstöðu.
Spurning Dags hljóðaði svo: Telurðu að Vatneyrardómurinn verði
staðfestur í Hæstarétti? Mikill meirihluti, eða 62 prósent, svöruðu
því játandi, en aðeins 38 prósent voru á öndverðum meiði.
Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja Dags-spurningu á visir.is -
en hún er svohljóðandi: „Munu íslenskir fjárfestar tapa á Stoke?“
vísir.is
Alagningarreglur árið 2000
Sveitarstjóri Hvolhrepps, Ágúst Ingi Ólafsson, lagði á fundi sveitar-
stjórnar í desembermánuði fram eftirfarandi tillögu um álagningar-
reglur fyrir árið 2000. Útsvar verður 12,04%, fasteignaskattur-A
0,4% af álagningarstofni, fasteignaskattur-B 1% af álagningarstofni,
lóðarleiga 1% af lóðarhlutamati, vatnsskattur 0,14% af álagningar-
stofni, holræsagjald 0,25% af fasteignamati, sorphreinsunargjald
7.400 krónur á íbúð/poka, lágmarks sorpeyðingargjald 2.500 krónur,
lágmarks vatnsskattur 5.200 krónur, hámarks vatnsskattur á sveita-
býli 33.500 krónur og aukavatnsgjald á stórnotendur 250.000 krón-
ur. Veittur verður afsláttur af fasteigna- og þjónustugjöldum vegna
staðgreiðslu og til aldraðra og öryrkja. Af fasteignaskatti 25% til
100% afsláttur með tilliti til tekjutryggingar, af holræsagjaldi 12,5 til
50% afsláttur með tilliti til tekjutryggingar og staðgreiðsluafsláttur
3% sé greitt fyrir 28. febrúar 2000. Sveitastjórnarfundinn sátu Pálína
Björk Jónsdóttir, Oddur Árnason, Guðrún Ósk Birgisdóttir, Ámý
Hrund Svavarsdóttir, Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri og Guðmund-
ur Svavarsson, oddviti.
Hækkað framlag til Hvolsskóla
Við endurskoðaða íjárhagsáætlun 1999 var framlag til Hvolsskóla
hækkað um 9,5 milljónir króna vegna byggingar lausra kennslustofa.
Framlag til innlausnar á félagslegum íbúðum verði 1,7 milljónir
króna, rekstur verður óbreyttur í heild sinni en fært verði á milli ein-
stakra rekstrarliða þar sem þess gerist þörf. Gjaldfærð fjárfesting
verður óbreytt í heild sinni en fært verði á milli einstakra liða. Eign-
færð fjárfesting hækkar um 1 milljón króna vegna eftirfarandi æsku-
Iýðs- og íþróttamála, 450 þúsund krónur (plan við íþróttamiðstöð),
hlutafjárkaup 250 þúsund krónur í Forminnréttingum og til reksturs
véla 300 þúsund króna vegna kaupa á fjölnotavél. Sveitarstjóra var
jafnframt heimiluð lántaka allt að 13 milljónir króna og einnig að yf-
irtaka Ián vegna innlausnar á félagslegum íbúðum.
Kvennakórinn Ljósbrá með frí afnot
af Hvoli
Kvennakórinn Ljósbrá hefur óskað eftir endurgjaldslausum afnotum
af félagsheimilinu Hvoli til æfinga eftir áramót. Sveitarstjórn sam-
þykkti það að höfðu samráði við húsnefnd. -GG
2% kaupmátt-
ar rýrmrn 1999
Kaupmáttur fólks á
taxtákaupi hefur
miuukað um 2% á
einu ári segir ASÍ.
Þar að auki var skatt-
byrði láglauuafólks
stórauMn í fjárlög-
um.
„Stjórnvöld verða að leggja fram
skýra launastefnu. Þau hafa
tekið allt frumkvæði í launamál-
um og komast nú ekki hjá því að
hækka laun ASI-fólks í samræmi
við hækkanir annarra stétta sem
starfa á sömu vinnustöðum.
Stjórnvöld geti ekki krafið þá
hópa launafólks sem orðið hafa
fyrir 2% kaupmáttarrýmun á síð-
astliðnu ári um að sýna nú hóf-
semi í þágu almannaheilla," seg-
ir í yfirlýsingu frá ASI.
Alþýðusambandið segir 5,8%
verðbólgu síðustu 12 mánuði óá-
sættanlega, enda sé hún 2% um-
fram samningsbundnar launa-
hækkanir. Kaumáttur þeirra sem
ekki njóti launaskriðs hafi því
rýrnað um 2%. Atvinnurekendur
bjóði verkafólki nú 3,5% Iauna-
hækkun, sem þýði kaupmátt-
arrýrnun miðað við óbreytt
ástand.
Skattbyrði aukin - á öfugan
hátt
Að auki sé skattbyrði launafólks,
sérstaklega lágslunafólks, hækk-
uð í Ijárlögum ársins 2000, með
minni hækkun skattleysismarka
en launanna. Þessi raunlækkun
skattleysismarkanna hefur, eftir
útreikningum ASI, sömu áhrif
fýrir ríkissjóð og 1 % hærri skatt-
prósenta. Áhrifin á tekjuskipt-
inguna í þjóðfélaginu séu aftur á
móti gjörólík. Sú leið sem valin
var sé láglaunafólki mjög í óhag
og vinni á móti óskum stjórn-
valda um „hófsamar" Iauna-
hækkanir.
Litlar launahækkanir fyrir al-
mennt verkafólk í komandi
kjarasamningum virðist líka hel-
sta úrræðið í máli atvinnurek-
enda. En reynsla síðustu ára
staðfesti að hófsamir kjarasman-
ingar tryggi ekki stöðugleika.
Áhrifin séu aðallega þau að þeir
sem taka laun samkvæmt samn-
ingum dragist afturúr.
Ríkið ekki stikkfrí
„Alþýðusambandið ætlast til
þess að stjórnvöld axli ábyrgð og
skýri almenningi frá því hvernig
þau hyggjast koma á stöðugleika
og Iágri verðbólgu að nýju, og
hafnar því að stjórnvöld sitji hjá
og kalli aðila vinnumarkaðarins
eina til ábyrgðar,“ segir í yfirlýs-
ingunni og jafnframt að þróunin
næstu vikur og mánuði ráðist
öðru fremur af aðgerðum stjórn-
valda. Ovissa grafi undan mögu-
leikum á friði á almennum
vinnumarkaði og auki verð-
bólguhættuna.
Ódýrara í EES - dýrara hér
Það veldur verulegum áhyggjum
hjá ASI að flestir liðir vísitölu
neysluverðs hafa hækkað síð-
ustu mánuði og ekkert Iát á inn-
lendri eftirspum. Lág verðbólga
undanfarinna ára skýrist að stór-
um hluta af hagstæðu verði á
innfluttum neysluvörum. í lönd-
um Evrópusambandsins hafi til
dæmis verð á mata- og drykkjar-
vörum lækkað síðustu 12 mán-
uði á sama tíma og það hækkaði
um 5,4% hér á landi. ASÍ óttast
að íslenskt efnahagslíf sé að fær-
ast inn í hið gamalkunna verð-
bólgugangverk þar sem hver
hækkunin leiðir aðra, án sýni-
legra ástæðna. -HEI
Rykfallin raimsókn
Samkvæmt upplýsingum frá
Samkeppnisstofnun hefur rann-
sóknin á dagvörumarkaðnum,
sem boðuð var á síðasta ári, ekki
enn komist af stað fyrir alvöru
vegna anna í öðrum málum. En
nú stendur til að bæta úr og verð-
ur rannsóknin sett í fullan gang á
næstu dögum. „Verkefnið hefur
hálfpartinn verið á ís. Það var
ætlun okkar að dusta rykið af
þessu núna því við höfum losað
okkur undan mesta álaginu sem
verið hefur,“ sagði starfsmaður
stofnunarinnar í samtali við Dag.
Eins og kom fram í viðtali í
blaðinu í gær við framkvæmda-
stjóra Samtaka verslunarinnar,
Stefán S. Guðjónsson, voru sam-
tökin óbeint að ýta á eftir Sam-
keppnisstofnun í lítilli grein í
fréttabréfi samtakanna þar sem
sagt er frá sterkum orðrómi um
meint verðsamráð á dagvöru-
markaðnum. Orðrómurinn er
þess efnis að samkeppnisaðilar
hafi með sér samráð um verðlagn-
ingu í stórmörkuðunum. Þegar
þetta var borið undir Samkeppn-
isstofnun fengust ekki viðbrögð
að svo stöddu. Orðrómurinn yrði
eitt af verkefnum rannsóknarinn-
ar sem nú yrði sett á fullt. -BJB