Dagur - 06.05.2000, Síða 12
12 - LAUGA II DAGUR 6 . MAÍ 2 000
ÍÞRÓTTIR
L.
Gerplustúlkiir til Fiunlauds
Sautján Gerplustúlkur á aldrinum 14-16 ára taka um helgina þátt í
Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fer í Helsinki í Finnlandi.
Um er að ræða svokallaðan P3 hóp félagsins sem var valinn til að keppa
fyrir Islands hönd á mótinu, eftir góðan árangur á mótum vetrarins.
Finnska fimleikasambandið á 100 ára afmæli á árinu og því verður mót-
ið í ár mjög veglegt og munu átta Iið berjast um Norðurlandameistaratit-
ilinn, en hverju landi er leyfilegt að senda tvö lið til keppni. Lið Gerplu
er skipað eftirtöldum stúlkum: Asdís Þorsteinsdóttir, Björk Guðmunds-
dóttir, Guðrún S. Pálsdóttir, Guðfinna Halldórsdóttir, Hildur Grétars-
dóttir, HrefnaA. Þorkelsdóttir, Inga R. Gunnarsdóttir, Jóhanna Gunnars-
dóttir, Jónína Aðalsteinsdóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, Kristín E. Oskars-
dóttir, Ólöf R. Benediktsdóttir, Sara R. Ágústsdóttir, Silja Agnarsdóttir,
Sunneva Guðmundsdóttir, Valgerður Einarsdóttir og Þuríður Guð-
mundsdóttir. Þjálfarar eru Svetlana Markarycheva, Auður Inga Þor-
steinsdóttir og Ama Þórey Þorsteinsdóttir.
íslandsmót 11-14 ára í júdó um helgina
Islandsmeistaramótið í júdó 11-14 ára fer fram í íþróttahúsinu Austur-
hergi í dag laugardag og hefst kl. 12:00. Keppt er í tveimur aldursflokk-
um karla og kvenna 11-12 ára og 13-14 ára og í níu þyngdarflokkum í
hvorum aldursflokki. Hver glíma mun standa í tvær niínútur og er keppt
eftir reglum alþjóða júdósambandsins, en í gildi eru sérstakar reglur fyr-
ir keppni 14 ára og yngri.
Stórsigur Grindvíkmga
Grindavík, Leiftur, Valur og Fylkir tryggðu sig í fyrrakvöld áfram í und-
anúrslit deildarbikars karla í knattspyrnu. Grindvíkingar unnu 1-5 stór-
sigur á Keflvíkingum á heimavelli þeirra síðarnefndu í nýju Reykjanes-
höllinni, þar sem staðan var 1-2 fyrir Grindvíkinga í hálfleik. Kenvíking-
ar skoruðu þó fyrsta mark leiksins, en það gerði Hjálmar Jónsson á 11.
mínútu leiksins eftir hornspymu. Eftir það tóku Grindvíkingar öll völd á
vellinum og hefði sigurinn getað orðið mun stærri. Mörk Grindvíkinga
gerðu lan Paul McShane og Sinisa Kekic tvö hvor og Zoran Davic eitt.
Grindvíkingar mæta Leiftri í undanúrslitum á mánudaginn, en Leiftur
vann 2-3 sigur á Isv\ í 8-liða úrslitunum í fyrrakvöld. Leikurinn fór fram
á Akureyri og tryggði Brasilíumaðurinn Alexandre Santos sigurinn á síð-
ustu mínútu leiksins. Leiftur komst í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum
Færeyingsins Sámal Joensen og Brasilíumannsins Alexandre Da Silva, en
Pétur Björn Bjarnason jafnaði fyrir KA með mörkum á 75. og 80. mín-
útu og voru bæði skoruð úr vítaspyrnum.
Fylkismenn unnu í fyrrakvöld öruggan 2-0 sigur á Eyjamönnum í Ár-
bænum, þar sem þeir Theodór Óskarsson og Sverrir Sverrisson skoruðu
mörkin. Fylkir mætir Val í undanúrslitunum á mánudaginn, en Valur
vann FH í jöfnum leik á ÁsvöIIum, eftir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni. Staðan eftir venjulegan leiktímavar 1-1, þar sem Hallsteinn Arn-
arson skoraði fyrir FH og Vilhjálmur Vilhjálmsson fyrir Val. I framleng-
ingunni skoruðu liðín sitt hvort markið, Jónas Grani Garðarsson fyrir FH
og Matthías Guðmundsson fyrir Val. Þá var komið að vítaspyrnukeppn-
inni og fór hún 3-1 fyrir Val, þar sem Johan Mills, bandarískur markvörð-
ur Valsmanna, varði þtjár af fjórum vítaspyrnum FH-inga og tryggði þar
með sigurinn.
Úrslitaleíkiiriim í íshokkí
Á morgun, sunnudaginn, fer fimmti og síðasti leikurinn í úrslitaeinvíginu
milli SR og SA í íshokkí fram í Skautahöllinni í Laugardal og hefst hann
kl. 19:00. Staðan í einvíginu er nú jöfn 2-2 , en SA vann fyrsta leikinn 5-
6, SR annan leikinn 2-3, SR þriðja leikninn 5-2 og SA fjórða Ieikinn 6-
3. Það má því búast við að hart verði barist í Skautahöllinni á morgun,
þar sem ýmsum brögðum verði beitt, eins og leggjabragði, rammabragði,
kylfuslætti, hákylfu, krækju og þverkylfu, eins og það er kallað í ís-
•hokkíinu. Við skulum samt vona að minna verði um grófan leik, ofsaleik,
olnboga eða óíþróttamannslega framkomu, sem þó þckkist í þessari karl-
mannlegu íþrótt þar sem ekkert er gefið eftir.
íslandsgliman um helgina
Íslandsglíman 2000 - hið sögufræga stórmót glímunnar fer fram í
iþróttamiðstöðinni Dalshúsum í Grafarvogi í dag laugadag og hefst kl.
14:1 5. Sex kcppcndur eru skráðir til keppni, en það eru þeir Arngeir Frið-
riksson, HSÞ, Ingibergur Sigurðsson, Víkverja, Ólafur Kristjánsson, Vík-
veija, Sigmundur Þorsteinsson, Víkverja, Sigurður Nikulásson, Vfkverja
og Stefán Geirsson, HSK.
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 6. maí
Kappakstur
Kl. 10:55 Formula 1
Tímataka á Spáni.
Handbolti
Kl. 16:30 Þýski boltinn
Kiel - Wetzlar
Fótbolti
Kl. 12:00 Alltaf í boltanum
Kl. 13:45 Enski boltinn
Wimbledon - Aston Villa
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-tilþrif
Fótbolti
Kl. 10:15 Enski boltinn
Man. United - Tottenham
Kl. 18:50 Spænski boltinn
Real Madrid - Alaves
íþróttir
Kl. 16:45 Iþróttir um allan heim
SunTiiid. 7. maí
Kappakstur
Kl. 11:30 Formula 1
Kappakstur á Spáni.
íþróttir
Kl. 21:35 Helgarsportið
Körfubolti
Kl. 12:15 NBA-leikur vikunnar
Akstursíþróttir
Kl. 13:40 Mótorsport
Hestöfl, veltur, tilþrif. Allt sem
tengist bílaíþróttum á Islandi.
Fótbolti
KI. 12:45 ítalski boltinn
Juventus - Parma
Kl. 14:55 Enski boltinn
Liverpool - Southampton
Kl. 17:00 Meistarak. Evrópu
Almenn umfjöllun.
Iþróttir
KI. 18:15 Gillitte-sportpakkinn
Íshokkí
Kl. 18:55 Íshokkí
íslandsmótið í íshokkí. Bein út-
sending frá úrslitaleik SR og SA.
Golf
Kl. 21:30 Golfmót í Evrópu
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
Laugard. 6. mal
■ FÓTBOLTI
Deildarbikar kvenna
Ásvellir í Hafnarfirði
Kl. 10:00 FH - KR
Kl. 14:00 Breiðablik - Þór/KA
I<d. 16:00 RKV - ÍA
Stjörnuvöllur
Kl. 14:00 Stjarnan - ÍBV
■ ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
NM í boccía
Norðurlandameistaramót fatlaðra
í boccía fcr fram í íþróttahúsinu
við Sunnubraut í Kellavík og hefst
með setningu kl. 10:00. Keppni
einstaklinga hefst kl. 11:00 og
úrslit kl. 15:30. Mótið heldur
áfram á sunnudag kl. 1 1:00 með
sveitakeppni. Urslit sveitakeppn-
innar hefjast kl. 14:30.
■ glíma
Íslandsglíman 2000
Íslandsglíman 2000 fer fram í
íþróttamiðstöðinni Dalshúsum í
Grafarvogi í dag laugardag og hefst
kl. 14:15. Áætlað er að keppnin
taki um það bil Idukkustund.
D^ur
Laugardag kl. 14
•ÖSIHtfi • PIXAP
5W7
STQRV
«*sr
STORYofUS
^ Laugard. kl. 20, sunnud. kl. 20
Mánud. kl. 20
RÁÐHÚSTORGI
SÍMI 461 4666 TRX
Laugard. m/ísl. tali kl. 16
Sunnud. m/isl. tall kl. 16
TILBOÐ 300 KR.
Laugard. m/ísl. tali kl. 14
Sunnud. m/ísl. tali kl. 14
Laugard. kl. 18, sunnud. kl. 18
Mánud. kl. 18 TILBOÐ 300 KR.
Laugard. kl. 14 og 16
Sunnud. kl. 14 og 16
Laugard. kl. 18,20 og 22
Sunnud. kl. 18,20 og 22
Mánud. kl. 18,20 og 22
{ Sími 462 3500 * Hótabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
ANNETTt
BENING
áckISK FEGURÐ
AMERICAN BE
FINAL 0ESTINATI0N
Laugard, kl. 22.10
Sunnud. kl. 22.10
Mánud. kl. 22.10
Laugard. kl. 15.40,17.50 og 20
Sunnud. kl. 15.40,17.50 og 20
Mánud. / þriójud. kl. 17.50 og 20
DuLBY