Dagur - 15.04.2000, Síða 11

Dagur - 15.04.2000, Síða 11
I.AUGARDAGUR 1S. APRÍL 2 000 - 11 Xk^MT' ERLENDAR FRÉTTIR Rússneska Dúman staðfesti STARTII Pútín vill frekari af- vopnimarsamninga, en hótar því jafnframt að hætta öllu afvopn- unarsamstarfi ef Bandaríkin hrjóta ABM-samninginn frá 1972. Neðri deild rússneska þingsins samþykkti í gær START II samn- inginn, fjórum árum eftir að bandaríska þjóðþingið gerði slíkt hið sama og sjö árum eftir að samningurinn var frágenginn og undirritaður. Samningurinn fel- ur í sér að bæði Bandaríkin og Rússland fækka kjarnaoddum verulega, en um leið opnar stað- festing hans möguleika á frekari samningum um fækkun kjarn- orkuvopna. Neðri deild rússneska þings- ins, ríkisdúman, gekk í gær til at- kvæða um samninginn og var hann samþyktur með 288 at- kvæðum gegn 133. Efri deild þingsins, sambandsráðið, sam- þykkti samninginn skömmu síðar og telst hann þar með staðfestur. Eftir að staðfesting samnings- ins hafði verið afgreidd hvatti Pútín bandarísk stjórnvöld til þess að vinna hratt að gerð fram- haldssamnings um enn frekari afvopnun. Aðeins þrjár vikur eru frá því Vladimír Pútín var kosinn forseti Rússlands, og líta má á þessa af- greiðslu þingsins sem verulegan sigur hans í samskiptunum við þingið. Verulegar breytingar urðu líka á samsetningu þingsins eftir þingkosningarnar í desem- ber, þegar kommúnistar misstu tök sfn á þinginu. Boris Jeltsín, fyrrverandi for- seti, átti í stöðugu stappi við þingið, þar sem andstæðingar hans réðu ríkjum. Þingið hefur árum saman komið í veg fyrir staðfestingu samningsins, og hefur þar andstaðan við Jeltsín ráðið jafnvel meiru en málefna- leg atriði. Samkvæmt START II samn- ingnum eiga Bandaríkin og Rússland að minnka kjarnorku- vopnabirgðir sínar um helming, þannig að í árslok árið 2007 verði 3.500 kjarnaoddar eftir í Bandaríkjunum og 3.000 í Rúss- landi. Pútín mælti með því við þingið að samningurinn yrði samþykkt- ur. Hins vegar boðaði hann jafn- framt að rússnesk stjórnvöld myndu hætta að framfylgja öll- um samningum um vopnatak- markanir ef Bandaríkin fara ekki eftir samningi sem gerður var árið 1972 um takmörkun á lang- drægum flugskeytum (ABM- samningurinn). Bandaríkin hafa farið fram á það við Rússa að gerðar verði breytingar á þessum samningi þannig að Bandaríkin geti byggt upp varnarkerfi, sem yrði ætlað til þess að verjast árásum frá ríkj- um sem hlíta ekki alþjóðlegum samskiptavenjum, svo sem Norð- ur-Kóreu. Pútfn vill engar breytingar á samningnum frá 1972, og sagði í ræðu sinni á Dúmunni í gær að Rússar myndu ekki aðeins hætta að taka mark á START II samn- ingnum, heldur öllum samning- um um takmörkun og eftirlit með kjarnorkuvopnum og hefð- bundnum vopnum, ef Banda- ríkjamenn fara ekki í einu og öllu eftir samningnum frá 1972. Nýtt vopna- eftMit Oryggisráð Sameinuðu þjóð- anna samþykkti einróma í gær starfsáætlun fyrir nýju vopnaeft- irlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir írak. Helsta breytingin frá starfi fyrri vopnaeftirlitsnefnda er að nú verður eftirlitið ein- göngu undir stjórn Sameinuðu þjóðanna og eftirlitsmennirnir fá allar greiðslur beint frá Sam- einuðu þjóðunum, í stað þess að einstök ríki sjái um að greiða sínum fulltrúum í eftirlitinu fyr- ir störfin og hafi um leið viss völd yfir þeim. Ennfremur verður heimilt að fresta refsiaðgerðum á hendur írak ef stjórnvöld þar sýna eftir- litsmönnunum samvinnu. Aður þurfti eftirlitið að staðfesta eyði- Ieggingu allra gjöreyðingarvopna í Irak áður en hægt væri að hætta refsiaðgerðum. Stóra spurningin er hins vegar hvort írakar sætta sig við þessa skipan mála. Hans Blix, yfir- maður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna, segir þó að breyting- arnar ættu að gefa Irökum góða ástæðu til þess að fallast á þetta lyrirkomulag. Himdrað þúsund mdtmæla í Belgrað JUGOSLAVlA - Um það bil hundrað þúsund manns komu saman á mótmælafund gegn Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, í gær. Þess var krafist að kosningum verði flýtt. Það voru stjórnarandstöðu- hóparnir sem boðuðu sameiginlega til þessa mótmælafundar. í janú- ar síðastliðnum komu stjórnarandstöðuhóparnir, sem verið hafa sundraðir, sér saman um berjast sameiginlega gegn Milosevic, en af sameiginlegum mótmælaaðgerðum gat þó ekki orðið fyrr vegna þess að hóparnir gátu ekki komið sér saman um hvernig þau mótmæli ættu að fara fram. Fundurinn í gær er fyrstu fjölmennu mótmælaað- gerðirnar frá því í ágúst á síðasta ári. 1401 árs fangelsisdómur SPÁNN - DómstóII á Spáni dæmdi á fimmtudaginn mann, sem tók þátt í sprengjuárás á Spáni árið 1986, í 1401 árs fangelsisvist. Mað- urinn tilheyrði aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA, og 12 manns létu lífið af völdum sprengjunnar sem sprakk á torgi í miðborg Madríd árið 1986. Auk þess særðust 77 manns hið minnsta. Juan Manuel Soares nefnist maðurinn, og hann hafði játað hlut sinn í sprengju- árásinni. Auk fangelsisvistar var Soares dæmdur til þess að greiða fyr- ir það eignatjón sem sprengin olli á 5 1 bifreið og 297 byggingum. Þessi dómur er þó ekki einsdæmi, því árið 1987 voru fjórir aðrir menn dæmdir í 2232 ára fangelsi hver fyrir þátttöku í sömu sprengjuárás. Stjómarandstaðan áfram sterk SUDUR-KÓREA - Kim Dae-jong og stjórnarflokkur hans í Suður- Kóreu vann nokkurn sigur í þingkosningum sem f’ram fóru á fimmtu- dag. Stjórnarflokkurinn er nú með 11 5 þingsæti. Hins vegar er Þjóð- arflokkurinn enn stærsti stjórnmálaflokkur landsins, með 133 þing- menn. Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 26. útdráttur 4. flokki 1994 - 19. útdráttur 2. flokki 1995 - 17. útdráttur 1. flokki 1998 - 8. útdráttur 2. flokki 1998 - 8. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 2000. Öll númerin veróa birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess liggja upplýsingarframmi hjá íbúóalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. íbúðalánasjóður | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800 Wilton® bökunarvörur HÚSASMIÐJAN Sími 460 3500 • www.husa.is

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.