Dagur - 28.04.2000, Page 11

Dagur - 28.04.2000, Page 11
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 - 11 Ð&yr. í tilefni 1000 ára afmælis kristni hér á landi afhenti Gfdeonfélagið öllum þingmönnum Nýja testamentið að gjöf í vikunni. Guðmundur Árni Stefánsson, varaforseti Alþingis, veitti gjöfinni viðtöku úr hendi formanns Gídeonfélags- ins, Sigurbjörns Þorkelssonar. -mynd: e.ól 4 miUjóiiir siá Island á EXPO Nú styttist í heims- sýningiuia í Hannover, EXPO 2000. íslenski skál- inn inini án efa vekja mikla athygli. Heimssýningin í Hannover í Þýskalandi, EXPO-2000, hefst 1. júní nk. og stendur til 31. októ- ber. Aætlaður fjöldi sýningar- gesta er 40 milljónir og gert er ráð fyrir að 10% gesta muni sækja íslenska sýningarskálann meðan á sýningu stendur. Is- lenski skálinn tekur mið af yfir- skrift sýningarinnar, maður, nátt- úra og tækni. Skálinn er stá- grindarhús, klætt bláum dúk. Byggingin er 23X23 metrar að grunnfleti og 18 metrar að hæð. Niður hliðar þess rennur vatn af þaki byggingarinnar. lslenskar fjölskyldumyndir, nöfn allra ís- lendinga frá upphafí, margmiðl- unarkynning á landi og þjóð og kynning á íyrirtækjum er meðal þess sem gestir munu njóta í heimsókn sinni í fslenska skál- ann. Við hringlaga tjörn í miðjum skálanum verður sýnd kvikmynd sem fjallar um íslenska náttúru, náttúruperlur íslands sem inn í er fléttuð hugleiðing um ljósið. Kvikmynd verður sýnd úr 16 metra hæð en áhorfendur fylgj- ast með kvikmyndinni frá sama sjónarhorni og hún cr tekin, þ.e. 90° á jörðina. Margmiðlunarefni skipar veglegan sess á sýning- unni í íslenska skálanum. Leitast verður við að nálgast cfnið út frá persónulegu sjónarhorni með sérstaka áherslu á samspil Is- lendinga við íslenska náttúru og tækni. Kynningin mun endur- spegla daglegt líf Islendinga, per- sónuleika okkar og hegðunar- mynstur á nýstárlegan hátt. Hönnuður skálans og sýning- arstjóri er Arni Páll Jóhannsson. Verkfræðileg ráðgjöf og önnur hönnun var í höndum Línu- hönnunar, Fjarhitunar og Raf- teikningar. Framkvæmdasýsla ríkisins veitti verkefninu einnig aðstoð. íslensku fyrirtækin Þau íslensku fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni eru Samskip, Eimskip, Fjárfestingabanki at- vinnulífsins, Búnaðarbankinn, Frost, Harpa, Landsvirkjun, RARIK, Hitaveita Suðurnesja, Orkuveita Reykjavfkur og Bláa lónið. Segja má að yfírskrift sýn- ingarinnar: maður, náttúra og tækni eigi sérstaklega vel við Bláa lónið þar sem maðurinn nýtir sér hátækni við að beisla náttúruna og nýta hana síðan á einstakan hátt til að auka vellíðan og bæta heilsu manna. Þátttaka Bláa lónsins í sýningunni mun m.a. einnig felast í því að húðverndar- vörur fyrirtækisins verða seldar í verslun sýningarskálans. -GG Krafti gefnir tveir farsímar Síminn hefur fært Krafti tvo GSM-síma með Frelsisáskrift að gjöf. Kraftur er stuðningsfélag íyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandend- ur þess. Félagið ætlar m.a. að nota símana til að bjóða upp á reglulegan símatíma (ýrir félags- menn sína. Símarnir eru af gerð- inni Benefon Twin, sem er ný- kominn á markaðinn. Benefon Twin er gerður fyrir bæði tíðnisviðin, sem notuð eru í GSM-kerfi Símans og búinn ýmsum kostum. Símarnir eru með íslenskum valmyndum. Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- mála Símans, afhenti Hildi Björk Hilmarsdóttur, formarni Krafts, símana með þeirri ósk að þeir nýttust félaginu vel.. Stofnun Ferðamiðstöðvar Skagafjarðar Á fund atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar nýverið mætti Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunnarfélags Skagafjarðar til að kynna og gera grein fyrir stofnun Ferðamiðstöðar Skagaljarðar. Hlut- verk félagsins er m.a. að markaðssetja Skagafjörð sem vænlegan áningastað fyrir ferðamenn, styðja nýsköpun f ferðamálum á svæðinu og vinna að sameiningu fjármagns, starfsemi og stjórnun til hagsmuna fyrir félagið. Atvinnu- og ferðamálanefnd leggur til að gerður verði samningur við IN- VEST um Ijármagn til Ferðamiðstöðv- ar Skagafjarðar. Aukin nyt af veiðiun Ákveðið hefur verið að boða til fundar með formönnum veiðifélaga í Skagafirði og fulltrúum vatnabænda. Markmiðið er að efla sam- vinnu og auka nytja af veiðum. Bjarni Jónsson verður fenginn til að hafa framsögu á fundinum. Rætt var um framhald á hestadögum í Skagafirði og ákveðið að óska eftir fundi með stjórn Hestamiðstöðv- ar Islands og Bjarna Maronssyni, formanni Hrossaræktarsambands Skagfírðinga. Samþykkt var að boða fulltrúa Ferðafélags Skagafjáfð- ar á fund til að ræða gönguferð að Oskatjörn á þessu sumri. Orri Hlöðversson. Stuðningiir við flutning RARIK jþakkaður Á fundi byggðaráðs Skagafjarðar nýlega var Iagt fram til kynningar bréf frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar, dagsett 17. apríl 2000, þar sem þakkaður er stuðningur byggðarráðs Skagafjarðar við flutning RARIK til Akureyrar. Tindastólsmenn fá hæsta styrkinn frá sveitarfélagi sínu, 5 milljónir, en fé- lagið fór fram á helmingi meira enda starfsemin sífellt fjárfrekari. TindastóU hlaut hæsta styrkinn Menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefnd Skagafjarðar hefur úthlutað styrkjum til íþróttamála og kemur hæsti styrkurinn í hlut ungmenna- félagsins Tindastóls, 5 milljónir króna, en ungmennafélagið sótti um 10 milljón króna styrk. Aðrir sem styrk hlutu voru Ungmennafélagið Hjalti 140 þúsund krónur , Hestamannafélagið Léttfeti 210 þúsund krónur, Golfklúbbur Sauðárkróks 800 þúsund krónur, Ungmenna- samband Skagafjarðar eina milljón króna, UÍ Smári 350 þúsund krónur, Hestamannafélagið Svaði 1 50 þúsund krónur, Ungmennafé- Iagið Neisti 525 þúsund krónur og Hestamannafélagið Stígandi 210 þúsund krónur. Afgreiðslu vegna beiðna Bílaklúbbs Skagafjarðar og Grósku var frestað en beiðnum Skíðafélags Fljótamanna og ung- linganefndar Golfídúbbs Skagafjarðar var hafnað. Ennfremur var samþykkt að veita Gumundi Ingva Einarssyni styrk að upphæð 1 5 þúsund krónur, Knattspyrnuskóla Islands 400 þúsund krónur, Helga Frey Margeirssyni 15 þúsund krónur, Skagfirðingasveit vegna Trölla 100 þúsund krónur og Bridgefélagi Sauðárkróks 1 00 þúsund krónur. LeiMélag Sauðárkróks styrkt um hálfa milljón króna Menningarsjóður veitti einnig styrki. Alþýðulist fær 50.000, Leikfé- lag Sauðárkróks 500.000, Kammerkór (Hallgrímshópurinn) 50.000, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir 50.000, Rósmundur Ingvarsson 100.000, Rökkurkórinn 100.000, Sögufélag Skagfirðinga 400.000, Fjölbrautarskólinn vegna Frakklandsfarar 50.000, Viðar Hreinsson 1 50.000, Samband skagfirskra kvenna 50.000 og Hólaskóli vegna fræðsluef’nis 100.000. Áfgreiðslu á styrkbeiðnum frá Skotfélaginu Osmann og Vilborgu Halldórsdóttur var frestað en beiðni kórs Fjöl- brautarskólans var hafnað. Einnig var samþykkt að veita Hólanefnd 100 þúsund króna styrk vegna tónleikahalds. Nefndin samþykkti að ljúka framkvæmdum utanhúss við Félagsheimilið Höfðaborg og fól stjórn félagheimilisins að láta bjóða verkið út. -GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.