Dagur - 08.02.2000, Qupperneq 8
(bsv| [bsv| [bsv! (bsv! [bsv] [bsv] (bsv| (bsv) (bsv)
(bsv) (bsv) (bsv) gsv)
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
(bsv) (bsv)
SPJALL
Axel Björnsson prófessor í umhverfisvisind-
um við Háskólann á Akureyri
Verðum að
þeWga
náttúrima
„Umhverfisvísindi eru mjög breitt
svið,“ segir nýráðinn prófessor í um-
hverfisvísindum við Háskólann á Ak-
ureyri, Axel Björnsson. „Það svið nær
yfir umhverfið, jörðina, jarðvísindin
öll, nýtingu jarðarinnar, virkjanir og
áhrif mannsins á umhverfið og nátt-
úrleg áhrif umhverfisins á manninn,
jarðskjálfta, eldfjöll, gróðureyðingu
og fleira. Þetta nær að sjálfsögðu líka
yfir lífvísindin, gróður og þess háttar.
Sumir vilja fella fleira undir um-
hverfisvísindin fleira, félagsfræði og
jafnvel siðfræði. Þegar þetta orð um-
hverfisvísindi er notað eitt og sér þá
er það teygjanlegt á marga vegu.
Það sem ég kem til með að ná yfir
af þessu breiða sviði er ekki nema
einn þáttur. Eg er jarðvísindamaður.
Þegar staðan var auglýst kom fram
að viðkomandi skyldi kenna og stun-
da rannsóknir á sínu fræðasviði. Þar
var tekið fram undirstöðugreinar
náttúruvísindanna, stærðfræði, eðl-
isfræði, efnafræði og jarðvísindi,
þannig að þá þegar var starfið sveigt
inn á jarðvísindahliðina. Ég tel að
það sé einn veigamesti þáttur um-
hverfisvísindanna vegna þess að það
verður ekki tekið neitt á umhverfis-
vísindum eða umhverfisrannsóknum
nema menn þekki náttúruna."
- Inn ú hvaða nám við Háskólann á
Akureyri kemur þitt starf aðallega?
„Ég er vistaður við kennaradeild-
ina. Henni er skipt upp í svið og þar
er meðal annars raungreinasvið og
ég kem til með að kenna við þar,
einkum jarðvísindi og aðrar undir-
stöðugreinar náttúruvísinda og Ieggja
þar áherslu, eins og gjarnan er gert í
jarðvísindum núna, á samspil manns
og náttúru. Þessi skóli hefur vissa
sérstöðu að því Ieyti að kennara-
deildin leggur meiri áherslu á raun-
greinar í kennaranáminu, bæði í al-
mennu námi og eins með því að hafa
sérstakt raungreinasvið."
- Þannig að þú sérð í þessu starfi
sóknarfæri á ýmsum sviðum og spenn-
andi verkefni.
„Ég mun kenna mitt fag, jarðvís-
indin, og tengja þau umhverfismál-
unum og lít þannig á að það sé fyrsta
skrefið að mennta kennara sem
mennta börnin og að það verði ekki
komið á vitrænni umræðu um um-
hverfismálin nema menn þekki nátt-
úruna.“
HI
Framtíð myndlistar-
deildar LHÍ kynnt
Krístján Steingrímurjónsson
og Valgerður Hauksdóttir
lögðu fram tillögurað skipu-
lagi myndlistardeildar Lista-
háskóla íslands á opnum
fundi íLauganesinu ígær-
kvöldi. Þetta var annar kynn-
ingarfundurínn sem haldinn
erum tillögurað deildar-
skipulagi og námskrá við
Listaháskóla íslands. Tillögur
að námskrá leiklistardeildar
voru kynntar í síðustu viku,
en annað kvöld klukkan
20.30 kemur röðin að hönn-
Kristján Steingrimur Jónsson deildarforsti og Valgerður Hauksdóttir kennari leggja til að nemendum í myndlist-
unardeíldinni. ardeild Listahaskóla íslands verði fækkað og inntökuskilyrði hert
Þótt Éistaháskóli íslands hafi tekið form-
lega til starfa síðastliðið haust, er myndlist-
ardeildin enn sem komið er, eina starfandi
deildin við skólann. Leiklistardeild tekur
til starfa næsta haust og er búið að auglýsa
stöðu deildarforseta Iausa til umsóknar.
Kristján Steingrímur Jónsson er deildar-
forseti myndlistardeildar, en hann og Val-
gerður Hauksdóttir, kennari og grafíklista-
kona, mynda vinnuhópinn sem í gærkvöldi
Iagði fram tillögur að framtíðarskipulagi
myndlistardeildarinnar. Tillögurnar voru
unnar að beiðni rektors, Hjálmars H.
Ragnarssonar og afhentar honum og stjórn
skólans. I henni eiga sæti fimm manns,
þrír eru skipaðir af Éélagi um Listaháskóla
Islands og tveir af menntamálaráðherra.
Deildir felldar niður
I skýrslu vinnuhópsins koma fram tillögur
að námskrá og ákveðnu vinnufyrirkomu-
Iagi, sem hafa má til hliðsjónar þegar ráð-
ist verður í byggingu Listaháskólans, sem
Kristján Steingrímur vonar að muni sjá
dagsins ljós innan þriggja ára. I skýrslu
hans og Valgerðar er Iagt til að náminu
verði framvegis skipt í tvo þætti, fræðilegt
nám og verldegt. Þannig var það einnig f
Myndlista- og handíðaskólanum sáluga,
munurinn er sá að fræðilega námið fær
meira vægi og krafist er sjálfstæðari vinnu
nemenda í verklega náminu. Helstu breyt-
ingartillögur á skipan verklega þáttarins
felast í að fella niður deildarskiptinguna
sem var við Iíði í MHI og er ennþá. I stað-
inn er gert ráð fyrir mismunandi áherslum
í verklegu námi, sem höfundar skýrslunnar
kalla tvívfða og þrívíða auk nýrra miðla.
Undir tvívíða áherslu fellur tækni eins og
teikning, málun, prentun og Ijósmyndun,
en undir þrívíðu áhersluna, mótun, smíði,
afsteypa og rými. I áherslunni nýir miðlar
verði komið inn á stafræna myndgerð,
myndband og hljóð. Þessi breyting tekur
v, tillit til þeirra þróunar sem. átt hefur sér
stað í myndiistarheiminum á undanfiirn-
um árum og áratugum, þar sem margir
myndlistarmenn fá alla sérhæfingu, en
nota þann miðil sem hentar best hverju
sinni. Þrátt fyrir mismunandi áherslu-
flokka er gert ráð fyrir opnum skóla þar
sem nemendur geta að einhverju leyti sett
saman sína eigin námskrá og þannig
ákveðið hvort þeir leggja áherslu á eitt
ákveðið myndform eða fleiri.
Fækkun nemenda
I framhaldi að breyttri skipan myndlistar-
deildarinnar vilja höfundar skýrslunnar
strangari inngönguskilyrði í deildina og
hertar kröfur um námsframvindu og ár-
angur. Þetta vilja þeir að sé gert með tilliti
til aðbúnaðar skólans hverju sinni. Þeir
benda á að þótt ekki sé vænlegt að hafa
nemendur of fáa í upphafi þar sem slíkt
geri uppbyggingu og námsmat erfiðara,
geti færri nemendur á seinni stigum orðið
til þess að bæta kennslu og aðbúnað hvers
nemanda. Þar með er Iagt til að teknir
verði inn 25 nemendur á fyrsta ári, í stað
35 áður, og að heildarfjöldi nemenda fari
ekki yfir 70. Þetta þýðir að alit að fimm
nemendur munu falla frá námi tvö fyrstu
árin.Höfundar gera ráð fyrir brottfalli
nemenda í Iýsingu á grunnnámi á fyrstu
önn fyrsta árs. Þegar MHI var Iagður nið-
ur og Listaháskólinn stofnaður féll niður
svokallað fornám, sem tók einn vetur. I
staðinn gera Kristján Steingrímur og Val-
gerður ráð íyrir að boðið verði upp á
grunnnám á fyrstu önn. Því er í fyrsta lagi
ætlað að brúa bilið sem gjarnan verður
milli myndlistarmenntunar á framhalds-
skólastigi og menntunar á háskólastigi. I
öðru lagi mun það kynna nemendunum
námið og möguleika þess og gera kennur-
um betur kleift að átta sig á áhuga og
hæfni nemenda.
Skapandi og
sjálfstæð vinnubrögö
Eftir grunnnámið, þar- seni' eingöngu eru
kenndar skyldugreinar, tekur sérhæfingin
við. Þá er gert ráð fyrir að nemendur hafi
áttað sig nógu vel á möguleikum námsins
til að hefja sérnám. Þetta þýðir ekki að
nemendur verði undanþegnir kennslu í
ákveðnum skylduáföngum sem teljast
undirstöðuáfangar almenns myndlistar-
náms, né heldur skylduáföngum fræði-
greina og sérsviða. Námsráðgjafar verði
nemendum innan handar við að velja
markvissar námsleiðir. Verklega námið
mun ekki aðeins fara fram í kennslustof-
um heldur einnig með viðveru í sérstök-
um vinnustofum, sem hver nemandi mun
fá úthlutað í framtíðarhúsnæði skólans.
Krafist verður sjálfstæðra vinnubragða og
áhersla á sjálfstæði verður mun meiri en
var í MHI. Þetta er gert til að færa mynd-
listarnámið nær akademísku námi og
undirstrika nauðsyn skapandi vinnu
myndlistarmannsins. Þá er einnig gert
ráð fyrir verkstæði í skólanum, sem verði
einskonar „þjónustumiðstöð" fyrir nem-
endur og kennara. Þar geta nemendur
fengið kennslu og þjálfun til að útfæra
hugmyndir sínar.
Þríþætt fræði
Fræðilega námið verður þríþætt og fer
fram í formi fyrirlestra og umræðuhópa.
Boðið verður upp á kennslu í almennri og
sérhæfðri listasögu og listfræði, þar sem
farið verður ofan í saumana á Iistheim-
speki, heimspeki og hugmyndasögu. Með
kennslu og viðveru í skólanum, er gert
ráð fyrir því að vinnuvika nemenda sé 40
stundir, lfkt og nú.Náminu í myndlistar-
deild Listaháskóla íslands Iýkur með B.A.
gráðu, en gert er ráð fyrir stofnun fram-
haldsdeildar þar sem boðið verður upp á
mastersnám. Almenningur hefur rétt á
að kynna sér þessar tillögur og koma at-
hugasemdum um þær á framfæri við
stjórn skólans sem hefur þær til umfjöll-
unar. • -i., 11 • > ■■ > 11 ••••»■ ”
mMM ! iÞhVt'Æs ' ••,;- iVlMjíö''-'