Dagur - 15.03.2000, Qupperneq 7
MIDVIKUD AGU R 1S. MARS 2000 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
Nýj a Jórvík í Giyfjunni
Föstudaginn 10
mars var kvartett
Sunnu Gunn-
laugsdóttur á
ferð á Akureyri
og efndi tii tón-
leika í Gryfju
Verkmenntaskól-
ans á Akureyri.
Kvartettinn hafði
komið við á Isa-
firði daginn
áður, þar sem
hann lók á Sólrisuhátíð, en frá
Akureyri heldur hann til Húsa-
víkur og síðan til Reykjavíkur og
mun hann efna til tónleika á
báðum stöðum. Kvartettinn star-
far í New York, þar sem hann
leikur á jazzklúbbnum Knitting
Factory.
Good Stuff
Segja má, að valinn maður sé í
hverju rúmi í Kvartett Sunnu
Gunnlaugs, eins og hann heitir
fyrir vestan haf. Fyrst ber að
nefna forsprakkann, Sunnu
Gunnlaugsdóttur, píanóleikara.
Hún hefur sérlega Ijúfan stíl og
býr yfir mikilli næmni í lýrískum
leik, sem naut sfn víða og þá
ekki síst í túlkun kvartettsins á
nokkrum íslenskum lögum, svo
sem Það búa litlir dvergar og
Sofðu unga ástin mfn. Sóló
Sunnu eru hlaðin ljúfum og fal-
legum hugmyndum, sem hún
vinnur úr af innlifun og smekk-
vísi. Gaman er einnig að þeim
klassíska blæ, sem bregður fyrir
í leik Sunnu, svo sem í afar
jöfnum nótnagildum ogjafnvel
fvafi pólyfóníu, einsog í laginu
Good Stuff eftir hana sjálfa, þar
sem hún og saxafónleikarinn
Tony Malaby ófu afar þekkilegan
vef.
Heitasti tenórmaðimun
Um Tony Malaby, saxafónleik-
ara, segir í kynningu, sem fylgdi
tónleikunum, að hann sé „heit-
asti tenórmaðurinn í New York“
um þessar mundir. Eftir að hafa
heyrt hann og séð á tónleikum
er auðvelt að trúa því, að svo sé.
Tony Malaby hefur til að bera
yfirburða tækni og mikinn sjóð
hugmynda í sólóum og samleik.
Hann býr yfir mikilli lagrænni
getu, sem hann nýtir fagurlega í
leik sínum. Einnig er honum
létt að ná sveiflu, en hana laðaði
hann iðulega fram á tónleikun-
um og hreif þá aðra flytjendur
með sér með afar ánægjulegum
árangri.
A bassa í Kvartett Sunnu
Gunnlaugsdóttur leikur Drew
Gress; ekki síðri snillingur þeim
liðsmönnum hans, sem þegar
hafa verið nefndir. Drew Gress
hefur til að bera mjög svo aðdá-
unarverða fjölhæfni í bassaleik
hvort heldur í samleik, þar sem
hann leggur líflegar og forvitni-
legar bassalínur, eða í sólóum,
þar sem hann iðulega leikur sér
að stefjabútum og vinnur þá af
hugmyndaauðgi, sem sannarlega
vekur eftirtekt og löngun til þess
að njóta meira af verkum hans.
Slagverksbreik
Scott McLemore er trommuleik-
ari Kvartetts Sunnu Gunnlaugs-
dóttur. Hann hefur leikið með
henn í ýmsum samsetningum
hljóðfæraleikara frá árinu 1995.
Stíll hans á slagverkið er veru-
lega skemmtilegur. Hann nýtir
settið til fullnustu og festist
aldrei í notkun einstakra hluta
þess, heldur beitir því öllu af
fjölbreyttni og í fullu samræmi
við það, sem fram fer í flutningi
annarra. Scott McLemore tók
nokkur sóló og „slagverksbreik".
1 þessum atriðum nýtti hann
afar skemmtilega fjölhæfni sína
og færni á hljóðfæri sín.
Tónleikar Kvartetts Sunnu
Gunnlaugs voru fyrstu tónleik-
arnir, sem haldnir hafa verið fyr-
ir almenning í Gryfju Verk-
menntaskólans á Akureyri eftir
að skólinn eignaðist flygil, sem
varð á þessum vetri. Hann sann-
aði gildi sitt á hinum ágætu tón-
leikum hinna góðu gesta frá
Nýju Jórvík, en einnig kom í
Ijós, að Gryfjan sómir sér harla
vel sem tónleikastaður og verður
því vonandi með tilkomu hljóð-
færisins tónlistarlífi á Akureyri
til eflingar og tónlistarunnend-
um í bænum til unaðar.
skrifar
Hvað er á seyði?
Efnileg leikkona - en þó
ekki sköllótt söngkona.
myndir: brink.
Sex leikarar taka þátt í þessari uppfærslu nemenda Verkmenntaskólans á Akureyri og segir María
Pálsdóttir það vera góðan hóp efnilegra leikara.
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfí eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
<: ^ um allt land.
Áskriftarsíminn er 800-7080
Sköllótt
söngkona í VMA
Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri
frumsýnir í kvöld, undir leikstjórn Maríu
Pálsdóttir, Ieikritið Sköllóttu söngkonuna
eftir rúmenska rithöfundinn Eugéne
Ionesco. „Eugéne er einn af frumherjum
apsúrtismans og því er þetta ofurlítið fá-
ránlegt leikrit. Fjallar um sambandsleysi
manna í millum og samtölin eru skrýtin,"
sagði María Pálsdóttir leikstjóri í samtali
við Dag. í dag er fyrsti dagurinn í Opnum
dögum í VMA og er uppsetning sýningar-
innar hluti af því, en hugsanlega verður
svo aukasýning á einhverjum hluta verks-
ins á föstudaginn, á árshátíð skólans.
Leikritið um SköIIóttu söngkonuna hef-
ur verið æft síðasta eina og hálfa mánuð-
inn, en fyrir áramót var svo leiklistarnám-
skeið í VMA og komu þar fram margir
efnilegir leikarar. Sex leikarar taka þátt í
sýningunni sem nú fer á fjalir VMA, en
það hefur ekki verið sýnt Ieikrit í skólanum
síðustu vetur vegna þátttökuleysis. Kveðst
María Pálsdóttir þó binda vonir við að það
muni nú breytast.
-SBS.