Dagur - 26.04.2000, Síða 6

Dagur - 26.04.2000, Síða 6
6 - MIDVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. A mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 kr. helgarblað Grænt númer: soo 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍKJ563-1615 Amundi Amundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRIJ460-6192 Karen Grétarsdóttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (reykjavIk) Arfur og óstjóm í fyrsta lagi Þau blóðugu átök sem nú eiga sér stað í Zimbabve lýsa vel því ömurlega ástandi sem ríkir í mörgum Afríkuríkum þar sem mannréttindi eru einskis metin. Nýfrjálsar þjóðir þessa mikla meginlands búa enn við grimman arf misréttis og kúgunar sem einkenndi stjórnarfar evrópsku nýlenduherranna. Þá hafa óprúttnir og óhæfir forystumenn brotist til valda í mörgum þessara ríkja og beita nú öllum tiltækum ráðum til að halda stöðu sinni við kjötkatlana. Þetta tvennt - illur arfur og óstjórn - skýrir ógnaröldina í Zimbabve. 1 öðru lagi Það var ekki fyrr en árið 1980 að meirihlutastjórn komst á í Zimbabve sem áður hét Ródesía og var lengi bresk nýlenda en í nokkur ár sjálfstætt ríki undir stjórn hvíta minnihlutans. Nú- verandi forseti, Mugabe, var annar helsti leiðtogi þeirra sem börðust fyrir meirihlutastjórn og varð forseti ríkisins í almenn- um kosningum. En eftir tuttugu ára óstjórn óttast hann um valdastöðu sína og beitir því ruddum sínum gegn pólitískum andstæðingum að sið evrópskra fasista um miðja síðustu öld. Þessi ógnaröld mun magnast allt þar til gengið hefur verið að kjörborði seinna á þessu ári og tryggt með ofbeldi og svindli að flokkur forsetans haldi velli. í þriðja lagi Arfur fortíðarinnar er hins vegar óleyst vandamál. A nýlendu- tímanum var besta ræktarlandið í höndum hvítra bænda. Það hefur lítið breyst á síðustu tuttugu árum nema hvað pólitískir bandamenn Mugabe hafa fengið brot af kökunni. Alþýða manna býr enn við þá hrikalegu misskiptingu gæðanna sem einkenndi nýlendutíniann. Krafa þjóðarinnar um að stóru landareignunum verði skipt upp og að gamla nýlenduþjóðin aðstoði við það verk er því réttlætismál. En sú stefna pólitísks ofbeldis sem Mugabe hefur beitt sér fyrir mun ekki leiða til aukins réttlætis heldur óstjórnar og meiri fátæktar. Því miður bíða flestar þjóðir Afríku enn eftir forystumönnum sem bera hag almennings fyrir brjósti. Elias Snæland Jónsson. Salómon og Sámur Garri minnist þess að hafa sem barn Iesið söguna um stjórnvisku Salómons konungs af mikilli athygli og jafnframt fyllst nokkrum hryllingi yfir því hversu kaldrifjaður kon- ungurinn virtist vera þegar hann fyrirskiptaði að höggva skyldi barnið í tvennt og fá konunum, sem um það deildu hvorri sinn helminginn. Það var eiginlega ekki fyrr en á tán- ingsaldri að Garra lærðist að skilja að Slómón ætlaði aldrei í alvöru að höggva barnið sund- ur, heldur væri til- gangurinn sá einn að kalla fram við- brögð hjá konunum sem gerðu kröfu til að vera mæður þess. En Garri hefur þó aldrei alveg getað hætt að hugsa um hvað hefði gerst ef „mæðurnar" hefðu brugðist við á ein- hvern annan hátt en konung- urinn gerði ráð fyrir. Til dæm- is ef þær hefðu í undirgefni við hinn konunglega úskurð sætt sig við niðurstöðuna. Hefði Salómón þá látið höggva barn- ið í tvennt? Við þeirri spurn- ingu fæst víst aldrei svar! Nútímasaga Hins vegar hefur nú fengist svar við nútímaútgáfu af þessu máli, þar sem konungurinn heitir að vísu ekki Salómon heldur Sámur. Kúbverkst barn sem rak á fjörur Sáms frænda hefur verið eitt helsta frétta- efni heimspressunnar síðustu vikur vegna deilna sem risiö hafa um hvar og hjá hverjum harnið ætti að eiga heima. Olíkt Salómon forðum sem tók skjótar og afdráttarlausar ákvarðanir, hefur Sámur látið málefni Elíans litla Gonzalesar dragast von úr viti þannig að V segja má að í staðinn fyrir hót- un um að höggva barnið í tvennt og láta deiluaðilum eft- ir sitt hvorn helminginn, má segja að stríðandi fylkingar hafi nú náð að slíta barnið í tvennt - ef ekki í bókstaflegri líkamlegri merkingu, þá er sál- artetrið í það minnsta orðið sundurtætt. Greinilegt er að Sámur er enginn Salómon. Rambó í málið Það má þó Sámur eiga að á endanum tók hann af skarið og fékk Rambó til að koma barninu til föður síns, þangað sem það átti að sjálf- sögðu að fara strax í upphafi. En málið allt er hins vegar kennslubókardæmi um það í hvers kon- ar ógöngum slík deila getur lent ef menn búa ekki við þá gæfu að eíga sinn Salómon. Enda hefur málið haft ófyrir- séðar afleiðingar fyrir Sám frænda. Margir af helstu bak- hjörlum hans í gegnum árin hafa brugðist við með gagn- rýni. Slíku er eflaust erfitt fyr- ir Sám að kyngja, en engu þó eins og því sem kom frá sjálf- um fóstbróður Sáms, Morgun- blaðinu á Islandi. I leiðara blaðsins urðu einmitt þau tímamót vegna þessa máls, að Sámur sætti gagnrýni. Hefur það eflaust verið tilfinninga- þrungið á alla kanta, bæði fyr- ir Morgunblaðið að missa hetju sína og Sáni að glata trausti síns mesta stuðnings- manns. Þessi sorgarsaga úr nútímanum sýnir okkur hins vegar í endurnýjuðu Ijósi, hversu mikil snilld Salómons raunverulega var. — GARIíl ODDUR ÓLAFSSON SKRIFAR Ágætlega kaþólskur maður tók eft- ir því að á íslandi tók fyrir allan draugagang í 500 ár og héldu aft- urgöngur og vættir sig víðs fjarri þann tíma sem Iandsmenn trúðu á óskeikulleik páfans í Róm og ját- uðust undir kaþólskt afbrigði kristindómsins. Heilög kirkja við- urkennir nefnilega ekki drauga eða flakk franiliðinna í mann- heimum og enn si'ður bjargbúa og hulduþjóðir í allnánu sambýli við söfnuði sína. En urn leið og siða- skipti fóru fram og mótmælendur tóku völdin og gengust undir danska kónga með miklum svar- dögum, sprutlu afturgöngur upp úr öllum kirkjugörðum, álfar og huldufólk tóku sér búsetu í stein- um og hömrum og tröll og grýlur þrömmuðu um óbyggðir á nýjan leik. Nær allar okkar þjóðsögur um drauga og fotynjur eru frá fýrstu tveim öldunum eftir siðaskipti eða frá þeirri söguöld sem lauk með Fjölskrúðugt trúarlíf kristintökunni. Þetta færir heim sanninn um, að vætta- og drauga- trúin lifði með þjóðinni í hálfa þúsöld, þótt hún væri ekki játuð opinberlega og þegar bannhelg- inni af hinni fornu trú var aflétt kom í ljós að Iítið leitöi af því, að þjóðin væri álíka heiðin og hún var áður en Þor- geir Ljósvetningagoði skreið undir feldinn. Genetískur siður Svona getur forn trú verið lífsseig og berst frá kynslóð til kynslóðar eins og erfðirnar í genunum, sem nú er orðinn niikill gróðavegur að rannsaka, hvað sem þau vísindi kunna að bera í skauti sér. Það var hugnæmt að sjó nokkra sóldýrkendur tilbiðja guð sinn á þeim helga stað Þingvöllum aö morgni páskadags undir hand- leiðslu kirkjunnar þjóna. Átti að heita að sú helgistund væri til- einkuð afmæli kristnitökunnar sem mikið stáss er gert með og þjóðkirkjan hefur forgöngu um að minnast með veglegum hætti. Sóldýrkun er forn átrúnaður og mun það vera sameiginlegt áhangendum hans að standa í tilbeiðslustell- ingum og horfa á guð sinn koma upp fyrir sjóndeildarhring og veita birtu um himin- hvolfin og yl til lífríkis- ins á jörðinni. Nú hefur þessi gamli siður lifað af sér kaþólsku og Lútersku og geng- ið í endurnýjun lífdaganna á sjálfu kristnitökuárinu. Trúskipti Litlum sögum fer af blótum eða goðadýrkun á Þingvöllum, en eigi að síður var þingstaðurinn helgur og það voru menn hins heiðna sið- ar sem stofnuðu þar Alþingi og lögðu grundvöllinn að þjóðveldinu og helgi staðarins. Án Alþingis hefði kristni aldrei verið lögtekin með svo friðsömum og siðlegum hætti sem raun ber vitni. Þess mættu nienn gjarnan minnast á þúsaldarafmæli íslenskrar l<ristni. En hvaðan nývakin sólardýrkun kemur inn í íslenskt trúalíf er erf- iðara að átta sig á en er kannski hægt að rekja til keltnesks upp- runa ef vel er leitað í genafræð- inni. Hitt er undarlegra, ef þjóð- kirkjan er með beinurn hætti eða óbeinum farin að ýta undir dýrkun sólar til hátíðarbrigða. En sóldýrk- endur munu sóma sér við við hlið Jörmundar allsherjargoða þegar evangelísk-lútersk þjóðkirkja fagn- ar því að kaþólskur siður var tck- inn í lög Þingvöllum árið 999. En fróðlcgast verður að frétta hvar mammonsdýrkendum verður skipað til sætis. Á Þingvöllum eru margir guðir dýrkaðir. Á að takmarka eða banna sinubruna? SiguróurG. Tómasson framkv.stj. Skógræhtarfélags Reykjavíkur. „Það á að banna sinubruna. Þeir valda skaða og mengun, spilla gróðri, rýra vist- kerfi, fækka gróðurtegund- um - og drepa fjölærar tegundir einsog lyng, víði og birki - og fleiri tegundir hverfa einnig. Einnig eyðileggja þeir búsvæði fugla, drepa örver- ur og skordýr sem eru nauðsyn- legir í lífkeðjunni og síðast en ekki síst skapa þeir mikla hættu einsog dæmi síðustu vikna sanna. Sinubrunar eru leyfar fornra búskaparhátta og bændur sem halda að þetta bæti landið þurfa aðstoðar við.“ Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri á Akureyri. „Það er löngu búið að banna sinubruna með lögum, en und- anþágur eru veittar í ein- staka tilvikum af sýslumanni, en aðeins til bænda á lögbýlum. Þarf þá góðan rökstuðning til. Eg er á því að takmarka eigi und- anþágurnar einsog kostur er. Út- köll slökkviliða kosta samfélagið mikið á hverju ári. I mörg ár höf- um við kært til lögreglu alla þá sem kveikja sinuelda í leyfisleysi, til þess að gera ábyrgðina ljósa.“ Ólafur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur Bændasam- takaíslands. „I einstaka til- vikum getur verið réttlætan- legt að gefa út leyfi til bænda til að brenna sinu á afmörk- uðum svæðum undir ströngu eftirliti. Almennt eru fáir kostir við sinubruna, en sumir telja að Iand geti að bruna loknum verið aðgengilegra til beitar á vorin en þetta er ekki vísindalega sannað. Sinubrunar eru líka að vcrða mun hættulegri í dag en var, m.a. vegna aukinn- ar í skógræktar og eins þar sem beit er minni er eldsmeti rneira." Sigurbjartur Pálsson bóndi í Þykkvabæ. „Eg tel ekki ástæðu til að banna sinu- bruna. En reynsla mfn frá helginni, þegar ég missti úr böndunum sinubruna í mýrinni hér ofan við byggðina í Þykkvabæ, sýnir að alla aðgát verður að hafa og að- stæður þurfa að vera í lagi. Bæði var jarðvegur mjög þurr og síðan vatt sig upp rok eftir að ég lagði eld að sinunni. Hvað varðar mýr- ina hér er álit margra að brenna þurfi sin á nokkurra ára frcsti, en þar sem mosi er eða trjágróður eða fjölskrúðugt fuglalíf er vita- skuld sinubruni fráleitur."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.