Dagur - 08.02.2000, Síða 6
22- ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
rDwytr
LÍFIÐ í LANDINU
SMATT OG STORT
UMSJON:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Líísleikurinn
í síðasta pistli voru birtar
tvær klausur upp úr hinu
skemmtilega teningaspili
Lífsleik sem birtur er í síð-
asta Stúdentablaði. Hér
koma svo nokkur gullkorn í
viðbót: Sá sem lendir á reit
númer 25 í spilinu fær þetta.
„Pú hittir tvo samfylkingar-
menn í strætó. Þú verður
leiðtogaefni
flokksins.
Áfram um
tvo reiti.“
Sá sem
lendir á reit
29 fær
þetta: „Þú
ferð til
Þingvalla og
spyrð Heimi
Steinsson til
vegar. Bíddu í tvær umferð-
ir.“ Ef menn lenda á reit 35
kemur þetta: „Þú átt heima
við Eyjabakka í Breiðholti.
Kaldavatnslagnir springa og
það flæðir yfir allt. Þú hring-
ir í slökkviliðið og segir þeim
hvað hafi gerst. Þeir halda
að þetta sé gabb, hlæja og
íbúðin eyðileggst. Bíddu í
tvær umferðir.“ Á reit 39 fá
menn þessa athugasemd:
„Þú ert yfirmaður hjá Bún-
aðarbankanum. Áfram um
tvo reiti.“ Meira seinna.
Heimir Steinsson
á Þingvöllum.
Hjálmar
Jónsson.
Sighvatur
Björgvinsson.
Góður Presíur
Hjálmar Jónsson alþingis-
maður er hka prestur eins
og allir vita. Honum varð á
að bölva á dögunum niður í
þinghúsi og þá orti Sighvatur
Björgvinsson:
Fram á völlinn skrýddur
skálmar
skaparans þjónninn bestur.
„Andskotinn' sagði séra
Hjálmar.
Svon’ er ‘ann góður
prestur.
Hjálmar lét Sighvat að sjálf-
sögðu ekki eiga inni hjá sér
og svaraði:
Von er á fónn og frera,
formannsslag ber að
skjótt,
ef Sighvatur vœri séra
segði ég fleira Ijótt.
Heimta kynferði
Veturinn
1973 var
lögð fram
þingsálykt-
unartillaga
frá Ingu
Birnu og
Bjarna
Guðnasyni
prófessor,
um að færa
auglýsingar hins opinbera
um starfsfólk til betri vegar. í
þingsályktunartillögunni var
m.a. þessi ábending. „Banna
á að heimta ákveðið kynferði
af umsækjendum.“
Bjarni Guðnason
prófessor.
FINA OG FRÆGA FOLKIÐ
Einstæð sjö
bama móðlr
Marie Osmond sem hér sést ásamt tveimur ungum börnum sínum er að skiija
við eiginmann númer tvö.
Marie Osmond, söng-
kona og sjónvarps-
kona, er skilin að
borði og sæng. Marie
er fertug og sjö barna
móðir. Iljónaband
hennar, sem er það
annað í röðinni, hefur
staðið í þrettán ár og
hjónin eru bæði
mormónatrúar. Marie
stjórnar spjallþætti í
sjónvarpi ásamt bróð-
ur sínum Donny. Hún
viðurkenndi nýlega í
viðtali að hafa þjáðst
af þunglyndi eftir fæð-
ingu sonar síns Matt-
hews sem fæddist í júlí
síðastliðnum. Það virð-
ist hafa verið Mary um
megn að sinna hlut-
verki eiginkonu, móð-
ur, sjónvarpsstjörnu,
söngkonu og eiganda
brúðuverksmiðju. Eig-
inmaðurinn er sagður
hafa tekið lítinn þátt í
daglegum heimilis-
rekstri og barnaupp-
eldi og sýnt af sér
óstöðvandi stjórnsemi
í hjónabandinu. Mary
segist hafa fengið nóg
og bætir því við að
sættir séu óhugsandi
nema eiginmaðurinn
taki sig á.
KRAKKAHORNIÐ
Grettukeppnin
Kúrekinn á myndunum fór í grettukeppni við
sjálfan sig. Það er sami svipur á tveimur andlit-
um. Getiði fundið út hvaða.
Brandarar
Gömlu bændahjónin voru gengin til hvílu eftir
erfiðan dag. Allt í einu rís bóndinn þó upp og
fer að tína á sig spjarirnar.
„Hvert ertu að fara, elskan mín?“ spyr þá
bóndakonan hissa.
„Æ, þegar að ég sá þig geispa, væna mín, þá
mundi ég allt í einu eftir því að ég hafði gleymt
að loka hænsnakofanum."
„Olíukyndingin heima hjá mér sprakk í loft
upp og pabbi og mamma þeyttust út úr hús-
inu.“
„Hvað ertu að segja, maður! Þetta eru
hræðilegar fréttir!"
„Já, en mamma var nú samt nokkuð ánægð
með þetta.“
„Hvernig stóð á því?“
„Ja, þetta var í fyrsta skipti í tuttugu og
fimm ár sem þau hjónakornin fóru út saman."
Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er:
Dagur - Barnahorn
Strandgata 31
600 Akureyri
Tölvupóstur: pjetur@dagur.is
ADAMSON
ST JÖRNOSPA
Vatnsberinn
Sólkerfið hrynur
ekki þó þú látir
þig hverfa í sólar-
hring. En ekki
mikið lengur, plís.
Fiskarnir
Það er lítið gagn í
grunni ef húsið
rís ekki að lokum.
Ekki byrja á því
sem þú getur
ekki klárað.
Hrúturinn
Láttu ekki bug-
ast. Þú ert ódrep-
andi. Eins og
kamfýlóbakter.
Nautið
Bolabrögð eru
nautinu eðlileg.
Glímdu því að-
eins við sjálfan
Þig-
Tvíburarnir
Farðu óhrædd
með hann á
þorrablót. Súr-
matur skaðar
ekki sætabrauðs-
drengi.
Krabbinn
Losaðu þig við
allan óþarfa á
heimilinu, en
horfðu fram hjá
sjálfum þér í
þetta sinn.
Ljónið
Aldrei að víkja!
Án þess að gefa
fyrst stefnuljós.
Meyjan
Stattu vaktina í
eldhúsinu að
Laugaskaröi með
Thermos-brús-
ann fullan af ilm-
andi Braga-kaffi.
Vogin
Opnaðu hjarta
þitt. Það er dýr-
ara að láta sér-
fræðingana á
spítalanum gera
það.
Sporðdrekinn
Ávallt viðbúinn!
Varðeldurinn
kulnar ef þú víkur
frá eitt andartak.
Bogamaðurinn
Svarið er handan
. hornsins. Reyndu
) að hafa upþ á
spurningunni.
Steingeitin
Sjaldan þrýtur
þrjóti þraut. Eða
lausn lausmálg-
um.