Dagur - 08.02.2000, Blaðsíða 3

Dagur - 08.02.2000, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGU R 8. FEBRÚAR 20 00 - 19 Xfc^MT BRÉF TIL KOLLU Elsku Kolla Á dögum Loðvíks flmmt- ánda var, að sögn, stund- að mikið og ijörugt ástalíf við frönsku hirðina. Allra bragða var neytt til að koma fólki til, kveikja með því löngun til ásta. Matar- gerðarlist var í hávegum höfð. Sumir réttir voru taldir örva kyngetuna meir en aðrir. Hirðmeyjar tældu konung- inn til fylgilags með íburðarmiklum losta- réttum. Konungurinn hafði hins vegar of- urtrú á innyflum dýra sem lostalyfi. Mælti svo fyrir að Madama Pompadour skyldi neyta hrútspunga til að ráða bót á ófrjó- seminni. Með hrútspungunum var borinn fram kryddaður súkkulaðidrykkur. Ekki er nú vitað, hvort þetta gerði hinni göfugu frú nokkuð gott. Bæði fóru þessi hjú undir fallöxina án þess að verða barna auðið. Ilrútspungar voru kallaðir „am- ourettes". Útleggst á íslenzku“ástarhnoðr- ar“. Hnoðrarnir voru ekki lagðir í súr við frönsku hirðina,heldur skornir í þunnar sneiðar, velt upp úr hveiti ásamt salti og pipar. Síðan snöggsteiktir á pönnu. Born- ir fram með fersku salati í olíu og sítrónusafa. Hvað segirðu um þetta, Kolla? Hefur það nokkurn tfma hvarflað að þér, eða nokkrum íslendingi yflrleitt, að tengja hrútspunga við kynlíf? Að vísu var eitt- hvað verið að gantast með pungsnafnið á þorrablótum fyrir, vestan. Mikið flissað og klappað á axlir. En á Suðurlandi þótti dónalegt að tala um kynlíf, ástarbríma, lostalyf. Sussu svei. Mamma hefði vísað mér á dyr, hefði ég tekið mér þetta orð í munn í hennar húsum. Hétu ekki hrútspungar kviðsvið um tíma? Kynlíf var algert tabú. Jafnvel enn, þegar ég var á mínum sokkabandsárum eftir miðja öld- ina. Enda hvað heldurðu, að fólk hafi get- að stundað kynlíf í baðstofunum í gamla daga! Innan um barnaskríl og forvitna unglinga. Kynlíf var ekki hluti af lífs- nautninni. Kynlíf var dýrsleg útrás í þeim eina tilgangi að viðhalda mannkyninu. Á íslandi fyrri alda voru fáar nautnir. Á meðan franska hirðin lék á als oddi, daðraði í silkisokkum, hámaði í sig steikta hrútspunga, drakk sjóðheitt súkkulaði og hélt að lífið snerist um það eitt að skemmta sér, voru forfeður okkar að berjast fyrir lífinu. Þeir voru að reyna að lifa af. Kulda, vosbúð, hungur. Þeir lögðu sér til munns hvern einasta líkams- part skepnunnar - af illri nauðsyn, vænt- anlega. Ekki til að örva ástarlífið! Hérna megin hafsins er allt svo stórt. Ameríkanar fúlsa við hrútspungum, auð- vitað. Ailt of litlir. En þeir borða hins veg- ar tarfapunga. Bragðmiklir og seðjandi, að sögn. Eins og þú veizt, þá eru Amerík- anar miklir hreintrúarmenn. Mega ekki vamm sitt vita. Kalla tarfapunga „gresju- ostrur"! - Jafn teprulegt og „kviðsvið". Þorrablót í Washington í upphafi þorra gerði ég átak í því að kynna íslenzka menningu og matarsiði. Bauð hingað heim hálfu hundraði amer- ískra hefðar- og menntakvenna. Fékk heimsþekkta, íslenzka trúbadúra til að syngja þorralög. Bar á borð alræmdan þorramat. Sviðakjamma, bringukolla, há- karl, hrútspunga, harðfisk og hangikjöt. Húsið angaði. Regluleg þorrastemning. Þú hefði átt að heyra, hvað þær flissuðu, þegar ég útskýrði fyrir þeim réttina. Þórhildur, vinkona mín hér í Wash- ington, kann að matreiða íslenzkan mat betur en aðrar. Hún stóð við borðstofu- borðið með stóran kuta og skar ofan í konurnar bita af kjömmunum - augu og eyru og tungur. Allar vildu bragða á þessu hnossgæti, jafnvel hákarli og hrútspung- um. Svei mér þá ef þær sneru ekki heim með eftirvæntingarglampa í augunum. Ég sagði þeim nefnilega söguna um ástar- hnoðrana við frönsku hirðina! Annars er ég farin að bíða þess með óþreyju, að þorranum linni. Hér hefur verið stormbeljandi vikum saman. Ekki hundi út sigandi. Frosthörkur og snjó- koma. Ég hef orðið að leggja af göngu- ferðir. (Það er svo dýrt að fótbrjóta sig hérna). Samkvæmt þjóðtrúnni á þorranum að ljúka hér um svipað leyti og heima. Sagan segir að ef sólin nær að skína ann- an dag febrúarmánaðar, þannig að íkorn- inn geti elt skuggann af sjálfum sér, þá verði sumarkoma þremur vikum seinna. - Merkileg bændavísindi. í landi tækninnar! Þetta verður ekki lengra að sinni, elsk- an, en mig langar til að bæta við upp- skrift af fíkjuís, sem ég fann líka í bókinni um Loðvík fimmtánda. Fíkjur eru auðvitað nautnalegur ávöxtur. Tengist mjög hug- myndum rnanna um kynlíf. Upplagt að bera þær fram á eftir hrútspungunum. Bíða þess svo, að ástarbríminn bæri á sér! Blanda saman mjólk (soðinni og kældri), rjómaosti, flórsykri og smátt skornum, ferskum fíkjum. Allt sett í hrærivél. Síðan í frysti. Það er allt og sumt. Einfalt, en áhrifamikið! Með kveðju, Bryndís MENNINGAR LÍFIÐ Nýtt leikrit Hrafnhildar Hagalllt Gunnþóra Það verða að telj- Gunnarsdóttir ast tíðindi að nýtt leikverk eftir Hrafnhildi Hagalín verð- ur frumsýnt síðar í þessum mánuði, nánar tiltekið þann 24. Leikritið heitir Hægan El- ektra. Þar tekst höfundur meðal annars á við samband móður og dóttur, leikhúsið sjálft og tengsl lífs- ins og list- arinnar. Mæðgur eru stadd- ar á óræð- um stað og riija upp leiksýn- ingu sem þær léku eitt sinn, sýningu sem reyndist þeim örlagarík.Fyrsta leikrit Hrafnhildar var Ég er meist- arinn og fyrir það hlaut hún Norrænu leikskáldaverðlaun- in. Hrafnhildur Hagalín. SkúffugaHerí Ekki eru allir sem vita að í sýningarsalnum í íslenskri grafík við Tryggvagötu var opnað skúffugallerí rétt fyrir áramótin. Þar eiga 36 félags- menn verk í 30 skúffum, grafíkverk, ljósmyndir, vatns- litamyndir og önnur verk unnin á pappír. Verkin eru sýnd án ramma en með því móti sjást eiginleikar þrykks- ins/pappírsins mun betur. Víða erlendis hefur þetta sýningarfyrirkomulag verið vinsælt og aukið skilning og áhuga almennings á verkum unnin á pappír. Þarna geta listunnendur sem eru að leita sér að eigulegu verki til að hengja upp heima hjá sér eða gefa öðrum valið úr skúffunum óinnrömmuð verk og síðan látið innramma sjálfir eftir smekk og efnum. Skúffugalleríið er opið á sama tíma og sýningarsalur- inn, Qóra daga í viku, fimmtudaga - sunnudaga kl. 14 -18. V____________________________ Herferð borgarinnar gegn villi- köttum í borginni hefur full- komlega mistekist. Búrin í Kattholti fyllast af treggáfuðum og dekruðum heimilisköttum sem aldrei hafa lært að hemja forvitni sína. Á meðan snið- ganga veraldarvanir og slægir villikettir þessar sömu gildrur enda hefur götulífið fyrir löngu kennt þeim að vara sig á grimmd manneskjunnar. Ég hef aldrei haft sérstakt dálæti á köttum en virðing mín fyrir vitsmunalífi villikatta hefur mjög síðustu daga. Sá næsti sem stekkur inn um kjallaraglugga minn mun fá höfðinglegar móttökur. Honum verður tekið eins og alþýðuhetju og MENNINGAR VAKTIN Kolbrún Bergþorsdottir skrifar aukist Samkvæmt frásögn DV í gær af raunum heimiliskattarins Dr. Jóns er ljóst að herferð borgar- innar hefur rænt marga gæfa og stillta ketti sálarró. Það er áleitin spurning hvort borgaryf- irvöldum sé ekki á einhvern hátt skylt að bæta fyrir þau andlegu högg sem þau hafa veitt þessum litlu greyjum sem aldrei stóð til að fanga. Ljóst er að mörg heimili eru í sárum eftir herferð borgarinnar og það mun taka langan tíma að byggja á ný upp sjálfsmynd þeirra saklausu heimilskatta sem urðu fórn- arlömb heimskra og illgjarnra borgar- yfirvalda. Ennfremur er engan veginn ljóst af hverju farið var út í þessar að- „Ég óska villiköttum farsældar í baráttu þeirra við borgaryfir- völd. Ég mun styðja þá með ráðum og dáðum og hugsa til þeirra í kjörklefa í næstu borg- arstjórnarkosningum." væl sem er? Ef einhverjar dekurrófur Ég óska villiköttum farsældar í bar- hafa ekki annað að gera en að láta til- áttu þeirra við borgaryfirvöld. Ég mun vist villikatta fara í taugarnar á sér þá styðja þá með ráðum og dáðum og skil ég ekki af hverju það á að vera hugsa til þeirra í kjörklefa í næstu skaminlaður rjómi og fískur að vild. 1. ;..gerðir, Hhista borgaryfirvöld á hvoögjj samm^l^ y^dji-,|llr.æ bojgaj^g.. ^^r^^gf^uarjtösnmgúm. t Vinirmínir villikettirnir j

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.