Dagur - 06.05.2000, Síða 4
4-LAUGARDAGVR 6. MAÍ 2000
í>figwr
FRÉTTIR
Frá ráðstefnu landsbyggðarhjúkrunarfrædinga á FSA í gær.
Þörf er á nýjum
hugmyndiun
Hjúknmarfrædiugar allt
frá Hvanunstanga í vestri
austur tH Homafjarðar
sátu á námsstefnu um
helgina á Akureyri í gær
um bætta þjónustu við
krabbameinssjúklinga á
landsbyggðúmi.
Um landsbyggðamál er að ræða að
mati hjúkrunarfræðinga en á sumum
fámennari stöðum landsins byggist
þjónusta við krabbameinssjúkt fólk
íyrst og fremst á góðvilja þeirra hjúkr-
unarfræðinga sem þar starfa fremur en
skipulagðri eða ákveðinni heilbrigðis-
þjónustu sem íbúar allra stærri þéttbýl-
isstaða njóta. Um 40 hjúkrunarfræð-
ingar sækja námsstefnuna.
Elísabet Hjörleifsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á Akureyri, sem starfar að
þjónustu og aðhlynningu krabba-
meinssjúldinga, segir að námsstefnan
sé fyrst og fremst til þess að hjúkrunar-
fræðingar á þessu svæði samræmi sitt
starf og þiggi ábendingar og hugmynd-
ir frá kollegum af öðrum svæðum.
Hjúkrunarfræðingum á landsbyggð-
inni, sem að á einn eða annan hátt
koma að umönnun krabbameinssjúk-
linga, hefur Iengi verið Ijóst að stuðla
þurfi að aukinni samvinnu til að trygg-
ja samfellu í þeirri þjónustu sem veitt
er einstaklingum með krabbamein og
fjölskyldum þeirra. Þörf sé á nýjum
hugmyndum hjá því fólki sem vinnur
að stefnumótun í uppbyggingu þjón-
ustu við krabbameinssjúka. Því hafi
verið tímabært að byrja á því að kanna
viðhorf hjúkrunarfræðinga til skipu-
lags þjónustunnar, starfsumhverfis og
hvað það væri sem þeir teldu að endur-
skipuleggja þyrfti til þess að bæta þjón-
ustuna við þennan sjúklingahóp.
Markmiðið er samfelld þjónusta
Námsstefnunni er ætlað að leggja
grunn að þróun samfelldrar og mark-
vissrar þjónustu við krabbameinssjúk-
linga á Norður- og Austurlandi. Ætlun-
in er að gera tillögur um þá stefnu og
þær aðstæður sem nauðsynlegar eru til
þess að tryggja góðar starfsvenjur á
krabbameinssviði og hvernig hægt er
að hrinda þeim í framkvæmd. Einnig
verði hugað að því hversu auðvelt það
sé íyrir sjúklinginn að nálgast slíka
þjónustu. Aðaláherslurnar í því sam-
bandi eru að að tryggja þessum sjúk-
lingahópi gæðaþjónustu af fagfólki
óháð búsetu, þegar því verður við kom-
ið, í heimahúsum eða inni á stofnun-
um. Sjúkrahúsunum beri að vinna að
sama markmiði. Heildræn stefnu-
mörkun er nauðsynleg þar sem mark-
miðið er að vinna að gæðaumbótum í
skipulagningu og klínisku starfi.
Olafur Hergill Oddsson, héraðs-
læknir Norðurlands eystra segir brýna
þörf á samræmingu þjónustu krabba-
meinssjúklinga á Iandsbyggðinni, og
alltaf megi bæta þjónustuna og gera
fleirum það kleyft að vera lengur
heima hjá sínum nánustu. Margir
sjúklingar í dreifbýlingu búi hins vegar
við góða þjónustu, og oft mun per-
sónulegri þjónustu vegna mannfæðar-
innar, en hins vegar geti fjarlægðin til
næsta sjúkrahúss gert málið erfiðara.
- GG
Haft var á orði á stofn-
fundi Samfylkingarinn-
ar í gær þegar Össur
Skarphéðinsson flutti
ræðu sína að hann væri
orðiiui sérstaklega landsföður-
legur. Ekki einasta væri ræðan í
hefðbundinni flokksforingja-
lengd, eða um 15 mínútur, held-
ur væri Össur hreint ekkkert
ósvipaöur sjálfun Davíð á velli -
þeir væru greinilega báðir með
landsfe ðravaxtarlagið...
Össur Skarp-
héðinsson.
Eins og greint hefur verið frá í pottinum áður
hefur sú kenning verið nokkuð úthreidd að Öss-
ur Skarphéðinsson hafi gefið Bryndísi Hlöðvers-
dóttur góð orð um það að hún verði næsti þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar. Enda hefur
Bryndís stutt við hakið á hinum
nýja formanni. Pottveijar fregn-
uðu það hins vegar í gær að
nokkuð babb væri komið í bát-
inn því Þórunn Sveinbjamar-
dóttir óg stuðiúngsmenn lieimar
væra nokkuð stíf á því að hún
ætti að verða næsti þingflokks-
formaður...
Bryndís
Hiöðversdóttir.
Til tíðinda dró á pressukvöldi Blaðamannafé-
lags íslands sem var á Sólon íslandus í fyrra-
kvöld. Þar var rætt um hlutabréfamarkaðinn og
trúverðugleika ijölmiðla í slíkri umljöllun. Var
meðal frammælenda Páll Magnússon, frétta-
stjóri Stöðvar 2, en sem kunnugt er hefur haim
nú sett reglur um hlutabréfaeign fréttamanna
sinna og mega þeir ekki fjalla um mál þess fyrir-
tækis sem þeir eiga hlut í. Það var hinsvegar
Bogi Ágússson fréttastjóri Sjónvarpsins sem
kom sá og sigraði á fundinum - en hann sagði að
reglur um þessi efna væri óþarfar. Sagði Bogi að
réttara væri að setja reglur um stjómmálaaf-
skipti fréttamanna, en á Sjónvarpinu gildir sú
regla að fréttamenn mega vera skráðir í flokki en
ekki taka virkan þátt í flokksstarfi. Rifjaðist þá
upp fyrir sumum á iúndinum að nokkrir frétta-
menn Sjónvarps vora á þingi SUS í fyrrasumar -
og skilja pottverjar því ekki alveg hvemig reglur
RÚV virka í raun...
FRETTA VIÐTALIÐ
Böm samkynhneigðra 800 -1200
Þorgetður Katrín
Gunnarsdóttir
formaður allshetjamefndar Alþingis
Allsherjamefiid mælirmeð
því að samkynhneigðirfái að
ættleiða böm maka. Veriðað
hugsa um böm maka í stað-
festri sambúð. Skiptar skoðan-
ir á þingi og í þjóðfélaginu.
- Hver eru röldn jyrir því að mæla fyrir
lögfestingu ú stjúpættleiðingu hjá samkyn-
htteigðum?
„Við erum búin að leyfa staðfesta samvist.
Helstu rökin fyrir stjúpættleiðingu eru þau
að það er verið að hugsa um börn þeirra
sem þegar eru í staðfestri samvist. Við erum
ekki að búa til þetta ástand heldur erum við
að gæta að þeirri hugsanlegu réttarstöðu
sem getur komið upp ef eitthvað kæmi fyrir.
Það er ein helsta hugsunin. Það hefur veríð
tekið dæmi sem skýrir þetta ágætlega.
Drengur sem hefur verið alinn upp hjá
tveimur hommum í 14 ár þar sem annar er
pabbi hans og þeir búa saman í staðfestrí
samvist. Segjum að mamma hans hafi verið
inn og út á Kleppi og sinni honum ekki og
hefur ekki talað við hann lengi. Síðan er
pabbi hans kominn með krabbamein og
deyr innan árs. Hver er þá réttarstaða
drengsins? Þegar kominn er þetta langur
tími sem pabbi hans og þessi maður eru
búnir að búa saman þá eru þeir búnir að
mynda einhverjar eignir. Þannig að þetta er
líka erfðarétturinn."
- Af hverju ganga menn ekki skrefið til
fulls og leyfa fólki i staðfestri sambúð að
ættleiða böm?
„Það var ákveðið að gera þetta svona. Svo
er það bara miklu stærri og meiri umræða.
Menn voru sammála um að stíga þetta
skref. Frumættleiðingar eru miklu stærra
mál og allskonar hagsmunir sem koma þar
við sögu. Ef við leyfum það, þá yrði það ein-
göngu að vera beint að Islandi. Ef við heim-
ilum ættleiðingar á börnum til samkyn-
hneigðra erlendis frá, þá þýðir það að það
yrði skrúfað fyrir börn frá kaþólskum lönd-
um, frá Indónesíu og fleiri löndum. Það
mundi einnig þýða að fólk í hefðbundnum
samböndum ætti ekki tækifæri til að ætt-
leiða börn. Þannig að það er algjörlega út úr
myndinni og ekki til umræðu að slíkt yrði
heimilað. I stjúpættleiðingu er verið að
hugsa um þau börn sem þegar eru til staðar
en lengra verður eliki gengið. Eg hef einnig
orðið vör við það í umræðum um þessa
breytingu að margir halda að verið sé að
ganga alla leið. Að mínu mati er eftir hin
upp./sta umræða. Það er sama hvaða skoð-
un fólk hefur á þessu, það má ekki nálgast
þetta á fordómafullan hátt. Samkynhneigð-
ir verða að taka þeim rökum sem andstæð-
ingarnir setja fram og öfugt en ekki vera að
æpa og öskra hvor á annan að hvor um sig
séu fordómafullir."
- Andstæðingar þessa máls halda því
fram að rannsóknir sýni að böm þutfi á
foreldrum afbáðum kynjum að halda til að
geta mótað sér heilbrigða kynferðislega
sjálfsmynd og kynímynd. Hvað finnst þér?
„Það eru líka aðrir sem halda allt öðru
fram. Það virðast vera ýmsar tölur og kann-
anir í gangi sem koma einfaldlega með mis-
munandi niðurstöður. Samkynhneígðir eru
að ala upp börn og það verður að horfa á
hlutina eins og þeir eru. Það er verið að tala
um að börn samkynhneigðra séu samtals á
bilinu 800 - 1200 á íslandi."
- Það em skiptar skoðanir um þetta mál
innan þíns fioklts og m.a. er Árni fohnsen
samflokksmaður þinn á móti þessu og tel-
ur samkynhneigða kynvillinga. Hvað
finnst þér?
„Eg ber virðingu fyrir öllum skoðunum og
það er ekkert sjálfsagt að menn jánki öllu.
Eg tel að þetta sé rétt en Árni hefur aðra
skoðun. Við búum hér í kristnu þjóðfélagi
sem byggir á kristnum gildum og það er ekki
sjálfgefið að samþykkja að tveir af sama
kyni búi saman. Það er gott og hollt fyrir
alla flokka að lenda í því að takast á um sið-
ferðislegar spurningar." - GRH