Dagur - 06.05.2000, Blaðsíða 6
6 - LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Adstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 eioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjaid m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði
Lausasöiuverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar augiýsingadeiidar: [REYKJAV(K)563-1615 Ámundi Ámundason
[REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavík)
Ilraustir inemi
í fyrsta lagi
„Ef átt þú draum, sýndu dáð, rætist hann þá./ Sé tíðin naum,
skaltu taka fastar á.“ Þessar línur úr Ijóði Jakobs Jóhannesson-
ar Smára, Hraustir menn, bergmáluðu um sali Borgarleikhúss-
ins og í sjónvörpum um land allt í flutningi Karlakórs Reykja-
víkur og Ingibjargar Yr Jónsdóttur strax að lokinni ítarlegri og
landsföðurlegri ræðu nýkjörins formanns Samfylkingarinnar
Ossurar Skarphéðissonar í gær. Afar viðeigandi á viðhafnar-
samkomu vegna flokksstofnunar þar sem aðaltilgangurinn er
að byggja upp eina samstæða liðsheild, skapa stemningu og
taka fastar á.
í ödru lagi
Það er ekki hægt að segja að sigur Össurar í formannsslagnum
hafi verið óvæntur. Hins vegar hlýtur það að hafa komið hon-
um sjálfum þægilega á óvart að sjá hversu afgerandi sigurinn
var, en á síðustu dögum höfðu heyrst spár um mun betri út-
komu hjá mótframbjóðanda hans Tryggva Harðarsyni. Engu að
síður eru kemur Tryggvi sterkari út úr þessum slag en hann fór
í hann, og söngur kórsins glumdi enda honum: „Fáið mér karl-
menn sem kunna að falla í krafti hins réttláta máls.“ Þannig að
eins klisjukennt og það kann að hljóma, þá komu báðir þessir
hraustu menn út sem sigurvegarar í formannsslagnum, enda
fólst sigurinn kannski fyrst og fremst í því að hafa fegnið fram
formannsslag og allt það starf og athygli sem honum fylgir.
í þriðja lagi
Glæsileg útkoma Össurar í formannskosningunni mun hik-
laust auðvelda honum forustuhlutverkið. Umboð hans er ótví-
rætt - fyrir því hefur hann nú mælingu, sem hann getur þakk-
að Tryggva Harðarsyni. Forustumálin ásamt því að hafa ekki
verið formlegur stjórnmálaflokkur er það sem samfylkingar-
menn hafa talað um sem meginskýringu á takmörkuðu gegni
sínu til þessa. Hvort tveggja er nú úr sögunni og því er
framundan mikill reynslutími fyrir þessa hreyfingu. Þá fæst úr
því skorið hversu víðtækt erindi flokksins er í pólitík - og hvort
hann muni í raun kalla frá „fjöru til Ijalla til frelsisins orustu
báls“. Birgir Gudmundsson.
Guðjón bak viö tjöldin?
Garri stalst heim úr vinnunni í
gærmorgun til þess að horfa á
beina sjónvarpsútsendingu frá
stofnfundi Samfylkingarinnar,
því hann gerði sér fulla grcin
fyrir því að milljónir lesenda
um heim allan höfðu brenn-
andi áhuga á að kynnast upp-
lifun síns uppáhaldspistlahöf-
undar og við-
brögðum hans
við þessum
tímamótaat-
burði.
Það var við
fyrstu sýn eitt-
hvað fótbolta-
legt við þessa
útsendingu og
andi Guðjóns
Þórðarsonar
virtist svífa
yfir vötnun-
um, rétt eins
og Guðjón
sjálfur væri þarna á bak við
tjöldin. A ræðustólnum mátti
lesa stolinn frasa úr fjölmörg-
um hálfleiksræðum Guðjóns,
sem sé „Jöfnum leikinn í sam-
einingu". Ung söngkona flutti
fótboltalag þar sem fyrsta er-
indið hljóðaði svo: „Líf mitt er
ekki Laugardalsvöllur svo þú
getir leikið þér í fótholta með
tilfinningar mínar“. Og þegar
búið var að kjósa Össur sem
formann, sagði Tryggvi Harð-
arson að nýi leiðtoginn væri
„öflugur og brattur", en það
sama hefur einmitt oft verið
sagt um Gauja Þórðar.
Og Ossur leitaði líka í
smiðju þjálfarans vinnusama
þegar hann hafnaði alfarið
varnarleikaðferðum og mælti
hvatningarorðin sem eru eins
og hrópuð út úr munni Guð-
jóns, sem sé: „Störfum, sækj-
um og sigrum!"
lega mikið af þeim baráttuhug
og þeirri bjartsýni sem ríkti á
þessari samkomu Samfylking-
arinnar. Enda er Garri sannur
sósíaldemókrati eins og reynd-
ar allir menn sem ekki eru
fæðingarfífl og því ekki ábyrgir
gerða sinna og skoðana. Hon-
um þótti að vísu slæmt að
Guðmundur
Arni nennti
ekki að lesa í
heild sinni
kveðjuna sem
fundinum
barst frá fjar-
verandi Jó-
hönnu Sig-
urðardóttur
upp á fjórar
blaðsíður að-
eins. En á
móti kom að
annar kven-
skörungur og
ekki minni pólitísk skarexi,
Glcnda Jackson, steig 1' pontu
og flutti einhverja mögnuð-
ustu og eftirminnilegustu póli-
tfsku ræðu sem Garri hefur
heyrt um árabil á íslandi.
Nýkjörinn formaður Sam-
fylkingarinnar, sem hefur aug-
ljóslega til að bera karakter
leiðtogans, var einnig snjall-
orður í sinni ræðu. En vonandi
hafa Ossur og aðrir Samfylk-
ingarmenn lært það af Glendu
Jackson að stórar hugsjónir og
grundvaliaratriði eiga enn er-
indi í stjórnmálunum, innan
um allsherjartuðið um smáat-
riði sem oftar en ekki tröllríð-
ur hinni pólitísku umræðu á
íslandi.
Garri sendir hinum nýja
flokki góðar óskir og mun að
sjálfsögðu kjósa hann nema
annað komi í Ijós. — GARRI
Pólitískar skaraxir
Morðingjar og nauðgarar
meðal lögmanna?
JÓHANNES
SIGURJÓNS
- f SON
v y SKRIFAR
Víða um heim njóta lögfræðingar
lítillar virðingar og þykja jafnvel
sumstaðar skapa meiri vandamál
en glæpamennirnir. Islenskir Iög-
menn eru hinsvegar að flestra
dómi ágætir menn upp til hópa
og margir þeirra greindir vel og
strangheiðarlegir. Það hlýtur því
að vekja furðu þegar héraðsdóms-
lögmaður ryðst fram á ritvöllinn
og leiðir að því líkum að í hópi ís-
lenskra lögfræðinga sé að finna
marga morðingja og nauðgara!
Alabama íslands??
Lögmaðurinn sem setur fram
þessa nýstárlegu kenningu í grein
í DV s.l. fimmludag, heitir Jón
Sigurgeirsson. Og hann er reynd-
ar ekki að tjalla um kollega sína
undir fyrirsögninni „114 nauð-
garar" heldur um hóp manna á
Húsavík sem skrifaði undir lista
til stuðnings dæmdum nauðgara.
Lögmaðurinn fer mikinn í grein-
inni og hleður upp sleggjudóm-
um. Hann segir m.a. að „stór
hluti manna 1' cinum litlum bæ
úti á landi sýni siðgæðisvitund
sem líkist einna helst
summu siðgæðisvit-
unda forhertra glæpa-
manna“. Og ennfrem-
ur: „Fjöldi nauðgara í
þessu eina máli er því
114. Gerandinn sjálf-
ur og þeir 113 sem
skrifuðu undir. Það er
því Ijóst að eitthvað
meiri háttar er bogið
við siðgæðisvitundina
á Húsavík11. Og lög-
maðurinn klikkir út
með því lýsa Húsavík sem „eins
konar Alabama Islands".
Sérálit
Flestir eru sammála um að birt-
ing undirskriftalístans hafi verið
ósmekkleg og heimskuleg mistök.
En þeir 113 sem skrifuðu undir
hann telja sig ekki hafa verið að
styðja nauðgara. Þcir voru hins-
vegar ekki sáttir við dóminn af
ýmsum ástæðum, með réttu eða
röngu, á það skal ekki
lagður dómur hér. Og
það er ekkert nýtt á ís-
landi að menn séu
ósammála dómum. Og
þá sldla menn séráliti.
113 menningarnir
skiluðu séráliti í þessu
máli, réttu eða röngu.
Og þar með eru þeir
orðnir samsekir nauð-
garanum og nauðgar-
arnir á Húsavík orðnir
114, samkvæmt
sleggjudómi Jóns Sigurgeirsson-
ar. Sleggjudómar almennings í
dómsmálum eru daglegt brauð en
löglærðir ættu að vita betur og
a.m.k varast alhæfingar á borð
við þær að sakfella heilt bæjarfé-
lag og ásaka opinberlega 113
manns, fólk á öllum aldri og af
báðum kynjum, um nauðgun,
sem flestir eru sammála lög-
manninum um að er andstyggi-
legur glæpur.
En það eru íleiri sem skila sér-
áliti cn almenningur. Það er al-
gengt í undirrétti og nánast regla
í hæstarétti. Og sé aðferðafræði
Jóns Sigurgeirssonar beitt á
dómskerfið, þá eru allir þeir dóm-
arar sem skila séráliti í nauðgun-
ar- og morðmálum og mæla með
sýknun eða mildari dómi en
meirihluti dóms leggur til, um
leið sjálfir orðnir morðingjar og
nauðgarar, á sama hátt og þeir
113 sem skiluðu séráliti í nauðg-
unarmálinu á Húsavík. Sá er
dómur héraðsdómslögmannsins
yfir starfsbræðrum sínum.
Og sé aðferðafræði Jóns beitt á
annað sakamál, Geirfinnsmálið,
þá er Ijóst að morðingjar 1' því
máli skipta nú þúsundum sem
telja, með réttu eða röngu, að þar
hafi dómarar kannski ekki komist
að réttri niðurstöðu.
vm'k\
svarad
Hvemig lýstþérá nýjan
formann Samfylhingar-
innar?
(Össur Skarphcðinssonar sigraði í
formannskjöri Sanijylkingarinnar.
Af 4.401 gildu atkvæði fékk Öss-
ur3.363, eða 77,9%, en Tryggvi
Harðarson 9S6, eða 22,1%.)
Steingrímur J. Sigfússon
Vinstrihreyfingwini - grænu framboðL
„Sjálfsagt er að
byija á því að óska
Össuri til ham-
ingju með góðan
sigur, ég trúi því
að hann eigi eftir
að verða frískur
formaður og ná upp nokkurri
stemningu. Hans bíður hinsvegar
erfitt verkefni því Samfylkingin er
Ijarri því samstæður hópur og enn
virðist mikið verk óunnið í að móta
heilstæða stefnu. Að sumu leyti er
nokkuð ljóst hvar Samfylkingin
stendur í litrófi stjórnmálanna, en
í öðrum tilvikum er ágreiningi
stungið undir stól og nefni ég þar
Evrópu- og utanríkismál almennt.“
Sigríður Atiiui Þórðardóttir
Sjálfstæðisfiokki.
bæði flokkur og formaður eftir að
sanna sig fyrir þjóðinni og stilla
saman strengi. Mikill skoðana-
munur er milli margra innan Sam-
fylkingarinnar, svo sem þeirra sem
koma úr Alþýðubandalaginu og
síðan úr hægri armi Alþýðuflokks-
ins. Þetta fólk hefur ólíkar skoðan-
ir á mörgum málum, svo sem Evr-
ópu-, utanríkis- og öryggismálum,
enda fór Össur varlega þegar hann
fjallaði um þessi mál, í ræðu sinni
á stofnfundinum í gærmorgun.
Það segir líka sína sögu að Sam-
fylkingin vildi ekki fara í umræður
um Evrópumál sem fyrirhugaðar
voru á Alþingi sl. fimmtudag, held-
ur bað að þeim yrði frestað fram
yfir hclgi - og þar með stofnfund
sinn.“
Sverrír Hermannsson
Frjálsiynda flokknum.
,Að öðrum ólöst-
uðum ber Össur
af. Hann er rösk-
ur og hreinn og
beinn í fram-
göngu, sem og
manneskjulegur -
og að vera það er stórt orð í mínum
munni. Hinsvegar bíður Össurar
óhemjustórt verk því Samfylkingin
hefur verið afar ósamstæður hópur
sem hefur átt erfitt mcð að fóta
sig, svo sem í Evrópu- og eins fisk-
veiðistjórnunarmálum, þar sem
áhrifin frá stórkvótamanninum
Ágúst Einarssyni hafa verið mikil
og greinileg.“
Guðni Ágústsson
Framsóknatflokki.
„Hann er vígreif-
ur og hressilegur
stjórnmálamaður
og öldur munu
rísa á því urriða-
vatni sem hann
siglir. Pólítíkin
harðnar. Hann á hinsvegar eftir að
sanna fyrir Samfylkingunni og
þjóðinni hvort í honum býr sú al-
vara og festa sem gerir stjórnmála-
rnann að leiðtoga."