Dagur - 31.03.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 31.03.2000, Blaðsíða 1
Gullöldin í Grafarvogi erein affáum hveifis- krám í höjuðborginni sem eitthvað kveðurað. Þarhorfa menn á bolta- leiki íbeinni, taka í spil, tefla skák eðafara í dart. Um helgarbrýst útheljarmikið jjörog svo eru kráargestirlíka í ferðaklúbbi. „Það hefur skapast hér ákveðin festa, kannski af því að við erum alltaf sjálf á staðnum" segja vert- arnir, hjónin Valgeir lngi Olafsson og Kristín Anný Jónsdóttir sem hafa rekið Gullöldina frá upphafi, eða í 5 ár og eru alltaf á vakt, ann- að hvort eða bæði. Frúin viður- kennir að stundum sé þreytandi að koma heim um hálf sex á morgnana í þann mund sem yngstu börnin tvö (af sjö) séu að vakna. Þau hjón segjast þó hafa kosið að standa í afgreiðslunni sjálf í stað þess að fara í forstjóra- leik og ráða sér fólk en um helgar sé ekki hjá því komist að bæta við starfskröftum. En skyldu þau aldrei taka sér frí? „Jú, á föstudag- inn langa. Þá brennum við austur að á Brunasand, leggjum af stað kl. 8 um morguninn og komum aftur íyrir miðnætti til að sinna gestum okkar. Hverfiskráin má nefiiilega ekki vera lokuð eitt ein- asta kvöld því ekki getum við ákveðið hvenær íbúum Grafarvogs langar að gera sér dagamun,“ segja þau Valgeir og Kristín. Astæða þess að Brunasandur verð- ur fyrir valinu þennan eina frídag ársins er sú að Teygingalækur á Brunasandi er ættaróðal Valgeirs Inga. Þar ólst hann upp og þar á hann sitt fólk. Hann rak félags- heimilið á Kirkjubæjarklaustri í 10 ár þegar sveitaballastemmningin var upp á sitt besta auk þess að vera aðstoðarhótelstjóri þar á staðnum um nokkurra ára skeið. „Hverfiskráin má ekki vera lokuð eitt einasta kvöld því ekki getum við ákveðið hvenær íbúum Grafarvogs langar að gera sér dagamun, “ segja þau Valgeir og Kristín. mynd: þök „Ég er búinn að vera í þjónustu- störfum frá því 1973, en þá fór ég að vinna á veitingahúsum hér í bænum,“ segir Valgeir Ingi sem hefur einnig starfað talsvert að ferðamálum, meðal annars verið ferðamálafulltrúi Suðurlands í tvö ár og rekið Upplýsingamiðstöð fyr- ir ferðamenn fyrst á Kirkjubæjar- klaustri og síðan á Selfossi. Óvissu-og utaulandsferðir Talandi um ferðamál. Frúin segir þá hefð hafa skapast að einu sinni á ári fari þau með sína föstu kúnna í óvissuferð. „Oft hafa um 70 manns farið með okkur í þess- ar ferðir og þær hafa undantekn- ingalaust tekist vel.“ Þau minnast fyrstu ferðarinnar sem farin var út í Viðey, þar sem þau grilluðu fyrir gesti. „Þegar allir héldu að verið væri að fara í land var þess f stað farið Iengra út á sundin því við höfðum leigt Arnesið og þar upp- hófst heilmikið fjör. Svo sótti strætó okkur niður á höfn klukkan þrjú um nóttina og keyrði einn hring um Grafarvoginn. Þar með komust allir til síns heima og óvissunni var Iokið“ - En hver greiðir kostnuð við svona ferðir? „Hver og einn borgar fyrir sig og upphæðin nemur ártalinu. I fyrra kostaði 1999 krónur en í ár verður gjaldið 2000. Inni í því er matur, nokkrir bjórar, ferðir og fleira.“ Þau segja 5 ára óvissuferðaraf- mæli verða haldið í sumar, þann 3. júní og að einnig verði utanlands- ferð á dagskránni með haustinu. „Við fórum með tæplega 40 manns til Dublin í fyrra og sú ferð tókst mjög vel. Stærstur hluti hópsins var héðan úr Grafarvogi. Fólkið náði mjög vel saman og er ákveðið að ferðast aftur saman í haust.“ Félagsmiðstöðm Til að byrja með lifðu þau hjón ekki af rekstrinum einum og störf- uðu þá bæði hjá Skýrr. „Við gegnd- um þar sömu embættum og sátum hlið við hlið. Unnum svo saman á pöbbnum fram eftir nóttum og um helgar.“ Þau segjast hafa náð upp góðri hverfisstemmningu á Gullöldinni og fastagestirnir líti á staðinn sem sfna félagsmiðstöð. A sumrin þyki fólki gott að fá sér einn bjór á kvöldin eftir að hafa kannski verið að vinna í garðinum allan daginn. En skyldu konumar ekkert vera pirraðar á að missa karlana á krána? „Kannski einhverjar en þær vita þá hvar þær eiga að ganga að þeim,“ segja þau og bæta við að vissulega komi fólk af báðum kynj- um, flest ósköp venjulegt fjöl- skyldufólk og þau hafi verið bless- unarlega laus við það sem kalla mætti róna. Um helgar breytist pöbbinn í lít- inn ballstað. Hljómsveit hússins sem skipuð er þaulreyndum köpp- um úr bransanum er búin að halda uppi íjöri þar í þrjú ár og sér um að einkunnarorð Gullaldar- innar gildi en þau eru: „Staðurinn ykkar þar sem stuðið klikkar ekki“. GUN. I Sex smnu ...fljúyðufrekar Bókaðu í síma 570 3030 0? 460 7000 Fax 570 3001 * websalesaairiceland.is • www.flu$fela?.i$ FLUGFELAG ISLANDS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.