Dagur - 26.04.2000, Page 11
FRÉTTIR
Ðgptr
Slökkviliðsmenn og lögregla á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nógu að snúast um páskahelgina vegna sinubruna,
einhverju vinsælasta viðfangsefni óvita og brennuvarga þessa dagana.
40 sinubnmar
páskana
um
Lögreglan í Reykjavík
sinnti ríflega 900 mál-
um yfir páskana, sem
er uiiuua annríki en
síðustu ár. Sinubnmar
áberaudi í dagbókiuni.
í dagbók lögreglunnar segir að
skemmtanahald hafi að mcstu
gengið átakalaust fyrir sig. Karl-
maður var þó handtekinn aðfara-
nótt laugardags eftir að hann
hafði verið að kasta glerflöskum
og glösum að fójki á Hverfisgötu.
Flytja varð einn á slysadeild vegna
áverka al þessum sökum. Hinn
handtekni var vistaður í fanga-
geymslu lögreglu.
Mikið um hiaðakstux
Talsvert bar á hraðakstri um há-
tíðina og voru 101 ökumenn
kærðir þar sem þeir óku talsverð
braðar en lög gera ráð fyrir. Þá
voru 19 ökumenn stöðvaðir vegna
gruns um ölvun við akstur. Að
minnsta einn þessara ökumanna
fór í báða málaflokkanna því hann
mældist á 150 km hraða á Vestur-
Iandsvegi og í þokkabót ölvaður
undir stýri. Þetta var aðfaranótt
fimmtudags og um kvöldið þann
dag mældist annar ökumaður á
ofsahraða á bíl sínum, að þessu
sinni á Miklubraut við Skeiðar-
vog, þar sem hann mældist á 140
km hraða. Lögreglan stöðvaði
akstur mannsins og svipti hann
ökuréttindum á staðnum.
Aðeins eitt innbrot er bókað í
dagbók lögreglunnar, sem er
óvenjulítið, en brotist var inn á
heimili í austurborginni á föstu-
dag og þaðan stolið ýmsum tækja-
búnaði.
Ekið og ráðist á vegfaranda
Síðdegis föstudaginn langa var
ekið á mann í Seljahverfi. Það er í
sjálfu sér ekki sjaldgæfur viðburð-
ur nema hvað að ökumaðurinn
veittist að vegfarandanum eftir
óhappið með skrúfjárni. Vegfar-
andann sakaði ekki en Iögreglan
handtók ökumann, sem grunaður
er um ölvun.
Þá réðst maður á konu með
hnífi á Laugavegi að morgni laug-
ardags. Konunni tókst að komast
undan inn á vinnustað sinn, áður
en maðurinn náði að valda henni
áverka. Arásarmaðurinn er ófund-
inn. Ekki segir frá því í dagbók
lögreglunnar en unglingspiltur
réðst að leigubílstjóra í Hvassaleiti
um helgina og stakk skurðhnífi í
brjósthol hans. Hnífsblaðið brotn-
aði á rifbeini leigubílstjórans, sem
reyndi án árangurs að elta piltinn
uppi. Ætlaði hann að fá skipt 5
þúsund króna seðli hjá leigubíl-
stjóranum þegar hann skyndilega
tók upp kutann.
Eldur viðar en í sinu
Eins og fram kom um helgina
voru sinubrunar algengir á höfuð-
borgarsvæðinu, og víðar um land.
I dagbókinni segir að lögreglunni í
Reykjavík hafi verið tilkynnt um
40 slíka bruna yfir páskahátíðirn-
ar, sem verður að teljast dágott,
þ.e. Ijöldi málanna.
Eldur varð víðar laus en í sinu.
Pottur gleymdist á eldavél í íbúð í
Seljahverfi og hlutust af nokkrar
reykskemmdir. Þá vöknuðu íbúar í
húsi í vesturbænum við reykjar-
lykt aðfaranótt fimmtudagsins.
íbúi á efri hæð hafði sofnað út frá
logandi vindlingi og hafði eldur
kviknað í dúk á borðinu og eins
urðu aðrar skemmdir. Hinn svefn-
sami reykingarmaður var fluttur á
spítala til skoðunar vegna reyk-
eitrunar.
Síðdegis á föstudag var tilkynnt
um lausan eld í iðnaðarhúsnæði
við Dugguvog. Allt tiltækt slökkvi-
lið var sent á vettvang og gekk
starf þeirra vel fyrir sig, að sögn
lögreglu. Mikið tjón hlaust af eld-
inum bæði á tækjum og húsnæð-
inu sjálfu. Lögreglan vinnur nú að
rannsókn \áð að finna út cldsupp-
tök.
I fyrrinótt var kveikt í rusli í
Þingholtsstræti. Fólk sem þar
kom að náði að slökkva eldinn.
Skömmu síðar var einnig kveikt í
rusli við Vegamótastíg. Nokkrar
skemmdir urðu á klæðningu húss-
ins við eldinn.
Sofnaði í baðinu
Lögreglan þurfti í ýmsu að snúast,
m.a. að aðstoða ökumann sem
lenti í því á Vesturlandsvegi við
Mógilsá að einn hjólbarði bílsins
fór undan í akstri, hentist yfir veg-
inn, yfir vegriðið og endaði úti í
sjó. Að sögn lögreglu hafði ekki
veriö try'ggilega gengið frá hjól-
barðafeslingum en ökumaðurinn
hafði nýlega skipt yfir á sumar-
dekk á bílnum.
Þá veitti lögreglan einum borg-
ara aðstoð á fjórðu hæð í blokk
sem sofnað hafði í baðinu og vatn
lekið niður á neðri hæðir.
Skemmdir urðu nokkrar af völd-
um þessa lúrs.
Lögreglan sinnti einnig jákvæð-
um verkefnum, eins og það að að-
stoða skáta í skrúðgöngu sinni
sumardaginn fyrsta og IR-inga
vegna árlegs víðavangshlaups.
- BJB
Met hjá tölvunefnd
Enn eitt árið var slegið met í
fjölda mála sem barst tölvunefnd,
samkvæmt ársskýrslu nefndarinn-
ar fyrir árið 1998. AIls bárust
nefndinni 509 erindi og hefur
málum fjölgað samfellt frá 1991,
þegar erindin voru 141. Fjölgun
frá 1997 var uppá 70 mál eða
16%.
Auk þess sem nefndinni bárust
509 erindi voru fyrir óafgreidd frá
fyrra ári 52. A árinu tókst að af-
greiða 493 erindi og Iluttust því
68 miili ára. Kostnaður við starf
nefndarinnar þetta árið var uppá
5,7 milljónir króna og var það
26,5% umfram Ijárlög. Þessi
kostnaður samsvarar því að kostn-
aður á bak við hvert afgreitt erindi
hafi numið 11.500 krónum.
Meðal umfangsmikilla mála
nefndarinnar árið 1998 má nefna
gagnagrunninn á heilbrigðissviði,
fjarskiptalög og myndbandsupp-
tökur af starfsmönnum fyrirtækja.
- r-Þc,
MIDVIKUDAGVR 26. APRÍL 2000 - 11
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
föstudaginn ianga, 21. apríl.
Fyrir hönd barna og annarra aöstandenda,
Kristján Einarsson.
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi
ÞÓRÐURJÓNSSON,
Sölvholti,
Hraungerðishreppi Flóa,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi mánudaginn 17. apríl.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 28. apríl kl. 13.30 frá
Selfosskirkju, en jarðsett veröur í Laugardælakirkjugarði.
Sólveig V. Þóröardóttir, Sigfús Kristinsson,
Vilborg G. Þóröardóttir, Hjörleifur Tryggvason,
Jón Þóröarson,
Bergur Ketilsson, Gunnur Gunnarsdóttir,
Jón Óli Vignisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir, stjúpdóttir, systir og frænka,
JÓHANNA SIGRÚN GUÐMANN,
er lést 21. apríl, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 28. apríl kl 13.30.
Stefanía Jóhannsdóttir, Bragi Steinsson,
Helga Guömann,
Elfsabet Haukaas, Geir Haukaas,
Einar Guömann, Hólmfríöur Siguröardóttir
og systkinabörn.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SiMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag og
breytingu á deiliskipulagi í
Reykjavík
Háskóli íslands, austursvæði
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á deiliskipulagi austursvæðis Háskóla
íslands. Um er að ræða nýja afmörkun reits H á
austursvæði Háskóla íslands og breytingu á
byggingarreit.
Engjateigur 7, skipulag á lóð
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á skipulagi lóðar nr. 7 við Engjateig, þar
sem reisa á skrifstofu- og þjónustuhús.
Kjalarnes/Klébergsskóli, deiliskipulag
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi.
Bíldshöfði 20, skipulag á lóð
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
breytingu á skipulagi lóðar nr. 20 við Bíldshöfða m.a.
með byggingu bílgeymslu á austurhluta ióðarinnar.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags- og
Byggingarfulltrúa, Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10:00 - 16:00 frá 3. maí til 31. maí 2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags eigi síðar en 14. júní 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan
tilskilins frests, teljast samþykkir.