Dagur - 08.02.2000, Side 4

Dagur - 08.02.2000, Side 4
20 — ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000 Tkgpr LÍFTD í LANDINU Skyggnst inn í skúmaskot þjóðarinnar Fínbjalla ís- landsklukka sýnd í Háskóla- bíói. Sjö heim- ildarstuttmyndir. Höfundar: Rún- ar Eyjólfur Rún- arsson (Rætur), Pétur Már Gunnarsson (Friður), Ami Sveinsson (Kyrr), Gunnar B. Guðmunds- son (Hræsni), Hrönn Sveinsdóttir (Vandamál), Svavar Pétur Eysteinsson (Vald), Ingibjörg Magnadóttir (Undir). Framleiðandi : 20 geit- ur. Stefnuyfirlýsingar listamanna komust aftur í tísku fyrir tveim- ur árum þegar dönsku kvik- myndagerðarmennirnir Lars von Trier og Thomas Vinterberg sendu frá sér svokallaða dogma- yfirlýsingu. A þessum stutta tíma hafa fjölmargir kvikmynda- gerðarmenn gert dogma-myndir á meðan aðrir kjósa að senda frá sér eigið manifestó. Þetta á við um hóp ungra íslenskra kvik- myndagerðarmanna sem stendur á bakvið heimildarmyndirnar Fínbjalla íslandsklukka, sem frumsýndar voru í Háskólabíói á föstudagskvöldið. Heimildar- myndir eru ekki sýndar á hverj- um degi í kvikmyndahúsum hér- lendis hvað þá að þær myndir séu íslenskar og fjalli á umbúða- lausan hátt um venjulega nú- tíma Islendinga. KVIK- MYNDIR upplýsingar læðast inn í frekar sakleysislegum og afslöppuð við- töl, þar sem innskot með íslensku landslagi draga fram æpandi and- stæður óspilltrar náttúru og rökkvaðs andrúmslofts leiktækja- salanna. Mesta athygli vakti samt firna vel gerð mynd Hrannar Sveinsdóttur um Vandamál er upp kom í hennar eigin fjöl- skyldu. I myndinn fylgist Hrönn með foreldrum sínum finna lausn á þrálátum vanda er þau komust í vegna niðurgangs kattar nágrann- ans. Lausnin vekur vissulega furðu áhorfenda, en framsetning- in er stórskemmtileg, sótt í tölvu- leikjaformið, og dregur athyglina að þeirri staðreynd að sjónarhorn kvikmyndavélarinnar er aldrei hlutlaust, ekki einu sinni í heim- ildarmynd. Meira skylt skáldskap Dæmið gengur ekki eins vel upp í myndunum Friður og Vald, þótt báðar hafi lagt upp með ágætis hugmyndir. Vald er á mörkum þess að geta kallast heimildar- mynd, því höfundurinn býr til sögu sem ekki er í neinu sam- hengi við sjálfa myndatökuna. Myndin hefði hreinlega virkað betur sem skáldskapur. Friður ætlar sér hins vegar of syórt verk- efni með því að fjalla um hugtak án þess að ramma það inn. Pétri Má tekst ekki að koma því til skila, þrátt fyrir góða spretti. Maníski sjóntækjafræðingurinn var sérlega skemmtilegur og laumureykingakonurnar viðfelldn- ar andstæður hans. Hræsni átti að mörgu leyti við sama vanda að Höfundar Fínbjöllu íslandsklukka réðust í það vandasama verkefnl að gera heimildarmyndir um nútíma Islendinga. Köttur nágraunans Þrátt fyrir þann þrönga ramma sem þemu og lengd myndanna (12 mínútur) setja höfundum voru sum þeirra aðeins of huglæg til að hægt væri að ráða við þau í stuttri mynd. Rúnari Eyjólfi Rún- arssyni tókst að vísu þokkalega að Ijalla um firringu nútíma borgar- búa í Rótum með því að taka við- töl við spilafíkla í spilasal um æsku þeirra. Ymsar áhugaverðar stríða og Vald. Gunnar B. Guð- mundsson fellur í þá gryfju að predika yfir áhorfendum í stað þess að láta myndirnar um ferm- ingarundirúninginn tala sjálfar. Hann var líka of fljótur að tæma efnið svo myndin virkaði alltof löng. Illeinniiir og hreinlætið Kyrr átti að íjalla um Hlemm og nágrenni en drykkjufólkið á Keis- ararnum stal senunni, enda aug- ljóst að Arni Sveinsson var hrifn- astur af þeim. Þannig virkuðu pftsusalinn, steinasafnið og rak- arastofan eins og uppfyllingar- efni. Ráf stúlkubarnsins um jóla- ball Frímúrara skilaði sér betur og dró fram óþægilegar andstæð- ur við Keisarann. Undir átti nokkra góða spretti í tilraun sinni til að fjalla um ólík viðhorf fólks til hreinlætis. Asamt Vandamáli tókst Ingibjörgu að ná ákveðnum stíganda í byggingu myndarinnar, þannig að persónurnar urðu skýr- ari eftir því sem á leið. Konan sem gaf ráð um þrif var næstum því tepruleg í sambandi við þrifn- að á meðan önnur ungu stúlkn- anna Ieyfði sér að ganga alla Ieið í óþrifnaðinum. Framleiðandinn Böðvar Bjarki Pétursson sem stóð á bakvið ungmennin og hvatti þau áfram á þakkir skyldar fyrir að styðja jafn þarft verkefni og gerð heimildarmynda um líf Is- lendinga þar sem gægst er inn í skúmaskot þjóðarsálarinnar og ís- lensks þjóðlífs. Slíkt hefur lengi þrifist í útlandinu og því tími til kominn að sjá slíkar myndir frá Islandi. Úhætt er að segja, að enginn flóafriður hafi verið á sviðinu i Freyvangi á frum- sýningu „Flóar á skinni". Föstudaginn 4. febrúar frum- sýndi Freyvangs- ieikhúsið í Eyja- fjarðarsveit leik- ritið „Fló á skinni“ í félags- heimilinu Frey- vangi. Verldð er eftir franska leik- skáldið Georges Feydeau, en ís- lensk þýðing eftir Vigdísi Finnbogadóttur. Leikstjóri uppsetningarinnar er Oddur Bjarni Þorkelsson. Eindregiim farsi „Fló á skinni" er eindreginn farsi, þar sem megináhersla er á sífelft fjör og mikínn hraða jafnt í ferli verksins sem í sviðs- ferð. Erindi þess er einkum að skemmta, sem er ekki ómerki- legri ætlan en hver önnur, og takist vel í uppsetningu, gerir verkið það líka svo sannarlega. Þýðingin er lipur og virðist ná vel þeim anda, sem höfundur- inn hefur Iagt í verk sitt. Hún er á góðri íslensku, eins og við má búast af hendi þýðandans, og á mikinn þátt í Iöðun verks- ins, enda byggir það ekki síður á töluðum samskiptum flytj- enda en á sviðsferð þeirra og fasi. Vökul leikstjóm Leikstjórinn, Oddur Bjarni Þor- kelsson, hefur unnið verk sitt vel. Prýðilega hefur tekist að halda uppi hraða og spennu og er iðu- lega mjög eftirtektarvert hve vel innkomur og útgöngur leikara eru samhæfðar. Þá hefur leikstjórinn fylgst vel með samfellu í fasi flytj- enda og bregst hún sem næst hvergi. A stöku stað má þó greina, að ekki hefur alveg nógu vel verið eftir því gengið, að sam-,. fellan haldist, svo sem í tilfellum Victors Emmanuels Chandebise/Poche, Raymonde og Canille Chandebise og Carlosar- Homenidés De Histangua. I nokkrum tilfellum, einkum í fyrstu atriðum verksins, er fram- sögn Ieikenda ekki svo skýr og greinileg sem æskilegt hefði verið, en í heild tekið hefur einnig hér verið vel að verki staðið. Umgjörð uppsetningar „Flóar á skinni" er prýðilega unnin. Hið sama er um búninga, sem falla vel að persónum og eru hóflega í anda fyrstu áratuga 20. aldar. Lýsing er einnig vel af hendi leyst. Nokkur tónlist er í verkinu og er hún vel flutt. Þar koma við sögu Heimir Gunnarsson og Sara Blandon. Leikarar Stéfán Guðlaugsson fer með hlutverk Victors Emmanuels Candebise og tvífara hans, Poche. Stefán gerír í heild prýðisvel í túlkun sinni á báðum persónun- um og sýnir gjörla, hve vel hon- um lætur að ná hinu skoplega án þess að fara fyrir mörk hófsemi. Hlutverk Raymonde Chandebise er í höndum Elfsa- betar Björnsdóttur. Hún fer nokk- uð stirðlega af stað í upphafsat- riðum sínum, en sækir mjög í sig veðrið er á líður verkið. I hlut- verki Romain Tournel er Garðar Björgvinsson og Jónsteinn Aðal- ■ steinsson fer með hlutverk lækn- isins Finache. Bæði hlutverkin eru hlutfallslega kyrrlát. Garðar og Jónsteinn ná báðir góðum tök- um í túlkun sinni og halda góðri samfellu allt til loka. Carlos Homénides de Histangua er Ieikinn af Kára A. Guðmundssyni. Hann nær tfðum ágætlega spænskum skaphita per- sónunnar, en æskilegt hefði verið að slípa noltkra hluta túlkunar- innar dálítið betur. Elfsabet Katrín Friðriksdóttir er í hlutverki Lucienne Homenides de Histangua. Hún nær mjög góðum tökum á persónu hinnar spönsku hefðar- og tildurkonu jafnt í fasi sem framsögn og fellur þar sem næst hvergi skuggi á. í hlutverki Camille Candebise er Pálmi Reyr Þorsteinsson og gerir miklu tíðast mjög vel í túlk- un þessarar málhöltu og nokkuð utanveltu persónu. Þjóninn Etienne leikur Jón Gunnar Benjamínsson. Hann nær almennt ágætlega stífu fasi persónunnar, en á nokkruni stöð- um, einkum framan af verkinu, hefði mátl vinna nokkuð betur með hana. I smærri hlutverkum eru Olaf- ur Theódórsson, Augustine Ferra- illon; Hjördfs Pálmadóttir, Olympe Ferraillon; Dýrleif Jóns- dóttir, Antoinette; Sara Blandon, Eugenie; Pjetur St. Arason, Rug- by; og Stefán Aðalsteinsson, Baptistin. ÖU gera hlutverkum sínum fj'llilega viðunandi skil. Ijfill fridtir Óhætt er að segja, að enginn flóafriður hafi verið á sviðinu í Freyvangi á frumsýningu „Flóar á skinni". Af viðbrögðum frumsýn- ingargesta, sem sannarlega virtust skemmta sér hið besta, má ætla, að ekki verði heldur mikill friður næstu vikur og jafnvel mánuði fyrir þeim, sem vilja njóta skemmtilegrar kvöldstundar í Freyvangsleikhúsinu. LEIKUST

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.