Dagur - 15.01.2000, Síða 11
X^Ml-
LAUGARDAGUR 1S. JANÚAR 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L.
Hræðilegt ástand ríkir í suðurhluta Súdan þar sem stríðsátök, þurrkar og flóð hafa kallað hungursneyð yfir íbúana
- þar á meðal þessi börn í Bahr-el-Ghasal.
Þriggia
vopnahl
ia mánaða
é í Súdan
Hátt í tvær miUjóuir
manna hafa látið lífið
vegna stríðs og hung-
urs í suðurhluta Súd-
an.
Hryllilegt ástand almennings í
suðurhluta Súdan hefur leitt til
þess að skæruliðar sem barist
hafa árum saman við stjórnar-
herinn í landinu hafa tilkynnt
vopnahlé næstu þrjá mánuðina.
Akvörðunin gildir frá deginum í
dag, að því er talsmaður Þjóð-
frelsishers Súdans, SPLA, tjáði
fréttamönnum í gær.
Vopnahléð nær ekki aðeins
yfir vesturhluta landsins, Bahr el
Ghazal, þar sem íbúarnir hafa
lengi búið við hungursneyð,
heldur verður bardögum einnig
hætt í suðurhéruðum kringum
Nílarfljótið. Þar hefur Iangvar-
andi stríð, miklir þurrkar og síð-
an alvarleg flóð gert daglegt líf
manna óbærilegt.
Talið er að hátt í tvær milljón-
ir manna hafi látið lífið í borg-
arastyrjöldinni sem háð hefur
verið í Súdan allt frá árinu 1983.
Uppreisnarmenn eru flestir
kristinnar trúar, en Múslimar
hafa lengi farið með stjórn
landsins og látið sig vandræði
sunnanmanna og ósk um sjálfs-
stjórn litlu varða.
Bætt sambúð við Uganda
Að undanförnu hafa stjórnvöld í
Súdan og nágrannaríkinu Ug-
anda átt í viðræðum um bætta
sambúð - en vopnaðar sveitir
hafa átt í átökum á landamærum
ríkjanna árum saman. Hitnaði
reyndar svo alvarlega í kolunum
vorið 1995 að Uganda sleit
stjórnmálasambandi við Súdan.
Nú hafa ríkisstjórnir Iandanna
náð samkomulagi um að taka
aftur upp stjórnmálasamband og
koma á viðskiptum svo sem áætl-
unarflugi milli höfuðborganna.
Samtímis var 72 súdönskum
stríðsföngum, sem verið hafa í
fangelsi í Uganda í þrjú ár, skil-
að til síns heima. Talið er að
þúsundum barna hafi verið rænt
í landamærahéruðunum síðustu
árin, bæði í Súdan og Uganda,
en nú er boðað að þau fái að
snúa heim.
Irving framseldur?
Þýsk stjórnvöld hafa óskað eftir
því við Breta að sagnfræðingur-
inn David Irving verði framseld-
ur til Þýskalands til að svara þar
til saka fyrir rétti vegna yfirlýs-
inga sem hann gaf á samkomu
þýskra nýnasista fyrir nokkrum
árum. Irving hefur hingað til
komið sér undan því að mæta
fyrir þýska dómstólnum.
Irving, sem er 62 ára, hefur
lengi verið afar umdeildur vegna
hrifningar sinnar á Adolf Hitler
og fáránlegra skrifa um helför
gyðinga. Það er einmitt vegna yf-
irlýsinga þar að lútandi á sam-
komu í Weinheim skammt frá
Stuttgart á vegum þýska nýnas-
istaflokksins NPD árið 1990
sem þýsk stjórnvöld hafa ákært
hann - meðal annars fyrir að lýsa
því yfir að helförin hafi aldrei átt
sér stað sem skipuleg útrýming
gyðinga af hálfu nasista. Sam-
kvæmt þýskum lögum er bannað
að afneita sögulegum staðreynd-
David Irving: verður hann fram-
seldur til Þýskalands?
um um helförina og liggur við
því hörð refsing eða allt að þrig-
gja ára fangelsi.
Foringi NPD var dæmdur til
fangelsisvistar fljótlega eftir fyrr-
nefnda samkomu, en réttarhöld
gegn Irving féllu niður þar sem
hann mætti ekki. En fyrir fimm
mánuðum síðan fóru þýsk
stjórnvöld formlega fram á fram-
sal Irvings þannig að hægt væri
að Ijúka málinu.
Meiðyrðamál í Bretlandi
Irving á þessa dagana í meið-
yrðamáli í Bretlandi gegn banda-
rískum sagnfræðingi, Deborah
Lipstadt, og Penguin Books for-
laginu. Tilefnið eru yfirlýsingar
sagnfræðings um Irving í nýrri
bók - „Denying the Holocaust" -
en þar er honum lýst sem áköf-
um aðdáenda Adolf Hitlers sem
hafi umsnúið sögulegum stað-
revndum í skrifum sínum.
Fékk tvo nýja handleggi
I íyrsta sinn í sögunni hefur læknum
tekist að græða tvo nýja handleggi á
sjúkling sem missti þá báða í alvarlegu
vinnuslysi fyrir nokkrum árum. Um
fimmtíu manna starfslið sjúkrahúss í
Lyon í Frakklandi vann að þessari að-
gerð - þar á meðal átján skurðlæknar -
en hún stóð í sautján klukkustundir.
Maðurinn með nýju handleggina er 33
ára gamall Frakki, en hann hefur ekki
enn verið nafngreindur opinberlega.
Sagt er að líðan hans sé eftir atvikum
góð, en hins vegar kemur ekki strax í ljós hvort hann getur notað
handlegginá með eðlilegum hætti.
Rússar skamma
Bandaríkj amenn
Rússar hafa brugðist reiðir við
þeirri ákvörðun bandarískra
stjórnvalda að ræða við utanríkis-
ráðherra Téténíu, Ilías Akhma-
dov, en hann hefur verið á ferð í
Bandaríkjunum og meðal annars
hitt starfsmenn bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins. Igor Ivanov,
utanríkisráðherra Rússlands,
sagði slíkar viðræður stuðning við
aðskilnaðarsinna og hryðjuverka-
menn. Bandaríkjamenn hafa
gagnrýnt hernað Rússa í Téténíu,
einkum vegna þess að hann bein-
ist í rfkum mæli að óbreyttum
borgurum, og hvatt til pólitískrar
lausnar.
Fimm Króatar dæmdir í Haag
Fimm Króatar frá Bosníu hafa verið dæmdir íyrir stríðsglæpi. Dóm-
stóll Sameinuðu þjóðanna í Haag dæmdi þá í allt að 25 ára fangelsi
fyrir fjöldamorð á óbreyttum borgurum. Réttarhöldin hafa staðið yfir
í 18 mánuði og báru 158 einstaklingar vitni um glæpi hinna ákærðu
- en þeir drápu meira en hundrað karla, konur og börn í Iitlu þorpi í
Bosníu 16. apríl árið 1993. Einn hinna ákærða var sýknaður.
Nýr forseti í Guatemala
Lögfræðingurinn Alfonso Portillo hefur tekið
við embætti sem nýr forseti f Guatemala, en
hann hlaut 68 prósent atkvæðanna í forseta-
kosningum í desember sfðastliðnum. Þetta er
í fyrsta sinn í tæpa fjóra áratugi sem nýr for-
seti tekur við völdum í landinu á friðartím-
um. Portillo var marxisti fyrr á árurn en varð
síðan handgenginn fyrrum einræðisherra
landsins, Efrain Rios Montt, en í valdatíð
hans voru hrikaleg mannréttindabrot framin
í Guatemala.
Sautjáu fórust í
fLugslysinu
Nú er vitað að sautján manns
hið minnsta hafi farist með
svissnesku flugvélinni sem
hrapaði í hafið við strönd Líbýu
í vikunni. Þeir voru frá Bret-
landi, Kanada, Króatíu, Filipps-
eyjum og noklcrum fleiri lönd-
um. Fimm er enn saknað, en
nítján manns lifðu flugslysið af.
Stj ómaraudstæðiugar
ákærðir
Stjórnvöld í Malaysíu hafa enn á ný beitt
dómstólum landsins gegn leiðtogum
stjórnarandstæðinga. Meðal hinna
ákærðu er lögmaðurinn Karpal Singh
sem hefur lengi verið gagnrýninn á stefnu
og störf forsætisráðherra landsins, Ma-
hathir Mohamad, og tók meðal annars að
sér vörn Anwar Ibrahim sem dæmdur var
í sex ára fangelsi fyrir samkynhneigð.
Stjórnarandstæðingarnir eru sakaðir um
undirróður og landráð og eiea yfir höfði ... . ,, , „. ,
ser margra ara tangelsi. --------
Stríðsrekstur Rússa í Téténíu kem-
ur illa niður á almenningi.
í fyrsta sinn hefur tekist að
græða tvo handleggi á sjúkling.