Dagur - 09.02.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 09.02.2000, Blaðsíða 6
22- MIDVIKUDAGVR 9. FEBRÚAR 2000 LIFID I LANDINU SMATT OG STORT UMSJÓN: GUÐRÚN H. SIGURDARDÓTTIR Hamingja í hendi Loksins, loksins er hér komin for- múlan fína að hamingju og vel- gengni I lífinu. 45 ráð sem aðeins þarf að fara eftir til fullnustu og þá er hamingjan borðliggjandi. Gjörið svo vel. 1. Gefðu fólki meira en það á von á og gerðu það glaðlega. 2. Leggðu eftirlætisljóðið þitt á minn- ið. 3. Trúðu ekki öllu sem þú heyrir, ekki eyða öllu sem þú átt. 4. Meintu það þegar þú segir „ég elska þig“. 5. Horfðu í augun á fólki þegar þú biðst afsökunar. 6. Vertu trúlofuð/aður minnst sex mánuði áður en þú lætur stóru stundina renna upp. 7. Trúðu á ást við fyrstu sýn. 8. Hlæðu aldrei að draumum annarra. Fólk sem á sér enga drauma á ekki mikið. 9. Elskaðu hraustlega. Ef þú meiðir þig þá geturðu haft hugfast að þetta er eina leiðin til að lifa lífinu til fulls. 10. Skammastu heiðarlega þegar þið rífist. Ekki kalla neinn illum nöfn- um. 11. Ekki dæma fólk eftir ættingjum þess eða þeim aðstæðum sem það fæddist inn í. 12. Tileinkaðu þér að tala hægt en hugsa hratt. 13. Þegar einhver spyr spurningar sem þú vilt ekki svar brostu þá og spurðu „Hvers vegna viltu vita þetta?" 14. Taktu með í reikninginn að ást og árangur fela í sér áhættu. 15. Hringdu í móður þína. 16. Segðu „guð hjálpi þér“ þegar ein- hver hnerrar. 17. Lærðu þína lexíu þegar þú tapar. 18. Taktu mið af vöffunum tveimur: Virðing fyrir sjálfum/sjálfri þér, virð- ing fyrir öðrum og axlaðu ábyrgð gerða þinna. 19. Láttu ekki smárifrildi eyðileggja vinskapinn. 20. Reyndu strax að bæta fyrir þegar þú uppgötvar mistökin. 21. Brostu í símann. Brosið heyrist í röddinni. 22. Gifstu einhverjum/einhverri sem þér finnst gaman að tala við. Það skiptir máli þegar þið eldist. 23. Vertu stundum einn með sjálfum þér. 24. Opnaðu fangið fyrir breytingum en ekki tapa gildismati þinu. 25. Mundu að þögn er stundum besta svarið. 26. Lestu fleiri bækur. Sjónvarpið getur aldrei komið í staði bóka. 27. Lifðu góðu og heiðvirðu lífi. 28. Trúðu á guð en læstu bílnum þín- um. 29. Elskulegt andrúmsloft á heimilinu er grunnur Iffsins. 30. Rífstu aðeins um stöðuna í dag í rifrildi við heittelskaða. Liðið er lið- ið og ekki rétt að fást um það. 31. Ekki hlusta bara á það sem fólk segir, hlustaðu á hvers vegna það segir það. 32. Miðlaðu þekkingu þinni. Það er ein leið til að öðlast ódauðleika. 33. Gakktu vel um jörðina. 34. Biðstu fyrir eða hugleiddu. í því geturðu fengið orku. 35. Hlustaðu vel og njóttu þess þegar þér er hrósað. 36. Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við. 37. Ekki treysta neinum sem lokar ekki augunum þegar hann er kysstur. 38. Farðu einu sinni á ári á einhvern stað sem þú hefur ekki komið á áður. 39. Notaðu peningana til að hjálpa öðrum ef þú græðir fúlgu. Það veitir heimsins mestu fullnægingu. 40. Mundu að það er oft stakasta heppni að fá ekki það sem þig langar í. 41. Lærðu reglurnar svo að þú vitir hvernig þú átt að brjóta þær al- mennilega. 42. Mundu að besta sambandið felst í því þegar ástin er meiri en þörfin fyrir hvort annað. 43. Mældu velgengni þína í því hvað þú þurftir að gefa upp á bátinn til að ná þessum árangri. 44. Sættu þig við þá staðreynd að persónuleiki þinn er örlög þín. 45. Gakktu í ást og eldamennsku af taumlausu óstýrilæti. Svo mörg eru þau orð. FINA QG FRÆGA FOLKIÐ Fallegasti kj ólliim Valinkunnur hópur tískusérfræðinga tók að sér það mikilvæga verkefni á dögunum að velja fallegasta kjól ársins 1999. Fyrir valinu varð glæsilegur hvítur kjóll sem Calvin Klein hannaði og enska hefðarkonan lafði Helen Taylor klæddist í kvöldverðarboði sem haldið var til heiðurs Alexíu Grikk- landsprinsessu í London. í öðru sæti var svartur kjóll sem Catherine Zeta Jones klæddist við frumsýningu á mynd sinni Entrapment. Helen Taylor í fallegasta kjól ársins. Þessi kjóll Catherine Zetu Jo- nes lenti I öðru sæti KRAKKAHORNIÐ Felumyd Mýslu litlu langar í súpu. Dragðu strik frá 1 til 10 og hvað kemur í ljós? Einstakt Hvað er það sem ekki á heima á myndunum Qórum? Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er: Dagur - Barnahorn Strandgata 31 600 Akureyri Tölvupóstur: pjetur@dagur.is ST JÖRAIUSPA Vatnsberinn Þú reynir að syngja „Brennið þið vitar“ í há- deginu en færð illt auga þegar þú mismælir þig og syngur: „Brennið þið menn- ingarvitar" Fiskarnir Þú ferð í kjöt- borðið í Hagkaup og segist vera fiskur. Stúlka spyr þá hvort þú sért þorskur eða ýsa, en fríkar alveg út þeg- ar þú segist vera hrogn! Hrúturinn Því miður er hrút- leiðinlegur dagur framundan. Nautið Afi þinn var rugludallur! Tvíburarnir Þú verður kóngur einn dag og færð spilun í Hvítum mávum hjá Gesti söngþresti Krabbinn Þú nýtur óvenju- mikilia vinsælda meðal vinnufé- laganna í dag. Hugsanlega taka þeir jafnvel eftir þér! Ljónið Stjörnurnar mæl- ast til að þú hættir að vor- kenna Mary Osmond þótt hún sé að skilja og nái sér ekki upp úr fæðing- arþunglyndi. Stjörnurnar mæl- ast hins vegar til að þú svarir spurningunni hvort eðlilegt sé að láta Björk Guðmundsdóttur hafa Elliðaey til afnota og ef svo er, þá hvort Elliðaárnar og Elliðavatn eigi ekki að fylgja með - og jafnvel Þröstur Elliða- son? Meyjan Er ekki örugglega miðvikudagur í dag?! Vogin Þú hittir mann í einum grænum sokk og öðrum rauðum og segir: „Mikið ert þú í grænum og rauð- um sokkum. Heitirðu nokkuð Steingrímur." Þá segir hann: „Hvernig vissirðu það?!“ Þetta verður semsé góður dagur. Sporðdrekinn Það er losti í stjörnunum í dag!! Spennandi kvöld framund- an!! Bogamaðurinn Þú veiðir villikött í dag og hlýtur listamannalaun hjá Reykajvíkur- borg. Steingeitin Ef þú mætir kjúklingi í dag máttu vita að hann er orðinn að sjúklingi á morg- un.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.